Morgunblaðið - 13.02.1977, Page 37
MORG UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. FEBRUAR 1977
37
ista. Þegar ég sneri aftur til Hol-
lands i nóvember bauð ég sak-
sóknaranum i Amsterdam öll
skjöl og sannanir, sem ég hefði.
Hann var felmstri sleginn yfir því
sem hann las, en bað mig um að
biða í 4 vikur með að birta þetta í
blaði minu til þess að hann gæti
sent 4 lögreglumenn til Sovétrikj-
anna til að kanna málið og stað-
festa það sem ég væri að segja.
Ekki tókst að fá leyfi fyrir ferð-
inni og þeir urðu að treysta á mitt
efni. Ég beið með birtingu i eina
viku og 15. nóvember 2 dögum
fyrir útgáfu blaðs míns var gefin
út handtökutilskipun á Menten i
Hollandi. Honum hafði hins vegar
tekizt að flýja deginum áður. Hol-
lenzku yfirvöldin, sem vafalaust
hafa verið hrædd við auð hans og
völd, vildu vera 100% viss I sinni
sök og höfðu látið undir höfuð
leggjast að taka af honum vega-
bréfið. Ég skil þetta vel, því að ég
hafði sjálfur fengið að finna fyrir
hótunum hans. Þegar ég fyrst
gekk á hans fund í maí og gaf
honum tækifæri til að verja sig,
neitaði hann að sjálfsögðu öllu
mjög kurteislega. Ég sat hjá
honum næstum heilan laugardag
I húsi hans i Blaricum. Daginn
eftir byrjaði hann að hringja til
min og hóta mér. Hann bauð mér
10 þúsund dollara ef ég félli frá
þvi að birta grein um málið. Þá
helgi hringdi ég í Simon
Wiesenthal, hinn kunna nasista-
veiðimann, sem situr í Vin, og
spurði hann hvort hann hefði eitt-
hvað á Menten, en hann svaraði
þvi neitandi. Næst þegar Menten
hringdi sagði ég honum hvað
Wiesentahl hefði sagt og sagði:
„Ég skal taka það fram i greininni
að Wiesentahl hafi sagt að hann
hefði ekkert á þig“. Menten sagði
þá: „Ég skal borga 20 þús dollara
til Wiesenthalstofnunarinnar ef
þú lætur málið niður f alla“. Ég
neitaði að sjálfsögðu. Nokkru
seinna beitti hann fyrir sig
þekktum nöfnum í hollenzkum
stjórnmálum og hjá fjölmiðlum
og sagði að hann og vinir hans
myndu kaupa Accent og láta reka
mig“.
„ÉG ER ÖRUGGUR“
Knoop fylgdist vel með Menten
og það var hann sem vísaði sviss-
nesku lögreglunni á hann í hóteli
skammt frá Zurich. Þau hjón voru
sofandi, er lögreglan knúði dyra,
en Menten skildi strax hvað um
var að vera og hrópaði: „Þið getið
ekkert gert samkvæmt svissnesk-
um lögum, ég er öruggur". Hann
hafði þegar ráðgast við svissneska
lögfræðinga og á náttborði hans lá
eintak af samningi Hollendinga
og Svisslendinga um reglur um
framsal afbrotamanna. Hann
veitti enga mótspyrnu er
lögreglumenn báðu hann að
fylgja sér, en er hann sá Knoop í
anddyri hótelsins missti hann
alveg stjórn á skapi sinu og
kallaði hann skitugan júða og
kommúnista og hélt áfram að
hrópa svivirðingar að honum alla
leiðina að lögreglustöðinni, sem
var um 300 metra frá hótelinu.
Tveimur dögum seinna fengu
blöð í Hollandi afrit af bréfi, sem
Menten hafði sent hollenzka
dómsmálaráðuneytinu, þar sem
hann lýsti yfir sakleysi sínu og
sagðist einungis hafa flúið, vegna
þess að hann væri svo veikburða
orðinn, að hann gæti ekki varið
sig. Menten, sem reyndi að fremja
sjálfsmorð eftir að hann var hand-
tekinn, er nú í haldi i Hollandi,
eftir að hann var framseldur
þangað, en engar formlegar ákær-
ur hafa enn verið lagðar fram á
hendur honum þó að umfangs-
mikil rannsókn hafi farið fram á
máli hans. Fjögurra manna hol-
lenzk sendinefnd fékk heimild til
að fara til Sovétríkjanna I byrjun
febrúar til að reyna að staðfesta
framburð vitna og hafa þeir látið
5 manns, sem segjast hafa orðið
vitni að aftökunum, setja þær á
svið. Gert er ráð fyrir að
ákvörðun verði tekin um hvort
mál verður höfðað gegn Menten,
þegar nefnd þessi hefur lokið
störfum.
(Observer, New York Times,
Reuter).
— Minning
Albert
Framhald af bls. 38
verið starfsmaður á Fasteigna-
matsskrifstofu Winnipegborgar,
og notið þar trausts og virðingar,
er lýsti sér f þvi, að mörg hin
síðari ár, áður en hann hætti
störfum, hafði hann verið yfir-
fasteignamatsmaður.
Albert var maður mjög félags-
lyndur, og var Soffia kona hans
honum samhent í þvi sem öðru, er
horfði til góðs og gagnsemdar.
Hann bar hag Fyrstu lútersku
kirkju I Winnipeg sérstaklega
fyrir brjósti, var ritari safnaðar-
ins árum saman og forseti hans
seinasta árið, sem hann gegndi
hinu opinbera embætti sinu.
