Morgunblaðið - 27.06.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JUNI 1976
7
EIN af ritningargreinunum,
sem við lærum i Bibliusögum
barnaskólans og fermingar-
undirbúningi, nefnist Gullna
reglan. Jesús mótaði hana í
þessum orðum: Allt, sem
þér viljið, að aðrir menn
gjöri yður, það skuluð þér
og þeim gjöra. Mig langartil
að hugleiða hana hér i dag.
Til er saga frá því um 30
árum fyrir Krists burð, sem
segir frá því, að heiðingi
nokkur hafi komið til
Schammaí, sem var einn af
lærifeðrum Gyðinga, og heit-
ið honum að taka Gyðinga-
trú, ef hann gæti sagt honum
aðalefni lögmálsins, meðan
hann stæði á öðrum fæti.
Schammaí brást reiður við og
rak hann burt með harðri
hendi. Þá fór heiðinginn til
Hillels, sem einnig var þekkt-
ur lærifaðir, og ýmsar
kenningar hans eru þekktar
enn þann dag í dag. Hann
gerði Hillel sömu boð sem
hinum fyrri. Hillel svaraði:
Gjörðu ekki neinum það,
sem þú vilt ekki, að þér sé
gjört. — Það er allt lögmálið.
Hitt er skýring. Far og lær
það.
Þarna birtist Gullna reglan
okkur í neikvæðu formi og
þannig var hún þekkt víðar
fyrir Krists daga, t.d. bæði
hjá Konfúsíusi og Plató. En
mikill munur er á, hvort
reglan er í neikvæðu eða
jákvæðu formi, hvort aðeins
er varast að vinna öðrum
mein eða lagt kapp á að
verða þeim til góðs eftir því
sem hægt er.
Fátt gerir okkur betur
Ijósan muninn á Kristi og
öðrum trúarbragðahöfund-
um. í munni hinna er reglan
dauð, hlutlaus, þess aðeins
gætt að skaða ekki aðra.
Þegar Jesús mótar hana, fær
hún líf og meira að segja
mjög kærleiksríkt líf, þvi hún
Gullna
reglan
er ekki lengur hlutlaus,
heldur hvetur til dáða, til
góðra verka fyriraðra menn.
Þessi regla hefur þó þann
annmarka, að hún er aðeins
ætluð siðferðilega þroskuð-
um mönnum. Drykkjumaður-
inn t.d. sem þráir sjálfur
mest nautnir sínar, hann
mundi leiða aðra til ills með
þessari reglu. Hin gullna
regla er því fyrst og fremst
ætluð lærisveinum Krists,
þeim sem þegar eiga eitt-
hvað af hugarfari hans.
Þeir, sern reyna að fylgja
þessari reglu, munu svo brátt
finna, hvernig hún kemur
bæði þeim sjálfum og öðrum
til þroska. Og væri henni
fylgt i félagslegum samskipt
um þjóða heimsins, þá
mundi hún stöðva styrjaldir
og hvarvetna greiða friðar-
boðskap Krists leiðina.
En því miður byggja ekki
allar þjóðir athafnir sínar á
orðum Krists, og þó svo eigi
að heita í orði, þá er það ekki
alltaf á borði. En lykillinn að
friðsamlegri sambúð mann-
anna er ekki stór. Kannski er
það þess vegna, sem hann er
vandfundinn og vandmeðfar-
inn? Hann er það, sem við
segjum, að sé einnig kjarni
kristinnar siðfræði, orðin.
Elska skaltu Þá er ekki
sífellt verið að tala um að
hefna fyrir þetta eða hitt,
heldur að skilja og fyrirgefa,
— elska.
Þegar Jóhannes safnaðar-
öldungur í Efesus, postuli
Krists og guðspjallshöfund-
ur, var orðinn mjög viðaldur,
þá er mælt, að hann hafi eitt
sinn verið borinn í ræðustól
til að flytja ræðu, sem jafn-
framt á að hafa verið hans
síðasta ræða. Hún var ekki
löng, aðeins 5 orð, en hún
var því áhrifameiri og minnis-
stæðari: Börnin mín, elskið
hvert annað.
Með því taldi hann allt
fengið. Og þar er Gullna regl-
an í verki. Engin regla er eins
fábrotin og skýr og hún. Eng-
in leiðir jafnörugglega til lífs-
ins og hún. En samt veitist
okkur mönnunum mjög örð-
ugt að hlýðnast henni.
Hvernig stendur á því? Ber
það ekki vott um ærið mikla
eigingirni okkar? — Svari
þar hver fyrir sig.
Er það af því, að hún er í
huga okkar fyrst og fremst
falleg setning, bara til aðfara
með á fermingardegi eða
sem svar á.prófi í Biblíusög-
um? Er það af því, að við
höfum ekki komið auga á hið
mikla notagildi hennar í
hversdagslífinu? Þar er ekk-
ert svið undanskilið. Það má
vel vera. Alla vega er eitt-
hvað að
Ég man vel eftir skilti, sem
lengi stóð við veg, sem ég ók
oft eftir. Þar stóð: Akið eins
og þér viljið, að aðrir aki. En
reglan getur líka gilt í heimil-
islífinu og þá gæti hún verið
þannig orðuð: Fyrirgefið eins
og þér viljið, að aðrir fyrirgefi
— eða: Elskið eins og þér
viljið, að aðrir elski. Þannig
er hægt að halda áfram
næstum óendanlega. En vilt
þú ekki gera það fyrir mig,
þú sem þessar línur lest, —
og gera það í þínu eigin lífi?
