Morgunblaðið - 11.03.1977, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 11. MARZ 1977
Hugmyndir Búnaðar-
þings um veggjald
/f
Al Búnaðarþingí því, sem lauk f gær, var samþykkt
I áskorun á samgönguráðherra þess efnis, að hann beiti sér
fyrir því að tekið verði upp á ný veggjald af umferð á hraðbraut-
um út frá Reykjavík, sem nemi allt að 300 milljónum króna á ári
og skal því fjármagni varið til lagningar hraðbrauta með varan-
legu slitfagi. Ástæða er til að staldra ofurlítið við þessa samþykkt
Búnaðarþings.
Þegar fyrsta hraðbrautin með varanlegu slitlagi var tekin í
notkun, þ.e. Reykjanesbrautin svonefnda, milli höfuðborgar-
svæðis og Suðurnesja var þeim, sem um hana fóru, gert að
greiða veggjald. Gjald þetta mætti nokkurri mótspyrnu eins og
frægt varð, þegar skúrinn, þar sem tekið var við gjaldinu, var
brenndur til grunna. Engu að síður sættu flestir sig við þetta
veggjald um skeið, enda var Reykjanesbrautin þá eina hraðbraut7
in með varanlegu slitlagi og ekki óeðlilegt að þeir sem þeirra
forréttinda nutu greiddu nokkuð fyrir þau. En þegar hraðbraut
með varanlegu slitlagi hafði verið lögð austur fyrir fjall varð
niðurstaðan sú, að fella veggjaldið hiður. Síðan hafa ekki komið
upp hugmyndir um það, fyrr en nú, að Búnaðarþing hefur
samþykkt ofangreinda áskorun.
Engum getum skal að því leitt, hvort áskorun Búnaðarþings á
rætur að rekja til þess, að þingfuiltrúum þyki of miklir fjármunir
ganga til lagningar hraðbrauta og of litlir til annarra vegafram-
kvæmda út um landsbyggðina. En það er auðvitað Ijóst, að
nokkuð andstæð sjónarmið eru uppi um það, hvernig verja ber
þeim fjármunum, sem til vegaframkvæmda ganga. Þannig er það
eðlilega sjónarmið þeirra, sem búa á hinum miklu þéttbýlis-
svæðum á suðvesturhorni landsins þar sem bílamergðin og
umferðin er mest, að verja þurfi meira fjármagni til lagningar
hraðbrauta með varanlegu slitlagi út frá höfuðborginni en gert
hefur verið til þessa Talsmenn þessarar skoðunar benda á að frá
bifreiðaeigendum og skattgreiðendum : suðvesturhorninu komi
langmestur hluti þess fjármagns, sem með einum eða öðrum
hætti er varið til vegaframkvæmda.
Sjónarmið þeirra, sem í dreifbýlinu búa, eru hins vegar þau, að
ekki sé nægilegu fjármagni varið til vegaframkvæmda um hinar
dreifðu byggðir landsins. Þessi afstaða er skiljanleg. Góðar
samgöngur eru lífæð byggðarlaganna úti á landi, sjávarþorpa og
sveitanna. Þótt mikið hafi áunnizt í vegaframkvæmdum í dreif-
býlinu á undanförnum áratugum er mikið ógert og á það ekki sízt
við um landshluta eins og Vestfirði og Austurland og einstaka
staði aðra. Víða spillast vegir mjög að vetri til og verða illfærir og
þess vegna skiljanleg afstaða þeirra sem telja, að verja beri
mestum hluta vegafjár til vegabóta í hinum dreifðu byggðum. Því
má heldur ekki gleyma í þessum umræðum, að vegirnir út um
landsbyggðina eru ekki lagðir fyrir þá eina, sem þar búa. Þeir eru
forsenda þess, að landið allt sé í byggð og tæpast er nokkur
íslendingur svo þröngsýnn að telja, að það yrði land og lýð til
heilla, að þjóðin öll flykktist á suðvesturhornið Þá eru vegirnir á
landsbyggðinni ekki slður notaðiraf íbúum höfuðborgarsvæðisins
en öðrum, sérstaklega að sumarlagi, þegar menn taka sumarleyfi
sín til ferðalaga og kunna þá vel að meta að komast um landið
allt.
Hér eru að sumu leyti andstæð sjónarmið og ekki um annað að
ræða en feta hinn gullna meðalveg. Þar er engin önnur leið fær.
