Morgunblaðið - 25.05.1976, Síða 16

Morgunblaðið - 25.05.1976, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAl 1976 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreíðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, síir i 10100 Aðarlstræti 6, simi 22480. Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50,00 kr. eintakið. Einar Agústsson ut- anríkisráöherra geröi ríkisstjórninni í gærmorg- un grein fyrir viöræöum þeim, sem hann átti um landhelgismáliö í Ósló í tengslum við ráðherrafund Atlantshafsbandalagsins í síöustu viku, en Geir Hall- grímsson forsætisráðherra tók þátt í þeim viðræðum að hluta til, eins og kunnugt er. Næstu daga munu stjórnarflokkarnir fjalla um þau viðhorf, sem skapast hafa í landhelgis- deilunni við Breta eftir þessar viðræður. Nauðsyn- legt er, að stjórnarflokk- arnir fjalli rækilega um málið og leggi vandlega niður fyrir sér þá valkosti, sem um er að ræða. Af- stöðu til þeirra upplýsinga, sem fyrir liggja um viðhorf Breta nú, verður aó taka meó það í huga, á hvern hátt við náum mestri frið- un fiskstofnanna á fiski- miðunum. Á sl. hausti komu fiski- fræðingar fram með nýjar upplýsingar um ástand þorskstofnsins, sem bentu eindregið til þess að tak- marka yrði mjög sókn í þorskinn á næstu tveimur árum. Undir forystu Matthíasar Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra hef- ur verið gripið til margvís- legra friðunarráðstafana, enda þótt ekki hafi verið gripið til þeirra róttæku aðgeróa, sem fiskifræðing- ar telja nauðsynlegar. Til þess liggja að sjálfsögðu margar ástæður en ein þeirra er sú, að það er afar erfitt að skerða stórkost- lega athafnafrelsi ís- lenzkra sjómanna á meðan fiskveiðar Breta hér við land eru stjórnlausar. Um leið og við næðum stjórn á þeim með samningum um veiöiheimildir þeirra hér við land, mundi gjörbreyt- ast aðstaða íslenzkra stjórnvalda til þess að ná heildarstjórn á fiskveiðum við ísland. Þetta er ein af röksemdunum fyrir því að leita beri friðsamlegrar lausnar á fiskveiðideilunni við Breta. Meðan Bretar veiða hér undir herskipa- vernd rótast þeir um í ung- fiskinum með ófyrirsjáan- legum afleiðingum. í ljósi þeirrar hættu, sem þorsk- stofninn er í, er alveg sér- stök ástæða til að fagna því, að nú virðist sem víð- tækari samstaða geti orðið um friðsamlega skamm- tima lausn landhelgisdeil- unnar vió Breta en stund- um áður. í viðtali við dag- blaðið Vísi í gær lýsir Lúð- vík Jósepsson, formaður þingflokks Alþýðubanda- lagsins, því yfir, að hann telji koma til greina að semja við Breta til skamms tíma um fiskveiðar þeirra hér við land, með vissum skilyrðum. Þau skilyrði, sem Lúðvík setur fyrir slík- um samningum, eru, að þeir renni út í haust u.þ.b. er hafréttarráðstefnunni lýkur og sýnist hann byggja þau tímamörk á því, að þá muni liggja fyrir með einum eða öðrum hætti já- kvæð niðurstaða hafréttar- ráðstefnunnar. Jafnframt telur Lúðvík, að með slík- um samningum væri um að ræða síðustu samninga við Breta um veiðiheimildir þeirra hér við land. Raunar er það svo, eins og bent var á í Morgun- blaðinu fyrir nokkrum vik- um, að Bretar eru nú að afhenda Efnahagsbanda- lagi Evrópu samningsrétt fyrir sína hönd í fiskveiði- málum. Þannig er EBE að taka við samningaviðræð- um við Norðmenn um veiðiheimildir við Noreg og allt bendir til, að í fram- tíðinni