Morgunblaðið - 13.02.1977, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.02.1977, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1977 13 gátum ekki unnið við þau vinnuskilyrði, að geta ekki sjálfir ákveðið hvernig blaðið liti út, bæði frá ritstjórnar- og aufelýsingasjónarmiði." _ Hann telur að dregizt geti í marga mánuði að útgáfan geti hafizt aftur þótt hann útiloki ekki að deilan leysist skyndilega. „Við gripum til sparnaðarráðstafana af efnahagsástæðum. Gömlu að- ferðirnar dugðu ekki lengur. Þess vegna töldum við nauðsyn- legt að hefja viðræður um sparnað i rekstrinum og þegar þær fóru út um þúfur urðum við að láta til skarar skríða." Þær raddir hafa heyrzt með- al starfsmanna blaðsins, prent- ara jafnt sem blaðamanna, að útgáfustjórnin hafi ekki komið nógu hreint fram. Einn blaða- mannanna hefur líkt nýju stjórnarfulltrúunum við sjálfs- morðssveit. Margir þeirra eru sammála um, að stjórn Berlingske Hus hafi ekki lagt nógu mörg spil á borðið þannig að það hafi veikt röksemdar- færslu hennar og gert það að verkum að ástæðurnar fyrir lokuninni hafi ekki virzt eins nauðsynleg úrræði og útgáfu- stjórnin heldur fram. Olaf Poulsen segir hins vegar: „Við höfum reynt meðan ég hef setið í stjórninni að leggja öll spil á borðið. Við höfum reynt að út- skýra hvað hefði gerzt ef við hefðum ekki tekið af skarið". Deilan snýst um mörg tækni- leg smáatriði, bæði hvað snertir rekstur Berlingske Hús og mál- flutninginn fyrir vinnudóm- stólnum, en mesta athygli hef- ur hún vakið vegna áhrifanna, sem hún hefur á kosningabar- áttuna. Deilan varð til þess að Poul Hartling, leiðtogi Vinstri flokksins, beindi þeirri fyrir- spurn til Anker Jörgensens for- sætisráðherra, hvað hægt væri að gera gagnvart aðgerðum sem þeim,sem hefðu leitt til lokun- arinnar. „Stjórnarblöðin standa utan við deiluna. Við það fer kosningabaráttan úr skorðum og annar aðilinn stendur betur að vigi,“ sagði Hartling. Þessu svaraði Jörgensen með áskorun til eigenda Berlings um að hætta við lokunina. Um umfjöllun vinnudóm- stólsins er haft eftir Per Jacob- sen, lektor við Árósaháskóla, að svipað mál hafi aldrei áður komið til kasta vinnudómstóls- ins þannig að um einstætt mál sé að ræða. Hann telur ekki hægt að útiloka þann mögu- leika að lokunin sé „herbragð", sem sé til þess ætlað að fá prentarana tað „makka rétt“. Vinnuveitendasambandið hef- ur hafnað þeirri ásökun prent- ara, að um verkbann sé að ræða og Jacobsen vill ekki útiloka þá kenningu. Hinn möguleikinn, sem vinnudómstóllinn þarf að taka til greina, er hvort um sé að ræða lokun, sem sé nauðsyn- leg út frá rekstrarsjónarmið- um. Jacobsen telur að stjórn Belingske Hus stæði betur að vígi út frá því sjónarmiði ef hún hefði sagt upp prenturun- um en ekki aðeins sent þá heim. Hann telur einnig að það geti stutt málstað vinnuveit- enda ef sannið verði ótvírætt að prentarar hafi reynt að trufla starfsemi fyrirtækisins siðustu dagana fyrir lokunina. & Hvað sem þessu líður eru sérfræðingar á þessu sviði sam- mála um að ógerningur sé að segja fyrir um að hvaða