Fram til þessa hefur áherzlan verið lögð á vegaframkvæmdir úti á
landi, en hraðbrautarframkvæmdum hefur þó verið þokað
nokkuð fram. Eftir því sem vegir á landsbyggðinni verða greiðfær-
ari hlýtur auknu fjármagni að verða varið til hraðbrauta með
varanlegu slitlagi, sem smátt og smátt munu ekki síður þjóna
dreifbýlinu en þéttbýlinu. Þessi mál eru gerð að umtalsefni hér
vegna þess, að fátt er líklegra til þess að hleypa illu blóði í íbúa
þéttbýlis en hugmyndir af því tagi, sem Búnaðarþing samþykkti
um veggjald íbúar dreifbýlisins geta með réttu gert kröfu til þess,
að skattgreiðendur í þéttbýli hafi víðsýni til að skilja nauðsyn
fjárveitinga til margvíslegra framkvæmda úti á landi. Með sama
hætti verður að ætlast til þess, að fulltrúar dreifbýlisins geri sér
grein fyrir þvi, að hugmyndir um aukna fjárheimtu með veggjaldi
eru ekki sanngjarnar og hljóta frá sjónarmiði þeirra sem i
þéttbýlinu búa að teljast lýsa bæði þröngsýni og óhæfilegri
tilætlunarsemi.
Basar
í Bern-
höfts-
torfunni
Hinn árlegi basar nemenda Myndlista- og handfðaskóla tslands
verður haldinn f Bernhöftstorfunni heigina 11. 12. og 13. mars. Þar
verða á boðstóinum vandaðir hlutir unnir af nemendum 3. árs.
Seldur verður fatnaður ýmiss konar, graffkmyndir, keramik-
munir og leikföng, svo eitthvað sé nefnt, á hóflegu verði og einnig
verður borið fram kaffi og meðlæti. Sunnudaginn 13. mars verður
svo kökum hætt á basarinn til sölu.
Basarinn er haldinn tii styrktar námsferð 3. árs nemenda, sem
farin verður til London og Amsterdam f lok mánaðarins. Basarinn
verður opinn frá kl. 9—20 föstud. og laugard. og frá kl. 13—18 á
sunnudag. (Fréttatilkynning)
Bræðurnir Haukur og Hörður Harðarsynir opna á morgun sýningu á verkum sfnum á Loftinu á
Skólavörðustfg. Verður sýningin opin laugardag og sunnudag kl. 14—18 og mun standa fram á næstu
helgi. Þeir munu sýna 3 hugverk, eins og þeir nefna þau, úr tré, 69 vatnslitamyndir og 13 myndir sem
eru eins konar drög að tréverkunum, sagði Haukur f viðtali við Mbl. f gær.
Hljómsveit Tónlistarskólans
leikur í Háskólabíói á morgun
Tónlistarskólinn í Reykjavfk
gengst fyrir tónleikum f
Háskólabfói á morgun, laugar-
dag, og hefjast þeir kl. 2.30
sfðdegis. Hljómsveit Tónlistar-
skólans leikur þar undir stjórn
Marteins Hunger Friðriks-
sonar, en ásamt hljómsveitinni
koma fram tveir einleikarar,
þær Lovfsa Fjeldsted selló-
leikari og Guðný Asgeirsdóttir
pfanóleikari og ljúka þar með
fyrri hluta einleikaraprófs við
skólann.
Á efnisskrá tónleikanna á
laugardag eru Konsert f B-dúr
fyrir selló og hljómsveit eftir
Occherini og Konsert nr. 1 f
g-moll, op. 25 fyrir pfanó og
hljómsveit en eftir hlé leikur
hljómsveitin Ófullgerðu
sinfónfuna eftir Schubert.
Ungir einleikarar — Þessar
stúlkur, Lovfsa Fjeldsted (t.v.)
og Guðný Asgeirsdóttir, verða
einleikarar með hljómsveit
Tónlistarskólans f Háskólabfói
á morgun.
Wím$m Útgafandi hf. Árvakur. Reykjavlk.
Framkvwmdastjórí Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthlas Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
R itstjóma rf ulltrúi Þorbjöm GuBmundsson.
Fréttastjórí Bjöm Jóhannsson.
Auglýsingasjóri Ámi GarSar Kristinsson.
Ritstjóm og afgreiBsla ASalstrwti 6. slmi 10100
Auglýsingar Aðalstrasti 6, slmi 22480
Áskriftargjald 1100.00 kr. á mánuSi innanlands
í lausasölu 60.00 kr. eintakið.