Morgunblaðið - 17.12.1976, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1976
narsso n
Punktur punktur
komma strik
fyrsta skáldsaga
Péturs Gunnarssonar
seldist upp á þrem
vikum—ný prentun
senn á brotum
„Húmor er leiöarljós í frásagnargerð Pétur Gunn-
arssonar . . . Það er oft hrein unun að lesa þenn-
an texta . . . hrífandi skemmtileg og umhugsunar-
verð . . . dýrleg lesning.1'
Árni Þórarinsson, Vísir
Ólafur H. Guðmunds-
son — Minningarorð
Þegar samferðamaður i fullu
starfi hverfur skyndilega, fer
ekki hjá þvi að maður er nokkra
stund að :tta sig á raunveruleik-
anum.
Ég átti tal við Ólaf fyrir örfáum
dögum, um ýmis dægurmál eins
og svo oft áður, og óraði þá víst
hvorugan fyrir því, að hann ætti
eftir að hverfa svo snögglega af
lifsbrautinni. En enginn veit sína
ævina fyrr en öll er.
Ólafur Helgi Guðmundsson var
fæddur að Bessastöðum á Álfta-
nesi 7. janúar 1913. Hann varð
snemma var við erfiðleika lífsins,
þar sem veikindi ollu upplausn á
æskuheimili hans. En átta ára
gamall kom hann á heimili Bergs
Pálssonar skipstjóra og konu hans
Mekkinu Jónsdóttur að Berg-
staðastræti 57 og ólst þar upp sem
einn af fjölskyldunni.
Hann minntist veru sinnar þar
ávallt með þakklæti og virðingu.
Húsgagnasmíði lærði hann hjá
Friðriki Þorsteinssyni og tók
sveinspróf 1936. Meistarabréf
fékk hann árið 1942. Hann var
t
Faðir okkar,
ÓLAFUR JÓNSSON
á stóru Ásgeirsá.
ahdaðist á Landspitalanum 14 þ m
Margrét Ólafsdóttir
Ingibjörg Ólafsdóttir.
t
Systir okkar,
KRÍSTÍN JÓHANNESDÓTTIR
kennari, frá Skáleyjum i Breiðafirði,
andaðist á Landakotsspítala. miðvikudaginn 1 5 desember
Systkini hinnar látnu.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
LÁRUS SIGURÐSSON
Hraunkambi 6, Hafnarfirði
andaðist þann 1 1 desember
Jarðaförin fer fram 18 desember kl 11 f h. frá Þjóðkirkju Hafnar-
fjarðar Ingibjörg Bergsteinsdóttir,
Lárus Kristinn Lárusson Stefan Lárusson,
Sigríður Lárusdóttir Guðný Lárusdóttir,
tengdabörn og barnaborn
t
Minningarathöfn um son minn
GUÐMUND ELÍ GUÐMUNDSSON
frá Súgandafirði,
Stigahllð 34,' ,
sem lést af slysförum 19 nóvember s I., fer fram frá Háteigskirkju
laugardaginn 18 desemberkl 10 30
Guðmundur Jón Markússon.
t
Faðir okkar, tengdafaðír og afi.
SIGURÐUR ÞORKELSSON
fyrrum bóndi.
Barkarttöðum,
Svartárdal,
sem lést pð Héraðshælinu ) Blönduósi 12 desember, verður jarðsung-
inn frá Bergstaðakirkju laugardaginn 1 8 desember kl 2
Þorkell Sigurðsson Birna Maria Sigvaldadóttir
Bjarni Sigurðsson ísgerður Árnadóttir
Engilráð Margrét Sigurðardóttir Aðalsteinn J. Mariusson
og barnaböm
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
GUÐMUNDUR Þ. SVEINBJÖRNSSON.
verkstjóri,
er lést 6 desember. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju laugardag-
inn 18 desember kl 10 30
Jóhanna Einarsdóttir.
Þorvaldur Guðmundsson. Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Stefán Guðmundsson, Kristjana Ragnarsdóttir
og barnaböm.
einn af stofnendum Almennu
húsgagnavinnustofunnar 1945.
