Morgunblaðið - 27.11.1976, Page 4
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÖVEMBER 1976
Stílhreinn bdl á stórum dekkjum. Toyota Corona Mk. II, 2000. Hæð undir lægsta punkti er um 17 sm.
Toyota
Corona
Mk.II
HÉR er á ferðinni bíll af milli-
stærðarflokki, fjögurra dyra
fimm manna. Toyota Corona
Mk. II fékk nýtt „boddý“ 1975
og hefur lítið breyst siðan en
'77 árgerðin er nú með 14
tommu radfal dekkjum í stað 13
áður.
Vélin er fjögurra strokka,
1968 rúmsm. með þjöppun 8,5:1
og krafturinn er 119 hestöfl
(SEA gross) vað 5500
snún./mln. Hámarkshraðinn er
yfir 170 km/klst. Ekki er hér
völ á tölu um vaðbragðið en það
er þó allgott og krafturinn yfir-
höfuð góður og vinnslan sömu-
leiðis.
Toyotan er auðveld I akstri og
sætin allgóð en mættu þó veita
betri stuðning. Hnakkpúðar
sem smellt er niður I framsætis-
bökin, fylgja. Billinn er þungur
að framan og undirstýrir nokk-
uð en afturendinn fer þó af stað
ef viljinn er fyrir hendi.
Gormafjaðrir auka stöðugleik-
ann mjög.
Miðstöðin er þriggja hraða og
hitar vel. Loftræsting er mjög
góð. Girskiptingarnar eru mjög
léttar eins og á flestum
japönskum bílum. Bremsurnar
eru með vökvaaðstoð og hina
klassísku gerð, diskar að fram-
an og borðar að aftan. Þær gefa
nokkuð undan þegar þeim er
beitt á miklum hraða en eru að
öðru leyti góðar.
Bensineyðslan er áætluð
10—14 1/100 km eftir aðstæð-
um og bensíngeymirinn tekur
60 lítra.
Toyota Corona Mk. II vegur
1125 kg óhlaðin. Rými í bílnum
er þokkalegt þó þröngt sé aftur
í ef framsæti eru í öftustu stöðu
119 hestafla vél (SAE) við 5500 snún./mfn.
— og einn elztu
bíla heims
Þessi mynd er ekki frá því fyrir
aldamót eins og e.t.v. mætti
ætla heldur er hún úr árlegri
ökukeppni þar sem ekið er frá
London til Brighton á suður-
strönd Englands. Þetta er elsti
bilinn, sem tók þátt i kepþninni
I ár árgerð 1893 af Benz og
krafturinn er U4 hestafl.
Keppnin er einungis fyrir Bla
frá því fyrir 1905. Keppendur
mega ekki halda meiri meðal-
hraða en 32 km/klst. hraða á
allri leiðinni en sumir komast
allgreitt niður brekkur en varla
nema rúmlega á gönguhraða
upp brekkur.
Mælarnir minna óneitanlega dálftið á nokkurra ára amerfskan bfl
og eru þeir felldir óþarflega langt inn f mælaborðið.
umsjón BRYNJÓLF-
UR HELGASON
eins og raunar í flestum bilum
af þessum stærðarflokki. Þá er
einnig fremur lágt til lofts aft-
ur í. Farangursgeymslan er
rúmgóð. Stjórntækjum er allvel
fyrirkomið en þó hætti mér til
að flauta í tíma og ótíma þegar
beita þurfti stýrinu snöggt þar
sem flautuhnapparnir þrír
þurfa mjög lítið stuð og eru
nálægt fingrunum á stýrishjól-
inu.
Toyota Corona Mk. II 4ra
dyra kostar um kr. 2.060 þús-
und. Toyota umboðið er að
Nýbýlavegi 10, Kópavogi.
br.h.
Bdar
Áhugavert frimerkja-
efni á uppboði
1 siðasta þætti gat ég þess, að
frimerkjauppboð Félags
frimerkjasafnara stæði fyrir
dyrum. Og nú er stundin
runnin upp, því að það hefst I
dag kl. 14 í ráðstefnusal Hótel
Loftleiða. Verður sýningar-
efnið til sýnis frá kl. 10 og þar
til uppboðið hefst. Ég hef átt
þess kost að glugga svolítið i
uppboðsefnið, og kennir þar
margra grasa eins og alltaf
áður. Er enginn efi á, að safnar-
ar munu fjölmenna á uppboðið,
enda gefst þeim þar örugglega
tækifæri til að eignast sitt af
hverju, sem vantar i söfn
þeirra. En vitaskuld má búast
við kapphlaupi um sumt, og það
hleypir verðinu eðlilega upp.
Hér á eftir mun ég stikla á
einstökum hlutum, sem ég
veitti athygli við að fletta
uppboðsskránni lauslega. En
þar sem boðin verða upp um
240 númer, eins og það er
nefnt, verður að fara fljótt yfir
sögu.
Dýrasta uppboðsefnið er
ónotuð fjórblokkasería af
Alþingishátiðarfrimerkjunum
1930, þ.e. almennu merkjunum.
Er hún metin á 150 þús. krónur.
