Morgunblaðið - 11.03.1977, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1977
19
Novosti
uggandi
um Noreg
Moskvu, 10. marz NTB.
SOVEZKA fréttastofan Novosti
segir f dag að á bak við Noregs-
heimsókn vestur-þýzka varna-
málaráðherrans Georg Lebers f
þessum mánuði búi tilraun til að
„treysta hernaðarlega nærveru“
Vestur-Þjóðverja f Norður-
Evrópu og bendir á að heimsókn-
in fylgi f kjölfarið á þátttöku
Vestur-þjóðverja 1 heræfingum á
norskri grund.
Fréttaskýrandinn Vladlen
Kuznetsov lýsir sig sammála
þeirri skoðun sem hafi nýlega
komið fram I málgagni Miðflokks-
ins 1 Finnlandi, Saomenmaa, að
stefna Norðmanna 1 öryggismál-
um sé að breytast og tekur undir
þá tillögu Kekkonens forseta að
Norður-Evrópa verði lýst kjarn-
orkuvopnalaust svæði.
Psoriasis
Aðferð, sem sagt var frá í blaó-
inu í gær að sænskur iæknir not-
aði til að lækna sjúklinga sem
þjást af psoriasis, er ekki ný, að
þvi er Ólafur Tryggvason læknir
sagði i samtali við Mbl. i gær.
Hann sagði að aðferðin, sem
fréttin fjallaði um, væri í rann-
sókn um allan heim og rannsókn-
inni væri ekki fulllokið.
— Sakkarín
Framhald af bls. 2
kannski i tveggja tii þriggja ára
tilraun. Rottur, sem væri algengt
tilraunadýr, kvað hann lifa i um
það bil 4 ár og jafngilti siikur
aldur 70 til 80 ára aldri hjá
manni. Ef hún er siðan fóðruð i 2
ár á einhverju efni þá jafngildir
það að maður hafi verið fóðraður
i 40 ár á efninu. Er það helzt til
mikið — sagði Þorkell.
Þorkell kvaðst telja að saccarin
væri ekki notað t.d. við gos-
drykkjaframleiðslu á íslandi.
Fyrir nokkrum árum var sycla-
mat notað í syrkurlausan mat og
drykki, en var síðan bannað á
grundvelli hinna bandarisku laga.
Kvað hann bandarisk stjórnvöld
nú vera að draga i land með það
bann. „Er þetta eins og hvert ann-
að pat,“ sagði Þorkell og kvað
þetta bann ekki raunhæft. Hins
vegar væru þessi lög i gildi og þvi
væri ekki unnt að nota þessi efni,
þar sem lögin giltu.
Sacearin hefur verið í notkun á
Islandi i áratugi og notað til þess
að sæta mat einkum fyrir sykur-
sjúka. Hann kvað syclamat vera
hentugra efni til slíks, þar sem
ekkert aukabragð fylgdi þvi efni
eins og saccarininu.
Þá ræddi Morgunblaðið einnig
við Ólaf Ólafsson landlækni og
kvað hann islenzk stjórnvöld
myndu fylgjast mjög vel og náið
með framvindu þessara mála.
„Enn sem komið er teljum við
ekki að fram séu komnar það
öruggar fréttir af skaðsemi
saccarins, að ástæða sé til þess að
banna notkun þess,“ sagði Ólafur
og hann bætti við að umræða um
efni sem saccarin væru stöðugt i
gangi og mikið væri um að skrifað
í fagtímarit. „Við höfum haft sam-
vinnu við hin Norðurlöndin og
þau hafa ekki séð ástæðu til að
banna notkun saccarins. Það hef-
ur Alþjóða heilbrigðisstofnunin
heldur ekki gert, en við höfum
mikið reynt að fara eftir áliti
hennar,“ sagði landlæknir.
Framleiðendur telja bannið
styójast við veikar forsendur.
Um tvö milljón kiló af saccarini
eru notuð árlega í bandariskum
matvælum, þar af um 75% í gos-
drykkjum og saccarin er eina efn-
ið sem eykur sætleika og er enn
leyft í Bandaríkjunum fyrir utan
sykur.
