Morgunblaðið - 06.01.1977, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1977
33
ju ......
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10 — 11
FRÁ MÁNUDEGI
Hvanngil — myndina tók Páll Jónsson
0 Gat f kerfinu?
(Jtvarpsnotandi:
— Ég hef verið að velta því
fyrir mér hvort það sé nú öruggt
að allir sem noti útvarp og sjón-
varp greiði fyrir það sín tilskildu
gjöld. Eins og allir vita eiga lands-
menn að greiða vissa upphæð
fyrir afnot af útvarpi og sjón-
varpi, þ.e. sá sem skráður er
eigandi slíkra tækja. Nú er það
svo að sjónvörp ganga kaupum og
sölum milli manna og það eru
ekki alltaf heildsalar eða smá-
salar sem annast þá sölumennsku
og því er ég hræddur um að
nokkrir gjaldendur tapist við þau
viðskipti.
Það er líka svo að ungt fólk
flyzt að heiman og stofnar sitt
heimili og á sennilega útvarp og
jafnvel sjónvarp líka. Ég er efins
um að það séu innheimt afnota-
gjöld fyrir útvarp hjá þeim ein-
staklingum sem stofna sitt
heimili, hvort sem það eru hjón
eða einstaklingar, við gerum auð-
vitað ráð fyrir að hér sé um
heiðarlegt fólk að ræða sem
greiðir sín gjöld en er hér ekki
gat í kerfinu? Það vita ekki öll
ungmenni af þvf að það þarf að
greiða fyrir afnot af útvarpi eða
hugsa að minnsta kosti ekki út í
það. Mætti ekki hugsa sér að ein-
hver stofnun, hagstofan t.d., veitti
innheimtudeild útvarpsins
upplýsingar um það hverjir gangi
í hjónaband svo hægt sé að ganga
úr skugga um hvort aðstandendur
hins nýja heimilis séu gjaldendur
eða eigi að vera það?
Fólki finnst kannski undarlegt
að maður skuli koma með þessa
athugasemd, en hér er aðeins eitt
dæmið um gat i kerfinu og það að
sumir sleppa auðveldlegar en aðr-
ir frá sinum skyldum.
Þessir hringdu . . .
% Lítið um að
vera við höfnina
Einn sem fer niður að höfn á
gamlárskvöld:
— Það voru að venju margir
sem lögðu leið sína niður að höfn
á gamlárskvöld og kvöddu árið
SKÁK
í UMSJÁ MAfí-
GE/fíS PÉTUfíSSONAfí
Á millisvæðamótinu í Manila á
Filippseyjum i sumar kom þessi
staða upp í skák stórmeistaranna
Ljubojevics frá Júgóslavíu og
Hort frá Tékkóslóvakíu. Ljuboje-
vic, sem hafði hvítt og átti leik,
tókst nú að finna afgerandi fram-
hald.
26. Hxd8! Hxd8 27. Rxe6 fxe6 28.
Bc5 Hxc3 29. Bxe7 og hvítum
tókst að leiða skákina til sigurs í
krafti liðsyfirburða sinna.
með þvl að virða fyrir sér það sem
þar er um að vera við áramót. En
nú brá svo við að engin skip flaut-
uðu og menn urðu sennilega
margir vonsviknir að fá ekki að
heyra neitt eða sjá, þvi skipin eru
lika vön að skjóta upp nokkrum
flugeldum á þessu kvöldi.
Það er kannski verið að spara
eitthvað loftið með þessu en þetta
var mjög skemmtilegur siður að
skipin kvöddu gamla árið og heils-
uðu því nýja með því að þeyta
flautur sínar. En það sást sem
sagt ekki einn flugeldur heldur
og þar eru sparnaðarráðstafanirn-
ar kannski mikilvægari. —
# Sagt um skaupið
Bergljót Kristjánsdóttir:
— Við hér á heimilinu vorum
öll sammála um það að áramóta-
skaupið hjá sjónvarpinu i ár hafi
verið með lélegra móti. Það er
ekkert gaman að þessari vitleysu
og er ekki hæfa að sýna hana á
þessu kvöldi og okkur líkar ekki
þessi „flos-un“.
Úr þvi að verið er að tala hér
um áramótaskaupið getum við
látið þessa visu fylgja, en það var
ekki Bergljót sem sendi hana,
höfundurinn er annar:
Lélegt skaupið skemmdi vini
mína.
Skftt með það, en tiliögu ég
hreyfi.
Látum Flosa eiga fyndni sfna
og felum Þjóðviljanum einka-
leyfi.
SÍMI í MÍMI er 10004
Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanóm
Lærið vélritun
Eingöngu kennt á rafmagnsritvélar. Engin
heimavinna. Upplýsingar í símum 43270 og
21719.
Vélritunarskólinn,
Þórunn H. Felixdóttir,
Suðurlandsbraut 20.
FRANSKAN
Gerard Chinotti er kominn aftur og kennir bæði
byrjendum og framhaldsnemendum. Stúdentar
takið eftir: Þið getið fengið góða talþjálfun hjá
okkur.
Mímir, Brautarhotti 4, s. 10004
jŒZBaLLettsköLi búpu,
Gleðilegt
nýár
if 6 vikna námskeið
if Byrjum aftur 1 0. janúar.
__ if Likamsrækt og megrunfyrir dömur á öllum
Saldri.
if Morgun- dag og kvöldtímar.
N I Tímar tvisvar og fjórum sinnum í viku.
★ Sauna — tæki — Ijós.
if Upplýsingar og innritun í síma 83730 frá kl.
1 — 6.
^jazzBaLLettskóLi Búru
b
N
N
8
co
p
Sjálfsvörn fyrir kvenfólk
Mjög fullkomið og afgerandi sjálfsvarnakerfi sem um
leið felur í sér góða likamsrækt. Námskeiðið hefst á
laugardag kl. 1—2 i húsakynnum Judofélags Reykja-
vikur að Brautarholti 4.
Innritun fer fram i dag fimmtudag og á morgun i sima
33035 frá kl. 11—7 e.h. báða dagana. Aldurstak-
mark 15 ár.