Morgunblaðið - 11.03.1977, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1977
Haukur Guðmundsson;
Nokkrar athugasemd-
ir vegna greinargerð-
ar umboðsdómarans
í „handtökumálinu”
VEGNA greinargerðar umboðs-
dómarans Steingríms Gauts
Kristjánssonar um „handtöku-
málið“ sem fram hefur komið i
fjölmiðlum, tel ég óhjákvæmilegt
að gera við hana nokkrar athuga-
semdir, þvi mér virðist umboðs-
dómarinn i meira lagi hlutdrægur
í þessum úrdrætti sinum. í
greinargerðinni rekur umboðs-
dómarinn af eljusemi fram atriði
sem honum og samverkamönnum
hans tókst með ærnu fé og fyrir-
höfn að gera tortryggileg að því
er mig varðar. Hins vegar sýnist
mér umboðsdómarann skorta til
þess vilja eða siðferðilegt þrek að
tíunda atriði þau sem fram komu
við rannsókn máls þessa og benda
i gagnstæða átt. Af greinargerð-
inni er ljóst, að afstaða og viðhorf
umboðsdómarans eru slík að ég
mun gera ráðstafanir í þá átt að
þessi maður hætti þegar öllum
afskiptum af málinu. í þessu sam-
bandi er rétt að minna á ýmsar
einkennilegar yfirlýsingar sem
eftir honum hafa verið hafðar í
fjölmiðlum, allt frá upphafi rann-
sóknarinnar. Nokkur vandi er að
gera máli þessu góð skil nú, þvi ég
hefi enn ekki fengið i hendur
afrit af skjölum málsins. Ég mun
þó leitast við að skýra frá nokkr-
um staðreyndum sem mér eru
kunnar og sem varpað geta ljósi á
hversu þrifaleg greinargerð um-
boðsdómarans er, einkum með
það í huga að höfundurinn telst
vera hlutlaus rannsóknardómari.
1 fyrsta kafla greinargerðar-
innar um upphaf málsins segir:
„Fljótlega voknuðu grunsemdir
hjá yfirmönnum lögreglunnar um
að ekki væri allt með felldu varð-
andi handtökunna og þann 9. des.
s.l. barst ríkissaksóknara bréf þar
sem þess var krafist af Karli
Guðmundssyni að rannsókn færi
fram út af meintri ólöglegri hand-
töku á honum.“ Ég fæ með engu
móti skilið þennan boðskap, þ.e.
grunsemdir yfirmanna
lögreglunnar og samhengi þeirra
við kröfu Karls Guðmundssonar
um rannsókn. Er hugsanlegt að
einhverjir yfirmenn lögreglunnar
í Keflavík og Karl Guðmundsson
séu þarna I samstarfi? Þetta atriði
skýrist væntanlega við lestur
málsskjala.
t öðrum kafla greinargerðar-
innar kemur fram hve nákvæmir
þeir félagar eru i framburði.
Þar segir að stúlka hafi gefið
sig á tal við Guðbjart á tímabilinu
frá kl. 16—18 það er með tveggja
klukkustunda nákvæmni. (Guð-
bjartur er talinn glöggur og
stálminnugur af mörgum þeim
sem þekkja hann).
t þriðja kafla greinargerðar-
innar er hluti af framburði min-
um rakinn, a.m.k. flest það sem
hægt er að gera tortryggilegt, en
látið undir höfuð leggjast að
skýra frá mörgum atriðum sem
miklu máli skipta i rannsókninni i
heild. Þá er nauðsynlegt að minna
á að ég var fyrir rétti í samtals 9lA
klst.
t fjórða kafla greinargerðar-
innar um framburð vitna segir:
„Ung kona i Keflavík kveður
Hauk hafa beðið sig að ná i Guð-
bjart til Keflavikur fyrir sig“
o.s.frv. Siðar segir: „Hann
(Haukur) vill ekki aftaka að
hann hafi ætlað að handtaka Guð-
bjart.“ Þarna tel ég að umboðs-
dómari fari nokkuð frjálslega
með framburð minn um þetta at-
riði, en það verður skýrt nánar
siðar þá þegar skjöl málsins liggja
fyrir. Það er þvi miður nauðsyn-
legt að geta þess hér að framan-
greint vitni er sambýliskona Hall-
grims Jóhannessonar og er jafn-
framt beinn aðili að einum þætti í.
rannsókn á málum Guðbjarts
Pálssonar, sem ég óskaði sérstak-
lega eftir rannsókn á eftir að ég
heyrði framburð vitnisins i þessu
máli, en ég hefi iýst hann ósannan
i flestum atriðum.
