Morgunblaðið - 28.11.1976, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NOVEMBER Í976
49
Gary hefur dundað við að teikna,
og hér eru tvær myndir hans af
Nicole.
byssunni í vinstri hönd Garys.
Gekk hann nú að næstu bensin-
stöð þar sem hann hafði lagt bif-
reið sinni, en hélt blóðugri hend-
inni I vasa sínum til að sárið sæist
ekki. Afgreiðslumaður á bensin-
stöðinni sá til ferða Garys, gerði
lögreglunni viðvart, og Gary var
kominn á bak við lás óg slá á ný
fyrir dögun.
Dauðadómur
Eftir á sagði Gary að æði hans
hefði ekki verið I neinum tengsl-
um við Nicole, hann væri orðinn
leiður á henni, börnum hennar og
samveru þeirra í heild. Nicole var
ekki á sama máli, en sagði við
blaðamann: Hann myrti þá, svo
hann þyrfti ekki að drepa mig.
1 október var Gary sekur fund-
inn um morð, og dæmdur til
dauða. Var honum í sjálfsvald
sett hvort hann yrði líflátinn með
hengingu eða skotinn til bana af
fimm manna skotsveit. Gary kaus
skotsveitina eins og raunar 38
þeirra 44 glæpamanna, sem líf-
látnir hafa verið í sögu Utah-rikis.
Dauðadæmdum afbrotamönn-
um liggur sjaldnast á að fá að
afplána dóminn, en örðu máli
gegnir um Gary Gilmore, eða svo
segir hann að minnsta kosti. Hann
vill ekki bíða, heldur láta taka sig
af lífi sem allra fyrst. Þetta hafði
henn einnig tilkynnt lögfræðing-
um sínum áður en dómur var upp
kveðinn. Þeir áfrýjuðu dómnum
þrátt fyrir óskir Garys, og brást
Gary illur við og sagði lögfræðing-
unum upp. I þeirra stað fékk
hann sér annan lögfræðing Denn-
is Boaz, sem tók að sér málið gegn
því að fá helming útgáfuréttar að
hugsanlegri bók um mál Garys.
Sjálfur skrifaði Gary dómurum
sínum og skammaði þá fyrir lin-
kind. „Þið eruð kjánar,“ segir
hann í bréfinu. ,,Ég hef verið
dæmdur til dauða, og ég tek þvi.
Látum verða af því.“ Gary var
næst tekinn til yfirheyrslu á ný,
og mætti handjárnaður frammi
fyrir dómurunum þar sem hann
krafðist þess að fá að deyja. Einn
fyrri lögfræðinga hans stóð þá
upp og benti á að krafa þessi væri
sjálfsmorð, en einn dómaranna
svaraði aðeins: „Þér kemur málið
ekki lengur við.“ Þvi næst
greiddu dómararnir atkvæði og
samþykktu með 4 atkvæðum gegn
einu að dómnum skyldi fullnægt
samkvæmt áætlun 15. nóvember.
Þessari ákvörðun dómaranna
breytti Calvin Rampton rfkis-
stjóri I Utah, og fyrirskipaði end-
urskoðun á málinu, þótt ekki hafi
verið búizt við neinni breytingu
við endurskoðunina, og þá var
það að hann fékk fyrrum ástmey
sfna Nicole til að mótmæla drætt-
inum á þann hátt að þau bæði
sviptu sig lífi.
Að deyjasaman
Gary hafði skrifast á við Nicole
eftir að hann var handtekinn fyr-
ir morðin. I einu bréfanna segir
hann meðal annars: „Þeir hafa
engan tekið af lífi nú I mörg ár, og
það er það sem ég óttast. Þvf ef ég
verð dæmdur kysi ég miklu frek-
ar skjótan dauða en aðgerðalaust
líf I fangelsi. Mér líka ekki til-
finningar mlnar I eigin garð. Sál
mln hrópar á lausn úr þessu illa
húsi, sem ég hef byggt utan um
hana.“
Um nokkurra mánaða skeið
hafði Gary verið að búa Nicole
undir það að þau yfirgæfu þenn-
an heim saman. I september sendi
hann henni ljóð, þar sem segir
meðal annars:
Say, maiden, wilt thou go
with me
Through the valley depts
of shade.
