Morgunblaðið - 27.06.1976, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JUNÍ 1976
Varðarferðin:
Á tólfta hundrað
manns í 24 bifreiðum
VARÐARFERÐIN, sem
um árabil hefur verið ár-
legur viðburður, er farin í
dag. Klukkan 08 leggja af
stað 24 langferðabílar frá
Sjálfstæðishúsinu við Bol-
holt og eru þátttakendur á
12. hundrað manns. Benda
líkur til þess að þessi Varð-
arferð verði sú fjölmenn-
asta, sem nokkru sinni hef-
ur verið farin, að því er
Vilhjálmur Vilhjálmsson
tjáði Mbl.
Svo sem þegar hefur ver-
ið skýrt frá verður fyrst
ekið á Þingvöll, en þaðan
um Gjábakkaveg til Laug-
arvatns og til Skálholts. Þá
verður ekið að Stöng í
Þjórsárdal og þaðan að Sig-
öldu, þar sem mannvirkin
verða skoðuð. Frá Sigöldu
verður haldið í Galtalækj-
arskóg og ráðgert er að
ferðafólkið komi til
Reykjavíkur á milli klukk-
an 21 og 22 í kvöld.
7--------
Eru
þeir að
fá 'ann
■
Flóka
Veiði hófst í Flóku 18. júní.
Veiðimenn í fyrsta hollinu urðu
lítið varir við lax, og var veiðin
eftir því, — þó veiddu þeir tvo
silunga. Þeir sem þá tóku við
sáu hins vegar nokkuð af laxi
og á mánudag veiddist sá fyrsti.
Utlitið er því allþokkalegt í
Flóku í sumar. Þess má geta að
í fyrra veiddust 613 laxar i
Flókadalsá og var það melveiði.
Reykjadalsá
Þar hófst veiði á sunnudag-
inn var. Veiðin var ekkert lak-
ari en yfirleitt gengur og gerist
þar fyrst á vorin og frá þeim
sjónarhóli urðu menn ekkert
fyrir vonbrigðum. Hins vegar
er venjan sú að ekkert veiðist
þar í vertíðarbyrjun. Þessar
fréttir frá Reykjadalsá í
Borgarfirði eru því alveg eftir
uppskriftinni. Yfirleitt gengur
sáralítið af laxi í ána fyrr en
upp úr miðjum júlí og fyrir
kemur eins og t.d. í fyrra
sumar, að laxinn sýnir sig lítið
fyrr en í ágúst, hvað sem því
veldur.
„Sjálfstæðara starf ungl-
ingareglunnar á Islandi”
,,ÞAÐ ER mitt álit að unglinga-
reglan eigi að starfa sjálfstæðar
en hún gerir innan bindinis-
hreyfingarinnar," sagði Hilmar
Jónsson stórgæzlumaður ung-
lingastarfsins í samtali við Mbi. á
Stórstúkuþingi. ,,Ég tel,“ hélt
Konan látin
KONAN, sem lenti í bflslysi á
Ártúnshöfða s.l. þriðjudagskvöld
og slasaðist alvarlega, lézt á gjör-
gæzludeild Borgarspítalans í
fyrrinótt. Konan var 49 ára gömul
og búsett í Mosfellssveit. Ekki er
hægt að birta nafn hennar fyrr en
eftir helgi.
hann áfram, ,,að við eigum að
byggja starfið upp á sama grunni
og Stórstúkan, en hins vegar að
unglingastarfið eigi að skipa veg-
legri sess til framkvæmda og
ákvörðunar en gert hefur verið.
Fjarri því að það sé eðlilegt að
slíta á nokkurn hátt tengslin
þarna á milli, heldur ráðast með
meiri hraða og öðrum vinnu-
brögðum í unglingastarfið. Við
stöndum eða föllum með erinda-
rekstri og samt sem áðir höfum
við engan fastráðinn starfsmann,
en innan unglingareglunnar eru
um 3500 félagsmehn, og þar fyrir
utan eru íslenzkir ungtemplarar
með yfir 1000 félaga i 10 félög-
um“.
