Morgunblaðið - 13.02.1977, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. FEBRUAR 1977
Hvar vinna foreldramir?
HÉR áður fyrr fylgdust börn oft
með foreldrum sínum á vinnustaði,
fengu að taka þátt I lifi þeirra og
starfi og fundu, að þau voru ein-
hvers virði, gátu verið til einhvers
gagns. Þau voru hluti af fjölskyldu
sinni, hluti af þjóðfélaginu og
fylgdust með því sem var að gerast í
kringum þau.
Iðnvæðing og taeknimenning
nútimans hafa breytt miklu — en
vafasamt er, að það hafi allt verið til
góðs. Finnst okkur heimurinn
manneskjulegri en áður? Hafa
mennirnir nálgast hver annan og
veitt hver öðrum stuðning, skilning
og umhyggju?
Eitt af því sem veldur, að kynslóðabilið vex og fjarlægðin milli fólks
eykst, er án efa ókunnugleiki barna á háttum og málefnum foreldra
þeirra. Mörg börn hafa ekki hugmynd um, hvar foreldrar þeirra vinna eða
I hverju vinna þeirra er fólgin. Þau eru hlutfallslega fá þau börn, sem
hafa haft tækifæri til þess að fara með foreldrum sínum eða forráða-
mönnum á vinnustað.
Hvernig væri, að börnin bæðu foreldra sína um að athuga möguleika á
heimsókn? Kannski geta foreldrarnir llka athugað þetta sjálfir og boðið
börnum slnum I heimsókn? Hún þarf ekki að vera svo ýkja löng, en hún
þarf að vera undirbúin. Það þarf að ræða um hana og börnin þurfa að fá
tækifæri til þess að spyrja, og á einn eða annan hátt að geta tengt vinnuna
við lífið almennt og samhengi I gangi þess.
Á sumum vinnustöðum er erfitt að koma þessu við, en það er ekki
nokkur vafi á þvl, að margir vinnuveitendur munu taka þessu vel. Og ekki
væri úr vegi að Barna- og fjölskyldusíðan fengi stutt bréf um einhverjar
heimsóknir! Við gerum sjálfsagt allt of lltið af þvl að miðla öðrum af
reynslu okkar.
I
sem átti þrjá syni. Þeir hétu allir
undarlegum nöfnum. Sá elsti hét
„Hugsaðu það“, sá I miðið hét
„Segðu það“, en sá yngsti hér
„Gerðu það“.
Þegar konungurinn fór að eld-
ast og fann, að dauðinn nálgaðist
kallaði hann á syni sfna og sagði:
„Sá ykkar, sem byggir fallegustu
höllina á einu ári, verður konung-
ur eftir minn dag.“
Þetta fannst konungssonunum
ágæt tillaga og allir hugsuðu með
sér: „Ég skal verða konungur.“
Og sá elsti, „Hugsaðu það“,
byrjaði að hugsa og velta málun-
um fyrir sér. Hann hugsaði og
hugsaði og I huga sínum byggði
hann hinar fegurstu hallir og
turna. En þegar árið var liðið
hafði hann ekki einu sinni byrjað
á sjálfri byggingunni.
„Segðu það“ talaði um áætlanir
Útsalan
Aðeins tveir dagar eftir. Verzlunin er að hætta.
Skóbær, Laugaveg 49.
Upplýsingar í síma 35408
NOTIÐ
tAÐBESTA
Norræni sumar-
háskólinn:
Nýtt
starfs-
ár að
hefjast
UM þessar mundir er Norræni
sumarháskólinn að hefja nýtt
starfsár sem mun vera hið 26. I
röðinni, en hérlendis hófst starfs-
semin upp úr 1960. Þrátt fyrir
nafnið starfar skólinn allan
ársins hring, en I upphafi hvers
árs eru ný efni tekin fyrir I
nýjum hópum, og gamlir hópar
taka jafnframt við nýjum félög-
um.
Aðalstarfsemi Norræna sumar-
háskólans fer fram I námshópum,
en sameiginleg efni eru valin á
sumarmóti sem haldið er ár hvert
til skiptis á Norðurlöndunum,
þótt slíkt mót hafi ekki farið fram
hér sfðan 1968. Markmið skólans
er að stuðla að gagnrýnni athug-
un og breytingum á mennta- og
rannsóknastörfum á Norðurlönd-
unum með þvi að velja sér rann-
sóknaverkefni sem af einhverjum
ástæðum hafa ekki verið leyst af
hendi við menntastofnanir land-
anna og stuðla að þvi að þær taki
slík verkefni fyrir, segir I starfs-
reglum skóalns, Á síðastliðnu ári
störfuðu I Reykjavík hópar um
orkumál, heilbrigðismál, verka-
lýðssögu, kvikmyndafræði og
rlkisvald og auðmagn. Fyrir árið i
ár verður einnig boðið upp á 5
viðfangsefni en þau eru 5 efni af
11 sem boðið er upp á af dagskrá
Norræna sumarháskólans. Verða
þrjú þessara efna ný, en tveir
hópar frá fyrri árum halda áfram
starfi sínu, en hver hópur starfar
I lengst þrjú ár. Verkefni
komandi starfsárs eru: Hafið og
Norðurlönd, hópsstjóri Ólafur K.
Pálsson S: 44641 Heilbrigðis- og
félagsmál, hópsstjóri Sigrún
Júlíusdóttir S: 21428 Þekkingar-
miðlun I skólum, hópsstjóri
Kristrún Isaksdóttir, S: 43518.
Kvikmyndafræði, hópsstjóri
Friðrik Þ. Friðriksson Laugavegi
135, Framleiðsla og stéttarvitund,
hópsstjóri Stefania Traustadóttir
s: 11935.
öllum er heimilt að hefja starf I
verkefnahópum Norræna sumar-
háskólans I upphafi hvers árs.