Skák
efíir JÓN
Þ. Þór
Opin mót
í Svíþjóð
SVlAR halda á vetri hverjum
tvö opin mót, sem vakið hafa
nokkra athygli á undanförnum
árum. 1 vetur voru þau þó skip-
uó lakari mönnum en oft áður,
mest Dönum og Svíum. 1 opna
mótinu f Gautaborg urðu úrslit-
in þessi: 1. Ole Jacobsen
(Danm.) 5,5 v„ 2. Karlson (Svf-
þj.), Pytel (Póll.), Eslon (Sví-
þj.), Holm og Bjerring
(Danm.) 5 v. o.sv.frv. Á meðal
þeirra, sem á eftir komu, má
telja júgóslavneska stórmeist-
arann Kurajica og Pólverjann
Bednarski.
I opna mótinu í Stokkhólmi
sigruðu tveir Sviar, Janson og
Kaizuri, með 7,5 v., 3.—5.
Kurajica, Ögaard og Flesch 7 v.
o.sv.frv. í þvi móti var eftirfar-
andi skemmtileg skák tefld.
Ilvftt: Nils Nilsson (Svfþj.)
Svart: G. Iskov (Danm.)
Spa'nskur leikur
1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5
— a6, 4. Bxc6 — dxc6, 5. « 0 —
Dd6,
(Þessi leikur nýtur alltaf
nokkurra vinsælda).
6. d3 — Re7,
(Sterkara en 6. — f6, sem
áður var algengast).
7. Rfd2
(Harla skrýtinn leikur, en
hugmyndin er að leika f4).
7. — Rg6, 8. Rc4 — Df6, 9. Dh5
— b5!
(Ekki 9. — Be6 vegna 10.
Bg5).
10. Ra5 — Bc5, 11 af ?
(Hvítur vanrækir liðskipan-
ina. Betra var 11. Rb3 eða 11.
Be3).
11. — Bb6, 12. axb5? — axb5,
13. Rb3 — Hxal, 14. Hxal —
Rf4, 15. Bxf4 — Dxf4, 16. g3 —
Df6, 17. Rd2 — g6!, 18. Dh6?
(Hvítur varð að draga
drottninguna til baka).
18. — Bg4
(Hótar Be2 og vinnur).
19. Dh4 — Dxh4, 20. gxh4 —
Hg8, 21. Kg2 — g5, 22. hxg5 —
Hxg5, 23. h4 — Hg6, 24. Kh2 —
Bc5
(Vinnur peð og þá eru lokin
skammt undan).
25. Rab3 — Be7, 26. Hgl —
Bxh4, 27. f3 — Bd7, 28. Hxg6 —
fxg6, 29. c3(?)
(Skárra var 29. d4).
29. — Bg5, 30. d4 — c5! 31. dxc5
— Be6!
(Gefur peðið til baka. Hvítur
getur sig nú hvergi hreyft).
32. Kg2 — h5, 33. Kg3 — Bf4,
34. Kg2 — Kf7, 35. Kf2 — h4,
36. Kg2 — Kf6, 37. Kf2 — h3,
38. Kgl — Kg5, 39. Kfl — Kh4.
40. Kgl — h2, 41. Khl — Bh3,
42. Rcl — Bxd2 og hvftur gaf.
nf
HJÓLHÚSA TJOLD
★ NOTIÐ FORTJÖLD Á HJÓLHÚSIN
★ TVÖFALDIÐ FLA TARMÁLIÐ
★ PANTIÐ TÍMANLEGA FYRIR SUMARIÐ
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGOTU 1 —3. HAFNARFIRÐI. — SIMI 51919
Mikið úrval nýkomið
BIEBIHB (~f
LAUGAVEGI 6 SIMI 1 4550
Finnsk
glervara frá ARABIA
WARTSILA FINLAND
HELMI
Minningarsjóður
Vigdísar Ketilsdóttur
og
Ólafs Ásbjarnarsonar
Ákveðið hefur verið að sjóðurinn veiti
styrki, tveim læknum, til framhaldsnáms
næsta skólaár.
Umsóknum ásamt upplýsingum um hvaða sér-
greinar væri að ræða, og aðrar, sem að um-
sókninni lúta, sendist formanni sjóðsins Ásbirni
Ólafssyni, Borgartúni 33, Reykjavík fyrir lok
júlímánaðar.
Sumarhús:9 x 3 metrar fullbúið með öllum
húsgögnum, stofa, svefnherbergi, eldhús og
baðherbergi með sturtu og W.C.
MONZA hjólhýsi 0 — 12 — 14 — 16 —
feta.
Verð frá kr. 695.000.
Fellihýsi amerísk: Fullbúið hjólhýsi uppsett
m.a. með kæliskáp og hitaofni, en hefur kosti
kerrunar á vegum.
Tjaldvagn þýzkur: Innifalið er eldhúskrókur og
fortjald, vagninn er rykþéttur og á 13" fólks-
bíladekkjum.
Jeppakerrur og fólksbílakerrur.
Gísli Jónsson hf
Klettagarðar 11 sími 86644.