Morgunblaðið - 13.02.1977, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. FEBRUAR 1977
Björn Skúlason
—Minningarorð
Fæddur 12. júlf 1898.
Dáinn. 6. febrúar 1977.
ER okkur barst dánarfregn vinar
okkar og starfsbróður, Björns
Skúlasonar, setti okkur hljóða. Að
vísu var okkur kunnugt um það,
að hin siðari ár hafði Björn ekki
gengið heill til skógar, en vegna
þess hvað hann hafði verið kátur
og hress undanfarnar vikur,
-hvarflaði ekki að okkur að maður-
inn með ljáinn væri á næstu grös
um. Kom lát hans okkur á óvart.
Það tók okkur nokkurn tíma að
átta okkur á því, að er hann
kvaddi okkur föstudaginn 4. þ.m.
þá væri hann að kveðja samstarfs-
menn sina hinzta sinn, að minnsta
kosti her á jörðu. Hann andaðist
sunnudaginn 6. febrúar.
Þegar við komum til vinnu á
mánudagsmorguninn fannst okk-
ur tómlegt á skrifstofunni, því við
söknuðum Björns.
Þegar allt gengur sinn vana-
gang, þá trúir maður því ekki,
hvað það munar mikið um einn
góðan vin, er hann hefur verið
kallaður á brott fyrir fullt og allt,
og þá ekki síst sá vinur sem hefur
verið manni hugþekkur.
Björn heitinn vann hjá Heild-
verzlun Ásgeir Sigurðsson h.f., í
áratugi. Hann hafði fengið góða
menntun í verzlunarstörfum, var
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður ömmu og langömmu.
PETRÍNU JÓNSDÓTTUR
Vogabraut 2
Alúðarþakkir til lækna og hjúkrunarfólks B-deildar sjúkrahúss Akraness
fyrir frábæra hjúkrun og umönnun.
Börn tengdabörn, barnabörn og langömmubörn.
t
Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
SESSELJU BJÖRNSDÓTTUR,
sem lézt 5 febrúar, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 15.
febrúar kl 1 3:30. Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, eru beðnir að
láta líknarstofnanir njóta þess.
Elisberg Pétursson,
Henning Elfsberg, Gréta Hansen
og barnabörn.
t
Hjartanlegar þakkir til allra er
sýndu vinar- og hlýhug við and-
lát og útför
JÓHANNS AXELS
STEINGRÍMSSONAR,
Dyngjuvegi 12.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
gjörgæzludeildar Landspítalans,
svo og Málarafélags Reykjavíkur.
Guðbjörg Baldursdóttir,
dætur, fósturbörn,
faðir systur og
tengdaforeldrar hins látna.
skyldurækinn með afbrigðum og
taldi aldrei eftir sér aðr réttaokk-
ur starfsfélögum sínum hjálpar-
hönd er svo bar undir. Hann var
lipur við viðskiptamenn fyrir-
tækisins, eignaðist hann marga
góða vini í fiopi þeirra. Prúð-
mennska og kurteisi var honum I
bloð borin, og sá eiginleiki færði
honum marga vini, er munu
sakna hans nú þegar hann er all-
ur.
Björn kvæntist danskri konu,
Grethe Höjris, og er hún dáin
fyrir fáeinum árum. Hún var
ekkja er Björn giftist henni og
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför
PÁLS GUÐMUNDSSONAR
Baugsstöðum
Elfn Jóhannsdóttir
Sigurður Pálsson
Guðný Pðlsdóttir
Skúli Magnússon
Una Georgsdóttir
Siggeir Pálsson
t
Utför
KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR
Bólstaðarhlfð 46,
sem lést 31 janúar Fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 15
febrúar kl 3
Jóhanne L. Hansen.
+
Þökkum af hjarta öllum þeim fjölmörgu sem á margvíslegan hátt hafa
auðsýnt okkur samúð við andlát og útför
KRISTJÁNS INGÓLFSSONAR,
fræðslustjóra.
Elfn Óskarsdóttir
Ingólfur Kristjánsson
Óskar Grfmur Kristjánsson
Ingileif Steinunn Kristjánsdóttir
Þorsteinn Baldursson
systkini, tengdaforeldrar og aðrir vandamenn.
átti hún son frá fyrra hjónabandi,
Knút Höjris. Sambúð Björns og
stjúpsonar hans var til fyrirmynd-
ar. Úm hverja helgi fór Björn I
heimsókn til Knúts, er býr í
Keflavík. Knútur sýndi stjúpföð-
ur sínum mikla umhyggju og
gerði sér mikið far um að létta
Birni llfið, er hann hafði misst
heilsuna.
Við starfsfélagar Björns heitins
vottum Knúti og öðrum ættingj-
um stjúpföður hans okkar inni-
legustu samúð.
