Morgunblaðið - 27.06.1976, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JUNI 1976
35
— Hver segir
Framhald af bls. 20
skiptar um þetta efni sem flest
önnur.
— Ef það er svona erfitt að
komast að endanlegri niðurstöðu i
heimspeki, hvaða gagn er þá að
heilabrotum heimspekinga?
NÓG AF NYTSAMLEGUM
HLUTUM í
HEIMINUM.
— Hver segir það eigi að vera
gagn að hlutunum? Er ekki nóg af
nytsamlegum hlutum í heiminum,
allt frá niðursuðudósum til þrýsi-
lofsflugvéla, til að ekki þurfi að
fylkja heimspekingum í þann
flokk?
— Einhvern veginn hlýturðu
að vilja réttlæta það að haldið sé
uppi háskólakennslu í heimspeki.
Hverjir eru til dæmis atvinnu-
möguleikar þeirra stúdenta sem
þið útskrifið?
— Ég fæ alls ekki séð að nytja-
sjónarmið hljóti að vera allsráð-
andi um réttlætingu háskóla-
kennslu og fræðiiðkana. Eða hver
yrði þá réttlæting stafkrókafræð-
innar, sem iðkuð er á Árnastofn-
un? Mér þætti gaman að sjá það
metið til fjár, ef úr því fengist
skorið, hvort depill sé yfir til-
teknu r-i í einni vísu Höfuð-
lausnar f einu handriti Eglu.
Fræðimennska af öllu tæi — rétt-
nefnd fræðimennska, ætti ég
kannski að segja — er fyrst og
sfðast ögun hugans í viðureign við
stranglega afmarkað viðfangs-
efni. Um gagnsemi slikrar ögunar
fáeinna þegna hvers þjóðfélags
hljóta og eiga að vera skiptar
skoðanir. En skeytum ekki um
gagnsemina: frá mfnu sjónarmiði
hefur heimspeki þann kost að
vera tiltölulega mjög erfið fræði-
grein. Rökfræslur heimspekinga
að fornu og nýju eru flóknar og
eftir því vandskildar, og þess
vegna eru þær heillandi. Greining
þeirra reynir bæði á rökvisi
manna og ímyndunarafl. Og ef
einu þjóðfélagi er þannig skipað
að þar sé ekkert verk að vinna
fyrir þá, sem agað hafa hugsun
sína, jafnvel þótt af veikum mætti
sé í viðureign við sumar tor-
ráðnustu gátur mannsandans,
fremur en kannski til dæmis fyrir
þrautþjálfað tónlistarfólk eða
íþróttafólk, þá held ég okkur væri
nær að breyta þessu þjóðfélagi en
að amast við heimspeki, tónlist
eða íþróttum.
— Ertu kannski að gefa í skyn
að heimspeki eigi ekkert erindi
við almenning?
— Því fer víðs fjarri að ég geri
það. Að vísu er mér aldrei alveg
ljóst hvað fólk á við þegar það
talar um ,,almenning“. Ef mér
leyfist að miða við það fólk af öllu
tæi sem ég hef kynnzt um dagana,
þá veit allur þorri þess það mæta-
vel af eigin raun hvað það er að
heillast af óráðinni gátu á borð
við þær sem heimspekingar glima
við, rétt eins og flestir vita hvað
það er að hrífast af fallegum söng
eða limaburði íþróttamanns. Og á
Islandi fer það sem betur fer ekki
eftir atvinnu manna eða skóla-
göngu hvort þeir hafa menntun
til að kafa eins djúpt og þeir
frekast komast eftir lausn á hin-
um torráðnustu gátum, sem fyrir
þeim hafar orðið, eða hvort þeir
sækja alla vizku sina I dagblöð og
sjónvarp.
Við þetta bætist að hugsunar-
aðferðir heimspekinga eiga sér
hliðstæðu í hugsunarhætti hvers
einasta manns. Ein dæmigerðasta
hugsunaraðfeð heimspekings,
þegar hann stendur andspænis
einhverri þversögninni í viðtek-
inni heimsskoðun, er að athuga
nánar einhver þau hugtök sem
vandanum virðast valda, svo sem
eins og sjálfræðishugtakið, og
freista sundurgreiningar á þeim í
ljósi dæma um beitingu þeirra við
sem margvíslegastar aðstæður.
