Morgunblaðið - 25.05.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1976
15
Umbætur fyr-
ír Spánarþing
Madrid. 24. maf. AP.
SPÆNSKA ríkisstjórnin lagði í
dag sfðustu hönd á fvrstu umbðta-
tillögu sína af þeim sem boðaðar
hafa verið og undirbjó sig undir
að koma henni gegnum hið hægri
sinnaða þing (cortes) landsins.
Þrátt fyrir nokkra andstöðu
hægri aflanna spá heimildir inn-
an stjórnarinnar þvf að umbæt-
urnar, sem varða fundafrelsi,
verði samþykktar með yfirgnæf-
andi meirihluta.
Á afgreiðslu málsins á þinginu
að vera lokið á miðvikudag f síð-
asta lagi. Þetta er fyrsti meirihátt-
ar prófsteinninn á vilja þingsins
til umbóta frá því Franco einræð-
isherra lézt, og er Juan Carlos
konungur jafnframt talinn leggja
mikla áherzlu á að tillagan verði
samþykkt fyrir opinbera ferð
hans til Bandarfkjanna f næsta
mánuði.
Rússar og Norðmenn
ræða um Barentshaf
Moskvu, 24. maí. Reuter. AP.
i MORGUN, þriðjudag, hefjast í
Moskvu viðræður norskra og
sovézkra ráðherra um fiskveiði-
réttindi á Barentshafi, auðugustu
fiskimiðum Evrópu. Formaður
norsku viðræðunefndarinnar er
Jens Evensen hafréttarmálaráð-
herra Norðmanna og mun hann
tilkynna Sovétmönnum að Norð-
menn leggi til, að 200 mflna fisk-
veiðilögsaga gildi yfir svæðið og
að miðlfna verði mörkuð til
norðurs yfir landgrunnið. Norð-
menn leggja mikla áherzlu á ótta
sinn við ofveiði og vilja gera ráð-
stafanir til að vernda fiskstofn-
ana.
Evensen lýsti því yfir 1. maí sl.,
að Norðmenn myndu fylgja for-
dæmi ýmissa þjóða og lýsa yfir
einhliða 200 milna auðlindalög-
sögu, ef hafréttarráðstefna S.Þ.
næði ekki samstöðu um 200
milurnar sem alþjóðalög.
Sovétmenn hafa verið tregir til
að viðurkenna slíkar einhliða.út-
færslur og hafa viljað bíða eftir
niðurstöðum hafréttarráðstefn-
unnar. Formaður sovézku
nefndarinnar er Alexander
Ishkov fiskimálaráðherra og er
gert ráð fyrir að viðræðurnar
standi i 2 vikur. Norðmenn hafa
sem kunnugt er rætt um 200
mílna útfærslu við ýmsar þjóðir
og er gert ráð fyrir að þeir muni á
næstunni afhenda Frökkum, A-
Þjóðverjum, Pólverjum og Svíum
drög að samkomulagi um fisk-
veiðiréttindi innan 200 mílna við
Noreg.
Þessi mynd var tekin í siðustu viku, er japanska
eldf jallið Sakurajima byrjaði að gjðsa.
Kennedy
ber fram-
boðsfrétt-
ir til baka
New Yurk, 24. maí AP.
EDWARD Kennedy öldungar-
deildarþingmaður sagði f viðtali
við bandarfska vikuritið Time,
sem út kom f dag, að hann hefði
áhuga á að verða forseti Banda-
rfkjanna, en það gæti ekki orðið
núna af fjölskylduástæðum.
Talsmaður Time sagði að viðtal-
ið hefði verið tekið áður en frétt-
in birtist í blaðinu New York
Daily News, þar sem sagt var að
Kennedy myndi gefa kost á sér
sem forsetaefni demókrata, ef
flokkurinn óskaði eftir þvi á
flokksþinginu í New York í júli
nk.
Kennedy neitaði þvi að fréttin
hefðí við nokkuð að styðjast og
staðfesti við Time að afstaða sú er
fram kemur i viðtalinu væri hin
eina rétta.