Starfsfólk Heildverzl.
Ásgeir Sigurðsson hf.
Björn Skúlason var fæddur að
Ytra Vatni I Efribyggð I Skaga-
firði 12. júlí, 1898, sonur hjón-'
anna Skúla Jónssonar og Guðrún-
ar Tómasdóttur, sem þar bjuggu.
Var Björn næst yngstur 13 barna
þeirra hjóna. Ungur að árum
fluttist hann að Norðtungu til
systur sinnar, Ingibjargar og
manns hennar Runólfs Runólfs-
sonar. Er sonur Runólfs, Sigurður
Runólfsson, tók við kaupfélags-
stjórastarfi I Borgarnesi, réðst
Björn I þjónustu kaupfélagsins og
starfaði þar um skeið. Þaðan fór
hann til Skotlands og dvaldi við
nám og verzlunarstörf I Glasgow I
nokkur ár. Er heim kom vann
hann um tíma við verzl. Garðars
Glslasonar, en réðst svo I þjón-
ustu Heildv. Ásgeirs Sigurðssonar
og vann þar alla tlð slðan.
Á síðari árum tók hann að
kenna sjúkleika og varð að liggja
á sjúkrahúsi um alllangt skeið.
Hann náði sér þó aftur og fór að
vinna að nýju á sama stað og áður.
Hann stundaði vinnu sína fram-á
föstudag, 4. þ.m. Ég átti tal við
hann þann dag og var hann þá
hress og kátur. Daginn eftir, um
kvöldið, sat hann við spil um
stund með félögum sínum. Nótt-
ina eftir kennir hann þunga fyrir
brjósti og er fluttur á spltala. Um
kl. hálfþrjú á sunnudag missti
hann meðvitund og var látinn
hálftíma síðar.
Björn kvæntist 28. janúar 1933
glæsilegri og gáfaðri danskri
konu, Margrethe Höjriis, sem þá
var ekkj aog átti einn son, Knút
Höjriis. Hjónabandið var farsælt
og ástúðlegt, en börn áttu þau
ekki. Mikil og traust og gagn-
kvæm vinátta var milli Björns og
stjúpsonar hans, sem varð þvl
meiri sem lengra leið fram. Björn
missti konu slna 5. aprll 1970.
Áður en hann kvæntist átti hann
einn son, Stefán Björnsson I
Hnifsdal, sem nú er látinn.
Þó Björn móðurbróðir minn
væri orðinn 78 ára og veill heilsu,
kom mér ekki til hugar, að hann
ætti jafn skammt eftir, er ég tal-
aði við hann á föstudaginn. Mér
hefur sjaldan brugðið eins og þeg-
ar hringt var til mln á sunnudag
og mér tilkynnt lát hans. Komu
mér fyrst I hug orð Jónasar: „Dá-
inn, horfinn, harmafregn". Ég
hafði þekkt Björn frá þvi ég var I
æsku og var hann einhver grand-
varasti og besti vinur, sem ég hefi
átt, að öllum öðrum ólöstuðum.
Hann var góður maður og gegn og
vildi öllum gott gera og fús að
koma til hjálpar, eftir því sem I
hans valdi stóð og helst þannig að
aðrir fengu ekki að vita. Hann var
prúðmenni og snyrtimenni og við-
mótið alúðlegt og glaðvært. Að ég
held mun hann hafa hlotið vin-
áttu allra þeirra, sem honum
kynntust.
Að endingu vil ég þakka Birni
langa og óhvikula vináttu I minn
garð og árna honum farsældar og
velfarnaðar á ókomnum tlmum og
með orðum Jónasar Hallgrímsson-
ar: „Fljúgðu á vængjum morgun-
roðans meir að starfa guðs um
geim“. Ég votta Knúti Höjriis og
fjölskyldu hans samúð mína og
óska þeim og öllum vandamönn-
um Björns Skúlasonar allrar
blessunar.
Ragnheiður Hansen
Þorsteinsson.
Friörik Albert Wathne
yfirfasteignamatsmaður
Aldnir kveðja, einnig hinir,
ævin líður, skammt til
nætur
en þegar fara fornir vinir,
finn ég svíða I hjartarætur.
Þessa ljóðkveðju orti ég fyrir
allmörgum árum, þegar tveir kær-
ir skólabræður mínir létust langt
um aldur fram. Hún verður mér
rík I huga, er ég nú leitast við að
minnast tryggðavinar mins Al-
berts Wathne. Vinátta okkar stóð
á traustum grunni nærri 55 ára
kynna og náinna fjölskyldu-
tengsla.
