Morgunblaðið - 27.11.1976, Síða 6
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1976
F. SCOTT FITZ6ERALD, ELIA
Um OG HAROLD PINTER
HINIR fjölmörgu aðdáendur F. Scott
Fitzgeralds velta því örugglega fyrir
sér þessa dagana, hvernig þeim leik-
stjóranum Elia Kazan og handrits-
höfundi hans, leikritaskáldinu
breska, Harold Pinter, hefur tekist til
við kvikmyndagerð hinnar sígildu
skáldsögu THE LAST TYCOON, sem
frumsýnd verður í þessari viku. Kaz-
an segir í viðtali fyrir nokkru, að
hann hafi ,,náð" anda bókarinnar,
aðrir eru þess kannski ekki eins
fullvissir Þar sem að hinir fjörutíu
og fjögur þúsund orða bókarhlutar,
sem Fitzgerald var að raða saman er
hann dó árið 1940, voru ekki
fullskapaðir, fyrir utan minnisblöð
sem voru sett saman af Edmund
Wilson, bókmenntaráðgjafa F.S.F.,
þá er nóg rúm fyrir ágiskanir á borð
við þær, hver urðu örlög Monroe
Stahr, Hollywood-,
kvikmyndajöfursins, efttr drykkju-
slag hans við Brimmer, formann
samtaka handritshöfunda Því þar
enda bókarpartarnir.
Það sem er þó almennt viður-
kennt, er, að Fitzgerald dró upp
Monroe Stahr af reynslu sinni og
sögusögnum um Irving Thalberg,
framleiðslustjóra M G-M, sem dó
árið 1936, aðeiris 37 ára gamall.
Fitzgerald kynntist Thalberg, þá er
skáldið dvaldist fyrst í Hollywood
árið 1927, og vann siðar fyrir hann
árin 1931 — 2. Árið 1937, þegar
Fitzgerald sneri aftur til Hollywood,
þar sem hann eyddi síðustu þrem
árum sínum, heyrði hann fjölmargt
af Thalberg, sem þá var orðinn að
goðsögn í kvikmyndaborginni.
Þar sem kvikmyndin fjallar um
Hollywood, innviði kvikmyndaver-
anna og þau átök sem þar eiga sér
stað, þá er forvitnilegt að vita hversu
Paramount-myndin verður sönn sem
lýsing á því sem fram fer á bak við
tjöldin. Leikstjórinn Elia Kazan, sem
nú meðhöndlar efnivið sem er ólíkur
hans fyrri myndum, eins og A
STREETCAR NAMED DESIRE, ON
THE WATERFRONT og BABV DOLL,
segir að myndin sé raunsæisleg
lýsing á Hollywood
Hvað sem því líður, þá má draga
þá ályktun af myndinni, að
Hollywood hneigist frekar að draum-
sýnuhl en raunveruleika og að Stahr
gangi vissulega miklu betur að um-
gangast stjörnur kvikmyndaborgar-
innar en þá sem ekki eru sokknir
upp fyrir höfuð í amstri kvikmynda-
veranna. í kvikmyndinni, svo dæmi
sé tekið, er miðaldra leikkona látin
koma fram fögur og aðlaðandi;
raunveruleikanum ýtt til hliðar til að
koma fram vilja Stahr. En undir
þeim, sem mætti kalla raunverulegu
kringumstæðum, er Hollywood lýst
sem óaðlaðandi borg
„Þetta er kvikmynd", útskýrir leik-
Einn virtasti leikstjóri
Bandaríkjamanna fyrr
og siðar leikstýrir THE
LASTTYCOON.
