Morgunblaðið - 11.03.1977, Page 1
32 SÍÐUR
56. tbl. 64. árg.
FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Callaghan í
Washington
Washington, 10. marz.
Reuter.
JAMES Callaghan, forsætis-
ráðherra Bretlands, kom til
Washington í dag, með hljóð-
fráu farþegaþotunni
Concorde. Carter Bandarfkja-
forseti tók á móti honum á
flugvellinum og áttu þeir stutt-
ar viðræður I dag. Þeir munu
halda viðræðum sinum áfram
á morgun og fjalla aðallega um
ástand efnahagsmála f heimin-
um í dag og leiðtoga fundinn
um efnahagsmál í London í
vor.
SÆRÐUR fluttur á brott — Björgunarmenn flytja sæðran mann frá B’nai B'rith
byggingunni í Washington.
Mannræningjarnir í Washington:
Vilja fá morðingja fé-
laga sinna framselda
VVashington. 10. marz. Reuter.
LEIÐTOGI safnaðar svarta
múhameðstrúarmanna sem held-
ur meir en 100 manns í gfslingu í
þrem byggingum f Washington
sagði f dag að hann og fylgismenn
hans ætluðu að „berjast fram í
dauðann" ef kröfum þeirra verð-
ur ekki sinnt. Hamas Abdul
Khaalis, leiðtogi Ilanafi
múhameðstrúarsafnaðarins,
sagði að gfslarnir yrðu hálshöggn-
ir ef yfirvöld létu ekki undan
kröfunum.
„Við komum til að berjast til
dauða og það mun margt góðra
manna þurfa að fylgja okkur, þið
vitið það,“ sagði Khaalis f samtali
við útvarpsstöð.
Mennirnir, sem voru vopnaðir,
settu fram fjölda af kröfum eftir
að hafa ráðist inn í byggingarnar.
Þeir sögðu að þeir vildu fá heims-
meistarann í þungavigt í hnefa-
leikum, Muhamed AIi til þeirra
auk fimm meðlima annars
múhameðstrúarsafnaðar, sem
dæmdir voru 1973 fyrir morð á
sjö Hanafimönnum.
„Segið þeim að okkur sé
alvara,“ sagði Khaalis i dag. „Seg-
ið þeim að ef þeir gera ekki eins
og ég segi þeim þá muni nokkrir
hausar fjúka.
Mennirnir kröfðust þess einnig
að hætt yrði dreifingu og sýning-
um á kvikmyndinni Múhamed,
sendiboði guðs. Kvikmyndahús í
New York og Los Angeles urðu
við þeirri kröfu. Hanafimenn
segja að kvikmyndin, en í henni
leikur Anthony Quinn, sé guðlast
og gefi ranga mynd af trú þeirra.
Khaalis, sem er 54 ára gamall
tónlistarmaður, setti fram kröfur
sinar i B’nai B’rith byggingunni,
en þar eru aðalstöðvar banda-
Framhald á bls. 19
Ráðherr-
ar sviptir
þinghelgi
Róm 10. marz Reuter
tTALSKA þingið samþykkti í dag
að svipta tvo fyrrverandi varnar-
málaráðherra landsins þinghelgi
svo að hægt verði að ákæra þá
fyrir aðild að Lockheed-
mútuhneykslinu.
Þessi samþykkt á sér ekkert
fordæmi í itölskum stjórnmálum
og rikti mikill hiti á fundi samein-
aðs þings, þar sem samþykktin
var gerð, og er búist við að hún
verði til þess að sambandið á milli
kristilegra demókrata, sem sitja í
stjórn, og annarra flokka, þar á
meðal sósialista og kommúnista,
muni versna. Fyrrum ráð-
herrarnir tveir, kristilegi
demókratinn Luigi Gui og
jafnaðarmaðurinn Mario Tanassi,
voru meðal 11 manna, sem
ákærðir voru um að hafa róið að
því að rikið keypti 14 Lockheed
Hercules flugvélar fyrir að
minnsta kosti 1.6 milljónir dollara
1970. í máli Guis greiddu 487
atkvæði á móti honum en 451
með, 513 voru á móti Tanassi en
425 mehð.
Símamynd AP
Kinshasa, 10. marz AP
MÁLALIÐAR FRÁ Angóla hafa ráðist inn í suðurhluta Zaire og lagt
undir sig þrjár samgöngu og námamiðstöðvar, samkvæmt
upplýsingum ríkisstjórnar Zaire í dag. Sendiherra Zaire hjá Samein-
uðu þjóðunum hefur tilkynnt embættismönnum innrásina og segir að
málaliðarnir hafi notið stuðnings angólskra hermanna.
Zaire I mið-austur Afríku, hét áður Belgfska Kongó og hefur
rúmlega 26 milljónir fbúa. Zaire-útvarpið segir að sprengjum hafi
verið varpað á borgirnar Kissengi, Dilolo og Kapanga í Shaba-héraði,
sem áður hét Katanga. Ekki er ljóst hvort það var gert með flugvélum
eða stórskotaliði.
í borgarastríðinu i Angóla studdi
Zaire vesturlandasinnaða skæru-
liða með þjálfun og vopnum gegn
skæruliðum, sem nutu stuðnings
Sovétríkjanna, sem siðar unnu
stríðið. Kúbanskir hermenn
börðust með vinstrisinnum og
álitið er að 12 til 15 þúsund
Kúbumenn séu enn i Angóla.
