Tíminn - 22.05.1965, Síða 14
LAUGARDAGUR 22. maí 1965
14____________________________
VÍNVERÐ
Framh aí Dls 16
2. í samningi Félags framreiðslu
manna við Samband veitinga- og
gistihúsaeigenda, segir svo í 1.
gr. samningsins:
„Framreiðslumenn og bar-
menn taka ekki kaup frá atvinnu-
rekanda, en fá þóknun frá við
skiptamönnum fyrir starf sitt, skal
sú þóknun vera 15% miðað við
verð veitinga til almennings."
Enginn ágreiningur getur verið
um það, að verð Það sem áfengis-
verzlunin hefur ákveðið á víni að
viðbættum 10%, sem framreiðslu
menn innheimta fyrir veitinga-
menn af gestunum er verð það,
sem almenningur greiðir fyrir
vínveitingar og að framreiðslu-
mönnum ber 15% þjónustugjald af
þeirri upphæð, eins og samning
urinn segir til um.
PILTAR,
EF ÞID EIGID UNHUSTUNA /æS 7 á
ÞÁ Á ÉG HRINOANA /W/ / *'■
/7<f<rfrrr*er/ 8 v
klenzk frímerki.
fyrstaciaesumslöa.
Erlend frímerki
Innstunaubækur
VerfSlistar o m fl
FRÍMERKJASALAN
LÆK.OARGÖTU 6a
T*RU L0 F U N AR
HRINGIR
AMTMANN SSTÍG 2
1
HALLDOK KRISTINSStm
anllsminui — Simi
HJÓLBARl>« V UK.ERUIH
Opið alU das»
(líka 'ausardaea og
sunnadaea
frá kl .jl* tll 22
(iUMMÍVlN MUSTOt AN n.I
Sklpholt *í> Kcvkjavík
Slml I895S
3. Loks skal það tekið fram,
að í öllum nágrannalöndum okkar
fá framreiðslumenn þjónustugjald
af söluskatti og öðrum sköttum
sem veitingamenn greiða.“
Blaðið snéri sér til Ólafs Stef
ánssonar í dómsmálaráðuneytinu,
og sagði hann, að þetta máþ kæmí
ráðuneytinu vissulega við, þar sem
hér væri um ólöglega hátt verð
að ræða. Áfengisverzlunin gæfi
út gjaldskrá, sem selja ætti vín
eftir, að viðbættu þjónustugjaldi
og söluskatti, og væri það hið
leyfilega söluverð á veitingahús-
um.
Ólafur sagði, að ráðuneytið
myndi væntanlega taka ákvörð
un um, hvað gera skuli í máli
þessu á mánudaginn, Þegar borizt
hefðu skýrslur um málið frá
eftirlitsmönnum.
Svo getur farið að veitingahúsa
eigendur, sem bera ábyrgð á því
að reglum áfengislöggjafarinnar
sé fylgt, verði beittir viðurlög-
um, eða söluleyfi tekið af þeim,
ef þessi gjaldskrá verður notuð
áfram.
EIMSKIP
Framhalú af 1. síðu
meðlimirnir voru ekki allir mætt
ir á þeim fundi.
Þrátt fyrir að hlutabréfamálið
hafi ekki komið fyrir aðalfund
félagsins, þá er enn möguleiki á
að félagið geti selt bréfin, og þá
án efa hæstbjóðanda. Stjórnin
getur selt hluta af þessum bréf
um sínum í FÍ án þess að aðal-
fundur samþykki söluna, telji hún
það vera hagsmunamá) fyrir Eim
skipafélagið.
í lögum Eimskíp má finna í
fyrsta kafla, þriðju grein, um
nafn, heimilisfang, og tilgang fé-
lagsins, eftirfarandi: „Tilgangur
, félagsins er að reka siglingar, að
j allega milli íslands og annarra
' landa og við strendur íslands. Enn
! fremuí. .að,, ^eka.-ifivigCerðii-. éf
henta þykir í félagi við aðra“.
Þetta gefur glögglega til kynna
að félagið vill taka alhliða þátt í
samgöngumálum, og þar af leið-
andi væri það ósennilegt að það
seldi öll sín hlutabréf í FÍ, þrátt
fyrir hin góðu tilboð. Eins og fyrr
greinir þá má vera, samt sem
áður, að Eimkip vilji selja um
helming hlutabréfanna, eins og
það lét í skína í janúar s. 1.
Meðal hluthafa sem sátu þenn
an fund var Örn Ó. Johnson, for-
stjóri FÍ, og að fundinum loknum
spurðu blaðamenn hann hvort
hann væri ánægður að málið
hefði ekki verið tekíð fyrir. Örn
sagðist ekki vilja ræða um málið,
og að hann væri á fundinum „sem
einn af hluthöfunum".
