Morgunblaðið - 11.03.1977, Síða 17
MORG UNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1977 J 'J
Skák — Skák - Skák - Skák - Skák - Skák - Skák - Skák - Skák - Skák - Skák - Skák
Hort bauójafntefíi í 44. leik
Vlastimil Hort er þarna I hrókasamræðum úti ð gangi við Hálfdðn
Hermannsson, stjórnarmann f Skáksambandinu, en ð sjónvarps-
skerminum má sjð Spassky ðlútan yfir taflborðinu. Erindi Horts
var að fð vitneskju um örugga leið til að fá sér frfskt loft og eínnig
að það yrði tryggt, að hann lokaðist ekki úti, eins og gerðist á
dögunum. Ljósm. Ol.K.Mag.
VLASTIMIL Hort kom skyndi-
lega stormandi út úr hliðarher-
bergi og var með köku uppi í
sér. Hann gekk að skákborðinu
og talaði nokkur orð við
Spassky, og sfðan tókust þeir f
hendur þvf til staðfestingar, að
sjötta einvfgisskák þeirra hefði
orðið jafntefli. Þetta var á Loft-
leiðahótelinu klukkan 21.57 f
gærkvöldí og þegar þetta
gerðist höfðu áhorfendur beðið
eftir jafnteflinu f rúman
klukkutfma, staðan virtist ekki
bjóða upp á annað. Staðan í
einvfginu er þvf 3‘A vinningur
gegn 2'A Spasský f vil, og á
sunnudaginn mætast kapparnir
f 7. skákinni og þá hefur
Spasský hvftt.
Það var reytingur af áhorf-
endum á staðnum þegar skákin
hófst stundvíslega klukkan 17 í
gær, og það fjölgaði jafnt og
þétt þegar á kvöldið leið. Þegar
flest var voru áhorfendur eitt-
hvað á fjórða
hundrað. „Ef
svona heldur
áfram með
aðsóknina
ættum við að
vera á grænni
grein fjárhags-
lega,“ sagði
Einar S. Einarsson, formaður
Skáksambandsins við undirrit-
aðan í gærkvöldi. „Við sleppum
þá við að þurfa að gera út á
ríkiskassann og borgarsjóð,"
bætti hann við og var greini-
lega létt.
Eftir þvi sem leikjunum
fjölgaðí hýrnaði yfir áhorf-
endum. Þetta virtist ætla að
verða öllu meiri hasarskák en
sú síðasta, sem talin er sú
bragðdaufasta hingað til. Upp
kom drottningarbragð og voru
menn sammála um eftir þvi
sem á skákina ieið, að Hort ætti
öllu meiri möguleika. En
Spasský varðist vel og brátt
fóru kapparnir að skipta upp,
og var þá einhverjum að orði,
að þegar upp kæmu spennandi
stöður, veldu kapparnir
framhald, sem einfaldaði
stöðuna og leiddi til jafnteflis. I
19. leik hurfu drottningarnar af
borðinu og mikið mannfall
fylgdi á eftir. Þetta var um niu-
leytið og það var sama hvert
litið var eftir þessi átök, alls
staðar var talað um að ekkert
ieyndist í stöðunni nema jafn-
teflið. Um þetta voru menn
sammála á göngunum, i skák-
skýringarherberginu og blaða-
mannaherberginu, þar sem
mestu séniin eru yfirleitt
samankomin. En skák-
mennirnir héldu áfram að leika
og þeir gerðu engin mistök,
enda hvorugur i tímahraki.
Ekki voru þetta tilþrifamiklir
leikir og einhverjum varð að
orði, að þetta væri svo leiðin-
legt, að það væri vart mönnum
bjóðandi. í 43. leik lék Spassky
g-peðinu fram og hótaði að
drepa peð Horts og þegar þessi
leikur birtist á skerminum varð
Inga R. Jóhannssyni að orði, að
þetta væri hvassasti leikur
kvöldsins. Hort var i hliðar-
herbergi þegar Spasský lék en
hann kom að vörmu spori og
bauð jafntefli, sem Spasský
þáði á stundinni. „Hort er ekki
nógu metnaðargjarn“, varð þá
einhverjum að orði. Dr. Alster,
aðstoðarmaður Horts, hefur
væntanlega ekki verið ánægður
með úrslitin, þvi Hort hafði
hvítt og þurfti nauðsynlega að
vinna, þvi á meðan Spassky
hefur vinning yfir er hvert eitt
jafntefli honum i hag. Það var
samt ekki að sjá á honum mikil
Dr. Alsíer aðstoðarmaður
Horts, Hann fer til Húsavfkur
um helgina og teflir þar fjöl-
tefli. A bakaleiðinni kemur
hann við ( Hrfsey og hittir þar
landa sinn, sr. Kára Valsson.
svipbrigði, að skák lokinni. Dr.
