Morgunblaðið - 14.08.1976, Page 12

Morgunblaðið - 14.08.1976, Page 12
Gufunesradíó kallarl MOK<;i NBI,AÐIÐ. I,AL'<iAKI)A(iUK 14. AOLST 1976 Hafa samband við 30.000 flugvélar EIN OG HALF MILLJON skfyta Séð yfir salinn þar sem f jarskiptin við flugvélarnar fara fram. Það er ekki svo íítið af skila- boðum sem fer um hendur Sigurjón Davfðsson hefur samband við bflana. skeytin eru ýmist á ensku eða dulmáli." Við gengum um húsið, sem er eins og sagði í upphafi fremur lítið en þegar inn i það er komið má sjá að þar er haganlega fyr- irkomið ótrúlegum fjölda fjar- skiptatækja. I stórum sal fara fram skeytasendingar og mót- taka og í klefum við hliðina á l’MFANGSMFST AÐ SINNA FLLGINL „Starfseminni hér er skipti tvo moginþætti, annars vegar híla- og skipaþjónustu og hins vegar radióflugþjónustu. Milli 70 og 80 manns starfa hér og af þoim eru um 48 sem taka vaktir fyrir flugþjónustuna, en nokkr- ir eru ó föstum dagvöktum. Radíóþjónustan við flugið er s(>m sagt aðalliðurinn í starfi okkar hér og er það samvinna milli flugumferðarstjórnar. veðurstofu og Pósts og sfma. Póstur og sími tók að sér að halda samhandi við flugvélar og fasta staði erlendis, sem koma ínn í íslenzka flugstjórn- arsvíeðið. Okkar hlutverk er að taka við skeytum frá flugvélun- um eða flugumferðarstjórnum og koma til skila. eru það stað- arákvarðanir. heiðni frá flug- vélum um veður. hreytingar á flugáætlun og fleira. Svæði það sem við höfum af- skipti af er yfir Norður- Atlantshafi. flugleiðir milli Héðan fara fram fjarskipti við skipin. þess sem við tökum við skeyt- um frá flugvélunum herum við oft skeyti á milli hinna ýmsu flugstjórna og veðurstofa. Allar þessar sendingar fara fram á ensku, þ.e. það sem talað er og Hákon Bjarnason sýnir segulböndin, en á þeim eru öll fjarskiptin gevmd. salnum sitja menn sem eru í talstöðvarsambandi við þessa aðila sem fluginu stjórna og flugvélarnar. Stefán sagði okk- ur dálitið um upphaf þessarar starfsemi: „Starfsemi hófst hér áríð 1934 og þá var hér talsamband við útlönd og út á land en árið 1946 var byggt við húsið og þá hófst radióflugþjönustan og hefur sú afgreiðsla vaxið ár frá ári, og er nú 30 ára. Þegar sæ- simakaplarnir komu árið 1960, hættum við allri talsímaaf- greíðslu nema í neyðartilvik- um, t.d. ef þeir slitna. Þremur árum seinna flytur svo loft- skeytasamhandið af Melunum og var þá aðeins einn maður á vakt fvrir skiparadíóið en nú ^ru þeir 3 tif 5 í einu því það hefur aukizt mjög. Sú af- greiðsla er t.d. fvrir útgerðirn- ar sem þurfa að ná sambandi við skipin og samtöl ættingja við sjómenn og þar fram eftir götunum. Bflaradíó er einnig hjá okkur og því sinnir oftast einn maður, en stundum eru fleiri kallaðir á vakt. Við alla þessa afgreiðslu vinna loftskeytamenn og sím- ritarar og við erum einnig með viðgerðarmenn en það eru sím- virkjar. Hér í Gufunesi er við- töku- og afgreiðslustöð en senda höfum við víða úti um land, m.a. á Rjúpnahæð, Sel- tjarnarnesi, við Grindavík, Garðskaga, Vík og á Gagn heiði.