Morgunblaðið - 06.01.1977, Side 15

Morgunblaðið - 06.01.1977, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1977 15 Landspítalinn — Nýja fæðingardeildin Reykjavík, 4. jan. 1977. Balðinu hefur borizt eftirfar- andi frá skrifstofu ríkisspftal- anna: Heilbrigðismálaráðherra, Matthías Bjarnason, afhenti ný- byggingu fæðingardeildar form- lega til rekstrar miðvikudaginn þ. 29. des. s.l. Við athöfnina var fjöldi gesta, einkum þó fulltrúar frá þeim mörgu samtökum kvenna í landinu, sem studdu svo mjög að framgangi málsins, allt frá upphafi til loka framkvæmd- anna. Þá voru viðstaddir fulltrúar dagblaða og útvarps og sjónvarps og hafa þessir fjölmiðlar verið að segja frá atburðinum á liðnum dögum. Enn má hér við bæta þvf að fæðingardeildin, eða kvennadeild Landspftalans, á f dag, þ. 5. jan. 46 ára afmæli. Fyrsta barnið fæddist 5. jan. 1931 f Landspital- anum. Þá var deildin á þriðju hæð gamla spítalans, sem við nú köll- um tengigang. Þar voru þá 10 rúm fyrir sængurkonur. Guðmundur heit. Thoroddsen var þá yfirlækn- ir deildarinnar og Jóhanna heit. Friðriksdóttir yfirljósmóðir. Rúmum deildarinnar var síðar fjölgað í 15. Fæðingardeildin var starfrækt óbreytt á sama stað til ársloka 1948. 1. jan. 1949 flutti fæðingardeildin f nýja byggingu, þá byggingu, sem við í dag köllum gömlu fæðingardeildina. Miðað við aðstöðu fæðingar- deildar í gamla Landspítalanum jókst rými hennar mjög mikið í byggingunni, sem tekin var f notkun 1949, og skipulagi hennar breytt mikið. Nú kom sérdeild fyrir sængurkonur og önnur fyrir kvensjúkdóma. Þá var fæðingar- gangur með fæðingarstofum að- greindur, ennfremur skurðstofa. Samhliða fæðingardeildinni voru þá byggð sérstök húsakynni fyrir Ljósmæðraskóla Islands, sérálma, tvær hæðir og kjallari. Fæðingardeildin fékk til umráða 54 sjúkrarúm. Árið 1949 voru vegna starfsfólkseklu tekin í notkun aðeins 29 rúm, miðhæð byggingarinnar auk fæðingar- stofa og skurðstofu á fyrstu hæð- inni. Þriðja hæðin, með 25 rúm- um, var sfðan tekin til rekstrar f ársbyrjun 1950. Pétur heit. H.J. Jakobsson, prófessor, var yfir- maður deildarinnar frá 1949 til dánardægurs á árinu 1974. Fæðingardeildarbyggingin frá 1949 varð fullnýtt á árinu 1950 og kom tiltölulega fljótt f ljós, að Snjóksdals- kirkja FRÁ byggingarnefnd Snóksdals- kirkju: Eins og kunnugt er hefur staðið yfir endurbygging kirkjunnar í Snóksdal í Dalasýsly. Af þeim sökum hafa kirkjunni borist góð- ar gjafir og áheit. Er ljóst að kirkjan hefur reynst góð til áheita. Þær gjafir og áheit sem hér verða talin upp hafa borist á árinu 1976. Færum við gefendum innilegar þakkir fyrir og óskum þeim öllum Guðs blessunar. Freyja 1.000 kr. Gestur Gunnlaugsson 100.000.- Helga Magnúsdóttir 100.- Kristinn Kristvarðsson 50.000.- Guðbj. Snorrad. og Þorst. Einarss. 60.000.- Hjörtur, Krístín og dætur 45.000.- Ó.Þ. 20.000.- Flosi og Ingibjörg 50.000.- Kristfn Kristvarðsdóttir * 10.000.- Kristfn Kristjánsdóttir 10.0Q0.- Rögnvaldur Jónsson 10.000.- Ludvig Storr 40.000.- Erlingur Hansson 7.000.- N.N. (Aheit) 20.000,- K.L. (Áheit) 5.000.- N.N. (Aheit) 3.000.- K.L. (Aheit) 20.000.- H.G. (Áheit) 1.000.- Hughorg Þorsteinsdóttir (Áheit) 5.000.- Einnig vill byggingarnefndin þakka aðrar gjafir og vinnufram- lög sem kirkjunni hafa borist. I byggingarnefnd Snóksdalskirkju: (■uðmundur Baldvinsson Ragnhildur Hafliðadóttir Magnús Kristjánsson byggingan var ekki fullnægjandi lausn til langs tfma. Starfsaðstaða var víða knöpp, hreinlætisher- bergi of fá og lítil. En þrátt fyrir ófullkomnleika byggingarinnar var reynt að fjölga rúmum og urðu þau um 70, þegar mest lá við. Kvartanir yfir þrengslum i fæðingardeildinni, bæði frá sjúkl- ingum og starfsmönnum, komu því fljótt fram og urðu háværari eftir því sem árunum fjölgaði. Byggingarnefnd Landspítalans, sem starfaði á árabilinu milli 1960—70, hafði á höndum mikil ófullgerð verkefni í viðbyggingu Landspítalans, sem var ekki lokið fyrr en 1973, eða 20 árum eftir að vinna við grunn byggingarinnar