Alster fer um helgina til Húsa-
víkur og teflir þar fjöltefli. Að
því loknu fer hann til Hríseyjar
að hitta þar sr. Kára Valsson
prest. Sr. Kári er tékkneskur að
uppruna, hét áður Karel
Vorovka. Hann kom hingað til
lands 1931. Dr. Alster tjáði
undirrituðum, að hann hefði
haft vitneskju af sr. Kára og
hringt til hans. Hefði það orðið
að samkomulagi, að hann heim-
sækti sr. Kára til Hríseyjar, og
kvaðst Alster hlakka mikið til
þess að hitta landa sinn,
prestinn í Hrisey.
Sumir þeirra sem fylgdust
með skákinni í gærkvöldi, eru
fastagestir á einviginu. Einn
þeirra er Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður
Verkamannasambands Islands.
Þeir tóku tal saman i gærkvöídi
Guðmundur og Högni Torfason,
varaformaður Skáksambands-
ins. Högna varó þá að orði, að
vonandi yrði samið eins
friðsamlega í komandi kjara-
baráttu og þeir Spasský og Hort
semdu um jafnteflin i ein-
víginu. „Það kemur ekki til
greina,“ sagði Guðmundur,
„verkalýðshreyfingin býður
aldrei jafntefli."
En hvað um það, vonandi
sýna kapparnir Spasský og
Hort liflegri taflmennsku á
sunnudaginn.
eftir
Sigtrygg
Sigtryggs-
son
Hort peði yfir, en það
dugði ekki til vinnings
Hvftt: Vlastimil Hort
Svart: Boris Spassky
Drottn inga rbrag 8
I. d4 — Rf6. 2. c4 — «6, 3. RI3
— d5, 4. Rc3 — Be7 (4 Bb4
5 Bg5 heföi lem til hinnar hvössu
Ragozin varnar) 5. Bg5 — 0-0, 6.
e3 — h6, 7. Bxf6 — Bxf6 (Til
flóknari stöðu leiðir 7. Bh4 — b6)
8. cxdS — exd5. 9. Dd2 — Be6.
10. g3 — c5 (Spassky reynir að
opna taflið I þeim tilgangi að
biskupar hans fái betur að njóta sln)
II. dxc5 — Da5. 12. Hcl —
Rd7, 13. Bg2 — Rxc5. 14. 0-0 —
Ra4 ( Nú er komin upp þekkt gerð
af stöðum. Svartur hefur stakt peð á
d5, sem gæti reynst slæmur veik-
leiki, en sem mótvægi hefur hann
biskupaparið og virkari liðsskipan)
Ra4 (14 Hac8 gekk tæplega
vegna 15 b4 T.d 15. . Dxb4
16 Rxd5 — Dxd2. 17. Rxf6+ —-
gxf6. 18 Rxd2 — Bxa2. 19. Hal.
Hinsvegar kom 14 Hfd8 til
greina, en með tilliti til stöðunnar I
einviginu ákveður Spassky að leita
eftir uppskiptum)
15. Rxa4 — Dxa4. 16. b3 —
Da3. 17. Hc7 — Hfc8. 18. Hfc1
— Db2. (18 Hxb7 gekk ekki vegna
18 Da6 19 Hb3 — Bc3) 19.
h4. — Dxd2. 20. Rxd2 — Hxc7.
21 Hxc7 — Hb8. 22. Rf3 — Bd8
(Annar möguleiki var 22. . . Kf8
Eftir 23. Rd4 — Be5, 24 Hc5 —
Ke7, gengur 25 Bxd5 ekki vegna
Kd6) 23. Hc1 — Hc8, 24. Hxc8
— Bxc8. 25. Rd4 — Be6. 26. e4
— dx«4. 27. Bxe4 Bf6 (Enn
einfaldari jafnteflisleið var 27.
