Morgunblaðið - 11.03.1977, Page 11

Morgunblaðið - 11.03.1977, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1977 11 Velheppnuð söngskemmtun Karlakórs Stykkishólms Stykkishólmi, 5. mars 1977 KARLAKÓR Stykkishólms hefir nú starfað í um 30 ár, þótt ekki hafi það verið samfellt. Séra Hjalti Guð- mundsson var undanfarin ár söng- stjóri hans en lét af því er hann fluttist til Reykjavíkur. Nú um nokk- urra daga skeið hefir Ragnar Björns- son dómorganisti úr Reykjavík verið hér og æft kórinn og hefir verið mikill áhugi meðal kórmanna um að ná sem bestum árangri, enda hefir hann ekki látið á sér standa þvf nú f gærkvöldi efndi kórinn til hljóm- leikahalds f félagsheimilinu f Stykk ishólmi. V: r aðsókn ágæt og kórnum vel fagnað og söngstjóra afhentur blómvöndur og á eftir komu kórfé- lagar saman f kaffi þar sem þeir þökkuðu söngstjóra góðan árangur Kórfélagar eru nú 24. Formaður fé- lagsins er Lárus Kr. Jónsson Á undan og milli söngva kórsins lék Ragnar Björnsson á orgel Fyrst þrjár prelúdíur í F-dúr, B-dúr og a-moll, eftir J.S. Bach en síðar tilbrigði yfir Mein junges Leben hat ein End eftir Swee- linck Einsöngvarar með kórnum voru Bjarni Lárentsinusson í ..Ljúfur ómur" eftir Bortnaiansky, Njáll Þorgeirsson í ..Ég man þig" eftir Sigfús Einarsson og Eyþór Lárentsinusson i „Bára blá" eftir Sigfús Einarsson. Á fyrri hluta söngskrárinnar voru innlend lög en á síðari hluta erlend lög Viðstaddir luku allir upp einum rómi um að kórinn hefði staðið sig með prýði og undraverður árangur náðst eftir ekki lengri tíma, enda Ragnar viðurkenndur stjórnandi og organisti. Ef fram heldur sem horfir á kórinn eftir að vera mikill gleðigjafi í sönglífi Stykkishólms. Ef allt fer eftir því sem áætlað er, mun kórinn efna til söngfar- ar um nágrennið og víðar þegar kemur fram í maí. Stykkishólmsbúar þakka Karlakór sínum ágæta og minnisstæða kvöld- stund. Fréttaritari. NORSKUR listmálari að nafni Rolf Sörby heldur nú sem stendur sýningu á tuttugu og þremur verkum á Mokka. Sýningin, sem er sölusýning, verður út þennan mánuð og líklega fram f miðjan aprfl. Rolf hefur dvalið á íslandi sfðastliðin tvö ár. Hann er fæddur f Holmestrand í Noregi árið 1 950. Á sýningu þessari eru átján olíumálverk, og eru hin verkin annaðhvort túss- eða vatnslitamyndir og þá súrrealfskar eða abstrakt eftir þvf, sem listamaðurinn segir. Á meðfylgjandi mynd er Rolf Sörby ásamt íslenzkri vinkonu sinni. Skemmtileg lokastaða í Reykjanesmóti Nú er lokið 8 umferðum af 9 f Reykjanesmótinu f sveita- keppni, og komin er upp mjög skemmtileg endastaða, þar sem allt getur gerst. Sveit Ármanns J. Lár., sem leitt hefur allt mótið, hefur nú loks misst for- ystuna f hendur sveit Björns Eysteinssonar úr Firðinum, sem fylgt hefur Ármanni sem skugginn fram að þessu, og svo skemmtilega vill tif að einmitt Ármann og Björn, tvær efstu sveitirnar, mætast í 9. umferð. Um aðrar sveitir er það að segja, að nokkuð öruggt er að Jóhannes og Bogga komist áfram og kemur þá til kasta Ragnars og Vigfúsar að tryggja sér farseðilinn f tslandsmótið, en til þess þurfa þær báðar að fá 9—10 stig næst, enda er skammt í næstu sveit. Staða efstu sveita er nú þessi: stig 1. Björn Eysteinsson Hafn. 119 2. Ármann J. Lárusson Kóp. 116 3. Jóhannes Sig.s. Suðurnes 89 4. Bogga Steins. Suðurnes 80 5. _6. Vigfús Pálsson Kóp 77 5.