í stjórn 'félagsins eiga nú sæti
þeir: Einar B. Guðmundsson, for
maður, Birgir Kjaran, Thor R.
Thors, Pétur Sigurðsson, Jón
Árnason, Halldór H. Jónsson, og
Árni G. Eggertsson (fyrir V-íslend
f inga). Loftur Bjarnason, forstjóri;
baðgt undan endurkjöri.
FIRMAKEPPNI
Framhald af 2. síðu
Kópavpgi hlaút fyrstu verðlaun en
Freyr 11 vetra rauðstjörnóttur
Kolbrúnar Kristjánsdóttur keppti
fyrir fyrirtækið. Önnur verðlaun
hlaut Sportvöruverzlun Búa Pet-
ersen, en fyrir hana keppti Prett-
ur átta vetra rauðstjörnóttur, eig i
; andi og knapi Margrét Johnson.
Þriðju verðlaun hlaut Desa h.f.,
en gæðingurinn var Léttir 14
vetra brúnn, eigandi og knapi
Rósmary Þorleifsdóttir.
Þorlákur Ottesen skýrði við
þetta tækifæri frá því sem efst
er á baugi hjá Fák um þessar
mundir en það er framtíðarsvæði
fyrir félagið um 70 ha. land, sem
því hefur verið úthlutað skammt
frá grjótnámi bæjarins í Selási,
ofan við gömlu veiðimannahúsin
við Elliðaárnar. Er ætlunin að
þar rísi á næstu 10 árum hesthús
fyrir eitt þúsund hesta, auk ann-
arra mannvirkja í sambandi við
þau, svo sem skeiðvöllur með allt
að 2000 metra hlaupabraut, æf-
ingahús og fleira. Búið er að
byggja yfir 335 hesta við gamla
skeiðvöllinn, en hestaeign Reyk-
víkinga eykst stöðugt og lætur
nærri að um 100 hestar hafi bæzt
við á ári hverju nú um nokkur
ár. Er því nauðsynlegt fyrir fé-
lagið að hefja byrjunarfram-
kvæmdir á nýja staðnum, svo að
hægt sé að taka á móti öllum
þeim hestum, sem Reykvíkingum
bætast á næstu árum. Þorlákur
sagði það nú æ algengara að lax-
veiðimenn færu yfir í hesta-
mennskuna, þar sem laxveiðarnar
eru orðnar svo óheyrilega dýrar,
og hestamennsku er þar að auki
hægt að stunda allan ársins hring.
Kostar úthaldið á einum hesti nú
orðið um sjö þúsund krónur á ári
og er þá reiknað með járningu,
fóðrun og hagagöngu, samsvarar
það tveim dögum í góðri laxá hér
á landi.
beri byggingarnar þess glögg
merki að ekki hafi verið leitað
sem skyldi til sérfróðra manna um
byggingu sjúkrahúsa. Slíkt leiðir
oft og hefur þegar leitt til aug-
ljósra mistaka, sem mátt hefði
komast hjá, ef betur hefði verið
unnið.
í ýmsum löndum starfa verk-
fræðifyrirtæki með sérþekkingu á
sjúkrahúsabyggi-ngum og telur
fundurinn eðlilegt að til einhverra
slíkra fyrirtækja verði leitað áður
en lengra er haldið.
3. Fullvíst má telja að Land-
spítalinn verði hér eftir sem hing-
að til aðalathvarf Háskólans til
kennslu læknastúdenta. Óbyggt er
hins vegar yfir þá starfsemi Há-
skólans, kennslu- og vísindastörf
sem eðlilegt e að eigi að mestu
aðsetur á aðalkennsluspítalanum.
Með núverandi skipulagi telur
fundurinn að eðlileg hlutdeild
Læknadeildar Háskólans í væntan-
legum áætlunum og byggingum á
Landspítalalóðinni sé á engan
hátt tryggð og telur að miklum
mun nánara samstarf milli fyrr-
nefndra aðila verði að taka upp
til þess að endanlegar bygginga-
ákvarðanir verði sem giftudrýgst-
ar.
TÓMATAR
Framh. af bls. 16.
eina uppskera kemur um mitt
sumar.
Verðið á tómötunum verður hið
sama nú og í fyrra, samkvæmt
upplýsingum Eiríks. Þá sagði
hann einnig, að búast mætti við
gróðurhúsagulrótum á markaðinn
nú næstu daga, en salat og persíl
hafa verið á markaðinum nú um
alllangt skeið og sömuleiðis agúrk-
urnar, eins og kunnugt er.
HANDRITIN
Framhald aí 1. síðu.
síðustu þingmennina á síð-
ustu stundu.