“ í LITLU og lágreistu húsi uppi í Cufunesi fer fram allumfangsmikil starfsemi á vegum Pósts o,e sínia. Umhverfis húsið er heill skójjur af alls kyns móstrum oy loftnet- um oft hefur þeim verið ,,plantað“ á allstórt svæði innan girðingarinnar og ekki er aðgangur leyfður þangað nema viðkomandi aðilum. Morgunblaðs- menn lögðu leið sína inni þennan skög fyrir skömmu og litu inn í hús- ið sem er miðstöð fjar- skipta fyrir flugvélar, báta og skip. Stöðvarstjóri er Stefán Arndal og fræddi hann okkur um það sem þarna fer fram; Heimsókn í fjarskipta- stöðina í Gufunesi Kvrópu og Bandaríkjanna og Kanada og nokkuð er um svo- kallað pölarflug til Japan og fleiri staða í Asíu. Aður fyrr var mest að gera hjá okkur á næturnar, en nú er flogið aðal- lega á daginn milli Evrópu og Bandaríkjynna svo hér er mest að gera á tímabilinu frá 10 á morgnana til 7 á kvöldin. Auk Stefán Arndal er stöðvarstjóri I Gufunesi. Ljósm. Frióþjófur. þeirra sem þarna starfa þvi árið 1975 voru skeytasendingar sam- tals ein og hálf milljón, innan- lands og utan og var afgreiðslu- hraðinn að meðaltali um ein og hálf minúta. í vörslu stöðvar- innar voru samtala 30.000 flug- vélar og námu skeyti frá þeim 122.000. Þeir í Gufunesi hafa fengist við ýmislegt fleira en að hafa samband við menn úti um víða veröld, því fyrir nokkrum árum höfðu þeir reglulegt sam- band við gervihnött fyrir Þjóð- verja. Tóku þeir við upplýsing- um frá honum, sem voru vis- indalegs eðlis og sendu þær til Þjöðverja og voru að því allt fram á síðasta ár en þá kom hann inn í gufuhvolfið og lauk þar með hlutverki sinu. Stefán sagði nánar frá þessu: „Þjóðverjar báðu um aðstöðu hér til að taka á móti upplýsing- um frá þessum gervihnetti og við vorum fúsir til þess, en þeir vildu að þeirra eigin menn kæmu og önnuðust það. Við töldum það óþarft þar sem við hefðum menn til þess og þetta gæti þar að auki orðið okkur dýrmæt reynsla. Það varð því úr að við tókum allt verkiö.að okkur og reyndumst ekki eftir- bátar annarra stöðva sem þeir notuðu." FRÆGASTIR FYRIR BlLARADtOlÐ „Gufunes, Gufunes, Ragn- ar ... kallar, skipti," er setning sem hljómar alloft á dag í eyr- um þeirra sem eru við bíla- radíóið og þurfa þeir alltaf að vera tilbúnir að svara þegar „Ragnar, Lárus eða Ög ndur“ kalla og þurfa að ná sambandi við einhvern. Sigurjön Davíðs- son var á vakt þegar okkur bar að garði og fræddi hann okkur um starf sitt: „Við sinnum alls kyns þjón- ustu fyrir almenning, berum skilaboð á milli bæði fyrir þá sem eru heima við í síma og frá þeim sem eru i bílum sinum út um land. Þetta er alls kyns per- sónuleg þjónusta en algengast er að vörubilaflutningafyrir- tæki njóti fyrirgreiðslu okkar og langferðabifreiðar, þegar þeir þurfa að ná sambandi við höfuðstöðvar sínar. Þá ná þeir kannski ekki sjálfir og við þurf- um að bera boð á milli. Þyð er mikið öryggi í því að Jiafa þessar talstöðvar og mér finnst að það ætti að banna ferðir upp um fjöll að vetrar- lagi, nema menn séu búnir tal- stöðvum. Það hefur komið fyrir að við höfum getað flýtt mjög fýrir því að ná i hjálp þegar eitthvað keraur fyrir og nú i dag var ég beðinn að senda sjúkrabíl til Þingvalla vegna þess að einhver ferðamaður hafði dottið og slasazt." Nú var kallað í Gufunesradíó og þar með ljúkum við spjallinu við Sigurjón og heimsókn þess- ari í Gufunesstöóina. Hörður Felixson I flugvélaradlóinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.