Morgunblaðið - 13.02.1977, Side 23

Morgunblaðið - 13.02.1977, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. FEBRUAR 1977 23 CARTER — HarSari afstaða? við Sovétmenn en hann hef 8i gert ella. Og andófsmenn hafa ekki aðeins spillt samhugnum milli Sovétmanna og Bandarlkja- manna. þeir hafa llka valdið ýmis- legri miskllð með Sovétmönnum og stærstu kommúnistaf lokkun um á vesturlöndum. Sovézk yfirvöld eiga úr vöndu að ráða I málum andófsmanna. Þau vilja auðvitað þagga niður I þeim umfram allt og munu reyna það. En b»ði verður það Sovét- rfkjunum til álitshnekkis á vestur- löndum yfirleitt og eykur miskllð sóvézka kommúnistaflokksins og hinna fyrir vestan. Verða Sovét- menn að vega þetta og meta og eru þeir bersýnilega ekki búnir að þvl enn. En ráðherrar eru oft I förum milli höfuðborga austan- tjaldsrlkjanna um þessar mundir, og virðist. að Sovétmenn séu að reyna að „samræma aðgerðir". Búast ýmsir við þvi. að efnt verði til réttarhalda I Moskvu og Prag innan skamms og einhverjir and- ófsmdnn ákærðir, annað hvort fyr- ir sérstaka glæpi ellegar almennan I „fjandskap við rlkið". Það er trú- lega ekki að ástæðulausu, að sovézkum andófsmönnum var kennt um sprenginguna I neðan- jarðarbrautinni I Moskvu fyrir skömmu. Það bendir til þess með ■ Framhald á bls. 31 Og allir eru þeir sára- saklausir! hafði mig i ofninum i 20 daga“. En ofninn var sérlegt herbergi, sem Seixas hafði hugkvæmzt, er hann var yfirvörður i fangabúð- um á Saleyju. Þetta var steinklefi, eða skápur öllu heldur, þrjú fét á annan veg en tvö á hinn og var sjóðheitt i honum á daginn en jökulkalt um nætur. Þangað fóru þeir, sem Seixas fékk vanþóknun á. Nokkur vitni báru, að Seixas hefði sagt þeim, að þau „yrðu brjáluð ellegar dræpust" i búðun- um á Saleyju. „Hann lét okkur rogast með grjót á bakinu allan liðlangan daginn. Þessi grjót- burður þjónaði engum tilgangi nema kvelja okkur. Og það var ekkert undanfæri. Ef við veikt- umst dró Seixas okkur út og rak okkur að verki“. „Seixas barði mig og sparkaði I mig í aðalstöðv- um PIDE í Lissabon". Og þannig mætti lengi telja. Vitni verjanda höfðu náttúru- lega aðra sögu að segja. „Seixas gaf fátækum ölmusu", sagði eitt þeirra; það var tannlæknir ákærða. En þegar blessaður tann- læknirinn sagði þetta varð hlátur mikill á áhorfendapöllunum. „Það er alveg satt“ æpti ekkja gamals fanga og viðskiptavinar Seixas. „Hann gaf fátækum — spörk og svipuhögg!" Eitt vitni verjanda, auðugur maður, lét svo um mælt, að hann hefði eytt stór- fé til samsæra gegn ríkisstjórn Salazars fyrr á árum. Hefði hann nokkrum sinnum verið kallaður til yfirheyrslu vegna gruns og hefði Seixas ævinlega verið hinn kurteisasti við sig. „Þú sagðist samt hafa skolfið, þegar þú fórst fyrst til yfirheyrslu", sagði þá einn dómarinn. „Já“ svaraði vitnið „menn voru búnir að segja mér, að þeir í PIDE væru illir viðskiptis. En þeir reyndust mér vel“. Þá gall við í manni á áhorfendapöllum. „Það var heppi- legt, að þú varst ríkur ævintýra- maður. Þú hefðir kynnzt annarri hlið á þeim, ef þú hefðir verið verkamaður". Nú er búið að dæma í málum 13 fyrrverandi foringja I PIDE/DGS. Þeir fengu allir væga dóma og fóru frjálsir menn úr réttarsalnum, þvl að þeir eru bún- ir að sitja í haldi frá því í apríl '74 og dómarnir ganga upp í það. Þá hafa þessir menn og notiö „sér- stakrar þjónustu" sinnar fyrrum og þykir mörgum það kaldhænis- legt. Svo að dæmi sé nefnt, hlaut Seixas heiðursmerki fyrir „rannsóknarstörf" sín í lögregl- unni og fyrir störf sín í lifverði Salazars. Er nú tekið tillit til slikra viðurkenninga i dómum. Heiðursmerkið dugði þó ekki í þetta skiptið. Svo fór að lokum að „öðlingurinn" Seixas hlaut fangelsisdóm. Hann var núna seint i janúar fundinn sekur um margskonar misþyrmingar á fólki og hlaut