Vissulega er þetta há upphæð,
en þó er hún ekki nema um
60% af verði Facit-lista
1976/77. Fjórblokkir af öllum
þessum merkjum eru ekki
heldur á hverju strái. Einnig
eru á uppboðinu fjórblokkir af
þjónustufrimerkjum Alþingis-
hátiðarmerkjanna, en þvi
miður vantar hér öll hærri
verðgildin frá 50 aura merkinu.
Dýrust stök fjórblokk er
frimerki með mynd af Alþingis-
húsinu frá 1952, 25 kr., þ.e. 100
krónur að nafnverði. Hér er
fjórblokkin óstimpluð
(óhengd) metin á 65 þús.
krónur! Þetta frimerki hækkar
stöðugt i verði ónotað enda var
upplag þess ekki nema 150 þús.
eintök og mest af þvi notað á
póstsendingar. Engu að síður
verður að telja þessa miklu
verðhækkun til hreinnar
undantekningar i Islenzkri
frímerkjasögu og næsta ótrú-
lega, þegar miðað er við ýmis
önnur frimerki, sem út komu I
miklu minna upplagi en þetta
merki. Þá er á uppboðinu ónot-
uð f jórblokk af 15
aura frímerki frá 1920 með
mynd af Kr. X. Hún er skráð I
Facit á 2 þús. sænskar krónur
— eða um 90 þús. ísl. krónur.
Til skamms tima var verð
Brldge
umsjón ARNÓR
RAGNARSSON
Sveit Jóns Páls
með fullt hús
stiga í aðalsveita-
keppni Ásanna
AÐAL-sveitakeppni Ásanna
hófst sl. mánudag og mættu 14
sveitir til leiks, en það er met-
þátttaka f sveitakeppni hjá fé-
laginu. öll innanfélagsmót Ás-
anna þetta starfsárið hafa verið
geysilega vel sótt, hvert og eitt
metmót?
Orslit siðasta mánudags urðu
þessi:
1. umferð:
Jón Páll Sigurjónson —
Guðmundur Grétarsson 20—0
Sverrir Kristinsson —
Þorlákur Jónsson 20—0
Trausti Valsson NPC —
Sv. Gosanna NPC 20—0
Július Snorrason —
Jóhann Bogason 15—5
Erla Sigurjónsdóttir — Jón
Hermannsson 13—7
Hrólfur Hjaltason — Kristján
Blöndal 13—7
Jón Andrésson —
Ólafur Lárusson 13—7.
2. umferð:
Jón Páll Sigurjónsson —
Erla Sigurjónsdóttir 20—0
Kristján Blöndal —
Sverrir Kristinsson 18—2
Sv. Gosanna NPC —
Guðmundur Grétarsson 17—3
Ólafur Lárusson —
Trausti Valsson NPC 15—5
Jón Hermannsson —
Július Snorrason 14—6
Þorlákur Jónsson —
Jón Andrésson 14—6
Hrólfur Hjaltason —
Jóh an n Bogason 11 —9
Staða efstu sveita eftir 2 um-
ferðir:
1. Sv. Jóns Páls Sigurjónssonar
40 stig.
2. Sv. Trausta Valssonar NPC
25 stig.
3. Sv. Kristjáns Blöndals 25
stig.
4. Sv. Hrólfs Hjaltasonar 24
stig.
5. Sv. Ólafs Lárussonar 22 stig.
6. Sv. Sverris Kristinssonar 22
stig.
Spilaðir eru 2 x 16 spila leik-
ir á kvöldi, vegna fjölda sveita.
Næstu tvær umferðir verða
spilaðar mánudaginn kemur.
Keppnisstjóri er Sigurjón
Tryggvason.
Nv.meistarar I sveitakeppni
BÁK eru sveitarfélagar Ólafs
Lárussonar.
Bridgekennsla á
vegum Ásanna —
áskorun til lands-
byggðarspilara o.fl.
Kennsla f bridge á vegum
BÁK og félagsmálastofnunar f
Kðpavogi hefur vegnað mjög
vel, og eru þátttakendur skráð-
ir um 30.
Ljóst er að grundvöllur er
fyrir stöðugri kennslu á höfuð-
borgarsvæðinu, því flestir af
þessum „nemum“ eru mjög
áhugasamir. Enda er brýn
nauðsyn að fólk sem áhuga hef-
ur á að taka virkan þátt I félags-
starfsemi bridgefélaganna
hljóti einhvern grundvöll og
kjölfestu áður en farið er út I
keppni, þvi er vafasamt að færa
slíka starfsemi inn í félögin.
Slikt hefur þó verið gert á und-
anförnum árum, með misjöfn-
um árangri þó. Enda sjá menn
sem að staðaldri keppa og telja
sig „ekspert" — að alvöru-
keppni verður hálfgerð grín-
keppni, þegar 40—50% þátttak-
enda eru byrjendur eða jafnvel
ekki það, aðeins uppfylling og
nútima fallbyssufóður, eins og
Guðmundur Pétursson (L)
kemst að orði I gamalli grein.
Hvað er þá til ráða og hvað er
betra til?
Allt er betra en að etja byrj-
endum í keppni við sér snöggt-
um skárri spilara og vafasöm
ánægja til lengdar. Fæst þess-