Morgunblaðið - 25.05.1976, Síða 20

Morgunblaðið - 25.05.1976, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1976 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAl 1976 21 Leikni Karls það eina Baráttuna 1 um stigin, mörkin ogvatnið fyrri helgi. Þá var barizt um hvern bolta og samleikurinn mjög góöur á köflum. Nú var baráttan í lágmarki og alltaf sótt upp miöjuna þar sem Óskar var yfirleitt einn gegn tveimur Valsmönnum. Gaf þetta að sjálfsögðu ekki góða raun, en þetta er atriði sem ætti að vera auðvelt að laga auk þess sem Stefán Halldórsson, hinn skeinu- hætti framherji Vfkinga, verður væntanlega með í næsta leik. Leikurinn á laugardaginn fór fram við sérstaklega góðar aðstæður, mikill hiti var og sólskin lengst af leiktiman- um og völlurinn í sínum bezta skrúða. Kunnu Valsmenn svo sannarlega að nota sér þessar aðstæður en allt of mikið af tíma Vfkinga fór í karp við dómara og línuverði. Fór það t.d. mun meira í skap Víkinga að þeir máttu ekki fá sér vatn meðan á leiknum stóð. Reyndar var stífni dómara í þessu sambandi furðuleg því þö laga- bókstafurinn segi e.t.v. að ieikmenn megi ekki fá sér hressingu meðan á leiknum stendur þá er það ábyggilega meira í anda íþróttarinnar að leyfa leikmönnum að væta kverkarnar þegar boltinn er ekki f leik. Magnús Bergs svaraði þessu reyndar mjög vel þegar hann spurði Rafn Hjaltalín línuvörð, sem hafði bannað Magnúsi að fá sér vatn, hvort hann vildi ekki að þeir lékju góðan fótbolta. 1 stuttu máli: Islandsmótið 1. deild Laugardals- völlur 22. maí. Valur — Vikingur 3:0 (0:0) Mörk Vals: Hermann Gunnarsson á 73. min., Atli Eðvaldsson á 85. min. og Guðmundur Þorbjörnsson á 89. minútu. Brottvísun: Helga Helgasyni var sýnt rauða spjaldið er hann mótmælti við dómara. Ahorfendur: 1277. Agúst Guðmundsson, Símon Kristjánsson og Árni Guðmundsson í baráttu um knöttinn. Grátlegt að fá ekki bœði stigin” KR-ingar óhressir eftir leikinn við Fram — ÞAÐ var grátlegt að fá ekki bæði stigin í þessum leik, sagði Halldór Björnsson KR-ingurinn járnharði að lokn- um leiknum við Fram á sunnudaginn, en úrslitin urðu 1:1. Er hægt að taka undir þau orð Halldórs að KR hafi verðskuldað sigurinn í Ieiknum því það var aðeins undir lokin, að Framarar veittu þeim verulega mótspyrnu. Texti: Agúst Jónsson. Myndir: Friðþjófur Helgason. KR-liðið er greinilega í mikilli framför um þessar mundir og það er langt síðan leikmenn KR hafa gefið sér tíma til að spila knettin- um í rólegheitum einsog þeir gerðu á köflum i leiknum i fyrra- kvöld. Undanfarin ár hafa KR- ingar gert mun meira af því að sparka en spila. Um Framliðið er það að segja að framlína liðsins er bitlaus og í þeim tveimur leikjum sem liðið er búið að leíka hafa framherjar liðsins varla náð að skapa sér marktækifæri, hvað þá að þeir hafi skorað. Varnarmenn liðsins eru venjulegast mjög traustir en í fyrrakvöld var það aðeins Marteinn Geirsson sem lék sam- kvæmt getu. Aðstæður til knattspyrnuiðk- ana í Laugardalnum um helgina voru mjög misjafnar. Á laugar- daginn mættust Valur og Víking- ur í glampandi sólskini, en á sunnúdagskvöldið var rigning og kuldi i lofti, þannig að það var allt annað en auðvelt að leika góða knattspyrnu. Boltinn skauzt mjög á blautu grasinu og það var mesta furða hvað leikmenn liðanna — sérstaklega KR — náðu að gera í leiknum. Háifdán