nærri átta ára fangelsi. En þetta er samt einsdæmi að heita hjá yfirvöldum í Portúgal sem þykja næsta mjúkhent í upp- gjöri sinu við böðla einræðis- stjórnarinnar. Á árunum 1935—1974 gistu 30 þúsund manna PIDE/DGS. Telur fólk þetta, að lögreglan hafi ekki enn fengið gistingúna borgaða að verðleikum. Það er von að þvi finnist réttlætið seint ætla fram að ganga. Dómarar reyna svo sem hvað þeir geta. En hendur þeirra eru bundnar; annars vegar eru þessar „mildandi aðstæður", sem nefndar voru, þ.e. gömul „afrek“ í þágu föðurlandsins, sem hin nýju stjórnvöld ætla að telja lögreglumönnum hinna fyrri til tekna, og hins vegar gæzluvarð- haldstimi PIDEmanna frá 1974, sem verður til þess, að þeir ganga nú frjálsir ferða sinna úr réttar- sal fyrir augum gamalla fanga sinna og fórnarlamba. Verður að segja, að vinnubrögð yfirvalda í málum þessum hafa öll verið næsta handahófskennd og furðu- leg. En af sjónarmiðum PIDE- manna sjálfra er það að segja, að þeir telja sig píslarvotta, hvorki meira né minna, segjast hafa verið fangnir alsaklausir i rúm tvö ár, og iðrast flestir einskis. En það kann að reynast yfirvöldum hættulegt að sleppa þeim lausum. Ástandið i Portúgal er ekki gott um þessar mundir og batnar hljóðið í almenningi tæpast við þetta undarlega réttlæti. — Diana Smith. FRÁ BANKOK — Munkarnir standa Ifka uppi ráðþrota landi ef enginn æti framar endur og andar- egg. En alþýða manna lét sér ekki segjast. Um vletnömsku veitingastaðina og „argentiumduftið" er það að segja, að þjóð- ernishyggja mun valda mestu um nýtilkomná óbeit Thailendinga á þeim. Þær sögur eru nefnilega á kreiki, að útsendarar kommúnista I Kambódiu hafi slegizt með leynd í hóp fólks, sem flúði þaðan til Tahilands. Hafi út- sendarar þessir haft með sér gnægð „argentiums", sáldri því í mat manna I Thai- landi og stofni þannig framtið þjóðarinnar I voða. En þeir, sem vill- ast inn I vletnömsku vitingastaðina um þess- ar mundir fá betri matarfrið en í nokkurn annan tima. Og búið er að loka fjölmörgum veitingastöðum. Áhrifamenn i Thai- landi hafa snúið sér til vestrænna vísinda- amnna og beðið þá ásjár. Hafa ýmsum vel- metnum kvensjúkdóma- fræðingum i Banda- rikjunum borist nákvæmar lýsingar á uppdráttarsýkinni. Það er líka búið að tala við þá I Alþjóðaheilsu- i gæzlustofnuninni. Fórnarlömb sýkinnar hafa verið yfirheyrð í þaula svo að hundruð- um skiptir, og tekið hef- ur verið mál af ótöldum kynfærum. En læknis- ráð hafa engin fundizt. Læknar eru jafnvel svo ósvifnir að segjast ekki sjá nein merki sýkinnar og sé enginn faraldur I landinu -nema múgs- i efjun. Þá er að færa Thailendingum heim sanninn um það. En þeir eru ákaflega stolt þjóð. Nú eru þeir búnir að bita það i sig, þúsundum saman, að þeir þjáist að upp- dráttarsýki að neðan- verðu. Og það verður hægara ort en gert að telja þeim hughvarf. —ANDREW MURRAY. ________________________I Nýkomin mjög falleg gluggatjaldaefni í breidd 275 — 280 cm. Eínnig blúndustores og straufríir matar og kaffi- dúkar. Sendum í póstkröfu um allt land. Vefnaðarvöruverzlun VBK, Vesturgötu 4 sími 13386. Vorum að fá nokkur ensk og amerísk BILLIARDBORÐ Gísli Jónsson & Co. h.f. Sundaborg Simi 86644 klæðaskápar Nú höfum við opnað söluskrifstofu í hjarta borgarinnar í Miðbæjarmarkaðnum, Aðaistræti 9. Ný sending af hinum geysivinsælu Star klæðaskápum var að koma. Star klæðaskápana er hægt að skipuleggja eftir þörfum hvers og eins. Sama lága verðið eða um kr. 28.000 — per lengdar- meter. LÆKKAÐ VERÐ: Eigum nú til ýmsa staka skápa úr við og viðarlíki, sem við seljum á lækkuðu verði. Einnig franskar frimla skápahurðir. STAR-skápa í allt húsið BÚST0FN hf. Söluskrifstofa, Miðbæjarmarkaðnum, sími 81077 Funahöfða 19, sími 81663. *

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.