Morgunblaðið - 06.01.1977, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1977
Marie Dam
Minningarorð
F. 10. 3. 1892.
D. 26. 12. 1976.
Marie Dam lést á Borgarspítal-
anum annan dag jóla eftir langa
og erfiða sjúkdómsraun.
Horfin er hógvær og háttprúð
kona, sem verður öllum eftir-
minnileg er kynntust henni að
einhverju marki.
Marie var fædd i Norður-
Jótlandi og þar dvaldi hún og
starfaði þar til hún fluttist til
íslands fullorðin kona fyrir tæp-
um tveim áratugum sfðan, en þá
var heilsa hennar nokkuð tekin
að bila og hún orðin ekkja öðru
sinni.
Hér á landi bjó Maria alla tið í
skjóli dóttur sinnar og tengdason-
ar.
Hún undi hag sínum vel I hin-
um nýju heimkynnum, eignaðist
marga vini, sem bundu við hana
tryggð og mátu hana mikils vegna
mannkosta hennar.
Maria ólst upp á sveitaheimili í
fögru umhverfi nálægt Límafirð-
inum og þar varð hún síðar hús-
móðir og hafði um langt skeið
mikil umsvif svo sem jafnan
fylgdi fjölmennum sveitaheimil-
um í þá daga.
+
Eiginmaður minn
KRISTINN B. JONASSON,
Hraunbrún 20.
Hafnarfirði,
lést 23 desember s I Jarðarforin hefur farið fram i kyrrþey samkvæmt
ósk hins látna
Fyrir hönd vandamanna, Helga Markúsdóttir.
?; Faðir okkar + ODDUR ÓLAFSSON,
barnalæknir.
andaðist að heimili sínu þriðjudagmn 4 janúar
Lillý Valgerður Oddsdóttir, Runólfur Oddsson,
Vala Agnes Oddsdóttir. Ólafur Oddsson, Davið Oddsson
+
Sonur okkar og bróðir minn
JÓN SIGURÐUR ÁSGEIRSSON,
er látmn
Kristjana Guðmundsdóttir, Ásgeir Jónsson,
Gylfi Ásgeirsson
Powell, Tenn, U.S.A.
Eigmmaður mmn. +
SIGURÐUR EINARSSON.
fyrrverandi verzlunarstjóri
Hringbraut 43,
verður jarðsunginn frá Neskirkju í dag, fimmtudaginn 6 janúar, kl
13 30
Fyrir hönd sona minna og fjölskyldna þeirra.
Jóhanna Zöega Henriksdóttir.
+
HREINN PALSSON,
frá Hrfsey,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunm, föstudaginn 7 janúar kl 10 30
f h
Lena Figved Pálsson,
Erna Hreinsdóttir, Svan Friðgeirsson,
Hreinn Hreinsson, Þórey Sveinsdóttir,
Marfa Hreinsdóttir, Helgi hjálmarsson,
Eva Hreinsdóttir, Ágúst Einarsson,
barnabörn og barncibarnabörn.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KÁRI SIGURÐSSON.
húsasmfðameistari,
Miðtúni 14. Rvfk.
er lést á Landspitalanum 30 des verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 7 janúar kl 10 30 f h Blóm vinsamlegast afþökk-
uð. en þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd
Synir, tengdadætur og barnabörn.
+
Elskulegir loreldrar okkar, tengdaforeldrar. afi og amma,
ALBERT RAGNAR GUÐJÓNSSON
GUÐRUN OLGEIRSDÓTTIR.
er létust af slysförum aðfaranótt 25 desember s I verða jarðsungín frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 6 janúar kl 3. e h
Sonja Albertsdóttir, Aðalsteinn Helgason,
Elísabet Albertsdóttir, Ólafur Gunnarsson,
Sævar O Albertsson og barnaborn
Eftir að hún missti fyrri mann
sinn hætti hún búskap og fluttist
ásamt börnum sfnum til Álaborg-
ar.
Samt hélt hún áfram að vera
sveitakona alla tlð I þess orðs
bestu merkingu, dýravinur, dáði
blóm og hvers konar gróður jarð-
ar.
