Morgunblaðið - 06.01.1977, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JANUAR 1977
35
Kirby með ÍA -
Anton meðFram?
r ms® u
Ingemar Stenmark t.v. virðist nú óðum að ná sér á strik eftir fremur
slaka byrjun f heimsbikarkeppninní. Með honum á myndinni er Phil
Mahre frá Bandarfkjunum sem komið hefur á óvart f heimsbikar-
keppninni f ár og hafði um tfma forystu f stigakeppninni.
STENMARK NÆR
SÉR Á STRIK
SÆNSKA skfðastjarnan Ingemar
Stenmark — handhafi heims-
bikarins f Alpagreinum 1976 —
virðist nú vera að ná sér á strik
eftir mjög slæma byrjun f vetur.
A mánudaginn vann hann sigur f
svigkeppni sem fram fór f Laax f
Sviss og er hann þar með kominn
f annað sætið f stagakeppninni,
hefur hlotið 54 stig, 8 minna en
Piero Gros frá Italfu sem hefur
forystu. t keppninni f Laax varð
Gros að gera sér áttunda sætið að
góðu eftir að hafa verað f fyrsta
sæti eftir fyrri umferðina.
Stenmark var hins vegar í átt-
unda sæti eftir fyrri umferðina,
en sýndi glæsileg tilþrif í seinni
umferðinni, og náði þá langbezt-
um tíma allra keppendanna, 51,
21 sek. Sá er náði næst beztum
tíma í seinni umferðinni var
Willy Frommelt frá Lichtenstein,
52,96 sek.
í örðu sæti í keppninni í Laax
varð ungur piltur frá Lichten-
JUANTORENA
KOSINN
KÚBtJBÚINN Alberto Juantor-
ena var kjörinn „Iþróttamaður
ársins 1976“ I Suður-Ameríku, en
úrslit í kosningu iþróttafrétta-
manna þar var kunngerð í fyrra
kvöld. í öðru sæti i kosningu þess-
ari varð Don Quarrie frá Jamaica
sem sigraði i 200 metra halupi á
Ólympiuleikunum í Montreal og
hlaut silfurverðlaun í 100 metra
hlaupi og í þriðja sæti varð kú-
banski hnefaleikarinn Teofilo
Stevenson.
stein, Paul Fommalt, en skiðafólk
frá þessu litla ríki hefur að
undanförnu vakið mikla athygli
með afrekum sínum. Samanlagð-
ur tími Stenmarks var 1:40,65
min., Frommalt var á 1:41,65
min., þriðji varð Walter Tresch
frá Sviss á 1:41,73 min., Gustavo
Thoeni varð fjórði á 1:42,33 mín.,
Frommelt fimmti á 1:42,46 min.
og Fausto Radici frá Italíu fimmti
á 1:42,46 min.
Staðan í stigakeppninni er nú
sú, að Gros hefur 62 stig, Sten-
mark 54 stig, Christian Hemmi
frá Sviss 53 stig, Franz Klammer,
Austurriki, 50 stig, Klaus Heid-
egger frá Austurriki 45 stig,
Gustavo Thoeni, italíu, 44 stig,
Steve Marhe, Bandarikjunum, 40
stig og Fausto Radici, italiu, 33
stig.
ALLAR Kkur benda nú til þess að
George Kirby verði þjálfari 1.
deildar liðs Akurnesinga næsta
keppnistfmabil. Kirby var þjálf-
ari Akurnesinga 1974 og 1975, en
bæði þessi ár urðu Akurnesingar
Íslandsmeistarar og komust að
auki I úrslit bikarkeppni KSÍ. 1
fyrra höfðu Akurnesingar hans
vegar enskan þjálfara, Mike
Ferguson, en eins og mörgum
mun f fersku minni slitnaði upp
úr samstarfi hans við Akurnes-
inga, þegar langt var liðið á
keppnistfmabilið.
Kirby hefur i vetur verið þjálf-
ari í Saudi-Arabíu, en hann mun
hins vegar hafa meiri áhuga á að
starfa hérlendis en þar. Hafa að.
undanförnu farið fram bréfa-
skipti milli Akurnesinga og Kir-
bys og mun hafa komið fram til-
boð frá Kirby sem Skágamenn
telja sig geta gengið að.
Framarar hafa verið að leita
fyrir sér að undanförnu, og eins
og kom frá í viðtali Morgunblaðs-
ins við einn af forráðamönnum
knattspyrnudeildar félagsins fyr-
ir skömmu, var mikill áhugi á því
'að fá islenzkan þjálfara til starfa.
