Morgunblaðið - 25.05.1976, Side 39

Morgunblaðið - 25.05.1976, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1976 39 Héraðsvaka Rangæinga: Fjölskylduhátíð á Hvolsvelli HÉRAÐSVAKA Rangæinga verður haldin í Félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli laugardaginn 29. maí. Vandað verður til vik- unnar eftir föngum og reynt að gera hana þannig úr garði að hún verði skemmtun fyrir alla eða eins konar fjölskylduhátíð. Helztu skemmtiatriði verða kór- söngur og munu bæði Samkór Rangæinga og Kór Rangæinga- — Landhelgis- deilan Framhald af bls. 40 verði að veiða innan 200 milna fiskveiðilögsögunnar, en Bretar dragi til baka bæði freigátur og Nimrod-þotur sínar. Þá segir Reuter jafnframt að rætt sé um að hugsanlegt samkomulag gildi til septembermánaðar, en þá sé jafnframt gert ráð fyrir að niður- staða fáist af hafréttarráðstefn- unni. Á miðunum hefur i þrjá sólar- hringa verið svarta þoka og því hefur bæði verið erfitt fyrir togarana að athafna sig, svo og freigátur og varðskip. Varðskipið Ægir klippti þó í gær á annan togvír Fleetwoodtogarans Jachinta FD 159 27 sjómilur suð- austur af Ingólfshöfða. Togararn- ir, sem nú eru um 40, hafa flutt sig talsvert sunnar en þeir hafa áður verið og var enginn að veiðum fyrir norðan Hvalbak í gær. Ekki var ljóst, hve margar freigátur voru á miðunum, vegna þess hve þokan var svört og var því ekki ljóst hvort Leander hefði farið heim eftir áreksturinn við varðskipið Ver á laugardag. Sam- kvæmt upplýsingum Gunnars Ólafssonar hjá Landhelgisgæzl- unni var talið víst að hann yrði að fara heim, þar eð stefni freigát- unnar var svo mikið laskað, en hún var nýkomin úr 4ra mánaða klössun eftir skemmdir á íslands- miðum. Skemmdir á Ver urðu talsverðar á stjórnborðshlið skips- ins og rifnaði stór flipi úr skipinu aftan við brúna. Beyglaðist og stýrishús skipsins. Káeta 3. stýri- manns á Ver skemmdist og bað- klefi. félagsins í Reykjavik koma fram. Þá mun ungur og efnilegur hljómlistarmaður. Guðmundur Magnússon frá Mykjunesi, leika á píanó. Einnig verða flutt ávörp, sýnd kvikmynd, vísnaþáttur og fleira til skemmtunar. Að lokum leikur hljómsveitin Glitbrá fyrir dansi. Búizt er við fjölmenni á héraðsvökuna eins og raun varð á vorið 1975 er slík samkoma var haldin í fyrsta skipti. — Meginlands- menn Framhald af bls. 40 hitt er svo annað að það að frysti- húsin uppi á landi skuli gera þetta er rýtingsstunga i bakið á húsunum hér. Við vitum að frysti- húsin hér hafa oft viljað borga meira fyrir hvert fiskkiló en húsin uppi á landi, þegar þau mál hafa verið til umræðu á sameigin- legum fundum frystihúsamanna, en svo eru frystihúsamenn hér ekki einu sinni komnir heim þegar hinir fara að yfirbjóða þá. Þetta nær auðvitað engri átt í raun og veru að þessi spákaup- mennska geti átt sér stað, því maður myndi fremur sætta sig við verðið samkvæmt óhagstæðu mati ef slíkt gengi yfir alla línuna. Hins vegar má geta þess að það er mun meiri humarafli nú en s.l. ár og jafnframt mun meiri fiskur í fiskitrolliö." — Stórfelt smygl Framhald af bls. 40 arensen rannsóknarlögreglumað- ur að rannsókninni. í samtalinu við Mbl. benti Haukur Guðmundsson á að Krist- ján Pétursson hefði í greinum í fjölmiðlum bent á, að nauðsyn hefði verið á þvi að rannsaka starfsemi tollgæzlunnar með það í huga, að á undanförnum árum hefði sannast að mjög mikið magn smyglvarnings hefði borizt inn í landið þrátt fyrir öfluga tollgæzlu í landinu. Hafi Kristján siðast rit- að grein um þetta mál i vetur. Hins vegar virtist engin slík rann- sókn hafa farið fram, þrátt fyrir ábendingar. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Ég er sextán ára gamall og hef verið alinn upp á trúuðu heimili.Eg vil ekki hegða mér eins og flestir hegða sér, en ég vil ekki heldur vera neinn sérvitringur. Hvernig á ég að fara að? Ef til vill kallar sumt fólk þig sérvitring, af því að þú lifir ekki eins og það. Shakespeare flutti ágæta predikun, þegar hann sagði: „Vertu sannur við sjálfan þig, og því fylgir eins og nóttin fylgir deginum, að þú verður ekki ósannur við aðra.“ Ungt fólk hneigist til að semja sig að siðum hópsins, sem það umgengst. Það tileinkar sér sið- gæði og hegðun félaga sinna. Þetta stafar auðvitað af vanþroska þess og af því að það kann ekki að dæma sjálft um hlutina og taka ákvarðanir. Þú segist ekki vilja hegða þér eins og flestir gera. Það sýnir, að þú ert farinn að þroskast. Það þarf ekki svo að fara að þú verðir kallaður sérvitringur. Ungt fólk svipast um eftir öðru ungu fólki, sem getur veitt því leiðsögn og kennt því hvernig það eigi að lifa. Ef þú segir því ekki frá sannfæringu þinni og breytir samkvæmt henni, þá hverfur það aftur í ,,f jöldann“ og þeirra lifshátta, sem hann temur sér. Kynórar og siðleysi eru ekki alvarlegasta synd unga fólksins nú á dögum. Sú synd er mest, að það lifir tilgangslausu lifi. Heimurinn í kringum okkur stendur bráðum í björtu báli, og samt sinnir unga fólkið ekki tækifærunum og hlustar ekki á kallið til að bæta heiminn. Þú getur orðið leiðtogi félaga þinna. Hefstu handa í stað þess að láta aðra stjórna þér. THE OBSERVER TIIE OBSERVER THE OBSERVER THE OBSERVER Röm — Vió Via Botteghe Oscure í hjarta Rómaborgar er bygging, sem sker sig lítt frá öðrum þar í grenndinni nema hvað skraut- leg veggspjöld með hini'm kunnu táknum hamri og sigð, svo og hvatningu um samein- ingu verkamanna, draga að sér athygli þeirra sem leið eiga hjá. Það er þarna, sem Kommún- istaflokkur ítaliu gerir áætlan- ir um væntanlega þátttöku i ríkisstjórn eftir áratuga bar- áttu. Takmarkið virðist í aug- sýn. Horfur eru á, að eftir þing- kosningarnar 20. júní næstkom- andi verði endi bundinn á þriggja áratuga valdatíð kristi- legra demókrata, að minnsta kosti hafa líkurnar aldrei verið eins sterkar frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Því fer fjarri, að kommúnist- ar boði valdatöku sína með gif- uryrðum og loforðum um stór- fenglegar umbætur. Helztu víg- orð þeirra er „útrétt hönd“ gagnvart öllum lýðræðisöflum, sem beiti sér í sameiningu gegn því, að ríkið rambi fram af helj- arþröminni. Þeir fjölyrða um bræðralag, jafnvægi i alþjóða- málum, mannlega sæmd og sameiginlegar byrðar. Og með eðlilegu stolti benda þeir á ýmsa harðlínumenn úr herbúð- um