hófst. Byggingarnefndin vann einnig að tillögum um heildar- framtfðarskipulag Landspitalans, sem sjúkrahúss og háskóla- kennslustofnunar. Var það erfitt, og vandasamt verkefni. Árin liðu hvert af öðru, án þess að hægt væri að sinna ýmsum aðkallandi vandamálum í rekstri Landspítalans, sem gerðu meira og meira vart við sig s.s. hin ófull- nægjandi húsnæðisaðstða fæð- ingardeildar, rannsóknadeildar o.f 1. Áhrifamiklar konur og kvenna- samtök i landinu fóru þá að óróast yfir þeim seinagangi og þvi áhugaleysi, sem þeim fannst vera hjá stjórnvöldum að stækka fæð- ingardeildina. Samtök kvenna fóru þvf í vaxandi mæli að beita sér fyrir framgangi málsins. Á fundi Bandalags kvenna í Reykja- vík í nóv. 1968, var gerð ýtarleg greinargerð um málið og send heilbrigðismálaráðherra, fjárveit- ingarnefnd Alþingis og öllum Al- þingismönnum. Stjórn Kven- réttindafélags íslands samþykkti á fundi sfnum 21. febr. 1969 full- an stuðning við greinargerð og tillögur Bandalags kvenna í Reykjavík, að Alþingi veitti nú þegar fé til að hefja án tafar viðbyggingu við fæðingardeild- ina. Á þinginu 1968—69 fluttu þrír þingmenn Framsóknarflokksins tillögu til þingsályktunar um stækkun fæðingardeildar. Það kom síðar í hlut þáverandi heil- brigðismálaráðherra og ríkis- stjórnar að koma fæðingar- deildarmálinu á framkvæmdastig og nú við áramótin 1976—77 er það komið f heila höfn. Undirritaður gat ekki verið við- staddur, þegar afhending bygg- ingarinnar fór fram, en hafði búið sig undir að geta þáttar fsl. kvenna f sambandi við málið, enn- fremur mikilvægra áhrifa Land- spítalans, s.s. áhrifa Kvenfélags- ins Hringsins í Reykjavík á stækkun spítalans, sem var ákveð- in 1952, einnig að skýra nokkuð frá upphafi Landspftalamálsins allt aftur til 1916, en þá gerðu Kvennasamtök Landspftalamálið að sínu mesta baráttumáli, með frk. Ingibjörgu heit. Bjarnason, skólastjóra og sfðar Alþingis- mann, sem aðalforystukonu. Fyr- ir baráttu kvenna o.fl. áhuga- manna, náði málið fram á Alþingi 1924. Frú Bjarnveig Bjarnadóttir, sú mæta kona skrifar um nýbygg- ingú fæðingardeildarinnar í Morgunblaðið þ. 4/1 ‘77 og minnir réttilega á hinn mikilvæga þátt samtaka kvenna f farsælli lausn málsins. Vissulega eiga fsl. konur það skilið, að þeim sé á verðugan hátt þakkað fyrir þeirra mikla framlag, og það af æðstu mönnum heilbrigðismála. Georg Lúðvfksson. Lögmannsstofa mín hefur flutzt frá Hafnarstræti 1 9 að Garðastræti 1 1 . Magnús Thorlacius HJÓNAKLÚBBUR GARÐA Þrettándadansleikur verður haldinn laugardag- inn 8. janúar n.k. að Garðaholti og hefst kl. 21 . Næturgalar leika fyrir dansi. Miðapantanir í símum: 42971, 51634 og 42580 Mætið stundvíslega. Stjórnin. Iþróttafélag kvenna Leikfimi hefst mánudaginn 10. janúar í Austurbæjarskóla. Rytmisk, afslöppunar- og þjálfunar- leikfimi. Kennt verður tvisvar í viku, á mánu- dögum, kl. 7.40 og fimmtudögum kl. 6.50. Kennari verður Theodóra Emils- dóttir. Innritun og uppl. i síma 14087 og 42356. ^MÁLASKÓLI—26908^ £ Danska, sænska, enska, þýzka franska, spænska 0 ítalska og íslenzka fyrir útlendinga. 4) Innritun daglega. £ Kennsla hefst 1 7. jan. 0 Skólinn er til húsa að Miðstræti 7. 0 Miðstræti er miðsvæðis. V26908^HALLDÓRS^ hefjast 12. janúar. Japanski þjálfarinn Naoki Murata 4 DAN þjálfar i öllum flokkum. Innritun og upplýsingar í síma 83295 alla virka daga frá kl. 13—22. JÚDÓDEILD ÁRMANNS ÁRMÚLA 32. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Framhaldsnemendur í Jitterbug og Rokk og aðrir hafið samband sem fyrst við skólann vegna niðurröðunar á tímum. Kennt verður: Barnadansar (yngst 2ja ára), Táningadansar, Stepp, Jazzdans, Sam- kvæmis- og gömlu- dansarnir. Sérstakir tímar í ft Jitterbug og Rokk Kennslustaðir: Reykjavík, Hafnarfjörður og Akranes. Ath. kennt verður í Breiðholti II, Seljahverfi. ATH.: JITTERBUG OG ROKK KEPPNI VERÐUR í LOK JANÚAR Á VEGUM SKÓLANS. DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS 000 TAKIÐ E.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.