Robert De Niro og Ingrid
Boulting í THE LAST
TYCOON
stjórinn Kazan, ..sem skoðar innri
mann athyglisverðrar persónu. flók-
innar persónu, ruglaðrar persónu,
einkennilegrar og viðkvæmrar per-
sónu Monroe Stahr er frábær í
viðskiptum, en leit hans að
hamingju í lífinu er misheppnuð
kUlk-tf w
mijnck ■■
/íöcin 1
ij l
SÆBJÖRN VALDIMARSSON
Hér er sannkallaður harðjaxl. stór-
kostlegur yfirmaður sem á auðvelt
með að ráða bót á öllum vandamál-
um sem upp koma í viðskiptalifinu.
en getur ekkert gert til hjálpar sinum
eigin Þegar stúlkan (Kathleen More)
verður ekki að imynd rómantíkur-
innar, heldur venjuleg, raunsæ og
jarðbundin manneskja, þá veit hann
ekki hvað til bragðs á að taka Þann-
ig var hann. Ég reyndi að gera Stahr
harðbrjósta einstaka sinnum.
Annars, eins og þegar hann er með
Kathleen, þá veit hann ekki hvað
gera skal."
Slikar mótsagnir telur Kazan
óháðar bæði tima og landamærum.
„Allir eiga við mótsagnakenndina að
striða Stahr hans Fitzgeralds er
ennþá til Sambland viðskipta-
baráttu og viðkvæmni, það er
Amerika "
Kazan var ráðinn leikstjóri eftir að
Pinter hafði lokið við handritið og að
Mike Nichols, sem var fyrsta val
framleiðandans. Sam S. Spiegels.
hafði yfirgefið myndgerðina. ,,Ég
breytti ekki einu einasta orði af þvi
sem Pinter skrifaði," segir Kazan,
heldur. Þvl það er grunur minn
að eldri kynslóðin hafi ekki ver-
ið nægilega vakandi yfir þess-
um miklu háttalagsbreytingum.
Litið sem ekkert hafi verið auk-
ið við þá feimnislegu fræðslu
sem fyrir var, bæði hvað varðar
kynferðislif almennt og kyn-
sjúkdóma.
Á dögunum hóf göngu sina í
Laugarásbíó mjög snyrtileg
mynd um þetta vandamál, og
nefnist hún ÞETTA GÆTI
HENT ÞIG, bresk að uppruna.
Er myndin bæði fræðslumynd
um algengustu kynsjúkdóm-
ana, syphilis og lekanda (skyldi
flatlúsin vera óþekkt kvikindi
þar um slóðir?) — þar sem einn
kunnasti kynsjúkdómasérfræð-
ingur Bretlands, dr. R.D. Catt-
erall, FRCPE, útskýrir orsakir
og afleiðingar þeirra og eins er
i myndinni leikinn söguþráður.
Þessí tvö form eru fléttuð
saman á vandvirknislegan hátt,
og hafa framleiðendur myndar-
innar hvorki gleymt því að hafa
yfirborðið nægilega létt og
fyndið, svo hinum ungu áhorf-
endum leiðist ekki setan, né
Laugarásbló: Þetta gæti
hent þig
Framleiðandi og leikstjóri:
Stanley Long. Handrit eftir
Michael Armstrong. Aðalhlut-
verk: Eric Deacon, Vicky
Williams.
Þrátt fyrir að ekki sé liðinn
nema röskur áratugur frá tán-
ingsárum undirritaðs, þá hafa
lifnaðarhættirnir sem fylgja
hinum sætu unglingsárum,
breyst ótrúlega mikið síðan.
Einkum og sér i lagi hefur
frjálsræði í kynferðismálum
aukist verulega (enda pillan þá
tæpast uppfundin, og hver ein-
asta manneskja með tilfinningu
hafði hina megnustu skömm á
getnaðarverjum þess tima).
Sjálfsagt er þetta aukna frelsi
til bóta, en veldur þó hver á
Þetta
gæti hent þig.
Kærkomin kennslnmynd
‘F'Scott ^ jCri
Titzgerald's
LasfTycoori
A Romance
Paramount Pictures Presents A Sam Spiegel-EIia Kazan Film
starring Robert De Niro
Tbny Curtis Robert Mitchum Jeanne Moreau
Jack Nicholson Donald Pleasence
RayMilland DanaAndrews andintroducmglngrid Boulting
Screenplay by H arold PÚlter Produced by Sam Spiegel Directed by Elia Kazan
Music by Maurice Jarre Production Síervices by Tycoon Service Companyp
fpdwmninirf ittirTm-Br] Read the Bantam Paperback Technicolor* A Paramount Release
Itw* Maimilx Im m tímim m wtwÆB ^.