Viðbrögðin 1 Líbanon
eru áf all fyrir Frakka
París og Beirút. 24. maí. AP Reuter.
FRÖNSKUM yfirvöldum
hefur brugðið mjög við hin
neikvæðu viðbrögð í
Arabalöndunum við tilboði
Valerys Giscard D’Estaing
Frakklandsforseta um að
senda friðargæzlusveitir
til að tryggja vopnahlé
til Líbanon. Talsmenn
Afhenti Spánarkon-
ungi trúnaðarbréf
Madrid 20. maf
Eínkaskeyti
til Mbl. frá AP.
EINAR
Benediktsson, ný-
skipaður sendiherra
islands á Spáni,
afhenti í dag
Juan Carlos Spánar-
konungi trúnaðar-
bréf sitt við hátíð-
lega athöfn i Kon-
ungshöllinni. Sendi-
herrann fór i við-
hafnarvagni til hall-
arinnar. Hann átti
siðan hálfrar
klukkustundar
einkafund með kon-
ungi að viðstöddum
utanríkisráðherra
Spánar, Jose Maria
de Areilza.
frönsku stjórnarinnar
lögðu í dag alla áherzlu á að
undirstrika að Frakkar
myndu ekki blanda sér í
innanríkisdeilurnar • í
Líbanon og aðeins senda
þangað friðargæzlusveitir
að beiðni lögregluyfir-
valda þar í landi og er tal-
ið að þar sé átt við Elias
Sarkis, kjörinn forseta
landsins. Sögðu talsmenn-
irnir, að hlutverk franskra
hermanna hefði eingöngu
átt að vera að tryggja að
vopnahlé héldist, en ekki
að koma því á.
Diplomataheimildir i París
hermdu að Frakklandsforseti
hefði búist við þvf að vinstri-
sinnaðir múhameðstrúarmenn
myndu taka tilboði hans og því
hefðu hin neikvæðu viðbrögð
þeirra komið mjög á óvart.
Franska blaðið Le Monde sagði
hins vegar að forsetinn hefði
undirbúið veginn fyrir tilboð sitt
mjög illa og að þjóðernisviðbrögð
vinstri manna hefðu hlotið að
verða sterkari en andúð þeirra á
ihlutun Sýrlendinga. Franskir
embættismenn létu einnig f ljós
óánægju með neikvæð viðbrögð
vinstri manna í Frakklandi, en
talsmenn kommúnista sögðu til-
boð frönsku stjórnarinnar fall-
byssubátastefnu. Talið er að ein
af ástæðunum fyrir því að Frakk-
landsforseti lagði fram tilboð sitt,
hafi verið ósk um meiri frönsk
itök i Arabalöndunum, einkum
Sýrlandi og Líbanon.
VERKFALLIÐ MIS-
HEPPNAÐ, SEGIR
GRÍSKA STJÓRNIN
Marcos bannaði
vélinni flugtak
Manila, 24. maí. AP.
LJÓST er nú orðið, að
Marcos forseti Filipseyja
hafði gefið yfirmönnum
hersins í landinu fyrir-
skipun um að hleypa
BAC-111 farþegaflugvél-
inni, sem 6 skæruliðar úr
hópi múhameðstrúar-
manna rændu um helg-
ina, ekki í loftið, hvað
sem það kostaði. Sem
kunnugt er féllu 13
manns og 22 særðust, er
skothríð braust skyndi-
lega út um borð í flugvél-
inni og sérþjálfaðir her-
menn réðust að henni.
Talið er að ástæðan fyrir því
að flugræningjarnir hófu skot-
hríðina hafi verið skyndileg
ofsahræðsla, er flugmenn vél-
arinnar og farþegar reyndu að
stökkva út um dyr og neyðarút-
ganga hennar. Þrír flugræn-
ingjanna féllu, er hermenn-
irnir gerðu áhlaupið og 3 særð-
ust. Sprengdu skæruliðarnir
einnig handsprengju í vélinni
og kviknaði þá í henni og hún
brann til ösku. Talið er að 9
farþegar hafi farist í sprenging-
unniog brunanum.