I nóvember tóku þau Nicole og
Gary ákvörðun um að deyja sam-
an, og daginn sem upprunalega
var ákveðið að Gary skyldi láta
lífið, heimsótti Nicole hann I
fangelsið þar sem þau kvöddust.
Þriðjudaginn 16. nóvember tóku
þau bæði inn stóra skammta af
svefntöflum til að hverfa á brott
úr þessum heimi. Gary tók inn tlu
til tuttugu töflur af Seconal, sem
enginn veit enn hvernig honum
tókst að ná sér I. Nicole var öllu
stórtækari, þvl hún tók bæði
Seconal og heilt glas af Dalmane.
Skammturinn
var smár
Fangelsisvörður kom að klefa
Garys skömmu eftir inntöku
svefnlyfsins, og var Gary fluttur I
skyndi i sjúkrahús. Þar kom I ljós
að skammturinn, sem hann hafði
tekið, var ekki lífshættulegur, og
tveimur sólarhringum síðar var
Gary á ný kominn I fangelsisklef-
ann sinn. Sumir læknanna halda
þvl fram að Gary hafi viljandi
tekið inn svo litinn skammt af
Seconal.
Nicole var heima hjá sér þegar
hún tók eitrið, og var það mesta
mildi að henni varð bjargað. Ná-
grannar áttu leið framhjá, og ætl-
uðu að heilsa upp á Nicole. Annar
sona hennar kom til dyra, en inni
I stofu lá Nicole I dái, með mynd
af Gary á berum brjóstum sfnum.
Nágrannarnir hringdu til lögregl-
unnar, og Nicole var flutt I
sjúkrahús, þar sem hún kom ekki
til meðvitundar fyrr en tveimur
dögum sfðar.
Eins og fyrr segir halda sumir
lækna Garys þvf fram að hann
hafi alls ekki ætlað að fyrirfara
sér. Brenda frænka hans er á
sama máli. Þegar hún heimsótti
Gary eftir sjálfsmorðstilraunina,
sagði hún við frænda sinn: „Þetta
var alls ekki banvænn skammtur,
og þú veizt það.“ Gary fór að
hlæja, og svaraði: „Jæja, ég býst
við þvf að frænka ætti að vita það,
en ég viðurkenni ekki neitt."
Gary Gilmore situr nú enn I
fangelsinu og bfður þess sem
koma skal. Búizt er við að endan-
leg ákvörðun um örlög hans verði
tekin um miðjan desember.
(Að mestu unnið úr
NEWSWEEK)
jólasveinninn
er komínn (
glugga Ramma-
gerðarinnar,
látið
Rammagerðina
ganga frá jóla-
sendingum til vina
yðar og ættingja
erlendis
I Kammat't'rcMnni or mikit)
úrval af fallcgri gjafavöru viö
allra lurfi. ni.a. silfur, kcrairlik.
skinna- ofi; ullarvörur.
moccakápur- og jakkar. luckur.
hljómplijtur og þjóólcgir
útskornir munir.
Þér veljið gjafirnar.
Rammageróin pakkar og
scndir. Allar sendingar eru
fulltryggóar.
Komið tímanlega.
Sendum um allan heim!
RAMMAGERÐIN
HAFNARSTRÆTI 19, HÓTEL LOFTLEIÐIR
Höfum
opnað
glæsilegt sportmagasine
á tveimur hæðum
i húsi Litavers
viö Grensásveg.
Næg bílastæöi.
Sportmagasine Goðaborg hf.,
sími 81617 - 82125.