Örlygsson skoraði fyrsta mark leiksins á 41. mínút- unni. Hafði hann leikið á tvo varnarmenn Fram og skaut siðan þrumuskoti úr vítateignum vinstra megin. Fór knötturinn í hliðarnet Frammarksins, án þess að Árni Stefánsson, sem nú stóð í marki Fram, kæmi við nokkrum vörnum. Á 18. mínútu seinni hálfleiksins tókst Ágústi Guðmundssyni að jafna fyrir Fram og kom markið nokkuð óvænt því eftir gangi leiksins hefði frekar mátt reikna með að KR-ingar skoruðu aftur en að Fram tækis að jafna. Hvað um það, þá misreiknaði Magnús Guð- mundsson markvörður KR horn- spyrnu frá Pétri Ormslev og missti knöttinn yfir sig. Ágúst Guðmundsson tók viðstöðulaust við knettinum og sendi hann í mark KR-inga með föstu skoti. Hresstust Framarar við markið og ríkti nokkurt jafnvægi í leikn- um það sem eftir var þó svo að tækifæri KR-inga væru hættu- legri. Að tveimur umferðum lokn- um hafa KR-ingar hlotið 3 stig 11. deildinni, en Fram er með 1 stig. Halldór Björnsson var bezti maður vallarins framan af og byggði þá upp margar fallegar sóknarlotur fyrir KR-inga auk þess sem hann barðist vel að vanda. Halldór verður ekki með KR-ingum tvo næstu leiki, þar sem hann er á leið til útlanda í sumarfrí. Verður það skaði fyrir KR-inga að missa Halldór úr bar- áttunni. Auk Halldórs er sérstök ástæða til að nefna Ottó Guð- mundsson sem var mjög öruggur í leiknum og hefur sennilega ekki verið betri en um þessar mundir. Af Frömurum var Ásgeir Elías- son lagnastur og gerði marga hluti fallega í leiknum. Marteinn Geirsson var sömuleiðis góður en landsliðsmennirnir Jón Péturs- son og Simon Kristjánsson voru eitthvað miður sin í leiknum. Annars er það ekki vörn Framara sem er höfuðverkur þjálfaranna, heldur sóknin. 1 stuttu máli: Islandsmótið 1. deild, Laugardals- völlur 23. mai. FRAM — KR 1:1 (0:1). Mark KR: Hálfdán örlygsson á 41. mínútu. Mark Fram: Ágúst Guðmundsson á 63. mínútu. Áminning: Engin sem gliaði áhorfendum LEIKMENN jafnt sem áhorfendur höfðu litla ánægju af leik FH og Akraness á malarvellinum í Kaplakrika á sunnudaginn. (Jrhellisrigning var allan leiktfmann og varð hún ekki til þess að bæta knattspyrnuna, sem sjaldan er merkileg á malarvöllunum. Hvort lið fékk 2—3 marktækifæri, sem hugsanlega hefðu getað gefið af sér mark en þar fyrir utan var fátt sem yljaði áhorfend- um nema ef vera skyldi frábær leikur Karls Þórðarson- ar, sem bar höfuð og herðar yfir alla hvað varðaði leikni og spil, þó minnstur væri hann á vellinum. Og lokastað- an, 0:0, verður að teljast sanngjörn eftir gangi leiksins. Áhorfendur þurftu að bíða lengi eftir fyrsta marktæki- færinu. Það kom ekki fyrr en á 31. mínútu. Þetta fyrsta mark- tækifæri leiksins féll í skaut FH, sem hafði fram að þessu átt öllu meira í leiknum. Bezti maður FH, Ólafur Danivalsson, lék upp að endamörkum hægra megin, gaf fyrir markið til Leifs Helgasonar, sem skaut á markið. Davíð Kristjánsson markvörður bjargaði í horn. Og aðeins tveim- ur mínútum síðar fengu FH-ingar sitt bezta tækifæri. Ölafur Danivalsson komst inn fyrir vörn Akurnesinga, vippaði boltanum í háum boga yfir Davíð markvörð svo að hann stefndi i netið. Þarna höfðu allir viðstaddir bókað mark nema Björn Lárusson bakvörður, sem kom nú á fullri ferð og tókst á ótrúlegan hátt að bjarga á mark- línuv Var þetta stórvel gert hjá Birni eins og margt fleira, sem hann gerði