Geir sagði, að mikið
væri skrifað um handrita-
málin í blöðin í Danmörku
þessa dagana, en lítið nýtt
kæmi fram í þeim skrifum.
MÆÐRADAGURINN
Framhald « 2 síðu
fullorðinna kvenna, sem ekki hafa
lengur nein börn á framfæri sínu.
Dvalardagar voru 2503. Mæðurn-
ar eru venjulega 12 í einu, og
koma fjórir hópar yfir sumarið
auk eins hóps fullorðinna kvenna.
I ráði er að hefja í sumar bygg
ingu viðbótarálmu að Hlaðgerðar-
koti, en í henni verða 10 herbergi.
Teikning liggur fyrir, frá því
heimilið var teiknað í upphafi, en
ekki er útséð um það enn, hvort
starfskraftur fæst til byggingar-
innar. Mikil nauðsyn er þó að
þessi bygging verði fullgerð sem
allra fyrst, þar sem ekki er hægt
að anna öllum þeim eftirspurnum,
sem eru eftir dvöl að Hlaðgerðar-
koti á hverju sumri.
ALMANAK
^ramhalci al 16 síðu
vægu gjaldi, samkvæmt upp
lýsingum bankans. Dagatalið
er framleitt hjá fyrirtækinu
Anderson & Sons. Inc. West-
field Mass, í Randaríkjunum.
ÞAKKARÁVÖRP
Innilegar kveðjur og þak'kir. sendi ég öllum þeim er
sýndu mér vinarhug á afmæli mínu 17. maí s.l. með heim
sóknum gjöfum og símskeytum.
Júlíana Sigurðardóttir, Borgarnesi.
FELAGSMERKI
Framh aí bts 16 1
Stjórn Læknafélags Reykjavík-,
ur skipa nú dr. Gunnlaugur Snæ-1
dal formaður, Jón Þorsteinsson •
og Tómas Á. Jónsson, en fram-:
kvæmdastjóri er Árni Þ. Árna-|
son viðskiptafræðingur. Hér fer j
á eftir álitsgerð samin af sjúkra- ;
húsnefnd félagsins, en hún var
samþykkt á aðalfundinum.
1. Með tilliti til þess að mikill
skcrtur hefur verið og er enn á
sjúkrarúmum í landinu og einnig
með tilliti til þess að unnt hefði
verið af tæknilegum ástæðum að
ljúka byggingum sjúkrahúsanna í
Reykjavík á aðeins broti þess
tíma, sem í þær hefur farið, átel-
ur fundurinn þann seinagang,
sem orðið hefur á þessum fram-
kvæmdum. Einkum vill fundurinn
benda á, að jafnframt því, sem
vitað er um sjúkrarúmaskortinn
er eigi að síður á ári hverju veitt-
ur til bygginganna aðeins lítill
hluti þess fjár, sem þörf er á til
að ljúka þeim. Slika afgreiðslu
á bráðu vandamáli telur, fundur-
inn lýsa allt of miklu skilnings-
leysi heilbrigðisyfirvaldanna og
fj árveitingavaldsins.
2. Fundurinn telur að undirbún
ingsvinnu við sjúkrahúsin hljóti
að hafa verið mjög ábótavant og
KÍSILIÐJA
ic )i i síðu
dæluhúsinu að þeim stað sem verk
smiðjuhúsið sjálft verður reist á.
Verða það átta tommu víðar stál-
pípur. Einnig verður fenginn
dæluprammi á Mývatn og dælir
hann leðjunni í geyminn við dælu
stöðina og verða fengnar með
honum 500 metra langar stálleiðsl
ur af álíka sverleika og leiðslurn-
ar í landi.
Halldór kvað dæluprammann,
dælur og leiðslur allt fengið frá
hollenzka fyrirtækinu IHC, sem
smíðar mikið af þess háttar tækj-
um. Dæluhúsið og leðjugeymirinn
við það verða smíðuð hér heima.
Það er Almenna byggingarfélagið,
sem mun hafa yfirumsjón með
framkvæmdum nyrðra í sumar.
Halldór kvað áætlað að hefja til-
raunadælingar úr vatninu og alla
leið upp að fyrirhuguðu verk-
smiðjuhúsi.
Pétur Jónsson kvað von á mönn
um norður um mánaðamótin til
að hefja undirbúning fyrstu fram-
kvæmda. Hann kvað dælustöðina
verða reista við svokallaðan Helga
vog, sem er um einn og hálfan
kílómetra frá Reynihlíð. Pétur
kvaðst telja, að bændur við Mý-
vatn óttuðust ekki skemmdir á
vatninu, þrátt fyrir kísilgúmámið.