Shell hreinsar bíl-
rúður en Esso ekki
í VERÐAKVÖRÐUN á bensfni
er tekið tillit til um 20 liða, en
langstærsti hlutinn af verðinu,
eða um 60%, fer til ríkisins.
Einn liðurinn er álagning olfu-
félaganna og ýmis þjónusta f
sambandi við afgreiðslu á
bensíni og olfum. Morgunblað-
ið hafði samband við Olfufélag-
ið Skeljung og Olfufélagið hf.
og spurði hvaða þjónusta væri á
boðstólum við afgreiðslu á
bensfni og olfum til bfla, en
reyndin hefur verið sú, að lftill
hluti viðskiptavina olíufélag-
anna hefur vitað um þá þjón-
ustu sem boðið er upp á.
Böðvar Kvaran sölustjóri hjá
Skeljungi sagði að ef menn
bæðu um ákveðna þjónustu
væri hún veitt, svo sem olíu-
tékkun, áfylling á vatnskassa
og rúðusprautu, hreinsun á
framrúðu og fleira smávægi-
legt, sem er fastur liður á fiest-
um bensfnstöðvum í Evrópu.
„Aður var þetta þannig," sagði
Böðvar, „að það voru sérstakir
menn í þessu og þeir gættu að
ákveðnum atriðum á bílnum,
en síðan fór þetta úr föstum
skorðum. En þessi þjónusta er
til staðar ef menn biðja um.“
Hjá Olíufélaginu varð Þórar-
inn Þórarinsson sölumaður fyr-
ir svörum. Hann kvað bensínaf-
greiðslur Olíufélagsins sinna
oliutékkun á vél, vatnskassa- og
rúðusprautuáfyllingu, en hins
vegar kvað hann framrúður
bíla ekki hreinsaðar þótt beðið
væri um. Þórarinn benti einnig
á að fyrr á árum hefði þessi
þjónusta verið reynd sem fast-
ur liður, en hún hefði ekki ver-
ið vinsæl á íslandi þá. Allskon-
ar kvartanir hefðu borizt svo
sem að rúður væru rispaðar
o.fl., en þess má geta að á flest-
um bensinstöðvum Evrópu er
þessi þjónusta fastur liður og
rúðuhreinsun og öllu er lokið á
meðan verið er að fylla geyma
bílsins.
• Áhöfnin eins og hún var skipuð f gærmorgun: f.v. E. Newbald Smith, sonur hans Lewis Smith,
hjónin Toby og Paula Garfield, sem fara af f Reykjavík og fara í ferðalae um Island, annar sonur
Smiths, Henry Lane og Orlin Donaldson. (Ljósm.: Mbl. Friðþjófur).
Einn kemur þá annar fer
í hreindýrsleiðangrinum
• EINN kemur þá annar fer er ‘
reglan sem gildir hjá áhöfninni
á skútunni Hreindýri, eða Rein-
deer, frá Fíladelfíu í Banda-
rikjunum sem kom inn á
Reykjavíkurhöfn um kl. 3 í
gærmorgun. Þau eru sjö alls, en
áhöfnin tekur hins vegar breyt-
ingum frá áfangastað til
áfangastaðar. Þetta er rann-
sóknaleiðangur sem að standa
haffræðideild Delawereháskóla
og eigandi skútunnar, E. New-
bald Smith. Að því er einn úr
áhöfninni, Orlin Donaldson frá
New York, tjáði Morgun-
blaðinu, er útsendarar þess
gerðu leiðangursmönnum rúm-
rusk í gærmorgun, eiga tveir
leiðangursmenn að koma til
móts við skútuna í Reykjavík,
— koma flugleiðis frá Banda-
ríkjunum, en þrír af hinum
gömlu fara af hér.
Verkefni leiðangursins er að
taka haffræðileg sýnishorn.