i þessum leik. Á 41. minútu fengu FH-ingar enn eitt tækifæri eftir að Davíð markvörð- ur hafði dottið og misst boltann en Jóhann Ríkharðsson skaut yfir af markteig. Þó nokkur töf varð á því að seinni hálfleikur gæti hafizt, því Eysteini dómara fundust áhorfendur þrengja einum um of að vellinum. En þegar hálfleikur- inn byrjaði var meira fjör í hon- um en fyrri hálfleiknum. Nú voru það Skagamenn, sem náðu tökum á miðjunni og sóttu meira. Fengu Skagamenn sitt bezta marktæki- færi á 7. mínútu seinni hálfleiks er Matthías komst einn inn-fyrir vörn FH og skaut góðu skoti að markinu en Ómar markvörður var vel á verði og varði skotið. Myndir: Friðþjófur Helgason. Texti: Sigtryggur Sigtryggsson Hann hélt ekki boltanum og Teit- ur náði að skjóta úr þröngri að- stöðu en boltinn rúllaði eftir marklínunni. Nokkru síðar átti Árni Sveinsson gott skot rétt framhjá og Teitur skaut í stöng á 30. mínútu seinni hálfleiks. Fimm mínútum síðar átti Matthías skalla að marki en bjargað var á marklinu. Eina hættulega upphlaup FH í seinni hálfleik kom á 90 minútu. Skot kom á mark ÍA, Davíð hélt ekki boltanum en Björn Lárusson var sem fyrr á réttum stað og gat afstýrt hættunni. Boltinn barst út að hliðarlínu þar sem aukaspyrna var dæmd á Akraness. Hár bolt- inn var gefinn inn í markteiginn, Ólafur Danivalsson skaut í stöng, boltinn hrökk út til Jóhanns Ríkharðssonar og hann skallaði boltann í netið við mikil fagnaðar- læti leikmanna og áhangenda FH. En sú dýrð stóð stutt línuvörður inn var með flaggið á lofti og dómarinn dæmdi markið af. Línu- vörðurinn sagði eftir leikinn, að hann hefði verið að veifa á rang- stöðu strax þegar aukaspyrnan var tekin. Eftir leikinn mótmæltu FH-ingar því að þeir hefðu verið Ómar Karlsson markvörður FH handsamar boltann, en það er ekki verra að hafa Viðar bakvörð til taks ef eitthvað skyldi fara úrskeiðis. „Okknr sjálf- nm að kenna” LEIKMENN Vikings voru mjög óánægðir me8 dómgæilu Grétars Norðfjörð I tapleiknum i móti Val. Fannst þeim hann hafa verið heldur hagstæður Vatsmönnum og þó þeir kenndu honum ekki um tapið þð vildu þeir meina að hann hefðí ekki gert Víkingunum auð- velt fyrir i þessum leik. Diðrik Ólafsson markvörðui Vikinga var einn fárra leikmanna liðsins, sem var á annarri skoðun. — Mér fannst dómarinn alls ekki dæma þennan leik vel. en hins vegar var hann þeim ekkert hag- stæðari en okkur, sagði Diðrík að leiknum loknum. — Þegar lið byrjar að mótmæla dómum er það segin saga að dómarinn verður á móti þvi og þannig var það I þess- um leik. Það var ekki fyrr en seint i seinni hálfleiknum að dómar Grétars fóru að bitna á okkur og það var okkur sjálfum að kenna. um i Islandsmótinu en ekki voru þeir Guðmundur Þorbjörnsson og Atli Eðvaldsson ánægðir með það að loknum feiknum við Vikinga á laugardaginn. — Blessaður vertu, mörkin I dag áttu að vera mikiu fleiri, sögðu þeir og Atli bætti við að átta stykki hefðu verið nærri lagi - Völlurinn var mjög góður T dag. sömuleiðis veðrið og þegar aðstæðurnar eru svona góðar þá er Valsliðið i essinu sinu sögðu þeir. eftir þvi að nýi grasvöllurinn þeirra i Kaplakrikanum yrði til- búinn. Svaraði hann þvi til, að vonazt væri eftir þvi að völlurinn yrði tilbúinn fyrir næsta heimaleik FH. „Næstu 3 leikir okkar fara frá ð útivöllum en 12. júnt eigum við heimaleik og vonumst við þá til að