Morgunblaðið - 06.01.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.01.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1977 3 Wsií.~ aw^í«4'*5!WT4i#B ’v "-r>- £Z' - ■-*' - * *-\íí. 'á/*?'OSíV<Si A 1- :-s «r=íiTíg'4Vr ‘ > 20 loðnuskip farin til veiða: 4 skip fengu 1900 lestir í gærmorgun ÞAU FJÖGUR skip, sem voru á loðnumiðunum I fyrrinótt fengu öli fullfermi, samtals um 1870 lestir I fyrrinðtt, á svæðinu um 40 mfiur NA af Kolbeinsey. Tveir bátanna Hiimir SU og Eldborg fengu þarna mjög góð köst eða um 400 lestir I kasti. Hilmir SU fékk 530 lestir, Eldborg GK 540 lestir og Sæbjörg VE 270 lestir. Þessi skip fóru öll til Siglufjarð- ar. Þá fékk Gfsli Árni RE 530 lestir og fór til Raufarhafnar. Undir morguninn komu Örn KE og Sigurður RE á miðin og munu bæði skipin hafa fengið einhvern afla. Nú er vitað um 20 skip, sem farin eru til loðnuveiða og voru a.m.k. 10 þeirra komin á miðin í gærkvöldi. Flestar verksmiðjurn- ar frá Bolungavík til Reyðarfjarð- ar eru tilbúnar til loðnumóttöku. Verksmiðja SR getur þó ekki brætt nema með rúmlega hálfum afköstum á næstunni, en unnið er að þvi að koma fyrir nýrri pressu í verksmiðjunni. Þá verður verk- smiðjan á Eskifirði ekki tilbúin fyrr en 20. janúar og óvist er hvenær Hafsíldarverksmiðjan á Seyðisfirði tekur til starfa. Eyjólf- ur Friðgeirsson fiskifræðingur Framhald á bls. 20. Kröflusvæðið: Þróun á hallabreyt- ingum stöðvarhúss og jarðskjálftavirkni EINS OG sjá má á línuritinu yfir halla stöðvarhússins við Kröflu er þróunin nú sú sama og var seinni hluta október s.l. og þess vegna má draga þá ályktun að þegar landhæðin á Kröflusvæðinu verður komin upp f sömu hæð og áður, megi búazt við jarðskjálftum á ný. í spjalli við Pál Einarsson jarðeðlisfræðing um þessa þróun kom fram að hugsanlegt er að landhæðin fari fram yfir fyrri mörk, en þó er Ifklegt að fljótlega muni iandið síga aftur eins og um mánaðamótin okt.—nóv. Hættuástand er sennilega mest þegar landið byrjar að síga, því má reikna með að kvikan undir sé komin á hreyfingu og sé farin að brjóta sér leið. Á meðan ekki er vitað hvert hún er að fara er í rauninni hættuástand. 1 tvö síðustu skipti sem landið seig á þessu svæði í haust, er sennilegt að kvikan hafi leitað norður eftir sprungusvæðinu í Gjástykki án þess að komast upp á yfirborðið og stöðvast þar í sprungukerfi sem hefur gliðnað í jarðhræringunum. Sjónvarpsþættirnir „Reynsla Japana’’: Ágreiningur um rétt- mæti þáttanna sem raun- hæfa þjóðfélagskynningu EINS OG kunnugt er sýndi sjónvarpið tvo myndaþætti um Japan, sem nefndust „Reynsla Japana“. t dagskrárkynningu sjónvarpsins er sagt að mynd- irnar „beinist að ýmsum sér- einkennum hins japanska nú- tfmaþjóðfélags", og að „eink- um væru sýndar þær gffurlegu öfgar, sem blasa hvarvetna við f Japan“. Sagði einnig f dag- skrárkynningu að margir lifa f allsnægtum, en þeir væru fleiri sem búa við algera örbirgð, og þvf fari fjarri að ávöxtum hinna frægu efnahagsframfara landsins sé skipt réttlátlega milli