Morgunblaðið - 13.02.1977, Page 32

Morgunblaðið - 13.02.1977, Page 32
32 _ MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. FEBROAR 1977 Hughes eins og hann leit út á yngri árum og teikning af honum eins og talið var að hann hafi litið út tveimur árum fyrir lát sitt. Robert Maheu. Hughes flúði frá Las Vegas til að forðast lætin, sem komu f kjölfar þess að hann rak Maheu. Clifford Irving rithöfundur Melvin Stewart, hárskeri, og Gordon Margulis ÞAÐ VAR áliðið dags 6. apríl á sl. ári og öll hjól snerust í spilavít- um Las Vegas. Þægi- leg rödd í hátalara- kerfi Desert Inn spila- vítisins tilkynnti þá skyndilega, aö óskað væri eftir að þögn ríkti í eina mínútu í viðringarskyni við lát- inn eiganda spilavítis- ins, Howards R. Hughes. Þegar gestir höfðu staöið vandræðalegir með spilapeninga sína í höndunum hallaði einn borðstjórinn sér fram og sagði: „Kastið teningnum, hann er búinn að fá sína mín- útu.“ Howard Hughes hafði látizt um borð í sjúkraþotu rúmum sólarhringi áður á leið frá Acapulco í Mexikó. Hann lézt úr nýrnabil- un, en aðframkominn af vannæringu og um- hirðuleysi. Lauk þar með á furðulegan hátt ævi eins auðugasta manns heimsins og eins mesta sérvitrings okkar tíma. 10 mánuðir eru nú liðnir frá láti Hughes og enn eru margar óráðn- ar gátur í sambandi við líf hans og verða sjálfsagt lengi. Hins vegar hafa ýmis svör og skýringar feng- izt í bók bandaríska blaðamanns- ins James Phelans, sem út kóm skömmu fyrir jól og nefndist „Hín huldu ár Howards Hughes". Phelan, sem hefur fylgzt með Howard Hughes meira en nokkur annar maður sl. tvo áratugi, fékk til liðs við sig tvo menn, sem voru i hópi starfsmanna Hughes, sem nánust samskipti höfðu við hann. Þessir tveir menn, Melvin Steward, hárskeri að atvinnu, og Gordon Margulis, 45 ára gamall Breti, sem fyrir röð tilviljana varð þjónn Hughes, ákváðu að skýra Phelan frá reynslu sinni og skipta með honum hagnaði af útgáfu bókarinnar. Hrikalegar lýsingar Urdráttur úr bók þessari hefur birzt i blöðum og tímaritum víða um heim og eru þær lýsingar, sem þar eru gefnar af lífi þessa sér- vitra auðkýfings, næsta hrikaleg- ar og gefa til kynna, að hann hafi verið orðinn geðsjúkur siðustu 10 árin, sem hann lifði, eða þar um bil. Skv. lýsingum hefur útlit hans verið hörmulegt. Skegg hans grátt og rytjulegt náði honum í mitti og hár hans niður á mitt bak. Neglur hans voru sagðar allt að 5 sm langar og hann var jafnan annaðhvort nakinn eða í stuttum hvítum lérefstnærbuxum einum klæða. Þvisvar sinnum á þessum 10 árum hitti hann að máli menn, sem voru utan þess heims, sem hann hafði skapað sér, og þá lét hann klippa sig og snyrta og klæddi sig þannig að engum sem hann hitti kom til hugar annað en sögurnar um hann væru hreinn uppspuni. 1 bókinni segir að Hughes hafi verið orðinn óforbetranlegur lyfjaneytandi. Hann hafi byrjað að taka Valium og Empirin 1966, er hann flutti með mikilli leynd til Las Vegas frá Boston og er árin liðu neytti hann þessara lyfja í gífurlegu magni. Þessi lyf, sem eru góð við höfuðverk og tauga- óstyrk ef þeirra er neytt í hófi, valda sleni og gleymsku ef um ofnotkun er að ræða. Þegar á leið byrjaði Hughes að sprauta sig beint í æð með einhverjum tær- um vökva, sem tvímenningarnir vissu ekki hvað var, en þeir tóku eftir því að eftir sprautuna varð Hughes yfirleitt mjög syfjaður og ruglaður og ekki hægt að skilja það sem hann sagói. 