geta leikiðá grasinu. Þá batnar öll aðstaða og vonandi leikirnir lika," sagði Helgi. Gula spjaldið komið niður en Grétar Norðfjörð lyftir því rauða ( staðinn og Heigi Helga- son verður að yfirgefa völlinn. Diðrik Ólafsson fær þar engu um breytt. „tó er i essmu smu VALSMENN hafa nú skorað 7 mörk i tveimur fyrstu leikjum sin- Grasvöllurinn tilbúinn um miðjan júní” LEIKMENN FH og Akraness voru sammála um það eftir leikinn. að það hefði skemmt mikið fyrir að þurfa að leika á mölinni i Kapla- krika en ekki á grasinu. Mbl. spurði Helga Ragnarsson fyrirliða FH að þvi hvenær mætti vonst Þeir beztu f liðum IA og FH Karl Þórðarson og Ólafur Danivalsson, kljást hér um boltann. rangstæðir, einn Skagamanna hefði staðið á marklínunni en Skagamenn voru aftur á móti vissir um að Ólafur Danívalsson hefði verið innsti maður þegar aukaspyrnan var tekin. Linuvörð- urinn Garðar Guðmundsson var viss í sinni sök og Eysteinn dómari dæmdi markið af án þess að hika. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um frammistöðu einstakra leikmanna. Þeir léku flestir langt undir getu, enda aðstæður til að leika góða knattspyrnu ekki fyrir hendi. Væri óskandi að Hafn- firðingar lykju sem allra fyrst við frágang á grasvelli sínum svo þeir þurfi ekki einir að bjóða 1. deildarliðunum upp á malarvöll, aðstöðu sem ekki á að þekkjast í þeirri deild. Undirritaður hefur þá trú að FH-ingar verði við miðja deild eða þar aðeins fyrir neðan í sumar. í þessum leik var Ólafur Danivalsson bezti maður liðsins, mjög leikinn og fljótur leikmaður en annars er liðið jafnt. Akranes- liðið leikur aldrei vel á möl, og er það vafalaust helzta skýringin á slökum leik liðsins. Framlínu- menn liðsins, Teitur og Matthías, landsliðsmiðherjar, sáust varla og þegar þeir fengu boltann voru þeir alltof seinir að gefa hann frá sér. Á miðjunni bar Karl Þórðar- son af, dansaði eins og ballet- dansari í kringum andstæðingana og reyndi að byggja upp sóknar- lotur með hnitmiðuðum sending- um, en þær fengu alltof oft lélega afgreiðslu. í STUTTU MÁLI: Kaplakrikavöllur, sunnudaginn 23. maí, 1. deild, FH — lA 0:0. Áhorfendur: 626. Áminning: Engin. Það vantar ekki lifið i þessa mynd, Guðmundur Þorbjörnsson virðist hafa náð knettinum, en aðrir á myndinni eru þeir Róbert Agnarsson, Adolf Guðmundsson, Alexander Jóhannes- son og Helgi Helgason. Valur vann allt VALSMENN sigruðu Víkinga örugglega f 1. deildinni á laugardaginn (Jrslitin urðu 3:0, en sá sigur hefði eftir gangi leiksins átt að verða enn stærri. Valsliðið lék þennan leik mjög vel og skapaði sér mörg tækifæri, sem ekki nýttust. Vfkingsliðið lék leikinn hinsvegar langt undir getu og það var aðeins fyrstu 15 mínútur leiksins að leikmenn Víkings höfðu undirtökin í leiknum og léku þá svipaða knattspyrnu og gegn Fram um fyrri helgi. Það tók Valsara 73 mínútur að skora fyrsta markið og var Hermann Gunnarsson þar að verki. Mínutu síðar var Helga Helgasyni vísað af leikvelli og léku Vlkingar 10 það sem eftir var leiksins. Bættu Valsmenn þá enn við yfirburði sfna í leiknum og gerðu þeir Atli Eðvaldsson — víta- spyrna — og Guðmundur Þorbjörns- son tvö seinni mörk Valsmanna. Víkingar voru betri aðilinn upphafsmínútur leiksins, en Vals- menn áttu einnig góðar sóknarlotur en voru of seinir að skjóta að marki Víkinganna þannig að varnarmenn höfðu tima til að