landsmanna". Margir sem til þekkja hafa þó látið þá skoðun sína í ljós við Mbl. að myndir þessar gæfu ekki rétta mynd af japönsku þjóðfélagi, og ekki væri hægt að kynna þær sem slíkar, held- ur fjölluðu þær aðeins þröngt og neikvætt um afkima þjóðfé- lagsins. Þar sem ágreiningur virðist ríkja um gildi þáttanna sem þjóðfélagskynningu, en þeir þóttu athyglisverðir, hafði Mbl. samband við nokkra aðila sem búið hafa í Japan og þekkja þar staðhætti, og fara svör þeirra um áhrif myndanna á þau, hér á eftir. Fyrst höfðum við samband við Emil Björnsson og Helga Helgason hjá sjónvarpinu og spurðum þá hvaðan myndin kæmi og hverjar hefðu staðið að henni. „Við fáum þessa mynd frá Trident Television fyrir- tækinu, sem sér um sölu á ým- iss konar sjónvarpsefni, sem framleitt er af hinum ýmsu að- ilum. Þættirnir tveir um reynslu Japana, sem lýsa skuggahliðum iðnaðarþjóðfé- lags í dag, eru þó framleiddir og kostaðir af Yorkshire Tele- vision, sem er ein hinna sjálf- stæðu sjónvarpsstöðva sem til- heyra Sjálfstæðu Sjónvarps- samsteypunni brezku (ITV). Reyndar voru þættirnir þrír, • t OKTÖBERMANUÐI s.I. hófst aftur landris á Kröflusvæð- inu eftir landsigstfmabil þar, en meðfylgjandí kort sýnir Ifnurit yfir hallabreytingar á stöðvarhús- inu þar og jarðskjálftavirkni. Efri Ifnan I Knuritinu táknar hallabreytingarnar á stöðvarhús- inu, en neðri lfnan jarðskjálfta- virknina. Mælikvarðinn lóðrétti frá bil- inu 0—liðlega 6 (tæplega 700 sem Anthony Thomas stjórn- aði, en sjónvarpið ákvað þó að fá bara tvo þeirra. Þessir þættir eru meiri háttar skýrsla sem lýsir sterklega persónulegri mynd stjórnandans af hinni hlið Japans, þ.e. þeirri hlið sem flestir þekkja ekki, en virðist þó vera til, sagði Emil. Helgi sem skoðaði myndirnar i efnis- kaupaferð úti í London sagði þær mjög vel gerðar, þótt vissu- lega slægju þær upp frekar nei- kvæðri mynd af japönsku þjóð- félagi. „Ég gat þó ekki betur séð á umsögnum breskra krít- ikkera en þeir gáfu þáttunum alltaf gott orð og sögðu þá ná yfir þjóðfélagið I heild sinni,“ sagði Helgi. Ekki var Helgi viss um hvenær þættirnir hefðu verið frumsýndir, en taldi þá þó vera mjög nýja, eða frá 1974 eða 1975. Samkvæmt þeim dómum um myndina, sem Mbl. hefur orðið sér úti um, þá má sjá eftirfar- andi; Peter Dunn, Sunday Times segir þættina stórkost- lega og gefa góða mynd af öllu þjóðfélaginu þegar öllu sé á botninn hvolft, þjóðfélagi sem varnarlausu hafi varið spillt af Knight, Daily Telegraph segir Anthony Thomas hafa sett sam- an vel athugaða og mikilvæga þætti, félagslega skýrslu, sem ef til vill muni hneyksla suma áhorfendur. „En þættirnir geta alveg eins orðið til þess að menn endurskoði hug sinn um land sem umheiminum er svo oft nefnt sem afburða dæmi fyrir framkvæmdarafl og vel- megun.