Þessa aðferð má rekja til
Sókratesar og Platóns; á
tuttugustu öld hefur hún verið
fáguð svo mjög að oft er talað um
byltingu í sögu hinnar hreinu
heimspeki, sem menn rekja þá til
Ludwigs Wittgenstein öðrum
mönnum fremur; hann hygg ég sé
óhætt að kalla fortakslaust mesta
heimspeking veraldar síðan
Immanuel Kant leið. Nú, hin
hversdagslega hliðstæða við þessa
hugsunaraðferð eru viðbrögð
hugsandi manns við siðferðileg-
um vanda, sem hann vill bregðast
við af dýpstu alvöru. Slíkur
maður finnur ef til vill til þeirrar
freistingar að svikja ástvin í
tryggðum eða að bregðast málstað
sem hann trúir á; segjum að hann
telji sér trú um að hann verði
hamingjusamari fyrir vikið. I
slíkum tilvikum getum við einatt
sagt að tvær lifsreglur togist á um
mann. önnur þeirra býður honum
að standa við sitt og hin að freista
gæfunnar. Milli þeirra tveggja er
eins konar þversögn. Og með því
að við gefum okkur að um
hugsandi mann sé að ræða, þá má
ætla að hann reyni með einhverj-
um skynsamlegum hætti að leysa
þversögnina eða þá færa rök fyrir
öðrum hvorum kostinum, sem
hann síðan kýs á grundvelli þess-
ara raka. Og ein helzta aðferð,
sem við höfum til að komast að
skynsamlegri niðurstöðu i slikum
vanda, er einmitt að spyrja
spurninga um hugtök og leita
dæma, raunverulegra eða
ímyndaðra, um beitingu þeirra.
Til dæmis gæti maður spurt: „Er
ég svikari ef ég nú held mína
eigin leið?“ Maður, sem þannig
spyr, vill vita nákvæmlega hvað
það er að vera svikari. Og sér til
leiðsagnar um svar við þessari
spurningu hefur hann ótal dæmi
af svikum, allt frá Júdasi Iskariot
til mannsins í næsta húsi, sem
hafði fé af gamalli frænku sinni í
fyrra.
SIÐLEYSI
ÁSTARINNAR
— Bíddu andartak. Þú drepur
þarna á sem dæmi freistinguna að
svíkja ástvin í tryggðum. Þú flutt-
ir á samdrykkjunni svonefndu í
háskólanum erindi um „siðleysi
ástarinnar", sem svar við hinum
viðfrægu og nýstárlegu kenning-
um próf. Philippu Foot um eðli
siðferðis. Hverju varstu að halda
fram þar?
— Það var nú eitt og annað.
T.d. reyndi ég að sýna fram á að
notkun siðferðilegra hugtaka um
ástalífið, svo sem þegar einhver
afbrigði þess eru talin ósiðleg,
hlíti allt öðrum reglum en önnur
notkun þessara hugtaka, sem mér
virðist vera eiginleg siðferðileg
notkun þeirra. Og ég reifaði þá
hugmynd, lauslega að vísu, að
greinarmunurinn, sem gera
mætti á þessum ólíku reglum,
gæti komið í stað greinarmunar á
einkasiðferði og almennu sið-
ferði, en einhver slíkur greinar-
munur er frumatriði allrar frjáls-
hyggju. Frjálshyggja þykir mér
raunar að fjölmörgu leyti fremur
tortryggileg kenning. En hvað um
það: við höfum aðrar ástæður en
almennar efasemdir um frjáls-
hyggju til að ætla að reglur um
— Raftónleikar
Framhald af bls. 19
leikar sem þessir voru í heild
skemmtilegir, en slikir tónleik-
ar eru þó á einhvern hátt nátt-
úrulausir, fyrst og fremst
vegna þess að fiutningur slíkr-
ar tónlistar er án beinnar þátt-
töku manna og eins og minning-
arathöfn 1 framkvæmd. Þegar
búin hafa verið til rafhljóðfæri,
sem gera beinan flutning mögu-
legan, verður raftónlist gædd
þvi lífi, er skapast við lifandi
flutning.
Þyrfti að gróðursetja
hundruð þúsunda
birkiplantna árlega
ástalífið liggi utan marka rétt-
nefnds siðferðis. Taktu til dæmis
að elskendur gera þá kröfu hvor
til annars að hvor sé hjá hinum
vegna þess að þar vilji hann vera
og hvergi annars staðar; þeir una
því ekki að þeir hangi saman, eins
og í ástlausu hjónabandi, af ein-
berri skyldurækni. Hér virðumst
við ganga að vísum eðlismun á
skyldu, sem er frumatriði eigin-
legs siðferðis, og löngun sem hvöt-
um til mannlegrar breytni — eða
með öðrum og reyfaralegri orðum
að ástalífið sé siðlaust í sjálfu sér.
Hér kemur Philippa inn í dæm-
ið, því hún heldur því fram og
styður ágætum rökum að skylda
sé óskiljanleg ástæða til breytni,
nema gengið sé að einhverri löng-
un vísri. Til þess að verja eðlis-
muninn á skyldu og löngun
þarfnast ég því ástæðuhugtaks,
sem skilgreint sé með einni
saman tilvísun til félagslegra
reglna og skilnings manna á þeim.
og þar með án alls tillits til hags-
muna, óska eða löngunar. Hug-
myndin að þvíllku ástæðuhugtaki
er í höfuðatriðum komin frá
Wittgenstein. Og þess má kannski
geta, að Lars Hertzberg, prófessor
i Helsinki, sem flutti erindi á sam-
drykkjunni um réttlætingu refs-
inga, reyndi að sýna fram á að
slíkt ástæðuhugtak þyrfti til að
leysa úr tiltekinni þversögn um
mannlega ábyrgð. En hér stendur
hnífurinn í kúnni. Philippu tókst
á samdrykkjunni að sýna fram á
alvarlegan galla á þessu ástæðu-
hugtaki.