Var m.a. Árna Njálssyni gert til-
boð, en hann hafði þá þegar ráðið
sig sem þjálfari hjá Val, en þar
mun Árni verða með nokkra af
yngri flokkum félagsins næsta
sumar. Nú er hins vegar talið
liklegt að samningum Fram við
Anton Bjarnason íþróttakennara
verði.
Anton er gamalreyndur knatt-
spurnumaður — var á sínum tima
einn af máttarstólpum Framliðs-
ins og lék að auki i islenzka lands-
liðinu. Hins vegar er líklegt að
Anton telji sig þurfa aðstoðar-
mann við þjálfunana a.m.k. til að
byrja með.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá verður dr. Yuri Ilichev þjálf-
ari íslandsmeistara Vals áfram,
en hann náði frábærum árangri
með liðið í fyrra. Þá verður Hólm-
bert Friðjónsson með 1. deildar
lið ÍBK og Vestmannaeyingar
hafa gengið frá samningum við
sama þjálfara og þeir höfðu í
fyrra, George Skinner. Mun hann
koma til þeirra sennilega i april-
byrjun, en Vestmannaeyingar
munu ætla sér að fara rólega af
stað við æfingar sínar að þessu
sinni, minnugir þess að þegar þeir
hófu æfingar snemma vetrar og
gerðu mikið til þess að hafa liðið I
góðu formi í mótsbyrjun gekk allt
á afturfótunum hjá þeim, þegar á
keppnistímabilið leið og þeir féllu
í 2. deild.
Breiðabliksmenn hafa enn ekki
gengið frá samningum, en mjög
líklegt verður að teljast að Þor-
steinn Friðþjófsson þjálfi þá
einnig i sumar, en Þorsteinn hef-
ur verið með UBK-liðið undanfar-
in tvö ár, og náð mjög góðum
árangri með það. FH-ingar hafa
hins vegar gengið frá samningum
við Þóri Jónsson, fyrrverandi
leikmann með liðinu, og mun
hann sjá um þjálfun þess á næsta
keppnistimabili.
Kirby — kemur
Skagamanna?
hann aftur til
Anton Bjarnason — þjálfar
sennilega Fram næsta sumar.
Þjóðverjar efstir hjá France football
FRANSKA knattspyrnutfmaritið
„France footbalP* birti nýlega
röðun sfna á styrkleika Evrópu-
þjóða f knattspyrnu. Er ts-
lendingum skipað þar f 26.—27.
sæti ásamt Norðmönnum, en alls
eru 32 lönd á lista blaðsins.
France football telur Vestur-
Þjóðverja hafa átt bezta knatt-
spyrnulið Evrópu 1976 og bendir
Flokkaglíma
Reykjavíkur
FLOKKAGLÍMA Reykjavikur
var glímd fyrir skömmu i leik-
fimisal Melaskóla.
Helztu úrslit urðu þau, að
Guðmundur Freyr Halldórsson,
Ármanni, sigraði I flokki fullorð-
inna en annar varð Halldór
Konráðsson, Vikverkja. Unglinga-
meistari varð Jón Magnússon,
KR, en Helgi Kristjánsson, Vík-
verja, varð sveinameistari. Mynd-
in er af unglingameistaranum,
Jóni Magnússyni, KR.
á að Þjóðverjarnir hafi ekki tapað
einum einasta landsleik á siðasta
keppnistimabili, eftir venjulegan
leiktima. Eini leikurinn, sem þeir
töpuðu, var úrslitaleikurinn í
Evrópukeppninni, þar sem
Tékkar unnu þá í framlengingu.
Alls unnu Vestur-Þjóðverjar
fimm landsleiki á keppnistima-
bilinu og gerðu þrjú jafntefli.
í annað sætið skipar blaðið svo
Tékkum og Ólympiumeisturum
Austur-Þýzkalands, Hol-
lendingum og Ungverjum I þriðja
sæti. Tékkarnir unnu fjóra lands-
leiki á árinu, gerðu sex jafntefli
og töpuðu einum leik. Austur-
Þjóðverjar unnu fimm leiki og
gerðu þrjú jafntefli, Hollending-
ar unnu fjóra, gerðu eitt jafntefli
og töpuðu einum og Ungverjar
unnu fimm og gerðu fimm jafn-
tefli.