I Special benefit performance tomorrow for PROJECT HOPE
WORLD PREMIERE WEDNESDAYlCINEMA l|
3rd Ave at 60th St.
sem sjálfur er einnig heimsfrægur
rithöfundur (THE ASSASSINS. ofl),
en gerði mínar breytingar á sviðs-
setningum."
„THE LAST TYCOON", heldur
Kazan áfram, „er fegursta skáldsaga
Fitzgeralds. Ég las hana margoft.
Kvikmyndagerðina reyndi ég að
gera sem hljóðlátasta og sem
næmasta lýsingu á smáatriðunum
sem eiga sér stað á milli tveggja
persóna, sérstaklega í huga þeirra
Það eru engin varmenni né raun-
verulegar hetjur í bókum Fitz-
geralds, eftir þvi sem mér sýnist.
Það sem gert er í kvikmyndinni er að
sýna mótsagnirnar í lífi fólks. Átök
Stahrs við Brimmer standa ekki
lengi yfir. Þetta kom Brimmer í raun-
inni lítið við; þetta var kvöl Stahrs
vegna Kathleenar og vonbrigði. Að
öllu jöfnu hefðu þeir átt hrossakaup
saman."
Eins og kunnugt er vann
Fitzgerald síðustu æviár sín i Holly-
wood í míkilli niðurlægingu. Sem
skáld komst hann á hátind frægðar-
innar allmörgum árum áður, eða
eftir að hann lauk við THE GREAT
GATSBY. Með bókinni THE LAST
TYCOON ætlaði hann að Qndurreisa
virðingu sína. Hann skrifaði aðeins
eitt handrit að kvikmynd. THREE
COMRADES (1937). Drykkjuskapur
Fitzgeralds og heilsuleysi varð þess
valdandi að hann átti aðeins hlut í
handritunum GONE WITH THE
WIND, WINTER CARNIVAL,
RAFFLES og EVERYTING HAPPENS
AT NIGHT
Að öllum líkindum verður THE
LAST TYCOON ein af myndum
ársins, bæði hvað vinsældir snertir
og fjölda OSCAR-tilnefninga. — Og
jafnvel verðlauna, því auk þeirra
sem áður hafa verið nafngreind-
ir.eru það engin smánöfn sem tengj-
ast myndinni. Með aðalhlutverkið
— Monroe Stahr — fer enginn
annar en Robert De Niro (THE GOD-
FATHER PART II, TAXI DRIVER)
Með önnur stór hlutverk fara Robert
Mitchum. Jeanne Moreau, Jack
Nicholson, Tony Curtis, Donald
Pleasence, Dana Andrews og Ray
Milland. í vandasömu hlutverki
Kathleenar er óþekkt, ensk leikkona,
Ingrid Boulting að nafni (sjálfsagt í
ætt við þá Boulting-bræður).
Afleiðingar kynsjúkdóma eru vfðtækari en flesta
grunar.
heldur fallið fyrir þeirri freist-
ingu að krydda myndina með
„djörfum“ atriðum til aö hressa
upp á aðsóknina. Öll slík atriði
eru gerð á sem hóflegastan
hátt.
Að minu viti ætti allt að því
að skylda unglinga til þess aö
sjá þessa mynd, — jafnvel að
lækka aldurstakmarkið niður I
12—13 ár. Því jafnvel þó að
menn séu allir af vilja gerðir að
finna henni eitthvað til ámælis,
þá verður ekki séð að hún geti
neinum spillt, né komið inn
óæskilegum hugmyndum hjá
nokkurri sál.
Velheppnuð fræðslumynd
um kynsjúkdóma er hreinasti
hvalreki yngri kynslóðinni, og
þá sérstaklega þegar upp-
fræðslan er í jafn smekklegum
og skemmtilegum umbúðum og
raun ber vitni.