Morgunblaðið - 25.05.1976, Side 17
Iflovflimlilnfrift
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAl 1976
17
Hftróitlrl
Hömlur settar á innflutn-
ing k örf nknatt 1 eiksmanna
Páll Júlíusson kjörinn formaðnr KKÍ
PÁLL Júlíusson var kjörinn formaður Körfuknattleiks-
sambands tslands á Ársþingi KKt á laugardaginn. Var
hann sá eini úr fráfarandi stjórn sem gaf kost á sér til
endurkjörs. Fráfarandi formaður KKt var Einar Bolla-
son og hafði hann verið formaður sambandsins þrjú
síðastliðin ár. Núverandi stjórn KKÍ skipa auk Páls
þeir Birgir Örn Birgis, Bogi Þorsteinsson, Haukur Hann-
esson og Guðni Gunnarsson.
Á þinginu var mikið rætt um
hvort leyfa ætti erlendum leik-
mönnum að leika með íslenzkum
körfuknattleiksliðum. Var á þing-
inu samþykkt tillaga sem fulltrú-
ar IR og UMFN báru upp þess
efnis að erlendur körfuknattleiks-
maður yrði að búa á íslandi i sex
mánuði áður en hann fengi að
leika með islenzku liði. Er hér um
greinilegar hömlur á innflutningi
erlendra leikmanna að ræða.
Síðastliðið ár var mjög kostnað-
arsamt fyrir KKl og rekstrarhalli
sambandsins á siðasta starfsári
nam 1200 þúsund krónum. Helztu
kostnaðarliðir KKÍ á siðasta ári
voru þátttaka unglingaliða i mót-
um á Tyrklandi og í Grikklandi.
Þá var á fjárhagsáætlun síðasta
króna gróða af landsleikjum hér
heima, en útkoman varð háifrar
milljón króna tap á landsleikjun-
um.
Atvinnu-
mennirnir
með peyja-
œfingu
í Eyjum
ÞAÐ var mikið fjör hjá yngstu
knattspyrnumönnunum í Vest-
mannaeyjum á sunnudaginn þvi
þá stjórnuðu atvinnumennirnir
snjöllu Ásgeir Sigurvinsson og
Guðgeir Leifsson æfingu hjá 5.
og 6. flokki Týs. Á annað hundr-
að Eyjapeyar mættu á æfinguna
og áhorfendur voru lítið færri en
á leik ÍBV og Völsunga í 2. deild-
inni á laugardaginn.
Guðgeir skrapp fyrir helgina i
heimsókn til Ásgeirs vinar síns og
notuðu þeir tímann í Eyjum m.a.
til að fara út í Hellisey og léku sér
á gumbát í kringum Eyjarnar.
Happaskór
ÞAÐ er oft talað um það f knattspyrnunni að þessi eða hinn hafi verið
á skotskónum og þá átt við að hann hafi skorað mikið af mörkum.
Skórnir sem Valsmaðurinn Guðmundur Þorbjörnsson heldur á á
mvndinni virðast vera hinir mestu happaskór, sannkallaðir skotskór. 1
leik tslands og Noregs f sfðustu viku fékk Ásgeir Sigurvinsson skóna
lánaða hjá Guðmundi, sem hafði keypt þá við komuna til Óslóar. t
skónum skoraði Ásgeir sigurmark fslendinga f leiknum og á laugar-
daginn lék Guðmundur f fyrsta skipti í skónum og skoraði þá eitt mark
gegn Víkingi auk þess sem hann átti mikinn þátt í hinum tveimur
mörkunum f leiknum.
50 metra bringusund telpna:
Gunnhildur Daviðsd. UBK 45.1
Margrét Sigurðard. UBK 45.7
Unnur Brown Æ 46.2
Hrönn Bachmann KR 46.3
Helena Ágústsd. Á 46.6
100 m. baksund karla:
Bjarni Björnsson Æ 1:09.2
Axel Alfreðsson Æ 1:10.0
Hafþór Guðmundss. KR 1:13.3
Þorgeir Þorgeirss. KR 1:19.4
100 m flugsund kvenna:
Þórunn Alfreðsdóttir Æ 1:12.5
Bára Ólafsdóttir Á '1:15.0
Elínborg Gunnarsdóttir 1:15.5
Self.