— Semsagt, skilningur á sið-
leysi ástarinnar hrekkur senni-
lega ekki til að bjarga manni,
þegar ástin grípur hann og
taugarnar fara að titra, jafnvel
ekki þó um sé að ræða prófessor
og heimspeking, eða hvað?
Við þessu fékkst ekkert svar. —
E.Pá.
AÐALFUNDUR Skógræktarfé-
lags Borgarfjarðar 1976 var hald-
inn í Borgarnesi 14. maf s.l.
I ársskýrslu Daniels Kristjáns-
sonar framkvæmdastjóra félags-
ins kom fram, að 20 þúsund trjá-
plöntur voru gróðursettar á s.l.
ári á vegum skógræktarfélagsins
og áhugamanna innan vébanda
þess. Ennfremur var borinn á
áburður í nokkrum girðingum,
mikið grisjað og hreinsað frá
plöntum og girðingar lagfærðar.
I Hamarsgirðingu við Borgar-
nes unnu unglingar úr Borgar-
nesi skógræktarstörf undir stjórn
og i umsjá skógræktarfélagsins.
Skógræktarfélag Borgarfjarðar
stendur að verðlaunaveitingum
fyrir góða umgengni utanhúss á
sveitabæjum i héraðinu ásamt
þrem öðrum félagasamtökum. i.
verðlaun fyrir bændabýli hlaut
garðyrkjubýlið Víðigerði í Reyk-
holtsdal. Ábúendur þar eru Erla
Kristjánsdóttir og Kristján Bene-
diktsson. Önnur bændabýli sem
hlutu viðurkenningu voru Mela-
leiti í Melasveit, Grund í Skorra-
dal og Sleggjulækur í Stafholts-
tungum. Auk þess voru veitt ein
verðlaun fyrir kennarabústaði,
iðnaðarbýli o.þ.h. Halut þau Lauf-
ey Þórmundsdóttir i Reykholti.
Félagsmenn Skógræktarfélags
Borgarfjarðar eru alls 328.
Félagið hefur lítið landrými til
plöntunar i svipinn, en nú er útlit
á, að úr þvi rætist og það fái til
umráða talsvert land á Húsafelli.
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt einróma:
„Aðalfundur Skógræktarfélags
Borgarfjarðar, haldinn í Borgar-
nesi 14. mai 1976, mótmælir harð-
lega þeirri hugmynd, að leggja
niður plöntuuppeldi í Norðtungu-
skógi.
Jafnframt bendir fundurinn á,
að tilfinnanlegur skortur er á
birkiplöntum, en birkið er ein af
undirstöðum skógræktar á Islandi
i nútið og framtíð.
I Borgarfjarðarhéraði þyrfti að
gróðursetja hundruð þúsunda af
birkiplöntum árlega i skjólbelti
og i lítt gróið land, ef hugmyndin
um gróðurvernd á íslandi á að
rætast. Fundurinn skorar á Skóg-
rækt ríkisins að halda áfram
plöntuuppeldi í Norðtunguskógi
og leggja sérstaka áherzlu á
birki."
Benedikt Guðlaugsson fráfar-
andi formaður gaf ekki kost á sér
lengur i stjórn félagsins vegna
brottflutnings af félagssvæðinu.
Voru honum þökkuð mikil og góð
störf hans í þágu félagsins um
Iangt árabil.
Núverandi stjórn Skógræktar-
félags Borgarfjarðar skipa Vífill
Búason, Ferstiklu, formaður,
Daniel Kristjánsson, gjaldkeri og
framkvæmdastjóri, Þórunn Ei-
ríksdottir, ritari, og meðstjórn-
endur Þorbjörg Þórðardóttir og
Kristján Benediktsson.
I frumskógi umf erðarinnor eru sumir lipruri en ndrir.
Hann hefur gott tak á veginum og rennir sér lipurlega í beygjurnar, án þess að kast-
ast til og missa "fótfestu”. Með liðugu framhjóladrifi er Allegro þessum hæfileikum búinn.
í þessum hressilega bíl leynist kraftmikil vél, sem minnir á rándýr. Vélin liggur þversum
og er með hitastýrðri kæliviftu. í bílnum er fimm stiga gírkassi (1500-gerðin), ”tann-
stangarstýring,” sérstaklega styrktir diskahemlar á framhjólum og ein-
dæma góð fjöðrun, Hydragas, sem tryggir að hjólbarðarnir hafa öruggt
tak á veginum.
Það eina, sem reynt hefur verið að takmarka í Allegro,
er reksturskostnaðurinn. Hann lætur sér nægja 8 lítra á
hverja 100 kílómetra, varahlutaverð er hóflegt og sama
má segja um verð á viðgerðaþjónustu.
Það er ótrúlega ódýrt að eignast þetta
”hlaupadýr”.
P. STEFANSSON HF. ^
HVERFISGÖTU103 REYKJAVÍK SÍMI 26911 PÓSTHOLF 5092