Hann hét fullu nafni Friðrik
Albert Wathne og var fæddur 30.
október 1891 á Reyðarfirði. For-
eldrar hans voru Friðrik Ferdi-
nand Wathne frá Mandal I Noregi
og Elisabet Wathne úr Breiðdal I
Suður-Múlasýslu. Stóðu að Albert
traustir stofnar á báðar hendur.
— Barnungur fluttist hann með
foreldrum sínum til Seyðisfjarð-
ar, ólst þar upp og átti þar lengst-
um heima til fullorðins ára. Gerð-
ist Friðrik faðir hans þar sam-
starfsmaður Ottós Wathne bróður
síns, hins þjóðkunna forystu- og
framkvæmdamanns, en báðir
voru þeir bræður vinsælir og mik-
ilsmetnir athafnamenn, er settu
varanlegan svip sinn á Seyðis-
fjörð, eins og kunnugt er.
Albert naut góðrar menntunar I
heimahúsum, á Akureyri og I
Kaupmannahöfn. Á Danmerkur-
árum sínum, þá ungur að aldri,
var hann um tlma sjóliði á danska
æfingaskipinu „Víking“, er var
talið stærsta seglskip á þeirri tið.
Var því síðar gefið nafnið
„Köbenhavn", og urðu örlög þess
einn af hinum miklu leyndardóm-
um úthafsins, þegar það hvarf
með allri áhöfn og spurðist aldrei
til þess, þrátt fyrir víðtæka leit.
Mörgum árum síðar, þegar Albert
var kominn til Winnipeg, birtist I
einu af blöðum borgarinnar
greinaflokkur um óleysta leynd-
ardóma, meðal annars hin óráðnu
örlög hins fræga skips „Köben-
havn“, ásamt með mynd af þvl.
Rifjaði þetta, að vonum, upp hjá
Albert minninguna um tengsl
hans á yngri árum við hið danska
æfingaskip, og geymdi hann úr-
klippuna af frásögninni um örlög
sfns gamla skips og mynd þess. Er
hvort tveggja á heimili hans I
Vancouver, B.C.
Jafnframt skal þess getið, að
hann hafði horfið frá Danmörku
heim til tslands löngu áður en
breytt var um nafn skipsins. En
hann fluttist af Austfjörðum til
Winnipeg árið 1910. Vann hann
síðan I nokkur ár að verslunar-
störfum I Kandahar, Saskatchew-
an.
Hann gekk 1108, herdeild kana-
dlska hersins 17. janúar 1916. —
Verður herþjónustu hans eigi bet-
ur eða réttar lýst en I eftirfarandi
orðum úr æviágripi hans I hinni
gagnmerku bók Minningarrit ís-
lenskra hermanna 1914—1918.
(Winnipeg, 1923); — „Hann tók
þátt I orustum við Vimy Ridge,
Hill 70 og Passchendale. Varð fyr-
ir eiturlofti á orustuvelli, og var
síðan undir læknisumsjá I 18
mánuði. Kom aftur til Canada 29.
janúar 1919, þá ekki viiinufær."
— Náði hann aldrei hvorki fullri
heilsu né starfskröftum, en
gegndi þrátt fyrir það, daglegum
störfum, og tók sinn drjúga þátt I
félagsmálum íslendinga, eins og
slðar getur.
Albert kvæntist Soffíu Eiríks-
dóttur Vigfússon 3. ágúst 1921,
náfrænku minni. En Eirlkur Vig-
fússon, faðir hennar, frá Litlu-
Breiðuvfk I Reyðarfirði, var al-
bróðir Þórunnar Vigfúsfnu Vig-
fúsdóttur, móður minnar. Fór þvl
að vonum, að náin og sterk yrðu
vináttuböndin milli okkar Alberts
og f jölskyldu minnar, og að fund-
um bæri oft saman bæði I Winni-
peg og síðar I Vancouver.
Þau 35 ár, sem Soffía og Albert
áttu heima I Winnipeg, var heim-
ili þeirra að 700 Banning Street
þar I borg, og var það annálað
fyrir fagran heimilisbrag og fang-
vlða gestrisni. Gegndi sama máli
um heimili þeirra I Vancouver
eftir að þau fluttust þangað 1956.
En þá hafði Albert fyrir nokkrum
árum látið af embætti.
En hann hafði um langt skeið
Framhald á bls. 37
Hólahverfi
Til sölu 4ra herb. endaíbúð á 4. hæð í fjölbýlis-
húsi í Hólahverfi, Breiðholti. íbúðin afhendist
tilbúin undir tréverk og málningu á sumri
komanda. Nettóstærð íbúðar 90 fm. Sameign
frágengin, lyfta. Útsýni mjög gott. Hagstæð
greiðslukjör.
Upplýsingar á
Lögfræðiskrifstofu Kristjáns Stefánssonar hdl.
Ránargötu 13, sími 16412.