Róstur-
samt á
Spáni
Madrid, 10. mars. Reuter.
í ODDA skarst á milli lögreglu
og þúsunda mótmælenda í
borginni San Sebastian á Norð-
ur Spáni í dag. Mótmælendur
og verkamenn í verkfalli voru
að mótmæla þvi aó tveir bask-
ar voru skotnir til bana af lög-
reglunni fyrir tveim dögum
siðan. Þá var eldsprengjum
varpað inn i fjóra banka i
Madrid i kvöld og ollu þær
miklum skemmdum. Gerðist
þetta nálægt aðallögreglustöð-
inni i borginni, en um 60
manna hópur varpaði sprengj-
unum. Fólkið kastaði einnig
grjóti að bönkunum og i
verzlunarglugga. Ekki var vit-
að um ástæðurnar fvrir þess-
um aðgerðum.
Rúmenía:
Arkitektar ákærð-
ir fyrir vanrækslu
Búkarest, 10. marz Reuter
NICOLAE Ceausescu, forseti
Rúmenfu, sagði f dag að mál verði
höfðað á hendur nokkrum arki-
tektum og verkfræðingum eftir
að fjöldi nýlegra bygginga hrundi
til grunna f jarðskjálftanum f
Rúmenfu á föstudagskvöld. Þeir
sem voru ábyrgir fyrir byggingu
hárra fjölbýlishúsa og annarra
nýrra bygginga verða sakaðir um
að hafa brotið reglur og að hafa
ekki gert húsin nægilega sterk til
að þau gætu staðist jarðskjálfta.
Ceausescu vísaði á bug
aðvörunum Bandaríkjamanna um
að annar meiriháttar jarðskjálfti
gæri orðið i Rúmeníu hvenær sem
væri, en hann hafði þó þann fyrir-
vara á að aldrei væri hægt að vera
öruggur um að slíkt ætti sér ekki
stað. Að dómi rúmenskra sér-
fræðinga er engin ástæða til að
ætla að nýir skjálftar verði i
náinni framtíð sagði hann.
Neyðarástandi, sem lýst var i
öllu landinu hefur verið aflétt, þó
ekki í Búkarest. Eftir öllu að
dæma verður því þó aflétt einnig
þar innan fárra daga.
Á fimmtudagskvöld höfðu lík
1.387 manna fundist, en búist er
við að tala látinna eigi enn eftir
að hækka. í Búkarest hafa meir
en 800 látið lífið, og mörg lík eru
svo illa farin að ómögulegt er að
bera kennsl á þau.
Áætlað er að tjónið af jarð-
skjálftanum sé meir en 100
milljarðar islenzkra króna.
Ceausescu sagði að Rúmenar
vildu sjálfir standa straum af
þeim kostnaði sem skjálftinn olli
og að þeir gætu það með góðri
áætlanagerð. Til langframa taldi
hann einu efnahagsáhrifin verða
þau að fresta þyrfti i eitt ár
upptöku fimm daga vinnuviku.
Hann sagði að Rúmenar hefðu
áhuga á að taka lán erlendis, sér- I
staklega i Bandarikjunum, þar
sem þeim hefðu verið boðnir hag-
stæðir skilmálar.
Brussel, 10. marz. Reuter.
1 KVÖLD slitnaði upp úr samn-
ingaviðræðum Efnahagsbanda-
lags Evrópu og Sovétrfkjanna um
fiskveiðar vegna ágreinings um
mörg mikilvæg atriði. Viðræður
verða þó aftur haldnar í Brússel
19. aprfl. Þrátt fyrir mikla vinnu
hefur ekki tekist að leysa mörg
erfið pólitfsk og tæknileg vanda-
mál með viðræðunum, sem bvrj-
uðu í sfðasta mánuði.
Tilgangur 'viðræðnanna var að
Útvarpið sagði aó borgirnar
hefðu verið teknar af erlendum
her fyrir þrem dögum siðan, en i
skýrslunni til SÞ segir að árásin
hafi verið gerð fyrir tveim
dögum.
Dilolo stendur við hina mikil-
vægu járnbraut til Atlantshafs-
strandarinnar og f Kissengi er
miðstöð koparnámugraftar. Zaire
hefur haft hermenn í borgunum
þrem.
Mobuto Sese Seko forseti er
sagður hafa farið i Snatri til
Kinshasa frá fundi sínum með
vestur-þýzkum embættismanni i
Gbadolite og kallaði hann yfir-
menn landvarna til fundar.
Ekki hefur verið skýrt nánar
frá hverjir séu i innrásarhernum.
komast að rammasamkomulagi
um gagnkvæm fiskveiðiréttindi
innan 200 mílna fiskveiðilögsagna
EBE og Sovétríkjanna. Átti sam-
komulagið að koma í stað bráða-
birgðasamnings, sem rennur út í
lok þessa mánaðar, en samkvæmt
honum má takmarkaður fjöldi
sovézkra togara veiða innan fisk-
veiðilögsögu EBE.
Sovétmenn fella sig ekki við þá
tillögu EBE að samningurinn sé á
Framhald á bls. 19
Viðræðum EBE og
Sovétríkjanna hætt
Innrás Ang-
óla í Zaire