muni íslendingar eiga við EBE en ekki Breta sjáífa, þegar EBE hefur fært út fiskveiðilögsögu sína í 200 mílur. Þegar fjallað er um samninga eða ekki samn- inga, er auðvitað ljóst, að þeir, sem eru samninga- leiðinni fylgjandi í grund- vallaratriðum geta haft mismunandi skoðanir á því hvernig standa eigi að samningum og á hvaða grundvelli sé fært að gera samninga við Breta. Ríkis- stjórnin hefur t.d. marg- sinnis lýst því yfir, að ekki komi til greina að taka upp vióræður við Breta nema með tilteknum skilyrðum en eitt þeirra er, að Bretar geri sér skýrari grein fyrir því en þeir hafa gert í fyrri samningatilraunum, að svigrúm íslendinga til samninga er mjög tak- markað vegna ástands þorskstofnsins. Megin- atriðið er, að formaður þingflokks Alþýðubanda- lagsins hefur í grundvall- aratriðum lýst sig fylgj- andi því að fara samninga- leiðina og gera samninga til skamms tíma. Þá verður að ætla að samstaða sé milli allra þeirra stjórnmála- flokka, sem máli skipta, um tvennt: í fyrsta lagi að stefna beri að samningum við Breta og í öðru lagi að þeir samningar verði til skamms tíma. Það er mikill áfangi, sem náðst hefur með slíkri samstöðu helztu stjórnmálaflokka landsins um þessi grundvallaratriði og þess vegna er þess að vænta, að ef reynslan leiðir í ljós, að Óslóarviðræðurn- ar hafi leitt til þess, að Bretar séu nú viðmælan- legir um samninga, sem ís- lendingar geti sætt sig við, geti almenn samstaða orðið um slíka samningagerð, sannkölluð þjóðareining í örlagaríku máli. Þess vegna er sérstök ástæða til að fagna yfirlýsingu Lúð- víks Jósepssonar. Hún boð- ar jákvæðara viðhorf Al- þýðubandalagsins til skyn- samlegrar lausnar fisk- veiðideilunnar en menn hafa átt að venjast. Formaður þingflokks Alþýðubandalagsins fylgjandi samningum Spámaður verður tyggjókúla Vésleinn Lúðvfksson „Þetta er nánast að taka Georg Lukács og blása úr hon- um tyggjókúlu,“ segir Vésteinn Lúðvfksson um vinnubrögð Helgu Kress í nýlegu Skírnis- hefti en þar fjallaði hún um skáldsöguna Gunnar og KjarL an eftir Véstein. I Tímariti Máls og menningar (1. h. 1976) svarar Vésteinn hressilega fyrir sig og upplýsir Helgu m.a. um kenningar spámannsins Lukácsar, en ein aðalheimild Helgu í Skírni er greinarkorn eftir Lukács frá árinu 1938 sem nefnist Es geht um den Realismus. Mikil vísindakona smíðar sér karldjöful heitir grein Vésteins Lúðvíkssonar. Hann kveðst langa til að gera nokkrar at- hugasemdir við grein Helgu Kress „af því mér blöskrar fá- fræði, skilningsskortur og óheiðarleg vinnubrögð höf- undar“. Vésteinn kemst að þeirri niðurstöðu að krafa Helgu eigi sér „hliðstæðu í „fagurfræði" stalínismans" og undrist þá enginn að skuli telja vísindakonuna verðugan arf- taka þeirra Gunnars Benedikts- sonar og séra Péturs í Valla- nesi. Vésteinn er stórorður á köflum, en tekst í grein sinni að afhjúpa fordóma Helgu sem auðveldlega breytast í mann- fyrirlitningu. Það sem skilur á milli þeirra Vésteins og Helgu kemur ef til vill best fram í því að Helga telur konu nokkra djúpt sokkna af því að hún á barn með Bandaríkjamanni af Vellinum. Helga efast um sósíalisma Vésteins, en hann svarar eftirminnilega: „Sá er lélegur sósfalisti sem telur að kona sé „djúpt sokkin" ef hún eignast barn með Bandarikja- manni af Vellinum. Banda- ríkjamenn af Vellinum eru hvorki verri né betri