Kísiigúrinn yrði tekinn á grunnu
vatni, þar sem silungur væri
ekki, og þar eð dælan sogaði að
sér væri ekki talin ástæða til að
óttast að vatnið gruggaðist mikið
upp, enda yrðu sérstakar varúðar-
ráðstafanir gerðar, ef ástæða
þætti til.
SURTSEYJARFÉL.
Framhald ai 16 síðu
vísindamenn og áhugamenn á
sviði líffræði og jarðvísinda, sem
starfað hafa við rannsóknir í
Surtsey. Á stofnfundi voru þess-
ir kjörnir í stjórn félagsins: Steín-
grímur Hermannsson, formaður,
Aðalsteinn Sigurðsson, Eyþór
Einarsson, Finnur Guðmundsson,
Guðmundur Sigvaldason, Sigurður
Þórarinson og Þorbjörn Sigurgeirs
son. Til vara: Guðmundur Pálma
son, Sturla Friðriksson og Unn
steinn Stefánsson. Samþykkt var
á stofnfundinum að bjóða prófess
or Paul S. Bauer frá ameríska há
skólanum í Washington að vera
heiðursfélagi, en hann hefur sýnt
Surtseyjar-rannsóknum sérstaka at
hygli og veitt mikið fé til Þeirra,
nú samtals 10 þúsund dollara.
Þá er þess að geta, að Surts- ;
eyjarfélagið vinnur að því í sam
ráði við Björgunarfélag Vest-
mannaeyja að koma upp húsi í
Surtsey og mun byggingarefni
þegar komið til Eyja. I
BORGARMÁL
r-ainhald af 7. síðu
ár hefði verið unnt að taka við
öllum í skóiann, sem sótt hefðu
um hann. í fyrra hefði tala nem
enda þar verið 359 og árið áður
335. í sumar væri gert ráð fyrir
að hægt yrði að taka á móti 450.
Spurningu um það.hvort 12
ára stúlkum yrði veittur aðgang-
ur að skólanum á sama hátt og
12 ára drengjum, sagði borgar-
stjóri, að nefnd Vinnuskólans
hefði rætt og athugað það mál,
en ekki hefði þótt fært að gera
það enn. Loks sagði borgarstjóii,
að um 50 piltar innan við 16
ára aldur yrðu teknir í bæjar-
vinnuna í sumar.
Kristján Benediktsson þakkaði
svörin og benti á, að aðsókn
virtist hafa minnkað að skól-
anum síðustu ar, en nú yrðu borg
aryfirvöld að vera við því bú
in, að aðsóknin ykist að nýju
Til þess bentu allar líkur, að
aðsókn yrði meiri í sumar og
færi síðan vaxandi aftur.
Kristján sagði, að nefnd hefði
unnið að rannsókn á sumarvinnu
unglinga og skilað áliti. Hefði hún
m. a. bent á nauðsyn þess að
koma á námskeiði fyrír verkstjóra
og leiðbeinendur Vinnuskólans,
þjálfa fólk til þess að veita ungl-
ingum þessa leiðsögn. Þetta Þyrfti
að verða. Fyrir Vinnuskólann
væru næg verkefni, og þau störf,
sem unglingar leystu þar af hendi,
væru mjög þörf fyrír borgina.
Kristján sagðist þgrma það,
að ekki skyldi hafa þótt fært enn
að stíga það skref að taka 12 ára
stúlkur í skólann. Mikil þörf væri
á því. Kvaðst hann hafa lagt fram
tillögu um þetta í fyrra, en hún
hefði verið höfð að engu, og sæi
hann varla ástæðu til þess að
leggja hana fram aftur nú. Svo
virtist, sem beinlínis væri reynt
að draga úr aðsókn að Vinnuskól-
anum með því að halda skóla-
aldrinum innan allt of Þröngra
takmarka, en verst væri að ekki
skyldi tekið á móti 12 ára stúlk
um í skólann. Nú yrði borgin að
búa sig undir stefnubreytíngu í
þessu máli, gera ráð fyrir mikilli
fjölgun á næstunni og rýmka til
um aldurstakmarkið. Jafnframt
yrði að búa leiðbeinendurna sem
bezt undir starfið.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Framhald af 9. síðn
og því mikil slysahætta þar. Leið
22, Austurhverfi, fer nú aðeins
inn að Réttarholtsvegi, og verður
því til lítilla nota fyrir þá. sem
innar búa.
Ástæða virðist engin fyrir lokun
Tunguvegar og hentugra að út-
hluta lóð við götuna en á henni,
nóg er plássið. Lokunin veldur
ýmsum töfum og erfiðleikum fyrir
þá, er búa innst í Sogamýrinni,
og skora ég því á bæjaryfirvöldin,
að opna götuna aftur og hafa hana
í framtíðinni opna niður á Miklu-
brautina. ea