sinum, sem farið hafa með stjórn allmargra bæja og hér- aða í landinu um langt árabil og tekizt það með miklum ágæt- um. Þeir viðurkenna fúslega, að komizt þeir til valda á einhvern hátt geti það skapað margs kon- ar erfiðleika í þjóðfélaginu. Ihaldsemi sé ríkjandi hjá milli- stéttinni og rómversk-kaþólsku kirkjunni, og menn óttist að rauður fáni muni blakta yfir borginni eilífu. Einnig geti það vakið ótta á alþjóðavettvangi, að þátttaka kommúnista i rikis- stjórnum breiðist út, ef vel tak- ist til á ítalíu. Eru þetta með- fram ástæðurnar fyrir því, hversu málflutningurinn frá aðalbækistöðvunum við Via Botteghe Oscura er hófsamur, allt að því hughreystandi og á lítið skylt við hávær baráttu- hróp kommúnista. Það eru engir smákarlar, sem stjórna áróðursherferð komm- únista í þesari mikilvægu kosn- ingabaráttu. Fyrir utan kunna flokksbrodda svo sem Renzo Trivelli, Giancarlo Pajetta og Paolo Bufalini má telja rithöf- undana Alverto Moravia og Paolo Volpini, Franco Ferraroti þjóðfélagsfræðing og Nino Pasti fyrrum hershöfðingja í flughernum. Þessir menn hafa tekið höndum saman til að hindra í framkvæmd áætlun- um, sem ógerningur hefur reynzt að koma í kring í fyrri kosningum á ítalíu. Helztur þrándur í götu þeirra á erlendum vettvangi eru Bandaríkin. Stjórnin í Wash- ington hefur ekki látið sann- færast um að þátttaka komm- únista í ríkisstjórn á Ítalíu geti falið i sér lausnina á hinum tröllauknu vandamálum lands- ins. Sendimenn hennar á Ítalíu fylgjast með framvindu kosn- ingabaráttunnar af vaxandi áhyggjum og tíunda ýmsar haldbærar ástæður fyrir því, að „hin útrétta hönd“ kommúnista gæti borið dauðann i sér. ítalskir rauðliðar reyna að ríkja- menn Svo virðist sem aðaláhyggju- efni Bandaríkjamanna sé varn- armál italíu. Þeir segja, að tveir eða þrír ráðherrar komm- únista í rikisstjórn italíu gætu stórlega skaðað varnarhags- muni landsins. Enda þótt kommúnistar hafi ekki lýst yf- ir, að þeir muni segja skilið við Atlantshafsbandalagið í snatri, eru fremur litlar líkur til að þeir vilji verja miklu fé til starfsemi bandalagsins. Og flokksmenn hafa ekki farið í launkofa með það. Sergio Segre, sem er helzti talsmaður flokksins í utanríkismálum, hefur hreinskilnislega lýst þeirri skoðun sinni og flokks- ins, að landið hafi ekki ráð á kostnaðarsömu hernaðarbrölti, þar sem gengi lírunnar sé lágt og landið þarfnist umfram allt þjóðfélagslegra umbóta. Italir eTu stofnaðilar Atlants- hafsbandalagsins. Þeir eiga að- ild að kjarnorkuráði bandalags- ins og í landinu hafa Banda- ríkjamenn umsjón með 1.500 kjarnorkuhleðslum. Á Ítalíu er eina heimahöfn sjötta flota Bandarikjamanna. Bandaríkja- menn hafa áhyggjur af því, að „hin útrétta hönd“ kommúnista kunni að hrófla eitthvað við þessari mikilvægu skipan. Kommúnistar hafa hins veg- ar lagt síaukið kapp á að sýna Bandaríkjamönnum vinsemd. Þeir eiga oft viðræður við bandaríska sendifulltrúa á ítalíu og hafa sótt heim þing- menn og ýmsa embættismenn. i þessum viðræðum fjölyrða þeir mjög um, að engin ástæða sé til að óttast, og þeir segja, að Atl- antshafsbandalagið sé þýðing- armikið til að viðhalda