Á heimsstyrjaldarárunum síð-
ari dvaldi ég alllengi við störf í
sveitum bæði norðan og sunnan
við Álaborg og kynntist þá fólk-
inu þar og störfum þess.
Þarna bjó dugmikið fólk og
greiðvikið og gestrisið svo af bar.
Á ég margar ljúfar endurminn-
ingar um hjálpsemi þess og alúð
við framandi aðkomumann.
Mjög fannst mér Mariu svipa til
margra gamalla vina minna úr
þessum sveitum, söm var velvild-
in og tryggðin og aldrei brást
æðruleysi hennar á hverju sem
gekk.
Oft innti ég Mariu sagna um líf
fólks f þessum sveitum á fyrri tíð,
meðan atvinnu- og lifnaðarhættir
voru enn f föstum skorðum,
ótruflaðir af hraða og háreysti
vélaaldar.
Frásagnir Mariu voru lifandi;
skýrar og skemmtilegar, enda
konan margfróð og stálminnug.
Þá varð mér best ljóst hve sterkan
þátt sveitin og allt lff, sem þar
hrærðist, átti enn í hug þessarar
gömlu hvíthærðu konu, sem for-
lögin höfðu á fullorðinsaldri fært
norður til þessa eylands.
Nú að leiðarlokum erum við
forsjóninni þakklát fyrir það að
hafa fengið að kynnast og blanda
geði við þessa jósku konu, sem
hvarvetna vildi láta gott af sér
leiða meðan þrek hennar entist.
Þvf trúum við að hennar bíði
góð heimkoma.
Páll A. Pálsson.
Hjónaminning:
Guðrún Olgeirsdóttir
og Albert Guðjónsson
Að morgni jóladags barst um
landið á öldum ljósvakans sú
sorgarfregn að kl. 4 á jólanótt
hefðu farist f eldsvoða öldruð
hjón á Hverfisgötu 66 A, Reykja-
vík. Einnig voru fjórar manneskj-
ur aðrar mjög hætt komnar. Um-
rædd hjón voru Guðrún Olgeirs-
dóttir og Albert Guðjónsson er
þar bjuggu.
Guðrún var ættuð frá Hellis-
sandi, fædd 23/8 1912, dóttir
merkishjónanna Maríu Guð-
mundsdóttur frá Stóru Hellu við
Sand og Olgeirs Oliverssonar for-
manns sem ættaður var frá Gröf f
Grundarfirði. Þau bjuggu fyrst á
Litlu Hellu, en síðar á Risabjörg-
um á Hellissandi.
Með dugnaði og hagsýni komst
+
Eiginmaður minn. faðir. tengdafaðir og afi
EGILL KRISTINSSON
vélstjóri
Tómasarhaga 29 Reykjavík
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 7 janúar kl 3 e h
Anna Halldórsdóttir
Agnes Egilsdóttir, Árni Ág. Gunnarsson
og börn.
+
Útför eiginmanns míns. föður tengdaföður og afa
ÓLAFS JÓNSSONAR
frá Keldunúpi á Síðu
fyrrverandi húsvarðar
fer fram frá Bústaðarkirkju föstudaginn 7 janúar kl 2 e.h.
Jarðsett verður að Melstað í Miðfirði
Jenný Guðrún Guðjónsdóttir
Jenný Ólafsdóttir, Ragnar Zophaníasson,
Helena, Ólafur og Friðrik.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
föður okkar og tengdaföður
JOSEFS FELZMANNS,
Holtsgotu 13,
Gunnar Felzmann
Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Sigrid Felzmann,
Yngvi Guðmundsson.
+ Við þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför
JÓNSJÓNSSONAR
frá Kaldbak
Arnþrúður Jónsdóttir, Ólafur Jónsson,
Hólmfríður Jónsdóttir, Dagur Óskarsson,
Snjólaug Guðrún Jónsdóttir, Benedikt Sigurðsson,
Kristin Friðrika Jónsdóttir, Kristján Knútsson,
Egill Jónsson, Birna Guðbjörnsdóttir,
Þórdis Jóhanna Krings. Lawrence Barney Krings,
Jón Frimann Jónsson, Þorbjörg Þorsteinsdóttir,
Þórhalla Jónsdóttir, Reynir Kjartansson,
Guðmundur Jónsson, •
Sigurveig Austford, V. Lee Austford,
barnaborn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar Hreins Pálssonar forstjóra verða skrif-
stofur og sandaafgreiðsla okkar lokaðar fyrir hádegi á
morgun 7 janúar Björgun h f.