Bc3 Nú gengur 28. Rb5 ekki vegna
28 Bd7 29. Rxa7 Bb6) 28.
Rxe6 — fxe6. 29. Bxb7 — (Þó að
hvltur hafi unnið peðer staðan samt
sem áður jafntefli vegna mislitu
biskupanna Hort tefldi þó I 1 6 leiki
áfram I þeirri veiku von að Spassky
fataðist vörnin.) K30. b4 — Ke7.
31. Kg2 — Kd6. 32. Kh3 — Bc3.
33. a3 — Bel, 34. f3 — Kc7. 35.
Ba6 — Kd6. 36. Bc4 — Ke5. 37
Kg4 — Kd6. 38. b5 — e5. 39. a4
— Kc5. 40. Bd3 — Kb4. 41. Bc2
— Kc5. 42. Be4 — Kb6, 43. Kh3
— Kc5, 44. g4 — g5. Jafntefli.
Larsen berst
til þrautar
STÓRMEISTARARNIR Larsen og
Portisch hóldu áfram með biðskák
slna úr 5. einvigisskákinni I
Rotterdam l gaer. Skákin fór aftur
I biB I 74. leik og er staðan enn
jafnteflisleg. Larsen hefur hvltt og
Portisch svart. og fylgir hár með
staðan eins og hún var eftir 74.
leik.
■ m
m mk wm éím V
Éi * IH
1 wk IX .
A i . á ■
wij fl zm
Æ 1 w 1
Friðrik gerði
jafnt gegn Csom
( gær var tefld fimmta umferð á
100 ára afmælismóti þýska skák-
sambandsins, en mótið fer fram i
fjallabænum Bad Lauterberg i V-
Þýzkalandi.Dr. Jón
Hálfdánarson skák
meistari er staddur
á mótínu og sendir
hann leikina í skák
Friðriks jafnóðum
hmgað til lands á fjarrita og geta því
áhorfendur á hótel Loftleiðum fylgst
með skákinni. i fimmtu umferðinni
átti Friðrik i höggi við ungverska
stórmeistarann Csom
Skákin fer hér á eftir:
Hvltt: Friðrik Ólafsson
Svart: Istvan Csom
Nimzoindversk vörn
1. d4 — Rf6 2. c4 — e6. 3. Rc3
— Bb4, 4. e3 — c5. 5. Bd3 —
Rc6, 6. Rf3 — Bxc3. (Afbriðgi
þetta varð mjög vinsælt eftir 5.
einvigisskák Spasskys og Fischers,
en þá vann sá siðarnefndi frækinn
sigur með svörtu) 7. bxc3 — d6. 8.
0-0 — e5. 9. Rd2 — (Einnig er oft
leikið hér 9 d5 — Re7, 10 e4, en
Friðrik hefur góða reynslu af hinum
gerða leik, sbr sigur hans yfir
Browne i Wijk aan Zee 1976) 0-0.
10. Rb3 — b6. 11. f3 — Ba6.
12. Hf2 — Hc8. 13. Bf 1 — Re7,
14. Hd2 — De8. 15. e4 —• h6,
14. Hd2—De8. (14 cxd4. 1 5.
cxd4 — Bxc4 gekk auðvitað ekki
vegna 16 dxe5) 15. e4 — h6,
(Enn gekk 15.. cxd4. 16 cxd4 —
Bxc4 ekki Nú vegna 1 7 Bxc4 —
Hxc4, 18. dxe5 — dxe5. 19 Hd8
— Dc6, 20 Ba3 —) 16. a4 —
Hc7. 1 7. a5 — Bc8. 18. axb6 —
axb6. 19. Ha8 — Dc6, 20. Hda2
— Bb7, 21. Hxf8+ — Kxf8. 22.
Ral — Hc8, 23. Rc2 — Ha8. 24.
Hxa8 + — Bxa8. 25. Re3 — Rd7,
26. Kf2 — (26 Rd5 kom engu til
leiðar eftir 26 cxd4, 2 7 cxd4 —
Rxd5. 28 cxd5 — Dc3) Bb7. 27.
g3 — Ba6. 28. Bh3 — Ke8, 29.
Bb2 — Bc8, 30. Bf1 — Rf8. 31.
Db3 — Bd7. 32. Da2 — Da4
Jafntefli
eftir
i Margeir
! Pétursson