Morgunblaðið - 27.11.1976, Síða 7

Morgunblaðið - 27.11.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1976 31 Aðventuskreytingar Nú þegar jólafasta — aðventan — gengur í garð þykir tilhlýðilegt að í „Blómi vikunn- ar“ verði ofurlítið mannst á aðventuskreytingar sem hér á landi hafa átt mjög auknum vinsældum að fagna á seinni árum. 1 nágrannalöndunum t.d. Danmörku hafa þessar skreyt- ingar verið viðtekin venja um langan aldur, oftast nær í formi hins hefðbundna krans sem enn tíðkast. Kransinn er þá skreyttur með fjórum kertum, silkiborðum, könglum og e.t.v. einhverju fleiru. Norður á bóginn mun þessi siður einkum hafa borist frá katólskum í Suður-Evrópu en þar suður frá skyldu borðarnir á kransinum vera lillabláir eða skærrauðir og höfðu þeir litir táknræna merkingu þar. Venjan er sú að fyrsta sunnudag í jólaföstu sé kveikt á einu kertanna, næsta sunnudag á öðru og svo koll af kolli þar til jólaföstunni lýkur og þegar sjálf jólahátiðin gengur I garð á að tendra öll ljósin fjögur. Hafa „börn á öllum aldri" jafnan gaman af að telja vikurnar til jóla með þessu móti. Eins og áður var á minnst hefur krasinn verið og er enn algengasta formið en á síðari árum hafa komið fram fjöl- breyttari gerðir af þessum skreytingum og þá úr margs konar efni svo sem keramik, tré, smiðajárni ofl. málmum að ógleymdum tágakrönsunum sem hér voru afar vinsælir um eitt skeið og geta með góðri meðferð enst árum saman. En hvert sem efnið er i skreyting- unni breytir það þó aldrei höfuðreglunni um kertin fjögur. NORÐMANNSGRENI (Abies nordmanniana) er mjög heppilegt til hverskyns skreyt- inga enda heldur það barr- nálunum mjög lengi og sama er að segja um svokallað NOBELGRENI (abies nobilis). Venjulegt rauðgreni má heita óhæft í skreytingar innanhúss fyrir það hversu fljótt nálarnar hrynja af því. Skemmtilegast er að nota sem allra mest af „náttúrlegu" efni til skreytinga, má þar til nefna þurrkuð blóm, hvers kyns strá, öx og fræstöngla en sniðganga frekar áberandi plastblóm sem aldrei geta farið vel með lifandi gróðri. Nýtízkuleg aðventuskreyting búin til úr þurrum viðar- renglum. I sjálfum hringnum eru fjórir bútar lítið eitt sveigðir sem festir eru á aðra fjóra upprétta svo sem sjá má á myndinni. Á samskeytum bút- anna er komið fyrir smá kekki af leir sem kerti, grenikvistum og slaufu er stungið í. Því miður höfum við ekki við höndina nánari skilgreiningu á verkinu en margt má búa til þessu líkt ef vilji, áhugi og hug- myndaflug er fyrir hendi og til margvfslegra nota f þessa átt er birkið okkar. Skreytingin sem myndin sýnir er fyrst og fremst ætluð til þess að standa á borði en eflaust má þó með smá hag- ræðingu einnig láta slíka skreytingu hanga. A.B. Jólasundmót öryrkja 1976 25. nóv. — 13. des. -5-4—,1 (nafn) (aldur) (heimilisfang) Sundstaður: ^Örorka vegna: Sendist tH Í.S.Í. Box 864, Reykjavik.' (tilgrainið t.d. lömun, fötlun, blinda. vangafni o.s.frv. Þátttöku staðfostir Jólasundmót öryrkja: ,,Hressist og styrkist vid ad fara í sundið” Páll Pálsson svamlar f lauginni að Reykjalundi. (Ljósm. Friðþiófur). VIÐ lögðum leið okkar upp að Reykjalundi á fimmtudaginn og fylgdumst þar með sundæf- ingum nokkurra öryrkja. Sund- Iaugin f Reykjalundi er að flestu leyti mjög hentug fyrir fólk, sem að einhverju leyti á erfitt með hreyfingu. Skábraut er meðfram lauginni og tröppur þarf fólk, sem er f hjólastól, ekki að fara yfir. Til að komast ofan f laugina geta þau sem mest eru bækluð notað lyftu, sem flytur þau af ská- brautinni ofan f laugina. I Reykjalundi eru það frá 40 — 60 öryrkjar, sem nota sund- laugina á hverjum degi. Mikill áhugi er meðal þessa fólks og munu flest þeirra ætla að taka þátt í jólasundmótinu að sögn sjúkraþjálfara og annars starfs- fólks þar. Einn þeirra, sem var að synda i lauginni meðan Morgunblaðsmenn stöldruðu við í Reykjalundi, var Páfl Pálsson, fyrrum bóndi í Eski- fjarðarseli inn af Eskifirði. Meðan Páfl hafði fulla orku lenti hann oft í svaðilförum og var meðal annars þrisvar sinnum hætt kominn i straum- hörðum ám. Fyrir nokkrum árum lenti Páll í bílslysi og hefur haft litla orku í fótum og handleggjum síðan. — Eg hef aldrei lært að synda, segir Páll í viðtali viö Morgunblaðiö. — Meöan ég bjó í Eskifjarðarseli var engin sundlaug á Eskifirði og það var ekki fyrb en ég komst á full- orðinsár að farið var aö keyra börn á sundnámskeið á Eiðum. Eftir að ég kom hingað hef ég hins vegar synt mjög mikió og þakka ég Marfu Guðmunds- dóttur hjúkrunarkonu það sem ég get fleytt mér, en hún kenndi mér að æfa mig sjálfur. — Ég fer eins oft hingað í sundlaugina og ég mögulega kemst, en ég verð nú að segja það að mér finnst ég lftið kom- ast áfram. Ekki hef ég mikið úthald og þreytist ffjótt en eftir að hafa slappað af í vatninu svolitla stund með þvf að láta mig fljóta á bakinu get ég byrjað strax aftur. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um það hvað ég er miklu hressari eftir að hafa farið í sundlaugina, auk þess sem ég finn hve ég styrkist við það. — Jú, ætli ég verði ekki með í jólasundmótinu, ef þið þá hald- ið að ég sé liðtækur i það sagði Páll að lokum. Vörur íbesta gædafíokki 3 PLANTER5 l&ektcul ^PEANUTS^ ?p ALL FLAVORS gelatin Allskonar hnetur í dósum og pokum Hnetusmjör Skyndite med srtrónubragdi Matarolía, maísolía og hnetuolía. BabyRuth Mataro/ía Lyftiduft Steikingarolra Skyndibúðingar Ávaxtahiaup Ostakaka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.