Morgunblaðið - 17.12.1976, Page 32

Morgunblaðið - 17.12.1976, Page 32
tr0mPW»ít)> munið trúlofunarhringa litmvndalistann fffl) <§ull Sc i£>tlfur Laugavegi 35 FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 1976 Stykkis- hólmur: Fjögurra ára drengur drukknar FJÖGURRA ára gamall drengur, Örn Sigurðsson, til heimilis að Skúlagötu 5, Stykkishólmi, drukknaði á miðvikudaginn i sjónum fyrir neðan Ægisgötu í Stykkishólmi. Litli drengurinn fór út að leika sér síðdegis á mið- vikudaginn. Þegar líða tók á daginn var farið að sakna hans og leit hafin. Þegar hún hafði ekki borið árang- ur um kvöldmatarleytið var lögreglan beðin um að- stoð og björgunarsveitin á Guðbjartsmálið: Erla Jónsdótt- ir stjórnar rannsókninni ERLU Jónsdóttur fulltrúa við sakadóm Reykjavfkur hefur verið falin rannsóknin á máli Guð- bjarts Pálssonar leigubifreiðar- stjóra. Sagði Erla f samtali við Morgunblaðið f gær, að hún væri að kynna sér málið og gæti því ekkert um það sagt nú sem stæði. Þá hafði Morgunblaðið ennfremur samband við Steingrím Gaut Kristjánsson héraðsdómara í gær, og spurði hann hvernig miðaði rannsókn vegna kærunnar um ólöglega handtöku í sambandi við Guð- bjartsmálið. Sagði Steingrímur að hann hefði í gær kallað fyrir þrjú vitni. Kvaðst hann ekki telja það tímabært að skýra frá gangi mála fyrr en rannsóknin væri lengra komin. staðnum kölluð til leitar. Klukkan 23.50 um kvöldið fannst lík litla drengsins, þar sem það var í fjöru- borðinu neðan Ægisgötu. Frá götunni niður í fjör- una eru aðlíðandi klettar og er talið að drengurinn hafi fallið þarna niður. Lodnuveidin: 5skip -2500 lestir MOKLOÐNUVEIÐI var f fyrrinótt hjá þeim fáu skipum, sem voru á miðunum og eftir þeim upplýsingum að dæma sem Morgunblaðið fékk hjá loðnunefnd f gær munu skipin hafa haldið öll f fand með full- fermi, en alls fengu 5 skip 2530 festir, og fóru flest til Siglufjarðar með aflann. Loðn- an virðist nú hafa gengið nokk- uð austur á bóginn, þvf f gær- morgun var aðalveiðisvæðið NNA af Horni, og var blfðu- veður þar f gær. Skipin sem tilkynntu um afla f gærmorgun voru þessi: Sæbjörg VE 300 lestir, Pétur Jónsson KÖ 600 lestir, Súlan EA 570 lestir, Rauðsey AK 460 lestir og Grindvfkingur GK 600 lestir. Einn bátur, Ársæll GK, fékk 220 lestir af loðnu á þessum slóðum á miðvikudagsmorgun. JÖLIN NALGAST. Ein áþreifanleg staðfesting á þvf að nú séu jólin að nálgast eru jólaböllin í skólunum, sem nú standa sem hæst. Þessa mynd tók Rax f Melaskólanum f gær og fleiri myndir eru á bls. 17. B an darí k j am arkaður: Þorskflök hafa hækk- að um 16,5% á árinu — Blokkin um 50% ÞAÐ SEM af er þessu ári, hefur þorskblokk hækkað um 50% á Bandarfkjamarkaði eða úr 60 centum f byrjun ársins f 90 cent Álfsnesuppboði frest- að enn einu sinni Sigurbjörn Eiríksson hóf málarekstur fyrir Hæsta- rétti að nýju, en er byrjaður að greiða upp í skuldir 1 DAG átti að fara fram nauðung- aruppboð á jörðinni Álfsnesi f Kjósarsýslu, eign Sigurbjörns Eirfkssonar veitingamanns f Klúbbnum. Hins vegar getur ekki orðið af uppboðinu að þessu sinni, þar sem Sigurbjörn hefur að nýju hafið málarekstur fyrir Hæstarétti, þar sem hann krefst breytinga á uppboðsskilmálum. Frestast þvf uppboðið um óákveð- inn tfma. Nauðungaruppboðið átti aðallega að fara fram vegna vangoldinna skatta og opinberra gjalda Sigurbjörns að upphæð rúmar 15,5 milljónir króna, auk vaxta og kostnaðar. Er þetta við- bótarálagning fyrir árin 1971 og 1972 (Klúbbmálið). Morgunblað- ið fékk það f gær upplýst hjá Elfasi I. Elfassyni, settum bæjar- fógeta í Hafnarfirði, að Sigur- björn hefði að undanförnu greitt hluta af þessum skuldum en enn- þá ætti hann ógreidda þó nokkra upphæð. Uppboðinu á Álfsnesi hefur síð- an í apríl 1975 verið frestað 10 sinnum að beiðni uppboðsþola, Sigurbjörns Eiríkssonar, með samþykki uppboðsbeiðenda. Sió- ast í febrúar 1976. 