valda- jafnvægi á meginlandi Evrópu. En ef verulega dragi úr viðsjám milli austur- og vesturveldanna siðar meir, megi taka það til athugunar að leysa hernaðar- bandalögin upp. Bandaríkjamenn hafa illan bifur á þessum orðalagi „síðar meir“. Þeim er mjög tamt, að lita á Kommúnistaflokkinn sem Mtir Juliet Pearee náinn bandamann Rússa, og telja þvi varhugavert, að þeir fái sæti i ríkisstjórn . eins stærsta aðildarríkis Atlants- hafsbandalagsins í Evrópu. Þar að auki eru þeir ekki trúaðir á, að sundurleit þjóðstjórn sé vel fallin til þeirrar sterku forystu, sem Ítalir þurfa svo mjög á að halda. En þótt þeir fegnir vildu. geta þeir ekki bent á neina aðra haldbæra lausn. Kristilegir demókratar hafa farið mjög halloka vegna hneykslismála, dugleysis og spillingar. Árið 1948 nutu þeir fylgis 48.5% af þjóðinni, en fylgishrunið er orðið slíkt, að í síðustu þing- kosningum höfðu þeir aðeins rúmlega 35% heildaratkvæða- magnsins. En kommúnistar hafa aftur á móti stöðugt unnið á. Árið 1953 hlutu þeir 22.6% atkvæðamagns, en í júní sl. voru það 33.4% þjóðarinnar, sem veittu þeim stuðning. Umfram allt er það óttinn við, að aðrar þjóðir fari að dæmi Ítala, sem hefur gagntek- ið Bandaríkjamenn. Ef komm- únistar komast í stjórn og „hinní útréttu hönd“ tekst að vinna umtalsverð afrek, hvað mælir þá gegn því, að kommún- istar í Vestur-Evrópu vaxi al- mennt i áliti og að vinsældum. ítalskir kommúnistar reyna stöðugt að hughreysta banda- rísk stjórnvöld og með ágætum rökum. Þeir leggja áherzlu á stjórnsemi sína, lýðræðislega hefð og ekki er þeim sízt tíðrætt um, hversu óháður flokkurinn er Moskvuvaldinu. Þeir hafa sýnt áhuga á velferð landsins og geta státað af flokkskerfi, sem er heiðarlegt og laust við spillingu, en slíkt geta afar fáið stjórnmálaflokkar á Italíu. Enrico Berlinguer talar um „lýðræðislegan kommúnisma í Evrópu“ sem virðist vera fyrir- bæri mjög áþekkt því, sem Tékkóslóvakar reyndu að þróa upp á sínum tíma, en sovézkir skriðdrekar kæfðu i fæðing- unni. Félagar Berlinguers hafa ýmsir haft orð á þörfinni fyrir sterkara Efnahagsbandalag, sem væri öflugri málsvari fyrir sameiningu Evrópu en það er nú. Flokkurinn virðist höfða til ólíkra hópa af ólíkum ástæðum við þessar kosningar. Hann er hörðum baráttumönnum tákn sjálfrar byltingarinnar, en þorri ítala, sem er þreyttur og þjakaður á ástandi landsmála. bindur þær vonir við hann. að hann komi á og viðhaldi lögum og reglu, sem þjóðin hefur brýna þörf fyrir. Á meðan áróðursvél komrn- únista hefur stöðugt vaxandi áhrif á fólk, verja hægri öflin milljörðum af margfallinni líru til hatrammrar baráttu, sem miðar að því að viðhalda hefð- hundnum lifnaðarháttun. Ítala. En andspænis þeim vandamál- um, sem þjóðin hefur átt við að glima að undanförnu, hefur lít- ið gagn verið í fornum hefðum, og það er almennt álitið, að ný samsteypustjórn mið- og vinstri flokka gæti enn magnað það ófremdar- og kreppuástand, sem ríkir á italiu. Og italska þjóðin hefur fengið sig full- sadda af kreppu í hvaða mvnd sem er. THE OBSERVER THE OBSERVER THE OBSERVER THE OBSERVER

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.