Þetta var 6. flugránið á
Filipseyjum frá því að herlög
voru sett í landinu af Marcosi
forseta 1972, en í hin 5 skiptin
kom ekki til átaka og flugræn-
ingjarnir voru annaðhvort
taldir á að gefast upp eða orðið
var við beiðni þeirra. Síðasta
flugránið var 7. apríl og fengu
flugræningjarnir fjárupphæð
og flugvél til að fara með þá til
Líbýu. Ræningjarnir kröfðust
nú 350 þúsund dollara lausnar-
gjalds fyrir farþegana og lang-
fleygs DC-8 þotu með vönum
flugmanni til að fljúga með þá
til Libýu. Marcos forseti hefur
sakað yfirvöld f Líbýu um að
hafa stutt uppreisnarbaráttu
Múhameðstrúarmanna á Fílips-
eyjum undanfarin 3!4 ár. 83 far-
þegar og 5 manna áhöfn voru
um borð í vélinni er henni var
rænt, en ræningjarnir höfðu
sleppt 4 konum og 9 börnum
þeirra úr vélinni áður en til
átakanna kom. Yfirvöld á
Filipseyjum höfðu hafnað
öllum kröfum ræningjanna.
Aþenu, 24. maí. AP. Rrutrr.
GRlSKA ríkisstjórnin héll þvf
fram í dag, að tilraunir verkalýðs-
félaga til að skipuleggja 2 sólar-
hringa allsherjarverkfall í mót-
mælaskyni við nýja verkalýðslög-
gjöf, sem bannar verkföll af póli-
tfskum ástæðum, hefðu algerlega
mistekist og aðeins 10% af 1.3
milljónum félaga í verkalýðsfé-
lögunum hefðu tekið þátt f verk-
fallinu.
I verkalýðslöggjöfinni er einnig
kveðið á um að 20% af starfsfólki
fyrirtækis haldi áfram störfum ef
til verkfalls kemur. Verkalýðsfé-
lögin höfðu í verkfallsboðun sinni
lagt áherzlu á að verkfallið væri
áskorun á ríkisstjórnina og að. á
framkvæmd verkfallsins gæti
oltið um áhrif verkalýðsins á
stjórnmál landsins næstu ár.
Flestir þeirra, sem tóku þátt i
verkfallinu, voru starfsmenn
banka og erlendra flugfélaga og
varð að loka mörgum bönkum og
flug erlendra flugfélaga til Grikk-
lands lamaðist algerlega. Umræð-
ur um hina nýju verkalýðsmála-
löggjöf eiga að hefjast í gríska
þinginu í kvöld.
ERLENT
20 nýir kardínálar
Yatfkaninu, 24. maf. AP. Reutrr.
PÁLL páfi VI gerði í dag kunn-
ugt, að 20 nýir kardfnálar hefðu
verið útnefndir og tóku þeir við
útnefningu sinni við hátfðlega og
fjölmenna athöfn f Páfagarði í
dag. Mest á óvænt kom útnefning
Trins Nhu Khues erkibiskups af
Hanoi og var honum ákaft fagnað
er hann gekk fyrir páfa til að
hljóta blessun hans og taka við
útnefningunni.
Trin var annar tveggja
kardinála, sem páfi útnefndi í
leyni, og er talið að hann hafi
óttast að Trin fengi ekki farar-
leyfi hjá yfirvöldum i Hanoi, ef
skýrt hefði verið frá útnefning-
unni strax. Taiið er að hinn
kardínálinn sé Frantishek
Tomasek biskup í Prag.
II af 20 kardfnálum eru frá
þróunarríkjunum og með útnefn-
ingu þeirra eru aukin áhrif
þróunarrikjanna í kardínála-
skólanum, sem nú telur 138
manns.
í ræðu sinni gagnrýndi páfi
bæði hin hefðbundu öfl innan
kaþólsku kirkjunnar svo og fram-
faraöflin. sem hann sagði vinna
starfi kirkjunnar mikið ógagn.