Morgunblaðið - 13.02.1977, Síða 45

Morgunblaðið - 13.02.1977, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. FEBRUAR 1977 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL 10— 11 , FRÁ MÁNUDEGI MUJjffnPK'a.M'D ir hefur breytzt mjög mikið siðustu áratugina og nú eru þessi mál ekki lengur feimnismál. Undar- legt að þau skyldu hafa verið það. Þessi ár eru aðeins tímabil sem enginn ætti að kviða fyrir. Það er að mestu i höndum foreldra hvernig við verðum þegar við fullorðnumst og þeir hafa lifað þetta tímabil sem gengur yfir okkur öll á þessum árum. Þetta er sá timi sem margt ræðst af og þess vegna skulum við taka hann al- varlega. Við, unglingar, eigum lif- ið framundan og pabbar og mömmur óska eftir betra þjóð- félagi þegar við tökum við af þeim. Verum þvi þolinmóð þó við höldum þvi fram ákveðið að þetta séu beztu árin, þvi það er ekki alveg rétt, þau koma nokkrum árum siðar. Eru unglingar örugglega undr- andi á því að foreldrar skuli alltaf vilja vita af þeim I góðum félags- skap og segja þeim að koma heim á tilteknum tíma, eins og glæpir eru orðnir tíðir og eiturlyfjasalar algengir? Það verður að halda í okkur og refsa hæfilega mikið. Auk bliðu verður að beita hörku til að ná fram aga, kurteisi og bæla niður of mikla góðmennsku gagnvart sjálfum sér. Það er margt sem unglingar gefa sér ekki tima til að Ihuga. Foreldrar okkar hafa reynt að hugsa um okkur eins vel og þeir hafa getað siðan við vorum ósjálfbjarga í hlýjum höndum þeirra og gera enn. Þess vegna verða foreldrar okkar ekki metin til fjár, þeir eru með því bezta sem við eigum. Þess vegna berum við virðingu fyrir þeim og sýnum það i Verki, um- gengni og anda. % Unglingar álitnir skrftnir Það vill oft brenna við að við hlustum á foreldra okkar og lok- um okkur fyrir orðum þeirra og leiðbeiningum. En ekki er allt sem sýnist. Það er lika algengt að unglingar neiti oft þvi sem gott er og hér á ég aðallega við afneitun kristinnar trúar. Þetta er mjög algengt og það er aumur hugsunarháttur að halda þvi fram að fullorðið fólk tilbiðji aðeins vegna þess að það á ekki eins langt lif framundan og unglingar. Við skulum athuga að lífið getur hætt leik sínum fyrirvaralaust og þeir eru ófáir efnishyggjumenn- irnir sem leita bá Guðs og h.iálpar hans. Hver kallar það sannkristni. En unglingar eru áhrifagjarnir og það þarf litið til að breyta hugar- fari þeirra. Svo ég minnist aðeins á félags- skap unglinga þá ber skugga á þá hlið málsins. Það þarf ekki margt til að unglingar sé álitnir skritnir, jafnvel af sínum eigin félögum. Ef þeir eru ekki í sígjammandi hópnum, klæðast ekki eftir tizk- unni, drekka ekki eða reykja ekki, þá hljóta þeir bara að vera skritnir I kollinum. Það sem gera mætti til úrbóta er að hafa I hverri viku tima I skólanum fyrir fræðslu um góða lifnaðarhætti og við ættum að taka sálfræðinga meira f þjónustu okkar. Það þarf mikið átak til að fá hugarfari manna breytt til hins betra sem ekki er vanþörf á. Við vitum að byrgja þarf brunninn áður en barnið fellur í hann og þess vegna þurfum við að hugleiða hvar við stöndum og hvað hægt sé að gera til varnaðar og gera það. Með þökk fyrir birtinguna, Einar Ingvi Magnússon." Velvakandi þakkar Einari fyrir bréfið og verður jafnframt að biðja hann afsökunar á þvi að það var stytt nokkuð en vonandi kem- ur það ekki að sök. Þessir hringdu . . . % Misskilningur Þorsteinn Sæmundsson stjarnfræðingur hringdi og sagð- ist vilja nefna í sambandi við bréf það sem birtist hér I dálkunum í fyrradag, varðandi þátt I sjón- varpi um fljúgandi furðuhluti, sem hann og örnólfur Thorlacius tóku þátt í, að umrætt bréf gæfi ranga mynd af þvi hvað þeir hefðu sagt í þættinum og viidi Þorsteinn leiðrétta það vegna þeirra sem ekki sáu þáttinn. % Hvar eru þeir sem vinna í kyrrþey? Ein margra barna móðir sem er gift einum af þöglum skatt- þegnum sagði: SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á svæðamóti S-Ameriku 1975, sem haldið var í Fortaleza, kom ^ þessi staða upp i viðureign argen- tinska stórmeistarans Sanguinett- is, sem hafði hvitt og átti leik, og Donoso frá Chile! 18. Bxg6!! — hxg6, 19. Rf4 — Dc7, 20. Rxg6 — f5, 21. Rxe7+ — Kf7, 22. Dg6+ — Kxe7, 23. Dg5+ og svartur gafst upp. Röð efstu manna á mótinu varð þessi: 1. Sanguinetti 13 v. af 17 möguleg- um. 2. Quinteros 11V4 v. 3—4. Panno og Trois 11 v. 5—7. L. Bronstein, Riemsdyk og Szmetan 10 v. Þeir þrir fyrsttöldu hlutu sæti í millisvæðamóti. Mig langar að leggja hér nokk- ur orð í belg en það er um skatta- lagafrumvarpið. Ég er ein af þess- um húsfreyjum og mæðrum sem vinna að sinum heimilis- og upp- eldisstörfum sem svo margþætt geta verið á barnmörgu heimili. Það hafa heyrzt háværar raddir um þetta frumvarp vegna þess að það kemur við svo marga sem hafa haft sérréttindi I þessum málum. En það hefur ekkert heyrzt í þögla meirihlutanum. Hvar eru allir þeir feður sem vinna myrkranna á milli til að sjá sér og sinum farborða? Þeir sem einir hafa unnið fyrir sinu heim- ili, hafa þeir ekki verið beittir órétti of lengi? Og svo einstæðir foreldrar, ekkjur og ekklar — hefur þetta fólk ekki sín réttindi eins og aðrir þjóðfélagsþegnar? Og hvar eru allar þessar húsmæð- ur sem vinna störf sin heima i kyrrþey? Þau störf sem minnst er talað um, en þessi störf eru fyrst og fremst uppalandastörf, á börn- um lands okkar, sem eiga siðar meir að verða að nýtum þjóð- félagsþegnum, svo koma öll önn- ur störf okkar, kennslustörf, f sambandi við heimanám, mat- reiðsla, ræstingar- og þvottastörf-, sauma- og prjónastörf — þvi mörgu þarf að sinna. Hvenær skyldu þau störf sem eiga að vera hornsteinninn að þjóðfélagi okk- ar verða metin sem skyldi og hvenær skyldum við fá sérrétt- indi í okkar málum? HÖGNI HREKKVÍSI ©1977 McNaughl Synd.. Inr. klukkuna í friði! SiGeA v/öga g 'í/lverau Gjörið svo vel að líta inn á bílasýningu okkar í SKEIFUNNI 1 1 og kynnist nýjustu gerðum og nýjungum í japönskum bilaiðnaði. Ingvar Helgason BÍLASÝNING Verður í sýningarsal Bílasölunnar Braut, Skeif- unni 11 í dag sunnudag frá kl. 1—19 e.h. Sýndír verða: Datsun Datsun 180 B — (Nýtt model) — Datsun 160J — Datsun 1 20V (4ra dyra) — Datsun 1 20Y (sjálfskiptur) Datsun Pick up (níðsterkur) Subaru Drif á öllum hjólum. Stykkishólmskonur Komurri saman 1 7. febrúar kl. 20.30 í Tjarnar- búð, uppi. Fjölmennum. Nefndin. íSkotlandi Brottför 9. og 18. maí (10 dagar) Verð kr. 64.500,- Flug fram og til baka Gisting á Marine Hotel, North Berwick. Morgunverður og kvöldverður. Flutningur til golfvalla og til og frá flugvelli. Ekki innifalinn brottfararskattur. Allar frekari upplýsingar. FERDASKRIFSTOFAN URVAL Eimskipafélagshusinu simi 26900

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.