Morgunblaðið - 11.03.1977, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1977
. . . leiklist á landsbyggðinni . . . leiklist á landsbyggðinni . . .
Barnaleikritið
, ,Pappirs-Pési’ ’
frumsýnt í Hafnar-
firði á morgun
NÝTT íslenzkt barnaleikrit
verður frumsýnt i Bæjarbfói i
Hafnarfirði á morgun, laugar-
dag. Er það Leikfélag Hafnar-
fjarðar — Barnaleikhúsið —
sem sýnir leikritið „Pappírs-
Pésa“ eftir Herdísi Egilsdóttur
barnakennara. Er það fyrsta
verk hennar, sem sýnt er á leik-
sviði.
Leikendur i verkinu eru átta,
þar af fimm börn. Leikstjóri er
Kjuregej Alexandra, sá hún
einnig um búninga og leikur i
leikritinu. Tónlistin er eftir
Herdisi Egilsdóttur og er hún
jafnframt undirleikari á
sýningunnni.
Pappírs-Pési er fjórða barna-
leikritið sem leikfélagið setur
upp og verður frumsýningin á
því klukkan 14 á morgun.
Revía um lífið
í Hveragerði á
30 ára afmæli
leikfélagsins þar
„Gasljós” í Grindavík
LEIKFÉLAG HveraBerBis er 30 ára
um þessar mundir og í tilefni
afmaelisins verður efnt til hátlða-
skemmtunar I Hótel HveragerSi
annað kvöld og hefst hún klukkan
21. MeSal efnis á skemmtun þess-
ari verBur ný revla sem fjallar um
fólkiS og llfiS I HveragerBi. Þá
verBur fluttur hluti fyrsta leik-
þáttarins. sem LeikfélagiS sýndi
og ber hann nafniB Box og Cox.
Loks verBa fluttir söngvar úr
gömlum leikritum sem félagiB
hefur sýnt.
LeikfélagiB I HveragerBi hefur
undanfarin ár sett upp 2 leikrit á
vetri hverjum. SagBi Sigurgeir
Hilmar FriBþjófsson formaBur
félagsins I samtali viB Morgun-
blaBiB I gær aB mikill leiklistar-
áhugi væri I HveragerBi. MeBlimir
I leikfélaginu eru nú um 50 talsins
og af þeim hópi töluvert af ungu
fólki.
Grindavik 10. marz
LEIKFÉLAG Grindavikur æfir um
þessar mundir sakamálaleikritiB
„Gasljós" eftir Arthur Hamilton.
Leikstjóri er Magnús Jónsson frá
Reykjavík, en leikendureru 7.
Er þetta fjórBa leikritiS. sem
leikfélagiB sýnir á tveimur árum.
Mikill áhugi er á allri leikstarfsemi
i Grindavlk. Sýningará „Gasljósi"
munu hefjast um miBjan þennan
mánuB i gamla Kvenfélagshúsinu.
sem hefur veriB lagaB og endur-
bætt.
Fyrri sýningar leikfélagsins hafa
veriB vel sóttar og leikarar fengiB
góBa dóma.
GuSfinnur.
Systir María
sunnan Heiðar
LEIKFLOKKURINN Sunnan
SkarSsheiðar hefur að undanförnu
sýnt leikritið Systir Marfa í félags-
heimilinu Heiðaborg í Leirarsveit.
Leikstjóri verksins er Auður
Guðmundsdóttir. Aðalhlutverk leika
Anna Friðjónsdóttir, Magnús Ólafs-
son og Jóhanna Hallsdóttir Þetta er
fjórða verkefni leikfélagsins, en
sýningum fer brátt að Ijúka.
Næsta sýning verður laugar-
daginn 1 2. marz.
RÁÐSTEFNA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS UM
SJÁLFSFORRÆÐI
SVEITARFÉLAGA
IVALHÖLL BOLHOLTI 7 19.-20. MARZ 1977
DAGSKRÁ.
19. marz, laugardagur
kl. 9.30-12.00.
Framsögur um: Verka- og tekjuskiptingu
ríkis og sveitarfélaga og um.
svæöaskiptingu og samstarf
sveitarfélaga.
Framsögumenn:
Árni Grétar Finnsson, Páll Líndal,
Sigurgeir Sigurðsson.
Kl. 13.30-15.30.
Panelumræður. Fyrir svörum sitja:
Birgir ísl. Gunnarsson,
Gunnar Thoroddsen,
Kristinn G. Jóhannsson,
Matthías Bjarnason, Matthías Á,
Mathiesen, Ólafur B. Thors og
Steinþór Gestsson.
Kl. 16.15-18.30.
Umræðuhópar starfa.
Umræðustjórar:
Halldór Þ. Jónsson,
Markús Örn Antonsson
og Ólafur G. Einarsson.
20. marz, sunnudagur
kl. 13.30-16.00.
Álit umræðuhópa — umræður um:
Stefnumörkun — sveitarstjórnarmál.
Kl. 16.30-18.00.
Framhald almennra umræðna.
Ráðstefnuslit:
Geir Hallgrímsson,
forsætisráðherra, formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Ráðstefna um sjálfsforræði
sveitarfélaga,
laugardag — sunnudag
19. og 20. marz. '«
Til ráðstefnunnar hefur verið
sérstaklega boðað.
Þátttaka tilkynnist tii skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins,
Bolholti 7, Reykjavík, sími 82900.
Ráðstefnan verður sett,
laugardaginn 19. marz kl. 9.30
með ávarpi Gunnars Thoroddsen
félagsmálaráðherra varaformanns
Sjálfstæðisflokksins.