Morgunblaðið - 17.12.1976, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.12.1976, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1976 Sovét: Gydingar bidja Ford hjálpar WashinKton, 16. des. Ntb. UM ÞAÐ bil eitt hundrað Gyðing- ar hafa heðið Gerald Ford, forseta Bandaríkjanna, um hjálp til að koma í veg fyrir að sovézk stjórn- völd geri að engu áform um ráð- stefnu um menningu Gyðinga sem halda á dagana 21.—23. desember. Samkvæmt áætlun átti að halda ráðstefnuna f Moskvu og töluverður fjöldi evrópskra Gyð- inga, sem ætlaði að sækja ráð- stefnuna hefur ekki fengið vega- bréfsáritun til að koma til Sovétrfkjanna. Samtals hafa 95 Gyðingar frá sex sovézkum borgum og bæjum sent bréf til Fords, þar sem eftir því er óskað að Bandarikjamenn taki málið upp á vettvangi Sam- einuðu þjóðanna með skfrskotun til Helsinkisáttmálans. Skæruliðar myrtu 30 manns 1 spreng- ingu í Argentínu Buenos Aires, 16. des. NTB. AP. FIMMTAN manns létu lífið og þrjátfu slösuðust þegar sprengja sprakk f litlu kvikmyndahúsi f húsakynnum varnarmálaráðu- neytisins f Buenos Aires f gær- kveldi. Vinstrisinnuðu skæruliða- Tveir drepnir á N-írlandi Belfast. 16. des. Ntb. TVEIR menn voru skotnir til bana á Norður-lrlandi sl. nótt. Annar var nftján ára gamall lög- reglumaður en hinn beið bana þegar hann lenti f skothrfð sem stóð yfir milli skæruliðahóps og hermanna f bænum Keady. samtökin Montoneros lýstu þegar ábyrgðinni á hendur sér. Þetta er hrikalegasta sprengjuárás sem gerð hefur verið sfðan í júlí sl. þegar sprengju var komið fyrir í horðsal aðallögreglustöðvar borgarinnar og tuttugu og tveir fórust þá. Meðal þeirra sem létust voru tveir diplómatar, hershöfðingi einn og nokkrir úr hernum, og óbreyttir borgarar. Sprengjan var af gerð sem mik- ið var notuð f Víetnamstríðinu. Gífurlegar sprengjur urðu á bygg- ingunni og mikall reykur gaus upp. Björgunarsveitir voru lengi að störfum og er ekki talið útilok- að að fleiri kunni að hafa slasast eða Iátist en vitað er nú um. Stórsigur stjórn- arflokks Jamaica Kingston. 16. des. Reuter. Ntb. ÞJÓÐARFLOKKUR Michaels Manleys forsætisráðherra vann ótvfræðan sigur f þingkosningun- um á Jamaica f gær. Var Ijóst að flokkurinn myndi fá skýlausan meirihluta á þingi landsins, að minnsta kosti rösklega 40 þing- sæti og e.t.v. allt að 48 sætum af 60. Nýja þingið er kjörið til fimm ára og með slfkum meirihluta yf- ir Verkamannaflokkinn JLP get- ur forsætisráðherrann haldið til streitu stefnu sinni meðal annars að slfta tengsl við Kúbu. Verka- mannaflokkurinn fær sennilega hin tólf sætin. Kosningabaráttan á Jamaica einkenndist mjög af götubardög- um og ofbeldisverkum. Einn ung- ur maður var skotinn til bana af lögreglu og einn af frambjóðend- unum hlaut skotsár og aðsúgur var gerður að honum. A kosninga- daginn sjálfan voru mjög strang- ar öryggisráðstafanir gerðar við alla kjörstaði. Manley forsætisráðherra sagði í dag þegar úrslitin voru ljós að þau sýndu að þjóðin óttaðist ekki að landið stefndi til kommúnisma. Leiðtogi Verkamannaflokksins, Edward Seaga, sagði að sigur stjórnarflokksins væri staðreynd og hann væri ótvíræður. Þetta skip ættu ýmsir íslendingar að kannast við: brezka eftirlitsskipið Miranda er hér í slipp i Hull til viðgerða og endurbóta eftir að hafa verið löngum á íslandsmiðum. j texta með myndinni er sagt að ekki sé búist við að Miranda fari aftur á islandsmið fyrr en „málin skýrist". Literaturnia Gazeta: Fjölmiðlar á Vesturlönd- um með móðursýkiskrampa Moskvu, 16. des. Reuter. MALGAGN sovézku rithöfunda- samtakanna Literaturnia Gazeta sagði f dag að vestrænir fjölmiðl- ar væru f móðursýkiskrampakasti sfðan austur-þýzka ljóðasöngvar- anum Wolf Biermann hefði verið neitað um leyfi til að koma heim til sfn aftur. 1 greininni segir að þessi ákvörðun stjórnvalda f Austur- Þýzkalandi hafi notið fulls stuðn- ings austur-þýzkra verkamanna og menntafólks. í greininni var einnig sagt að hvers kyns bænaskjöl væru nú soðin saman og hugsuðir reyndu að forma mál sitt eins fagurlega og þeim væri unnt og auðvitað væri stöðugt verið að vitna til Helsinkisamningsins, þótt ekki hefði frekar en venjulega verið orð sagt um þá staðreynd að Helsinkiyfirlýsingin hefði ekki nein áhrif á lög þeirra landa sem skrifuðu undir hana. Leyniþjónusta Bandaríkjanna telur sig vita, aó í Austur-Evrópuríki einu hafi kunnur vísindamaður uppgötvað efni, sem orðið gæti háskalegra og mikilvirkara en öll önnur áður þekkt gereyðingarvopn. Og nú eru lögð á ráð um það, hvernig takast megi að hremma þessa uppgötvun. Víðfrægur sirkus er látinn fara í’sýningarferð til lands þessa. „I fremstu röð ævintýralegrá og spennandi bóka samtímans . . . í einu orði sagt: stórfengleg.“ The New York Times „Hammond Innes er fremstur nútíma- höfunda, sem rita spennandi og hroll- vekjandi skáldsögur." Sunday Pictorial „Hammond Innes á sér engan líka í að semja spennandi og ævintýralegar skáldsögur.“ Elizabeth Bowen, Tatler Rambo var stríðshetja. Hann var mótaður af miskunnarlausri styrjöld, þar sem mannslífin voru lítils metin. Hann var þrautþjálfaður til hvers konar harðræða . . . í friðsælli smábor þekkti hann enginn, en hann var framandi oc líklegur til að valda vandræðum. Þess vegna var honum vísað brott og engan grunaði hinn skelfilega eftirleik . . . Iðunn, Skeggiagötu l,simi 12923

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.