Vilborg Sverrisdóttir 1:16.8
SH
Hrefna Rúnarsdóttir Æ 1:26.0
100 m skriðsund sveina:
Steinþór Guðjónsson
Self. 1:05.1
Ari Haraldsson KR 1:07.6
IngiÞór Jónson IA 1:08.5
Unnar Ragnarsson
IBK 1:10.4
Svanur Ingvarsson
Self. 1:13.6
200 m fjórsund karla:
Axel Alfreðsson Æ 2:25.6
Árni Eyþórsson Á 2:30.8
Sigurður Ólafsson Æ 2:32.4
Brynjólfur Björnsson Á 2:32.4
Kristbjörn Guðmundsson
SH 2:45.8
100 metra bringusund kvenna:
Sonja Hreiðarsdóttir
UMSN 1:24.9
Elínborg Gunnarsdóttir
1:25.4
Þórunn Magnúsdóttir
ÍBK 1:30.2
Björg Halldórsdóttir
SH 1:30.2
Sólrún Guðmundsdóttir
Self. 1:31.7
4x100 m skriðsund karla:
A-sveit Ægis 3:59.4
Sveit Ármanns 4:21.9
Sveit KR 4:28.8
Sveit SH 4:37.0
Sveit Selfoss 4:55.7
4x100 m bríngusund kvcnna:
Sveit Ármanns 6:06.3
Sveit Selfoss 6:08.2
SveitÆgis 6:12.7
Sveit SH 6:28.5
Þau Þórunn Alfreðsdóttir og Sigurður Ólafsson, sem sjást á myndunum hér fyrir ofan, eiga mesta möguleika sundfólksins á að komast á
Ólympfuleikana og bæði stóðu þau sig allvel á KR-sundmótinu á sunnudaginn. (Ljósm. Friðþjófur).
þar sem bæði Hermann Al-
freðsson og Örn Ólafsson náðu
góðum tima, sömuleiðis Árni
Eyþórsson í 400 metra skrið-
sundi. Athygli vöktu ungmenni
frá Selfossi, Suðurnesjum og úr
Kópavogi á mótinu, en Sveinn
Jónsson, formaður KR, sem af-
henti verðlaun á mótinu, fékk
fá tækifæri til að óska félögum
sinum til hamingju með sigur-
inn.
Helztu úrslit á sundmóti KR
urðu sem hér segir:
400 metra-skriðsund karla:
Sigurður Ólafsson Æ 4:23.2
Árni Eyþórsson Arm. 4:29.0
Bjarni Björnsson Æ 4:36.2
Brynjólfur Björnsson Æ 4:37.2
Hafliði Halldórsson Æ 4:50.3
100 metra skriðsund kvenna:
Vilborg Sverrisd. SH 1:05.1
Þórunn Alfreðsdóttir Æ 1:06.1
Bára Ólafsdóttir A 1:07.3
Olga Ágústsdóttir Á 1:10.0
Sædís Jónsdóttir Self. 1:11.3
100 metra bringusund karla:
Hermann Alfreðss. Æ 1:14.9
Örn Ólafsson SH 1:15.1
Sigmar Björnss. IBK 1:18.2
Hreinn Jakobsson Á 1:19.0
Gunnar Gunnarsson Á 1:21.6
200 m. baksund kvenna:
Bára Ólafsdóttir Á 2:49.9
Vilborg Sverrisd. SH 2:57.9
Guðný Guðjónsdóttir Á 3:07.7
Eittnýtt íslandsmet
en Ólympíulágmörkin
standast enn átökin
EITT nýtt Islandsmet leit dagsins ljós á sundmóti KR f Laugardals-
lauginni á sunnudaginn. Var það f 4 x 100 metra skriðsundi karla, sveit
Ægis bætti eldra metið um tvö sekúndubrot og er nýja metið 3:59.4. 1
sveitinni voru þeir Bjarni Björnsson, Hafliði Halldórsson, Axel Al-
freðsson og Sigurður Ólafsson.
Árangur á mótinu var allgóð-
ur miðað við árstíma og bezta
sundfólkið er greinilega að
komast í góða æfingu þó enn
standist Ólympíulágmörkin öll
átök. Framundan nú er hvíld
hjá þeim sem valin verða í
landsliðið en áttalanda keppnin
I sundi verður i Wales innan
skamms.
Bezta afrek mótsins vann Sig-
urður Ólafsson í 400 metra
skriðsundi, synti hann vega-
lengdina á 4:23.2 og samkvæmt
stigatöflu gefur það afrek 797
stig. Var Sigurður aðeins einu
sekúndubroti frá Islandsmeti
sínu i greininni og er aðeins
tímaspursmál hvenær hann
bætir metið.
Vilborg Sverrisdóttir náði
öðrum beztum árangri sam-
kvæmt stigatöflu og fékk 743
stig, en systkinin Þórunn og
Axel Alfreðsson fengu bæði
706 stig og vakti árangur Axels
í 200 metra fjórsundi athygli en
hann bætti tima sinn i þeirri
grein verulega.
Auk afreksbikarsins var
keppt um þrjá aðra bikara á
mótinu. Axel vann Sindrabikar-
inn í fjórsundinu til eignar þar
sem hann hefur unnið hann í
þau þrjú skipti sem um hann
hefur verið keppt. Sigurður
Ólafsson fékk afmælisbikarinn
sem SSÍ færði Sunddeild KR á
sínum tima til keppni i 400
metra skriðsundi og í 100 metra
skriðsundi kvenna vann Vil-
borg Sverrisdóttir Flugfreyju-
bikarinn i þriðja skiptið í röð.
Af öðrum afrekum er rétt að
nefna 100 m. bringusund karla