Þá segir í greinargerðinni:
„Lögreglumenn sem voru á lög-
reglustöðinni kl. 13,20 6. des.
halda því fram að Haukur muni
hafa verið farinn af skrif-
stofunni" (ath. af orðalagi má
ætla að hér sé um að vera ágísk-
anir). Hér verður að geta þess aó
Iögreglumenn í Keflavík hafa
engan aðgang að skrifstofu minni,
þegar frá er talinn John Hill
rannsóknarlögreglumaður, þeir
geta því ekkert borið um hver eóa
hvort einhverjir eru þar inni á
þessum tima eða öðrum. Einnig er
húsaskipan á lögreglustöðinni
þannig að Iögreglumenn á varð-
stofu hafa litla eða enga mögu-
leika á aó fylgjast með manna-
ferðum um skrifstofu mína.
Þá segir i greinargerðinni: „í
ibúð þeirri sem Haukur kom í
íBreiðholtshverfi hitti hann fyrir
húsmóóurina, en talaði við eigin-
manninn í síma. Samkvæmt fram-
burði hans sagði Haukur að hann
væri meó tvær stúlkur í bílnum
hjá sér. — Haukur kveður geta
verið að hann hafi sagt þetta, en
þá í gamni, en synjar fyrir að
nokkrir farþegar hafi verió í bíln-
um.“ Um þessi atriói kom fram i
þinghaldi, samprófun, við eigin-
manninn, að simtal þetta hafi ver-
ið í léttum tón og einnig að við
hefðum áður gert að gamni okkar
af sama tilefni og þarna var til
umræðu, en það er málinu óvið-
komandi. Umboðsdómarinn sá
ekki ástæðu til þess að bóka þetta,
en tekið skal fram að þess var
ekki sérst^klega óskað.
Þá segir í greinargerðinni:
„Húsmóðirin sem segist ekki hafa
hlustað á simtalið, en telur sig
þekkja bifreiðina sem Haukur
hafi til afnota á vegum Iög-
reglunnar, segist hafa séð að ein-
hver sat í sætinu við hlið bil-
stjórasætisins. Hún segir að sér
hafi sýnst þetta vera kvenmaður
og að önnur persóna sæti í aftur-
sæti.“ Telur og sýnist. Hér lætur
umboðsdómarinn hjá liða að geta
þess að húsmóðirin bar að kven-
maður þessi hafi verið klæddur
brúnum mokkajakka. Samkvæmt
framburði þriggja manna sem sáu
stúlkur I bifreið Guðbjarts,
kemur hvergi fram að þær hafi
verió klæddar slikum jakka. Tek-
ið skal fram að ég var sjálfur
þennan dag klæddur brúnum
mokkajakka. í þinghaldi kom
fram að húsmóðirin þekkti ekki
tegund bifreiðarinnar, — sá ekki
skráningarmerki, — sá Hauk ekki
fara í eða að bifreið þessari, veitti
ekki athygli hvort á bifreiðinni
hafi verið talstöðvarloftnet (sem
er á bifreið þeirri sem ég var á.)
öllu þessu finnst umboðsdómari
sjálfsagt og eðlilegt að sleppa í
greinargeró sinni.
Þá segir í greinargerðinni:
„Þegar Haukur reyndi að hafa
talstöðvarsamband við lögreglu-
bílinn sem notaður vió fyrirsát-
ina, kveðst hann hafa fengið lítil
og óskýr svör. Hann kom því
skilaboðum til lögreglumannanna
í bílnum með talstöð lögreglunnar
sem milliliö.“ (Allt voru þetta tal-
stöðvar lögreglunnar, en hér mun
vera átt við móðurstöðina á lög-
reglustöðinni). Hér verður að
geta þess að í öllum talstöðvum
lögreglunnar í Keflavík eru tvær
rásir til notkunar. Rásir nr. 1 og
nr. 2. — Talstöð lögreglustöðvar-
innar mun aó venju hafa verió
stillt á rás nr. 2. — í greint sinn
sem oft áður notaði ég rás nr. 1 en
það gerðu lögreglumenn þeir að
sjálfsögóu einnig skv. fyrirmæl-
um mínum þar um. Þetta hefur
verið staðfest af báóum þessum
lögreglumönnum og líklega fleir-
um. í framhaldi af þessu er'nauð-
synlegt að fram komi að þessir
tveir Iögreglumenn fengu um það
skýlaus fyrirmæli að stöðvar
tafarlaust bifreið Guðbjarts ef
þeir yrðu hennar varir. Þetta
atriði hafa lögreglumennirnir
staðfest. Að áliti umboðsdómar-
ans átti framangreint ekkert er-
indi í greinargerð hans um rann-
sókn málsins. Mér virðist þó að
þetta sé mjög mikilsvert atriði,
þ.e. ef tekist hefði að stöðva bif-
reið Guðbjarts í Kúagerði eins og
fyrirhugað var, vegna þess að
ekki lá fyrir hvert hann mundi
leggja leið sína þegar suður var
komið.