niður- stöðu vinnudómstóllinn muni komast. Þess vegna er talið lík- legast að sá deiluaðilinn, sem bezt getur fært rök fyrir stað- hæfingun sínum, vinni málið. En hvort úrskurðurinn verður felldur eftir nokkrar vikur eða mánuði veit enginn. ENGAR horfur eru á skjótri lausn deilunnar um lokum Berlingske Tidende, stærsta morgunblaðs Dan- merkar sem var prentað f 130.000 eintökum áður en útgáfan stöðvaðist. Deiluaðilar hafa báðir sett traust sitt á vinnudómstól, sem þeir vfsuðu málinu til, en hann hefur tilkynnt að hann geti engan úrskurð fellt f bráð. Það þykir því sýnt að deilan muni dragast á langinn og geti ef til vill staðið f marga mánuði og framtíð Berlingske Tidende og B.T. og fleiri blaða, sem útgáfufyrirtækið Berlingske Hus, gefur út, hang- ir á bláþræði. Hvor deiluaðili um sig gerir þá kröfu að vinnudómstóllinn dæmi mótaðilann til að greiða háar skaðabætur fyrir samningsbrot. Danska vinnu- veitendasambandið vill að vinnudómstóllinn úrskurði, að prentarar Berlingske Tidende skuli hefja aftur störf sam- kvæmt þeirri vinnutilhögun, sem Berlingske Hus hefur ákveðið í sparnaðarskyni. Danska verkalýðssambandið krefst þess hins vegar að dóm- stóllinn úrskurði, að stjórn Ber- lingske Hus verði að hefja út- gáfuna að nýju þannig að samn- ingaviðræður geti hafizt milli deiluaðila. Alls voru 1.000 prentarar og prentmyndasmiðir sendir heim þegar útgáfustjórn Berlingske Hus ákvað 30. janúar að loka fyrirtækinu þar sem prentarar höfðu neitað að fara eftir hinni nýju tilhögun, sem hafði meðal annars I för með sér lengri vinnutíma og skert laun. Ut- gáfustjórnin kvaðst ekki vilja taka lengur á sig ábyrgð á rekstri Berlingske Tidende vegna aðgerða, sem prentarar gripu til að trufla hina nýju vinnutilhögun, og hafði auk þess í hyggju að segja um 300 prenturum upp störfum. ■ 1 upphafi deilunnar var búizt við því að á þessu ári yrði 30 til 40 milljóna danskra króna halli á Berlingi vegna hennar og hún hefur skapað mikla eftirspurn eftir öðrum Kaupmannahafnar- blöðum, ekki sízt Politiken, sem getur ekki tekið við nýjum áskrifendum, og dæmi eru um að blaðið seljist á rúmlega fjór- földu verði á svörtum markaði. Politiken, Ekstrabladet og Aktuelt hafa gert með sér samning um að prenta ekki stærra upplag en venjulega svo að eftirspurnin er mikil. Poli- tiken hefur orðið að hafna nýjum áskrifendum og verður að hafna mörgum auglýsingum á degi hverjum, þar sem ekki er rúm fyrir þær í blaðinu. Infor- mation er ekki aðili að þessum samningi og upplag blaðsins, sem er um 30.000, eintök hefur aukizt um 20.000. Einn helzti dagblaðasérfræð- ingur Dana, Njels Thomsen, tel- ur að vfsu ekki mikla hættu á því að Berlingske Tidende tapi mörgum áskrifendum jafnvel þótt deilan standi lengi, til dæmis í 3—4 mánuði, þar sem blaðið eigi sér tryggan lesenda- hóp, sem varla hefði áhuga á öðrum blöðum nema Jyllands- Posten. Hins vegar telur hann verulega hættu á þvl að Ber- lingske Tidende tapi mörgum auglýsingum, þvf að margir kaupi blaðið beinlfnis vegna þeirra. Sama gildir um önnur blöð, sem Berlingske