Sævarhöfða 1 3
fjölskyldan vel af miðað við að-
stæður fólks á þeim stað. Hinn 1.
desember 1915 veiktist Olgeir af
lungnabólgu og andaðist eftir sex
daga legu. Lungnabólga var þá
algengust dauðaorsök fullorðins
fólks.
Þau hjón höfðu eignast sjö
börn, þrjú þeirra dóu á unga
aldri. Nú stóð Marfa uppi allslaus
með barnahópinn. Það var enginn
leikur fyrir einstæða móður að
berjast áfram með fjögur börn,
þar sem almenn fátækt ríkti á
þeim tímum. En hún hafði alist
upp á Stóru Hellu þar sem frábær
dugnaður og reglusemi var ríkj-
andi. Faðir hennar Guðmundur,
var orðlagður formaður og Anna
móðir hennar sérstök gæðakona.
Þau voru látin fyrir mörgum ár-
um.
En manndómserfðir ættarinn-
ar, ásamt frábærum dugnaði og
útsjónarsemi voru þeir eiginleik-
ar sem veittu henni styrk í starfi
við uppeldi barna sinna. Guðrún
var yngst systkinanna og dvaldi
hún hjá móður sinni til fullorðins
ára.
Albert var fæddur 13/7 1907,
ættaður frá Vogum, Vatnsleysu-
strönd, sonur myndarhjóna af
góðum ættstofnum. Móðir hans
var Elísabet Pétursdóttir frá
Tumakoti, Vogum, sérstaklega
dugleg og stjórnsöm kona er hafði
allt í röð og reglu á sínu heimili.
Faðir hans var Guðjón Guð-
mundsson frá Brekku Vogum,
mikill dugnaðarmaður. Þau hjón
fluttust til Reykjavíkur um alda-
mótin og bjuggu lengst af á
Hverfisgötu 66. Þau eignuðust
nfu börn. Einnig átti Elfsabet
einn son áður en hún giftist, Vil-
helm Jónsson vélstjóra. Þrjú börn
misstu þau ung, en sjö komust til
fullorðinsára, öll myndar og
dugnaðarfólk.
Guðjón stundaði jöfnum hönd-
um sjómennsku og eyrarvinnu.
Drengirnir fóru strax að starfa
með honum á sjónum og stofnuðu
síðar eigin útgerð I landi. Vetur-
inn 1931 var ég háseti á linuveið-
aranum Pétursey, sem var eign
þeirra bræðra. Guðmundur var
fiskiskipstjóri á bátnum, Vilhelm,
vélstjóri en Albert og Lúðvík sáu
um afla og útgerð f landi. Mér
virtist að þar færi saman hagsýni,
dugnaður og heppni. Til dæmis,
þegar 2. maí 1931 að yfirmenn
skipsins urðu þess varir að bátur
var strandaður við Krísuvíkur-
berg. Guðmundur bað stýrimann-
inn, Þorvarð Guðjónsson, og mig,
er þessar lfnur rita að fara f létt-
bátnum að berginu og freista þess
að ná mönnunum sem höfðu klifr-
að upp á bergið. Við náðum þeim í
þremur ferðum og fluttum þá f
m/b Muninn frá Vogum, sökum
þess að þeir komust nær landi en
Pétursey. Mennirnir sex voru sfð-
an fluttir til Stokkseyrar. En svo
margar ferðir urðum við að fara
sökum þess að léttbáturinn var
lítill en brimsúgur við bergið.
Hinn strandaði bátur var Islend-
ingur frá Stokkseyri.
Mörgum árum síðar en þetta
gerðist kynntist ég systursyni Al-
berts, Guðjóni Þorvarðssyni end-
urskoðanda, sem nú er látinn, og
eftir margra ára kynni tel ég