4 læknar önnuðust Hughes að staðaldri, en þvermóðska hans og sérvizka kom í veg fyrir að hann færi að ráðum þeirra og hann varð fljótt mjög illa á sig kominn heilsufarslega, þjáðist af gigt, meltingartruflun- um og ýmsum öðrum kvillum. 1000 dollara klípping Þegar Stewart fyrst hitti Hughes kom einn af aðstoðar- mönnum Hughes til hans á rak- arastofu hans í Las Vegas og bað hann að koma með sér og hafa tæki sín með i tösku til að klippa mann á Desert Inn. Þegar komið var að dyrum á efstu hæð hótels- ins bankaði maðurinn með ákveðnu merkjamáli og dyrnar voru opnaðar. Þar tók á móti Stewart maður að nafni John Holmes, einn af aðstoðarmönnum Hughes. Holmes gaf Stewart ná- kvæm fyrirmæli ym hvernig hann skyldi haga sér. Hann átti að byrja á því að þvo sér eins og skurðlæknir fyrir aðgerð áður en hann byrjaði klippinguna. Síðan átti hann að setja upp skurðstofu- gúmmíhanzka og losa allt úr vös- um sinum, eins og penna, blýanta eða annað því um líkt og að lokum var honum bannað að yrða á manninn, sem hann átti að klippa. Hann mætti tala við hann á merkjamáli, en ekki segja eitt einasta orð og alls ekki segja nokkrum lifandi manni frá því sem fyrir augu hans bæri. Ste- wart var nú látinn setjast niður og bíða í nokkrar klukkustundir, sem hann notaði til að velta fyrír sér hvernig í ósköpunum gæti staðið á öllu þessu umstangi um einn auðugasta mann heims. Loksins kom Holmes og sagði „Hughes er tilbúinn." Stewart segir: „Ég lamaðist er ég kom inn í herbergið. Ég er sveitastrákur og hélt að milljónamæringar væru umkringdir lúxus, eins og Rembrandt-málverkum, antikhús- gögnum og þvíumlíku, en hér sat þessi frægi maður berrassaður í óumbúnu rúmi, hár niður á mitt bak og skegg niður á maga, svo horaður að holdið var eins og tálg- að á beinunum. Ég ætlaði að leggja töskuna frá mér á stól, en Hughes hrópaði: „Nei, nei, nei, ekki á stólinn." Siðan skipaði hann Holmes að sækja einhverja „einangrun" til að setja undir töskuna og kom hann með stafla af bréfhandklæðum. Holmes lagði síðan dulu á mitt gólfið, bar þang- að stól og gaf mér merki. Ég byrj- aði að setja á mig hanzkana. Hughes horfði spyrjandi á mig og sagði: „Hvern fj. . . ætlarðu að gera við hanzka?" Ég vissi ekki hvað ég átti af mér að gera. Holmes hafði skipað mér að setja upp hanzkana og bannað mér að tala við Hughes. Ég kunni ekki að gefa skýringu á fingramáli hvað um væri að ræða og ákvað að sýna hugrekki og segja honum ástæð- una. „Hvaða vitleysa, þú getur ekki klippt mig með gúmmíhönzk- um." Það tók mig þrjár klukku- stundir að klippa hann og raka og í hvert skipti, sem ég þurfti að nota eitthvert áhald, varð ég að stinga þvi ofan í hreinan spíra til að dauðhrainsa það. Nokkrum dögum síðar kom einn af mönnum Hughes til mín og afhenti mér 1000 dollara fyrir viðvikið." Þegar Hughes fór frá Las Vegas Astæðan fyrir því að Howard Hughes fór frá Las Vegas seint í nóvember 1970 í ferð, sem þannig þróaðist, að hann kom ekki aftur til föðurlands síns fyrr en hann var látinn, var sú að mikil valda- barátta kom upp i fyrirtækjasam- steypu hans og lauk með þvi að hann rak Robert Maheu aðalfram- kvæmdastjóra sinn og trúnaðar- Auðugasti maður heims iézt úr umhirðu- ieysi íhópiiækna og aðstoðarmanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.