Þau lögðu upp 24. maí frá Fíla-
delfíu en voru 11 daga á
leiðinni frá Nýfundnalandi til
íslands og hrepptu þrívegis fár-
viðri með þeim afleiðingum af
tvö segl hafa rifnað og fokið
veg allrar veraldar. Af þeim
3000 mílum sem þau eiga að
baki hafa þau þó siglt aðeins
um 100 á vélarafli en skútan
sem er 43 feta löng, smíðuð í
Finnlandi 1969, er með dísel-
vél. Að sögn Donaldsons, sem
er ljósmyndari að starfi verða
þau hér í Reykjavík fram á
þriðjudag en þá er ferðinni
heitið til Noregs, — Bodö,
Tromsö, Hammerfest; síðan er
• Hreindýrið í Reykjavfkurhöfn.
það Svalbarði, Jan Mayen og
aftur til íslands i kringum 9.
ágúst. Þar sem nýr skipverji
kemur um borð á Siglufirði og
þau vonast til að verða komin
aftur til Bandaríkjanna fyrstu
vikuna í september.
Þau voru hin hressustu yfir
ferðinni, en hér í Reykjavík
ætluðu þau fyrst og fremst að
þvo þvottinn sinn, og dytta að
fuilkomnu ratsjár- og miðunar-
kerfi bátsins, sem einnig er
búinn ýmsum þægindum, —
meira að segja litlum arni. Þess
má geta að Hreindýrið og eig-
andi þess, Smith, hafa ýmsar
langar siglingar að baki og
Smith hefur t.d. orðið annar í
hinni frægu Bermudakeppni.
Stjórn SUS:
Oryggishagsmunir einir ráði
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi ályktun frá stjórn
Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna:
„Stjórn Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna vill að gefnu tilefni
Itreka þá stefnu sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur fylgt frá komu
varnarliðsins, að öryggishags-
munir einir verði látnir ráða því,
hvort hér dvelst erlent varnarlið.
FJÓRIR unglingspiltar 14 og 15
ára stálu í fyrrinótt bíl í Breið-
holti. Sást til þeirra á Miklubraut
og hóf lögreglan þá þegar eftirför.
Elti hún drengina upp Heiðar-
gerði, þar sem drengirnir stukku
út úr bílnum en í hamaganginum
láðist þeim að setja bilinn í gír og
setja handhemílinn á.
Jafnframt vill stjórnin vara við
hverjum þeim tengslum, sem gert
gætu þjóðina efnahagslega háða
áframhaldandi herstöðvum.
Stjórnin lýsir því andstöðu við
þær hugmyndir, sem skotið hafa
upp kollinurn að undanförnu að
bandaríska varnarliðið verði látið
borga með sér.
Bandaríska varnarliðið er hér I
þágu íslenzkra öryggishagsmuna,
Afleiðingin varð sú að bifreiðin
rann aftur á bak um leið og
drengirnir höfðu yfirgefið hana.
Rann hún á lögreglubilinn og
skemmdust báðir bilarnir. Tveir
piltanna náðust skömmu siðar á
bilskúrsþaki i nágrenninu. Þeir
voru að sjálfsögðu allir réttinda-
lausir.
auk þess sem herstöðvarnar eru
framlag okkar til sameiginlegs
öryggiskerfis Atlantshafsbanda-
lagsins. Framlög til varnarmála
eru einn stærsti útgjaldaliður
allra okkar bandalagsþjóða. Is-
lenzku þjóðinni er þess vegna
ekki sæmandi að reyna að hafa fé
út úr þátttöku i varnarsamstarfi,
sem þjónar íslenzkum hagsmun-
um. Gildir þar einu, hvort rætt er
um beinar leigugreiðslur eða fjár-
mögnun innlendra framkvæmda,
þar sem varnarþörfin er einungis
höfð að yfirvarpi.
Öryggismál landsins verða að
vera í stöðugri endurskoðun. En
stjórn Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna leggur áherzlu á, að
þjóðin haldi þannig á málum sín-
um, að hún verði sjálfráð gerða
sinna þegar sú stund rennur upp,
að vera erlends varnarliðs sé
Framhald á bls. 47.
14 og 15 ára stálu bíl