Hann var einnig ritari hinnar
upphaflegu nefndar, er hóf fjár-
söfnun til stofnunar háskólastóls-
ins í íslensku og islenskum bók-
menntum við Manitobaháskóla.
Albert átti einnig lengi sæti I ís-
lendingadagsnefndinni í Winni-
peg. — Vikublaðið Lögberg-
Heimskringla naut einnig góðs
stuðnings af hans hálfu.
Þegar Soffia kona hans, sem er
listræn mjög og snillingur í vefn-
aði, hóf viðtækt starf sitt I þágu
Kanadiska heimilisiðnaðarfélags-
ins — (The Canadian Handicrafts
Guild), gerðist Albert hægri hönd
hennar í þvi umfangsmikla starfi,
ferðaðist, meðal annars, með
henni á fundi til heimilisiðnaðar-
sýninga og ræðuhalda viðsvegar i
Manotoba og Winnipeg. í þakkar-
og viðurkenningarskyni fyrir það
ágæta starf sitt var hann kjörinn
ævifélagi Kanadiska heimilisiðn-
aðarfélagsins, og er það einstæð-
ur heiður, sem sjaldan fellur karl-
manni i skaut.
í allmörg ár helgaði hann sum-
arfríi sínu, ásamt Soffiu, því nyt-
semdarverki að kenna vefnað
unglingunum I Sumarbúðum lút-
ersku kirkjunnar (The Sunrise
Lutheran Camp) I Húsavik við
Winnipegvatn. Má óhætt fullyrða,
að það var öllum hlutaðeigendum
til óblandinnar ánægju.
Eftir að þau hjónin fluttust til
Vancouver, hélt Albert áfram
virkum áhuga sínum á kirkjuleg-
um málum með fórnfúsu starfi
sinu í þágu islensku lútersku
kirkjunnar þar í borg (The
Lutheran Church of Christ), var
fjármálaritari hennar til dánar-
dægurs. Hann var einnig heil-
huga stuðningsmaður íslendinga-
félagsins i Vancouver (The Ice-
landic Canadian Club of B.C.), og
mjög að verðugu, verið kjörinn
ævifélagi þess félagsskapar.
Þótt Albert hefði eigi árum
saman gengið heill til skógar, bar
dauða hans óvænt að höndum.
Hann veiktist skyndilega síðdegis
26. mars, var þegar fluttur á
sjúkrahús, en varð bráðkvaddur
þar áður en hann komst undir
læknishendur.
Fögur minningarathöfn um
hann fór fram i kirkju hans, The
Lutheran Church og Christ, sem
hann hafði svo lengi unnið trú-
lega. Var athöfn þessi fjölsótt og
bar vitni djúpum ítökum hans i
hugum og hjörtum samferðasveit-
arinnar. Sóknarpresturinn fór,
meðal annars, um hann eftirfar-
andi orðum: — „Alberts verður
sárt saknað af safnaðarsystkynum
slnum. Návist hans hefir verið ein
af hinum sterku stoðum I fram-
haldandi starfi safnaðarins." —
Þetta er fagur vitnisburður,
byggður á löngum og nánum per-
sónulegum kynnum og samstarfi.
Albert Wathne var prýðisvel
gefinn maður. Hann var prúð-
menni í allri framkomu, og dreng-
skaparmaður að sama skapi. —
Þannig lifir hann I ljúfri minn-
ingu okkar, sem stóðum honum
næst og allra, sem þekktu hann
best.
Minnugur þess lýk ég þessum
kveðjuorðum með því að vitna til
fleygra orða norska öndvegis-
skáldsins Björnstjerne Björnson:
— „Þar sem góðir menn fara, eru
Guðsvegir."
Af sérstökum ástæðum er lítil verzlun til
sölu. Tækifæri fyrir konu sem vill skapa
sér sjálfstætt starf.
Tilboð óskast send augld. Mbl. merkt H
1 701".
Bifreiðaeigendur takið eftir:
Frumryðvörn og endurryðvörn spara ekki einungis peninga heldur eykur
öryggi ykkar í umferðinni.
Endurryðvörn á bifreiðina viðheldur verðgildi hennar.
Eigi bifreiðin að endast, er endurryðvörn nauðsynleg.
Látið ryðverja undirvagn á 1 — 2ja ára fresti.
Látið ryðverja að innan á 3ja ára fresti.
Góð ryðvöm tryggir endingu og endursölu.
BÍ L A RYÐVÖR N hf
Skeif unni 17
8 81390
iggnoöHiB
IppqlHipB i WB
BLÓMAIÍNIIR
og það ekki að ástæðu-
lausu því að þær samræma
fallegt útlit og fjölbreytni
í útfærslu.
Og meira til - þær er auð-
velt að þrífa og þær end-
ast vel.
Spyrjið, hringið eða skrif-
h ið og biðjið um litmynda-
Í*| bækling. Við tökum mál,
skipuleggjum og teiknum
- ykkur að kostnaðarlausu.
Við gerum einnig tilboð
án skuldbindinga af ykkar
hálfu.
Þið getið því sjálf - eða
með okkar aðstoð - uppfyllt
óskir ykkar um góðar eld-
húsinnréttingar á hagstæðu
verði.
hagif
Suðurlandsbraut 6, Glerárgötu 26,
Reykjavík. Akureyri
Sími: (91) 84585. Si'mi: (96) 215Ö7
mmm mmmm mmm . mmm mm » ^ ,, mm*. . 1
Nýr litmyndabæklingur.
Óska eftir bæklingi með upplýsingum um Haga framleiðsluvörur.
Nafn:...................................................
Heimilisfang:...........................................
Sími:...........
Richard Beck.