Ólafur kvæntist 8. júlí 1943 eft-
irlifandi konu sinni Guðrúnu
Samúelsdóttur, og eignuðust þau
þrjú börn: Samúel Jón, viðskipta-
fræðing, nú sveitastjóra á Hellis-
sandi, en kona hans er Ingibjörg
Helga Júliusdóttir; Ingibjörgu
önnu, gifta Guðmundi Daða
Agústssyni, og dreng sem dó á
fyrsta ári. Barnabörnin eru nú
orðin fjögur og átti afinn margar
góðar samverustundir með þeim.
Ólafur tekur snemma virkan
þátt i félagsmálum. Hann gekk í
Sveinafélag húsgagnasmiða árið
1936, gerðist þar varaformaður
strax á næsta ári og formaður
varð hann 1938 til ársins 1945.
Hann gekk svo I Húsgagna-
meistarafélag Reykjavíkur i janú-
ar 1946 og var kosinn þar ritari í
febrúar sama ár. Þvi starfi gegndi
hann samfleytt til ársins 1968, en
þá baðst hann undan endurkjöri.
Auk þessa starfaði hann I ýms-
um nefndum og ráðum fyrir félög
sín, og í Iðnráði Reykjavíkur hef-
ur hann verið manna lengst, og
formaður þar síðan 1972.
Af þessu sem hér er sagt sést,
hve geysilega miklum tima hann
hefur varið í félagsstörf, og þó er
hér margt ótalið. Hann var ávallt
reiðubúinn þegar til hans var leit-
að og hafði ávallt tima til þess að
vinna að málefnum félagsins.
Hann gjörþekkti félagsmálin, og
voru því oft borin undir hann
ýmis vandamál, þótt hann væri
hættur i stjórninni.
Undirritaður sat í stjórn HMFR
í 15 ár með Ólafi og naut því
rikulega starfskrafta hans og
fórnfýsi.
Fundargerðir hans bera vott
um nákvæmni og vandvirkni i
starfi og geyma skýra mynd af
sögu félagsins frá þeim tíma.
Við félagar hans I Félagi hús-
gagna- og innréttingaframleið-
enda, en svo heitir félagið nú,
vottum aðstandendum hans okkar
dýpstu samúð og þökkum hans
mikla starf I þágu félags okkar.
Karl Maack.
— Hjartans
Framhald af bls. 10
Ég reika einn um auða, veglausa strönd,
og umhverfls mig er rökkur og grafarkyrrð,
og það er eiunig húmað um hugarins lönd,
og hjartans titrandi þrá er f myrkrunum
byrgð.
£g reika einn 1 rökkursins skuggaþröng
og reyni stöðugt að flýja skðhljðð mln sjálfs,
sú barátta mln er orðin erfið og löng
og aldrel hefur mér tekizt það nema til hálfs.
Utgáfa Ljóða Jóns frá Ljárskóg-
um er þakkarverð. Hún minnir
okkur á skáld sem engin ástæða
er til að gleyma, kemur til okkar
líkt og ilmur gamalla daga.
— Þar ríkir
Framhald af bls 11
Ármann er afkastamikill höf-
undur og verk hans vekja alltaf
athygli. Það var því Skemtilegt að
fylgjast með því er hann á siðasta
ári fór inn á nýjar brautir með
bók sinni Afastrákur. Það er vafa-
mál að hann hafi náð lengra með
öðrum bókum sínum. Enda vakti
bókin mikla athygli og var fljót-
lega þýdd á norsku og er nú kom-
in út þar. Niður um strompinn,
var á þessu ári þýdd á dönsku
með styrk frá Norrænu Þýðingar-
miðstöðinni, og hefur hún fengið
ágæta dóma í Danmörku.
Teikningar eftir Halldór
Pétursson prýða bókina. Kápu-
mynd er eftir Max Weihrauch,
Frágangur er allur með ágæt-
lirn.