“ Steve Harris, Telegraph & Argus segir áhrif þáttanna mik- il, „þeir ættu að verða þess valdandi að við stöldrum við og hugsun vel og vandlega hvort við höfum efna að gjalda það verð fyrir mikla framleiðni og vaxandi veraldlegan auð, sem Japanir þurfa augljóslega að gjalda." Eins og áður segir hafði blaðið samband við fólk sem dvalist hefur í Japan i lengri eða skemmri tíma og þekkir til þjóðfélagsins þar. Þau sögðu: Miyako Kashima Þórðarson: „Ég verð að segja að mér fannst þessar myndir ekki hafa Framhald á bls. 21 iðnvæðingarskriðunni. Peter % í sumum fyrirtækja hefur verið komið fyrir brúðum sem Ifkjast yfirmönnum fyrirtækisins, svo starfsfólk geti „lúskrað" á þeim, líki því illa við þá. 0 Einkaher einhvers hægri sinnaðs ógnarfélags. microradian) þýðir um 5 sm hallamismun á norðurenda stöðvarhússins miðað við suður- enda hússins. 0 miðast við upphaflega stöðu stöðvarhússins þegar það er byggt. 5 5 sm/hæðarbreytingin á norðurenda miðað við suðurenda, þýðir hins vegar um tveggja metra landsig þar sem það er mest á umræddu svæði sem er alls um 10 km I þvermál kring um Þessi skýringarmynd af land- svæðinu við Kröflu sem að undan- förnu hefur ýmist sigið eða risið er ekki gerð I réttum hlutföllum, heldur fyrst og fremst til þess að sýna hver staða stöðvarhússins við Kröflu er á þessu umrædda svæði. Ef tekið er þversnið af svæðinu eins og myndin sýnir er umrætt svæði um 10 km I þvermál frá norðri til suðurs. Brotna lárétta lfnan er miðuð við stöðu landsins þegar stöðvarhúsið er byggt og er húsið sjálft merkt með punkta mynstri. Bogna línan skýrir land- stöðuna þegar landsigið er mest, um 2 m f miðri dældinni og hægra megin á þeirri Ifnu Sest vel að stöðvarhúsið er staðsett þar sem hallabreytingarnar hafa orðið mestar. Þess ber að geta að þótt landið hafi sigið mest 2 metra f miðju svæðinu hefur mestur hæðarmun- ur á norður- og suðurenda stöðv- arhússins orðið um 5 sm á þessu tfmabili. Leirhnjúk. Stöðvarhúsið er stað- sett þar sem hallabreytingarnar eru mestar á svæðinu og sést það vel á skýringarmynd sem fylgir hér með. Mælikvarðinn N með tölunum 50 og 100 þýðir f jölda jarðskjálfta á svæðinu á sólarhring en mánuðirnir eru merktir neðst á Ifnuritinu með upphafsstöfum hvers mánaðar. Mestur jarð- skjálftafjöldi sem mælzt hefur á Kröflusvæðinu á sólarhring á þessu tfmabili eru um 1500 skjálftar. Nú er reiknað með að aðeins nokkrir dagar Ifði þar til landris- ið verður komið I þá stöðu sem land var f áður en það byrjaði sfðast að lækka. Stöðvarhúsið er staðsett eins og eðlilegast væri að staðsetja halla- mæli á þessu landsvæði miðað við núverandi aðstæður og hallamæl- ing á húsinu er framkvæmd á mjög einfaldan hátt. Sitt vatns- kerið er f hvorum enda hússins og liggur vatnsslanga á milli þeirra. Með þvf að mæla breytingu á hæð vatnsborðs f hvoru keri um sig liggur niðurstaðan fyrir á mjög einfaldan hátt. Margir hafa velt því fyrir sér hvort þessi breyting á stöðu lands við Kröflu sé eðlilegt hátterni þessa svæðis, en samkvæmt upptýsingum Páls Einarssonar er hér um að ræða sérstakan við- burð, sem ef til vill á sér þó stað reglulega með einhverra áratuga millibali.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.