Varóandi framburð um útlits-
mun á tveimur bjórkössum, svo
sem fram kemur, vil ég vekja
athygli á þvi að samkvæmt gögn-
um sem ég lagði fram undir rann-
sókn málsins, virðist sem 50 til 60
kössum af samskonar bjór hafi
verið „hnuplað“ úr þessum sama
farmi m/s Selfoss. Það er þvi ljóst
að mikill fjöldi slíkra bjórkassa
hefur verið í umferð á þessu tima-
bili. Þá er aðeins fjallað um það
magn sem ekki kom fram í vöru-
skemmu hjá varnarliðinu.
Þá segir í greinargerðinni:
„Ung kona sem er vel kunnug
Hauki kveður hann hafa hringt i
sig i desember s.l. og beóið sig að
útvega sér tvo kassa af áfengum
bjór. Hún kvaðst hafa reiðst og
neitað bóninni. Haukur hefur
harðneitað þessu og komið með
þá tilgátu að annar maður hafi
hringt og kynnt sig með sinu
nafni“. Þarna virðist mér umboðs-
dómarinn vera kominn út á hálan
ís þó ekki sé meira sagt.
Síðast þegar ég mætti i réttin-
um m.a. til samprófunar við
stúlku þá sem um getur, kom það
skýrt fram hjá henni að hún taldi
mjög liklegt aó annar maður hefði
hringt og studdi hún þennan
framburð sinn skýrum rökum,
sem fram koma i bókum umboðs-
dómarans. Má þvi gjörla sjá að
frásögn hans um þetta atriði er
mjög villandi.
Undir Iok greinargerðarinnar
segir: “Þessar aðgerðir báru ekki
afgerandi árangur." Hér mun
vera átt við hinar dæmalausu sak-
bendingar, þegar samtals 28
stúlkur á ýmsum aldri voru leidd-
ar fyrir Guðbjart Pálsson og fleiri
með eftirminnilegum hætti. Mér
hefur ekki tekist að skilja til hlit-
ar orðalag umboðsdómarans um
þetta efni, en ég hefi ætíð talið að
sakbending sem fram hefur farið
hafi annaðhvort borió árangur,
sem sé að sá seki finnst (er endur-
þekktur) eða að sakbending hafi
verió árangurslaus.
Rétt er og að geta þess að ég
mun krejast rannsóknar á ýmsum
þáttum þessa máls og undirbún-
ingur að þeirri kröfu er þegar
hafinn.
Þá vil ég að lokum benda á að
ritgerðir rannsóknardómara á
þessu stigi máls eru nýlunda og
vonandi einsdæmi, enda er rann-
sókn enn ekki lokið, nema af
hálfu rannsöknardómarans og að-
stoðarmanna hans. Nú mun ég og
lögmaóur minn fá afhent máls-
skjöl til yfirlestrar, svo sem kraf-
ist hefur verið skv. lögum. Þá
gefst tækifæri til þess að skoða
rannsóknina í heild og i fram-
haldi af því hugsanlega gera
kröfu um frekari rannsókn á ýms-
um atriðum sem styðja minn
framburð.
Nú hefur umboðsdómarinn svo
sem kunnugt er sent frá sér
greinargerð þá sem hér að framan
hefur verió nokkuð fjallað um.
Hann ér búinn aó leggja fram
sönnunarmat sitt og ætlast
væntanlega til þess að almenning-
ur dæmi i máli þessu af einhliða
ritsmíð sinni.
Keflavík 10. mars 1977
Ilaukur Guðmundsson.
Danir fá skammir
Moskvu, 10. marz. NTB.
Flokksmálgagnið Pravda gagn-
rýnir Dani f dag fyrir að kaupa
dýrar bandarfskar herflugvélar f
staðinn fyrir að leysa efnahags-
vanda þjóðarinnar.
Blaðið bendir á að Orla Möller
varnamálaráðherra hafi farið
fram á nýjan fund með varna-
málaráðherrum Noregs, Hollands
og Belgíu vegna kaupa á orrustu-
þotunni F-16, hefur eftir mörgum
dönskum sérfræðingum að herút-
gjöld Dana séu alltof mikil og
segir að næstu fjögur ár verði
Danir að dansa eftir pípu NATO.
„Danski kommúnistaflokkur-
inn og önnur lýðræðisleg öfl telja
þessa þróun mjög hættulega Dan-
mörku þar sem landið dragist inn
í vígbúnaðarkapphlaupið," segir
Pravda.
ífr
Verksmiójurnar framleióa m.a.:
Skip — Skiptiskrúfubúnaó —
Þverskrúfur — Andveltigeyma og
Skipshuróir
HFKI A UC Laugavegi 170-172, - Sími 21240 Sölu-, vidgeróa- og
I Wtmm W m. mmm Érm. I II ■ Coterpdbr. Cot, og ffl eru ikrásett vöfomerki varahluttíþjónusta í se
sérflokki