Morgunblaðið - 27.11.1976, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1976
39
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
nrtímYYuwu
lesendur góðir, að bregðast við
þessu vandamáli og i framhaldi af
því mætti ef til vill spyrja: Hver
er kostnaður ríkisins af völdum
áfengisneyzlu og hvaða tekjur
fær ríkið í sinn hlut vegna sölu
áfengis? Við höfum nýlega heyrt
getið um það í fréttum að tekjur
ríkisins af áfengissölu eru nokkr-
ar, en hver ætli sé kostnaður af
völdum hennar, tjón, sjúkrahús-
legur o.s.frv.
0 Finnum enn
betra leiðakerfi
Einn af eldri borgurum í
Reykjavík kom fyrir nokkru að
máli við Velvakanda og ræddi
ýmislegt um Strætisvagna
Reykjavíkur. Hann var m.a. á
þeirri skoðun að það þyrfti að
breyta nokkuð leiðakerfinu, sem
komið var á fyrir nokkrum árum.
Það væri á margan hátt óhentugt
t.d. eins og sagt hefur verið frá og
menn hafa kynnzt að sumir vagn-
anna koma allir á sömu mínútun-
um niður Laugaveg á kvöldtíman-
um, svo menn þurfa að bíða þar í
nærri hálftíma eftir að sjá
nokkurn vagn. Þessi eldri borgari
var líka á þeirri skoðun að betra
væri að umferð færi inn Lauga-
veg og niður Hverfisgötu, en það
mun hafa verið ráðgert þegar
hægri umferðin tók gildi svo sem
flestir muna sjálfsagt eftir. Það
væri á vissan hátt hagræði í þvi að
geta farið inn Laugaveginn, en
mætti sennilega búast við mót-
mælum frá kaupmönnum þar.
Þá nefndi hann skiptimiðakerf-
ið og sagði að það væri á margan
hátt misnotað, eins og bent var á í
dálkunum hér fyrir stuttu. Að
lokum kom hann inn á að það
virtist sem að ekki væri gætt nógu
mikillar hagsýni varðandi
reksturinn í heild og það væri
kannski svo með öll opinber fyrir-
tæki að það væri enginn sem ætti
þau og þess vegna bæri enginn
hag þeirra verulega fyrir brjósti.
Og hann spurði hvaða þýðingu
talstöðvar þær ættu að hafa, sem
væri ráðgert að kaupa á næstunni
og koma fyrir í vögnunum?
í»essir hringdu . . .
0 Breyttur tími
morgunstundar-
innar
Móðir barna sem oft hlustuðu á
morgunstundina:
fara varla að rífa sig upp svo
snemma til að hlusta á sögur.
Annað, sem breytt var i' út-
varpsdagskránni nú í haust, er
timi óskalaga sjúklinga. Það var
a.m.k. einu sinni þannig að sjúkl-
ingar voru alltaf baðaðir á föstu-
dagsmorgnum en á laugardögum
var frí og ekki átt neitt við
sjúklingana.
Það hlýtur að vera einhver
ástæða fyrir þessari breytingu en
ég man ekki eftir að hafa heyrt
hennar getið. Er hægt að fá svar
við því hvers vegna þetta var
gert?
0 Silfurarmband
Anna Guðmundsdóttir leikkona
hringdi og sagði farir sínar ekki
sléttar. Hún týndi nýlega
oxideruðu silfurarmbandi með
stórum kúptum granatsteinum og
smáum grænum túrkissteinum.
Anna veit ekki hvar hún hefur
týnt armbandinu, en það eru
vinsamleg tilmæli hennar til þess,
sem hefur fundið það, að hringja í
síma 12364. Yrði hún þeim
fjarskalega þakklát.
HÖGNI HREKKVÍSI
OPIÐ TIL
HÁDEGIS
ITÖLSKU
SEGUL-
LAMPARNIR
KOMNIR
AFTUR
VERÐ KR.
2.600,—
SENDUM í PÓSTKRÖFU
STÆKKUNAR-
LAMPINN
FRÁ LUXO
VERÐ KR.
10.086,—
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LIÓS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
simi 84488
Þessi breytti tími á morgun-
stund barnanna kemur ekki vel
við þar sem ég þekki til. A mínu
heimili hefur alltaf verið hlustað
á þennan þátt og sonur minn sem
nú er átta ára er tæplega
vaknaður svo snemma á morgn-
ana, en hann er í skóla eftir
hádegið. Börn eru yfirleitt ekki
vöknuð kl. 8 á morgnana og þau
Hann er grámyglulegur af
svefnleysi, frakkinn hans krump-
inn.
— Farðu niður í Gullhring-
inn... Annars hefur dálftið kom-
ið fyrir...
— Hvaðþá?
— Saxafónleikarinn fékk kúlu f
skrokkinn.
Lögregluforinginn segir þetta
ógn hirðuleysislega, en Lueas læt-
ur það ekki villa um fyrir sér og
hann hristir höfuðið þegar hann
gengur á braut.
Nú skal látið til skarar skrfða.
Maigret lftur ánægður f kringum
sig, eins og hann sé glaður yfir
þvf að vera kominn aftur ó nota-
legan stað... Svo gengur hann að
aðaldyrunum. Nei. Nei... annars
væri lfklega betra að fara inn
bakdyramegin.
Hann opnar hliðið. Dyrnar eru
opnar.
Svo stendur hann kyrr yfir sig
hissa. Þegar Felicie heyrir fóta-
tak hans kemur hún til dyra og
horfir á hann illum augum.
En hvað f ósköpunum er að
henni. Ósköp er hún breytt. Getur
verið að hún sé svona bólgin af
gráti? Og hrukkurnar f andlit-
inu? Ekki eru þær eftir tár.
Þegar hann gengur nær henni,
segir hún með hvassyrtri röddu:
— Jæja, kannski þér séuð
ánægður?
DRÁTTHAGI HLÝANTURINN
Vöruflutningar
frá Noregi til fslands
Frá 1. janúar 1977 mun Det Stavangerske
Dampskibsselskab í Stavanger fara með aðal-
umboð fyrir H.F. Eimskipafélag íslands í Noregi,
og frá sama tíma munu skip Eimskipafélagsins
ferma vörur í Stavanger á miðvikudögum í
annarri hvorri viku, í stað Kristiansand áður.
Samtímis því, að ferðir hefjast frá Stavanger til
íslands, verður komið að skipulögðum flutning-
um á vörum frá öðrum höfnum í Noregi til
Stavanger fyrir hagstætt gjald, og geta vöru-
sendendur fengið útgefið gegnumgangandi
farmskírteini í upprunahöfninni.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu vorri.
H.F. Eimskipafélag Islands