en inn- fæddir. Kona sem eignast barn með Bandaríkjamanni af Vellinum er ekki „dýpra sokkin“ en sú sem eignast barn með íslendingi. Aðrar skoðanir á þessu efni verða ekki fundnar í mínum verkurn.'1 Ljóst er að hér talar skáld- sagnahöfundur, en ekki þræll einhverra stjórnmálastefna. Tyggjókúlan springur, en allír vita að þegar hún springur upp í manni límist hún við varirnar. Ég sé ekki betur en Kristján Jónsson sé að búa sér til rit- deilu við Véstein Lúðviksson í þessu sama Tímaritshefti. Kristján skrifar um Eftirþanka Jóhönnu eftir Véstein og heldur því fram að sagan sé „sálfræðileg skáldsaga, með ónógum skýringum þar sem eitt rekur sig jafnvel á annars horn“. Það kemur enn betur í ljós að skoðanabræður Vésteins eiga erfitt með að sætta sig við verk hans. Ef til vill hefur Skírnisgrein Helgu Kress orðið til að varpa skugga á verk þessa höfundar sem að mínu mati eru með því athyglisverðasta í nýjum íslenskum bókmenntum. Annars má segja að ritdómar séu veikasta hlið Tímarits Máls og menningar. Lengi hefur verið notast við ónýta nt- dómara, sem sumir hverjir eru fullir af gremju og heiftrækni, aðrir ekki í tengslum við sam- timann. Ritstjóranum Sigfúsi Daðasyni verður þó að óska til hamingju með tvennt: Hann skrifar sjálfur að þessu sinni umsögn um 1 túninu heima eftir Halldór Laxness, athyglis- verða grein eins og vænta mátti, og honum hefur tekist að færa Siglaug Brynleifsson úr skarlatsskikkju bókmennta- gagnrýnandans í mölétna flík þjóðmálavandalætarans saman- ber grein hans: Forpokun ör- eiganna — eðlisútmálun sjálf- stæðisflokksins. Halldór Laxness á grein í Tímaritinu. Hún nefnist Fáeinar athuganir um „kristin- réttarákvæði elstu" og hefst á þessum skemmtilegu orðum: „Gaman væri að eiga alþingis- tíðindi frá þeim degi þegar Þor- geir ljósvetníngagoði sálufélagi Einars þveræings, eða var þetta máski sami maður, vaknaði einn morgun á Þíngvöllum við það að hann hafði orðið kaþólskur í höfðinu meðan hann svaf.“ Þessa grein þarf að lesa í næði og íhuga vel, enda eru i henni margar frumlegar athuganir. Ólafur Jóhann Sigurðsson á tvö kvæði í heftinu. Annað þeirra nefnist Um mann og lygna spegla og er hugþekkur skáldskapur eins og bestu Ijóð Ólafs Jóhanns eru. Hitt kvæðið, Um Ijóð, er stefnuskrá og segir meira um skáldskap Ólafs Jó- hanns en sérhver skilgreining. Fyrra erindið er svona: Sem andhlær um þÖKnina lágværir ómar líða þess Ijóðs sem mig dreymdi forðum. en gleymdi að skrifa: f sveiflunni milli (veggja andstæðra tfða titrar það enn í hug mér og herst við að lifa. Þetta er ljóð skálds sem yrkir af nauðsyn. Þrjú ljóð eftir Baldur Óskars- son eru dæmigerð fyrir hinn innhverfa skáldskap hans. Ég held að Baldur hafi orðið fyrir miklum áhrifum frá afstrakt- list eins og Steinn Steinar. Það er einhver galdur í þessum ljóðum sem merkir að þau eru lifuð. Þetta er okkur sýnt heitir ljóð sem hefst svo: Tvfbökur á bakka sem rfs á rönd í fölum bjarma. Og reglustikur. tvfhökur. . . við erum þreytt. — Við erum hætt að spyrja. fig horfi á hönd mfna og rétti fram hönd þína: þú rétlir fram hönd mína og horfir á hönd þína. Með þessu hefti Tímarits Máls og menningar er Sigfús Daóason einn ritstjóri þess. Forvitnilegt veróur að fylgjast meó inn á hvaóa brautir Sigfús beinir ritinu í framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.