Hus gefur út, og starfsmenn auglýsinga- fyrirtækja segja að þau þoli mánaðarstöðvun, en lengri stöðvun geti orðið þeim dýr- keypt. Auk Berlingske Tidende hafa síðdegisblaðið BT og helg- arblaðið Welkend-Avisen stöðv- ast, Söndags BT og Billed Blad- et sem fyrirtækið gefur lfka út urðu að draga saman seglin og útgáfa þeirra hefur stöðvazt. Blaðamenn fyrirtækisins mæta til vinnu eins og ekkert hafi f skorizt, en margir þeirra telja Lokaðar dyr Berlingske Hus Berlingur á bláþrædi Utstilling á Berlingske Hus stjóri, en fyrir voru í stjórninni Aage Deleurab aðalritstjóri og H. Dupont Jochumsen ritstjóri. Nýju mennirnir fjórir hafa staðið fyrir þeim breytingum, sem hafa verið'gerðar á rekstr- inum, og bakað sér óvild prent- aranna, sem hafa verið vanir að fást við viðráðanlegri mótherja. Formaður prentarafélagsins f Kaupmannahöfn, Louis Ander- sen, hefur beinlínis sakað nýju stjórnina um að hafa kallað fram deiluna og setja ágóða- sjónarmið ofar mannlegum sjónarmiðum. Hlutverk eigendanna hefur verið nokkuð óvfst, en enginn vafi er talinn leika á þvf að afkomendur stofnanda blaðs- ins, Berlings kammerherra, styðji stefnu nýju stjórnarinn- ar heilshugar. Mestan hlut í Berlingske Hus eiga f jórir aðil- ar: Blucher-Altona fjölskyldan, sem Palle Madsen kemur fram fyrir, Næser-fjölskyldan, sem á fulltrúa i stjórninni (Johannes Næser), Ove Hauschild for- stjóri, sem er giftur inn í Berlings-fjölskylduna og Hjalmar Rosenblad forstjóri, sem sömuleiðis er giftur inn f ættina. Alls eiga þessir eignar- aðilar átta fulltrúa í útgáfu- stjórninni. Afkomendur Berlings hafa alltaf viljað málamiðlunarlausn svo að útgáfa blaðanna geti haldið áfram, en þeir segja að tilgangslaust hafi verið að halda áfram samningaviðræð- um að lokum, þar sem þá hafi ekkert verið að semja um. Þeir segja að málin hafi verið komin á það stig, að eitthvað yrði að gera til þess að koma í veg fyrir hrun Berlinske Hus eða koma starfsmönnunum í skilning um að allir yrðu að leggjast á eitt. Inngangur Berlingske Söndag f Pilestræde f Kaupmannahöfn Olaf Poulsen segir f viðtali við blaðið Börsen: „Við neydd- umst til að loka, þvf að við að útgáfan geti ekki hafizt fyrr en eftir nokkra mánuði. Lokun Berlingske Tidende og BT kom ekki á óvart. Stjórn fyrirtækisins var endurskipu- lögð vorið 1975 með það fyrir augum að innleiða nýja tækni I rekstri fyrirtækisins og koma fjármálum þess f lag. Nýendur- skipulögð stjórn fékk með öðr- um orðum það verkefni að segja upp um 300 prenturum. Gamla stjórnin hafði viður- kennt að það væri nauðsynlegt, en hafði verið treg til þess. Hún viðurkenndi einnig að nauðsyn- Iegar ráðstafanir til sparnaðar f Berlingske Hus rekstri fyrirtækisins væru fors- enda þess að það gæti haldið lifi. Nýju mennirnir í fram- kvæmdastjórn Berlinske Hus voru forstjórarnir Olaf Poulsen (áður á Politiken) og K.B. Nielsen (áður við Privatbank- en), J.H. Thygesen, sem tók við yfirstjórninni af Terkel M. Ter- kelsen, fyrrverandi aðalrit- stjóra, og Palle Madsen for-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.