Morgunblaðið - 27.11.1976, Síða 2
Á þessu korti má sjá aðalgatnakerfi Reykjavfkur, eins og Skipulagsnefnd leggur til að það verði á næstu 20 árum . Má t.d. benda á nýjan veg af Suðurlandsvegi við Rauðavatn f
sveig suður fyrir Breiðholtsbyggð (sjá strikalfnu neðst til hægri). Fossvogsbraut er þarna að vfsu óbreytt frá fyrri áformum, en hefur þð ekki verið ákveðin, en brautin upp
Elliðaárdal er horfin. Þá má benda á hvernig Hringbraut hefur verið flutt til suðurs við flugvöllinn. Annars skýrir kortið sig sjálft og frekari skýringar eru f texta og á
skipulagssýningu á Kjarvalsstöðum.
Skipulagsbreytingar á að-
algatnakerfi Reykjavíkur
Reiknað með 73 þúsund bílum árið 1995
ViÓ endurskoðun á aðal-
gatnakerfinu í Reykjavík,
sem Þróunarstofnun hefur
unnið að og skipulagsnefnd
mótað nýjar tillögur um til
næstu 20 ára, hafa verið
gerðar ýmsar veigamiklar
breytingar frá staðfestu
aðalskipulagi, sem nú gild-
ir. Þær tillögur eru meðal
þess, sem um þessar mund-
ir er verið að kynna á
skipulagssýningu Reykja-
víkurborgar á Kjarvals-
stöðum.
Skipulagsnefnd leggur m.a. til,
að felldar verði niður ýmsar af
þeim svokölluðu stofnbrautum,
sem ákveðnar höfðu verið eða að
þeim verði frestað og breytt. Má
þar nefna, að framkvæmd Geirs-
götubrúar, sem á að liggja upp á
Tollstöðina, verður frestað fram
yfir næsta skpulagstímabil.
Mýrargatan verður alveg felld
Hætt hefur verið við að leggja Dalbrautina þar sem hún átti að liggja milli Sundlaugavegar og Holtavegar
neðan við húsin við Laugarásveg.
niður sem stofnbraut og gerð að
þjónustugötu fyrir höfnina. En
við það þarf að rffa færri hús eða
flytja brott en gert var ráð fyrir í
skipulaginu frá 1967, er hrað-
braut lá þar um. Þá er alveg hætt
við að leggja Suðurgötu áfram
gegnum Grjótaþorpið að Geirs-
götubrú, og Suðurgata milli
Hringbrautar og Túngötu verður
ekki stofnbraut, heldur aðeins
tengibraut. Suðurlandsvegur, frá
Rauðavatni að Höfðabakka,
verður alveg felldur niður. Einn-
ig verður Ánanaust ekki lengur
stofnbraut heldur breytt í tengi-
braut.
Rétt er hér að gera grein fyrir
því, að í Reykjavfk er stefnt að
svokölluðu flokkuðu gatnakerfi,
þar sem götur eru flokkaðar eftir
hlutverki þeirra. í efsta flokki
eru stofnbrautir, sem hafa það
hlutverk að flytja umferð milli
bæjarhluta. Næst éru tengi-
brautir, sem tengja saman hverfi
og stofnbrautir, en þessar tvær
tegundir brauta mynda aðalgatna-
kerfið, sem hér er fjallað um.
Hringbraut flyzt
190 m til suðurs
Aformað er að flytja Hring-
brautina frá Tjarnarenda að
Miklatorgi, suður fyrir Umferðar-
miðstöðina. Flytzt Hringbrautin
þar 190 m til suðurs. Samkvæmt
samningi, sem borg og rfki gerðu
1969, var gert ráð fyrir að flytja
Hringbrautina 50 m til að tryggja
Landspítalanum nauðsynlegt
rými til stækkunar spftalans. Við
nánari útfærslu á byggingarfor-
sögn Landspítalans og vegna
byggingaráforma læknadeildar,
komu í ljós vissir annmarkar á
þessari legu Hringbrautar. Fyrst
og fremst þeir , að mikil um-
ferðaræð skildi að starfsemi, sem
krefst mikilla og góðra tengsla
innbyrðis, eins og segir í bókun
skipulagsnefndar. Auk þess voru
óleystir vissir erfiðleikar við teng-
ingu innra gatnakerfis og hins
ytra. Gágnvart Reykjavfkurflug-
velli voru einkum erfiðleikar við
lausn gatnamóta Sóleyjargötu og
Hringbrautar, sem ekki var hægt
að leysa án styttingar á flugbraut-
inni þar. Með flutningi Hring-
brautar svo langt f suður, nást
ýmsir meginkostir umfram fyrri
áform, m.a. að innri tengsl á og
við lóð Landspítalans eru mun
auðveldari, viðunandi tengsli nást
við Umferðarmiðstöðina, lausn
fæst á tengingu Hringbrautar og
Sóleyjargötu, án þess að skerða
þurfi norðurenda flugbrautar. En
miðað er við að Hringbraut verði
svo niðurgrafin þarna að ekki
þurfi að skerða brautina þar,
hugsanlega yrði þó um lítilsháttar
tilfærslu að ræða á aðflugsljósa-
búnaði. Með þessu móti er talið
mun auðveldara að ráðast i gerð
umferðarmannvirkja á Mikla-
torgi, þannig að ekki valdi röskun
á umferð á torginu og Hring-
braut. Jafnframt opnast mögu-
leiki á vinstri beygju af fram-
lengdum Bústaðavegi. Með þessu
móti er svo staðfest lega svo-
nefnds Hlfðarfótavegar, sem ligg-
ur suður fyrir öskjuhlíð, en norð
og austur flugbrautin skerðist. Er
gert ráð fyrir lengingu brautar-