Morgunblaðið - 25.05.1976, Síða 7

Morgunblaðið - 25.05.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAt 1976 7 Kaup á eldra húsnæði Á siSasta þingi vóru samþykktar nokkrar veigamiklar breytingar á lógunum um Húsnæðis málastofnun ríkisins. Ein hinna merkari varðandi lán til kaupa á eldra hús- næði. Heimild til slíkrar lánafyrirgreiðslu var fyrst tekin i viðkomandi lög árið 1970, en þá bundin við 50 m.kr. heildarfjár- hæð. Þessi fjárhæð hefur hækkað siðan, einkum á sl. ári. en nú er horfið frá slikri bindingu. Er gert ráð fyrir þvi að Húsnæðis- málastjórn geri á hverju ári tillögu til félagsmála- ráðherra um þá heildar- fjárhæð, sem hverju sinni er heimilt að veita til kaupa á eldra húsnæði, og ráðherra ákvarði siðan fjárhæðina með hliðsjón af aðstæðum hverju sinni. Þróunin hefur orðið sú ( sumum eldri hverfum Reykjavíkur, að þar hafa litlar eignabreytingar átt sér stað, þann veg, að ýmsar tiltækar þjónustu- stofnánir, s.s. skólar, nýt- ast ekki sem skyldi, þar sem barnafjölskyldur hafa einkum leitað i úthverfin, m.a. vegna þess að lána- fyrirgreiðsla Húsnæðis- málastofnunar hefur eink- um verið bundin við ný- smiði húsnæðis. Hins vegar er mun hagkvæm- ara fyrir þjóðfélagið og borgina, að aldursskipting í hinum einstöku ibúðar- hverfum verði með þeim hætti, að sem bezt nýting fáist á þá fjárfestingu ( þjónustustofnunum, sem fyrir hendi eru; um leið og það er auðveldara fyrir ungt fólk að komast yfir eldra húsnæði, ef lánsfjár- möguleikar væru hlið- stæðir og i nýsmiði. Þá ná þessar lánaheim- ildir nu- til endurbóta á eldra húsnæði öryrkja og aldraðs fólks. Leiguíbúðir sveitarfélaga í hinum eldri lögum um leiguíbúðir vóru takmark- anir á tvennan hátt: annars vegar að þessar framkvæmdir skyldu vera á vegum sveitarfélaga einna og hins vegar að fbúðir skyldu vera leigu ibúðir. Nú hefur orðið á breyting, að því er varðar seinna atriðið. Sölufbúðir koma og inn f þennan lánaramma eftir laga breytinguna. Er þetta gert til samræmis við óskir Sambands íslenzkra sveit- arfélaga, sem hafði farið þess á leit við félagsmála- ráðherra, að slfk breyting yrði gerðá löggjöfinni. í lögunum er nú gert ráð fyrir að veita lán út á ekki færri en 1 50 íbúðir á hverju ári næstu 5 árin eða 750 íbúðir samtals enda sé næg eftirspurn fyrir hendi. Þessi tala er miðuð við að takast megi að Ijúka á þessu árabili áður umsamdri byggingu 1000 „leiguíbúða" í sveitarfélögum, til sam- ræmis við þá fyrirgreiðslu sem veitt var við upp- byggingu Breiðholtshverf- anna f Reykjavík. Þessar íbúðir njóta betri lánskjara en hið almenna lánakerfi Húsnæðismála- stofnunar, þ.e. allt að 80% byggingarkostnaðar. Húsnæðismál aldraðra I upphafiegri mynd frumvarpsins náðu láns- heimiidir til endurbóta á húsnæði einvörðungu til öryrkja. Hins vegar flutti Oddur Ólafsson (S) og fékk samþykkta breyt- ingartillögu þess efnis. að þessi lánafyrirgreiðsla nær nú einnig til ellilif- eyrisþega. Í framsögu með breytingartillögu sinni sagði Oddur m.a.: „Það vita allir hér á hinu háa Alþingi. hvers virði það er að fólk geti búið sem lengst i sinum eigin ibúðum, þvi stofn- analif er bæði óeðlilegt og þar að auki mjög dýrt. Það er áhugamál okkar allra að eldra fólkið geti sem lengst búið við eðli- legar aðstæður i heima- húsum. Nú er það svo, að við það að fólk hættir sinni vinnu þá minnka fjárhagslegir möguleikar þess. En það skeður einnig fleira. Þvi er enn þá meiri þörf en áður að búa í góðu húsnæði, vegna þess að það hreyfir sig minna, og þvi er hættara við að fá margs konar kvilla. En vegna hinna rýrðu tekjumöguleika vill oft verða svo að einmitt viðhaid á húsnæði situr á hakanum. Afleiðingin verður sú að margir, sem komnir eru á efri ár. búa i tiltölulega lélegu hús- næði, húsnæði, sem þó mætti oft endurbæta og gera vel íbúðarhæft með tiltölulega litlum kostn- aði. Þvi er breytingartil- laga min flutt til að reyna að ráða bót á þessum ann- marka." Akranes Kynning á sólarlandaferóum Mallorca Vegna fyrirspurna um hinar vinsælu Úrvalsferðir til sólarlanda í sumar verður Pétur Már Helgason sölustjóri til aðstoðar um val á Urvalsferöum og leiðbeiningar hjá umboði okkar á Akranesi Miövikudaginn 26. maí kl. 13— 17 Pétur FERDASKRIFSTOFAN URVAL Eimskipafélagshúsinu simi 26900 Umboð Ólafur B. Ólafsson Skólabraut 2 Akranesi. Húsbyggjendur Einangrunar- plast lietum afgreitt einangrunarplast á Stór- Reykjavíkursvæðið með stuttum fyrirvara. Afhending á byggingarstað. HAGKVÆMT VERÐ. GREIÐSLUSKILMÁLAR Borgarplast hf. Borgarnesi sími: 93-7370 Kvöldsími 93-7355. ELDTRAUSTIR SKJALASKÁPAR 3ja og 4ra skúffu. SÆNSK GÆÐAVARA E. TH. MATHIESEN H.F. STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919. Hænsnarækt — hrognkelsaveiði Til sölu lítið íbúðarhús, ásamt 40000 fm eignarlandi í næsta nágrenni Reykjavíkur. Einnig til sölu hænsnahús fyrir 2-3000 fugla. Hagstæðir greiðslu skilmálar. IBUÐA- SALAN Cegnt Gamla Bíói sími 12180 Kvöld- ua helgarsími 20199 MA Tvinninn sem má treysta. Hentar fyrir allar gerðir efna. Sterkur — lipur. Óvenju mikið litaúrval. DRIMA — fyriröllefni Heildsölubirgðir: Davíð S. Jónsson &Coh.f.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.