Röð annarra hjá blaðinu var
þessi: 6) Skotland, 7) írland,
Frakkland og italía, 10) Sovét-
ríkin, 11) Pólland, 12) England,
13) Danmörk, 14) Spánn, 15)
Portúgal, 16) Austurriki, 17)
Belgía, 18) Svíþjóð, 19) Búlgaría,
20) Rúmenia og Tyrkland, 22)
Finnland og Júgóslavía, 24)
Norður-Irland, 25) Sviss, 26) Is-
land og Noregur, 28) Grikkland,
29) Wales, 30) Malta, 31) Kýpur
og Luxemburg.
Stjómmálamenn fengu
á baukinn hjá Killanin
Þjálfaranámskeið hjá KSI
LORD Killanin, formaður alþjóða
Olymplunefndarinnar var mjög harð-
orður í nýársboðskap slnum að þessu
sinni I garð stjórnmálamanna, sem
hann sakar um að vera verstu óvini
Olympiuleikanna. Valdi hann þeim
verstu orð, sagði þá þjást af hroka og
sagði aðgerðir margra þeirra ekki
bera vitni um mikið gáfnafar. — Þeir
ÞJÁLFARASKÓLI KSÍ gengst
fyrir knattspyrnuþjálfaranám-
skeiði helgina 15. og 16. janúar
n.k. Námskeiðið verður sett laug-
ardaginn 16. janúar kl. 9.30 f
fyrirlestrarsal Æfinga- og til-
raunaskóla Kennaraháskóla is-
lands við Bólstaðarhlfð.
Námskeiðið er ætlað fyrir
knattspyrnuþjálfara I 1., 2. og 3.
deild, svo og þjálfara 2. aldurs-
flokks. Ætlazt er til, að þátttak-
endur hafi lokið einhverju af
þjálfarastigum KSI eða séu
íþróttakennarar.
Kennari á námskeiðinu verður
Keith Wright, námstjóri enska
knattspurnusambandsins i Mið-
Englandi, þrautreyndur og vel
menntaður þjálfari, sem jafn-
framt er kennari á hinum ýmsu
þjálfaranámskeiðum Knatt-
spyrnusambands Englands.
Ætlazt er til, að þetta námskeið
verði eins konar aflvaki fyrir Is-
lenzka knattspyrnuþjálfara nú í
upphafi undirbúnings að kapp-
mótum sumarsins. Námsefnið er
tvíþætt. Annars vegar skipulag og
framkvæmd afinga á undirbún-
ings tímabilinu og hins vegar
nýjasta þróun leikkerfa og leikað-
ferða.
Aðstendendur þjálfaraskólans,
stjórn KSl og tækninefnd KSI
vilja hér með hvetja alla þjálfara,
sem eru innan þess ramma, sem
settur er, til þess að sækja nám-
skeið þetta, því fullvíst er, að
þangað má sækja margar hug-
myndir og góð ráð, sem þjálfar-
arnir geta siðan flutt út til félag-
anna.
Þjálfarar sem hug hafa á að
taka þátt í námskeiðinu eru vin-
samlegast beðnir að tilkynna þátt-
töku sína á skrifstofu KSl, er
einnig veitir nánari upplýsingar
um námskeiðið. Frestur til að til-
kynna þátttöku rennur út 10. jan-
úar.
Lord Killanin — harðorður I garð
stjórnmálamanna.
nota öll hugsanleg tækifæri til þess
að koma sjálfum sér á framfæri, og
það er þeim miklu meira virði en það
að æska þjóða þeirra geti notið sln I
frjálsum leik við erlenda félaga slna,
sagði Killanin *
Búizt er við þv! að Killanin fái orð I
eyra fyrir þessi ummæli sln, en llk-
legt er talið að hann og aðrir stjórn-
armenn I alþjóða Olympiunefndinni,
óttist mjög mótmælaaðgerðir þegar
að Olympluleikunum I Moskvu 1980
kemur, og hann vilji sýna að sllku
verði mætt af fullri einurð af
Olymplunefndinni.
Killanin var hins vegar ekki eins
harðorður I orðsendingu sem hann
sendi öllum Olymplunefndum nú um
áramótin, þótt hann fjallaði þar um
hið sama. Þar segir Killanin m.a. að
allir verði að leggjast á eitt við að
viðhalda og virða Olympluhugsjón-
ina og spoma gegn áhrifum stjórn-
málamanna á leikana Segir Killanin
I bréfinu, að það sé staðreynd að
stjórnmálamenn reyni I æ vaxandi
mæli að koma viðhorfum slnum á
framfæri I sambandi við Olymplu-
leika. — Sllkt er tilræði við leikana,
segir Killanin I bréfi slnu, — og
getur orðið til þess að eyðileggja
Olympluhugsjónina.