trufla þá. Eftir því sem leið á leikinn náðu Valsmenn betri tökum á miðju vallarins, stutta spilið þeirra blómstraði og skiptingar á milli kanta gerðu usla í vörn Vfk- inga. Víkingarnir sóttu hins vegar of mikið upp miðju vallarins og þó Ósk- ar Tómasson ætti góðan leik þá mátti hann sín ekki gegn margnum. Beztu tækifæri fyrri hálfleiksins áttu Guðmundur Þorbjörnsson er hann skaut óvænt úr þröngu skáfæri, en Diðrik náði að verja. Haraldur Haraldsson átti skalla rétt yfir og loks má nefna skot Guðmundar Þorbjörns- sonar eftir hornspyrnu, en Ragnar Gfslason bjargaði á marklínu. DREGUR TIL TlÐINDA Seinni hálfleikurinn var til muna líflegri en sá fyrri og kom fyrsta markið á 28. mínútu hálfleiksins, en það hafði lengi legið i loftinu. Hin hættulega þrenning f framlfnu Vals, Hermann Gunnarsson, Guð- mundur Þorbjörnsson og Kristinn Björnsson, stóð að tilurð marksins, sem var mjög skemmtilegt. Kristinn gaf góða sendingu inn á Guðmund, sem sendi fyrir markið og þar var Hermann óvaldaður. Kunni hann sitt fag og skoraði af öryggi upp í þaknet- ið. Texti: Ágúst Jónsson Myndir: Friðþjófur Helgason Á leiðinni frá búningsherbergjun- um að loknu leikhléi hafði Hermann reyndar sagt við Diðrik að hann yrði til að skora fyrsta mark leiksins. Lýsti Hermann þvf síðan fyrir Diðriki að hann skyti af stuttu færi fyrir ofan hann vinstra megin og þó að Dirik snerti knöttinn yrði það ekki nóg til að stöðva hann. Markið kom síðan nákvæmlega eins og Hermann hafði lýst þvf!!! Annað markið skoraði síðan Atli Eðvaldsson á 40. mínútu hálfleiksins eftir að Adolf hafði brugðið Guðmundir Þorbjörnssyni innan vita- teigs. Skoraði Atli af öryggi úr vfta- spyrnunni. Síðasta orðið í leiknum átti Guðmundur Þorbjörnsson en hann hafði verið mjög ógnandi allan leikinn. Kristinn gaf góða sendingu á Hermann, sem gaf fyrir markið og Guðmundur þakkaði fyrir sig með því að bæta við þriðja marki Valsmanna. BASLI I BASLI Eins og áður sagði var Helgi Helga- son, öðru nafni Basli, rekinn af velli f seinni hálfleiknum, nánar tiltekið á 75. mínútu leiksins. Atvikaðist það þannig að Alexander hafði brotið á Helga, sem lfkaði það miður vel þar sem ekkert var dæmt. Gerði Helgi sér lítið fyrir, sneri sér að Alexander og gaf honum vel útilátið spark í legginn. Grétar Norðfjörð dómari var nærstaddur og gaf hann Helga um- svifalaust gula spjaldið. Sagði Helgi þá eitthvað á þá leið að þetta var ekki hægt og sjálfsagt hefur hann eitthvað bölvað líka. Greip Grétar þá til rauða spjaldsins og Víkingarnir léku 10 það sem eftir var EINS OG SVART OG HVlTT Urslitaleikur Víkings og Vals í Reykjavfkurmótinu og þessi leikur eru eins og svart og hvítt. Þá börðust Víkingar grimmilega og náðu tökum á miðju vallarins. Nú voru það Vals- menn sem réðu þessum hluta vallar- ins og var ekki nokkur spurning hvor- ir væru betri. Hermann Gunnarsson var bezti maður Valsliðsins f þessum leik ásamt þeim Guðmundi Þor- björnssyni, Atla Eðvaldssyni og Magnúsi Bergs. Sá síðastnefndi þurfti reyndar að velja á milli að leika þenn- an leik og að vera viðstaddur útskrift stúdenta úr MR á laugardaginn. Valdi Magnús að leika leikinn og fá heldur stúdentaskírteinið síðar. Um Víkingana er það að segja að þeir voru eins og aðrir menn f saman- burði við leik þeirra gegn Fram um

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.