-6. Ragnar Björnsson Kóp.77 7. Sigurhans Sigurh.s. Suðurn. 65 Mótinu lýkur annan sunnu- dag. Spilað er í Skiphól, Hafn. Naumur sigur hjá sveit Gunnþórunnar Erlingsdóttur Aðalsveitakeppni Bridge- félags kvenna er nú nýlokið. í A-riðli sigraði sveit Gunn- þórunnar Erlingsdóttur með 113 stigum. Auk Gunnþórunnar eru í sveitinni Ingunn Bern- burg, Guðríður Guðmunds- dóttir, Kristin Þórðardóttir og Halldóra Sveinbjarnardóttir. Næstar urðu eftirtaldar sveitir: Hugborg Hjartardóttir 111 Alda Hansen 77 Elin Jónsdóttir 62 Margrét Ásgeirsdóttir 61 í B-riðli sigraði sveit Önnu Lúðvíksdóttur með 103 stigum. Auk Önnu eru í sveitinni Lilja Petersen, Nína Hjaltadóttir, Una Thorarensen og Þuríður Guðmundsdóttir. Næstar urðu eftirtaldar sveitir: Sigrún Pétursdóttir 91 Gerður isberg 86 Sigriður Jónsdóttir 76 Nú stendur yfir parakeppni félagsins, og er mesta þátttaka i henni, sem nokkurn tíma hefir verið eða 56 pör. Spilað er í 4 riðlum, 14 pör í hverjum. Eftir 1. umferð eru eftirtalin pör efst: Guðrún Bergsdóttir — Benedikt Jóhannsson 214 Esther Jakobsdóttir — Guðmundur Pétursson 204 Sigrún Ölafsdóttir — Magnús Oddsson 198 Guðríður Guðmundsdóttir — Sveinn Helgason 189 Margrét Ásgeirsdóttir — Tryggvi Gislason 188 Alda Hansen — Georg Ólafsson 188 Una Árnadóttir — Guðlaugur Nielsen 186 Heba Júlíusdóttir — Guðmundur Sveinsson 181 Ingibjörg Halldórsdóttir — Sigvaldi Þorsteinsson 175 Sigriður Guðmundsdóttir — Haukur Leósson 175 Meðalskor: 156stig. Næsta umferð verður spiluð mánudaginn 14. marz n.k. i Domus Medica, og hefst spila- mennskan kl. 20 stundvíslega. Keppnin verður fimm um- ferðir, og verður slönguraðað, nema í síðustu umferðinni verður raðað beint. Briúge Umsjón ARNÓR RAGNARSSON Hafnarfjörður — Hafnarfjörður TRYGGVI ÓLAFSSON úrsmiður opnar í dag úrsmíðavinnustofu og verzlun að Strandgötu 25, Hafnarfirði, sími 53530. Ferðatöskur * cnnn3>- Hafnarstræti 18, Laugavegi 84, og Hallarmula 2. Út suður og um helgina Flugfélag fslands býður upp á sérstakar helgarferðir allan veturinn fram undir páska: Ferðina og dvöl á góðum gististað á hagstæðu verði. Út á land, til dæmis í Sólarkaffið fyrir vestan, á Sæluvikuna á Sauðár- króki eða þorrablót fyrir austan, til keppni í skák eða í heimsókn til kunningja. Víða er hægt að fara á skíði. Suður til Reykjavíkur vilja flestir fara öðru hverju. Nú er það hægt fyrir hóflegt verð. Þar geta allir fundið eitthvað við sitt.hæfi til að gera ferðina ánægjulega. Margir hafa notað helgarferðirnar og kunnað vel að meta. Gerið skammdegið skemmtilegt! Leitið upplýsinga hjá skrifstofum og umboðum um land allt. FLUCFÉLAC ÍSLANDS iNNANLANDSFLUG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.