25. nóvember 1975 ritaði Ingi Framhald á bls. 18 nú um helgina. Þá hafa þorskflök hækkað um 16,5 cent á skömmum tfma eða úr 94 centum f 109,5 cent, sem er 16.5% hækkun. Þeg- ar þorskflökin hækkuðu nú á dög- unum höfðu þau svo til ekkert hækkað f verði frá því f fyrra- haust, er þau hækkuðu úr 85 cent- um f 94 cent. Sigurður Markússon fram- kvæmdastjóri Sjávarafurðadeild- ar Sambandsins sagði I samtali við Morgunblaðið í gær að verð hjá Coldwater, fyrirtæki SH í Bandarikjunum, og Iceland products, fyrirtæki Sambandsins þar, fylgdust ávallt að. Sagði Sig- urður, að veruleg söluaukning á fiski hefði verið á Bandaríkja- markaði á þessu ári. Flaksalan þar hefði aukist um 6% að meðal- tali og freðfisksala almennt um 17 % fyrstu 9 mánuði þessa árs. — Á þessum sama tíma, þ.e. fyrstu níu mánuðina, hefur flaka- salan hjá Iceland Products aukist um 81 % og er einhver mesta sölu- aukning, sem ég þekki. Söluaukn- ingin hefur átt sér stað, án þess að flakaframleiðsla hafi aukist að sama skapi. Aukningin er borin uppi af birgðum, sem söfnuðust fyrir á meðan sölutregða var á markaðnum, sagði Sigurður. Þá gat hann þess, að það væri nú að renna upp fyrir mönnum, að þær umframbirgðir af flökum, sem safnast hefðu fyrir f fram- leiðslulöndunum á meðan sö!u- tregðan var, væri nú að ganga til þurrðar og að ekki væri útlit fyrir verulegri framleiðsluaukningu á þessari vörutegund á næstunni til að standa undir áframhaldandi söluaukningu. Verður vald Loðnu- nefndar aukið? LAGT HEFUR verið fram á al- þingi frumvarp til laga um að ioðnunefnd verði heimilt að stöðva um stundarsakir löndun á loðnu til bræðslu á ákveðnum svæðum. t frumvarpinu er gert ráð fyrir, að nefndin geti ákveðið, að sifk stöðvun taki einungis til ákveðinna stærðarflokka skipa. Skal nefndin stuðla að dreifingu afians til fjarlægari hafna með greiðslu flutningsstyrkja. Þá á nefndinni að verða heimilt að stöðva allar veiðar á loðnu til bræðslu um stundarsakir, ef fyrirsjáanlegt er að löndunaröng- þveiti muni skapast. Frumvarp þetta er flutt að beiðni Félags (sl. fiskimjölsframleiðenda og með samþykki Landssambands fsl. út- vegsmanna og Farmanna- og fiskimannasambands Islands. 1 athugasemdunum við frum- varpið segir: „Nú er komið í ljós að bræðslu- skipið Norglobal fæst ekki leigt til landsins til loðnubræðslu á næstu vetrarvertíð eins og tvö undanfarin ár. Jafnframt er trú- legt, að þátttaka i veiðunum muni aukast, m.a. vegna miklu hærra verðs á loðnuafurðum en á s.l. vetrarvertíð loðnu, auk þess sem mörg skip hafa verið lengd og yfirbyggð að undanförnu. Fyrirsjáanlegt er, að mikið mis- ræmi verður milli aflagetu þess flota, sem loðnuveiðar stunda og móttökuskilyrða í landi. Ef ekkert er að gert, munu veiðiskipin að jafnaði halda með aflann til hafna, sem næst eru veiðisvæðun- um og skapast þar svo að segja strax löndunarbið, sem hefði í för með sér að aflinn mundi skemm- ast eða eyðileggjast. Til þess að hindra þessa þróun er nauðsynlegt að auka vald loðnunefndar frá því sem nú er. Framhald á bls. 18 Fiskverðs- ákvörðun vísað til yfirnefndar BYRJAÐ var að fjalla um fisk- verð á fundum í Verðlagsráði sjávarútvegsins I byrjun mánaðarins, en nýtt fiskverð á að taka gildi 1. jan. n.k. Sam- kvæmt þeim upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá Sveini Finnssyni, framkvæmdastjóra verðlagsráðsins, varð fljótlega ljóst, að samkomulag myndi ekki nást f undirnefnd Verð- lagsráðsins og hefur málinu nú verið vísað til yfirnefndar og eru þegar hafnir fundir í yfir- nefnd um fiskverðsákvörðun- ina. Þá tjáði Sveinn Morgunblað- inu, að undirnefnd vær'i byrjuð að fjalla um nýtt loðnu- verð, en það á að taka gildi um áramót.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.