Talsmenn saccarinframleið-
enda i Kanada og Banaríkjunum
telja bannið reist á vafasömum
visindalegum forsendum og mið-
ist ekki við þarfir og óskir neyt-
enda. Einn þeirra telur bannið
endurteknineu á mistökum sem
bandarisk yfirvöld hafi gert sig
sek um þegar þau bönnuðu annað
sætt efni, svokallað cyclamates,
1970. Þeir leggja áherzlu á að fólk
sem megi ekki borða sykur geti
ekki lengur fengið nokkur gefvi-
efni í matvælum og drykkjum i
staðinn.
Norðmenn sama sinnis og
íslendingar
I Ósló sagði yfirmaóur norsku
heilbrigðisþjónustunnar, Tor-
björn Mork, að ekki væri tímabær
t að banna saccarin í Noregi.
Hann sagði að svipuð niðurstaða
hefði fengizt í rannsókn sem var
gerð fyrir tveimur árum og í
kanadísku rannsókni'nni og
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) hefði ekki talið ástæðu til
að banna notkun efnisins þá.
— EBE
Framhald af bls. 1.
milli bandalagsins og Sovétríkj-
anna þar sem þeir hafa ekki veitt
því stjórnmálalega viðurkenn-
ingu. Vilja þeir að samningurinn
sé á milli sín og hvers og eins
aðildarrikis EBE.
Auk þess setja Sovétmenn sig
upp á móti óskum EBE um að við
skilgreiningu á Efnahagsbanda-
laginu í samningnum sé Vestur-
Berlin talin hluti þess.
Fyrir utan þessi stjórnmálalegu
vandamál hefur gengið illa að
ákveða kvóta. Sovétmenn vilja að
settir verði fastir kvótar á veiðar
hvors aðila, á meðan samn-
ingamenn EBE telja sig ekki hafa
umboð til að ákveða slíkt á þessu
stigi málsins. Samkvæmt heimild-
um i Briissel kefjast Sovétríkin
meira en Efnahagsbandalagið vill
láta af hendi.
Þá hófust í dag í Brussel við-
ræður á milli Austur-Þjóðverja og
EBE um samning um gagnkvæm-
ar fiskveiðar. Formaður samn-
inganefndar Austur-Þjóóverja,
Dieter Wang sjávarútvegsráó-
herra, sagði við komuna til
Brússel að hann harmaði ákvörð-
un EBE að svipta Austur-
Þjóðverja hefðbundnum miðum
þeirra. Hafa þeir veitt um 50.000
lestir á miðum EBE árlega. Ekki
er búist vió neinum erfiðleikum i
þessum viðræðum þannig að
rammasamningur ætti að geta
tekið gildi 1. apríl.
— Húsarottur
Framhald af bls. 32
Rótað var í ibúðinni en engú
stolið. Er það ósk lögreglunn-
ar, að þeir sem telja sig geta
veitt upplýsingar i þessum
málum hafi samband við lög-
relguna.
—Ketilsprenging
Framhald af bls. 32
liti ríkisins og fleiri stofnunum
voru hér í dag til að kanna
skemmdirnar og reyna að finna
orsakir sprengingarinnar. Um
það leyti sem óhappið varð var
allt rafmagn tekið af húsum hér,
eins og gert er i hálfan annan
tíma um hádegi á hverjum degi.
Mun sprenging þessi hafa verið af
svipuðum toga og ketil-
sprengingin er varð í húsi
Haralds Böðvarssonar á Akranesi
fyrr i vetur.
Ragnheiður
— Friðrik
Framhald af bls. 32
lega vegna þess að hann hefði
aðeins slakað á yfir skákinni.
Um skákina við Csom í gær
sagði Friðrik, að hann hefði
staðið betur að vígi lengi vel,
en ekki tekizt að komast nógu
nálægt honum til að geta látið
til skarar skríða. Csom hefði
farið út i drottningakaup og
þvi hefði hann ekki reynt að
tefla til úrslita.
Sjötta umferð skákmótsins
verður tefld i dag og þá teflir
Friðrik við Gligoric frá
Júgóslavíu. Þeir hafa oft bitizt
vió nú síðast á skákmótinu í
Júgóslavíu skömmu f.vrir jól,
en þeirri viðureign lyktaði
með jafntefli.
Staðan á skákmótinu að
fimm umferðum loknum er
þessi: 1. Karpov 4V4 vinningur,
2.—7. Friðrik, Húbner,
Liberzon.Sosonko, Timman og
Csom, allir með 3 vinninga.
— Loðnuaflinn
Framhald af bls. 32
langar leiðir og i gær var spáð
vonsku veðri á siglingaleiðinni til
Siglufjarðar og eins austur með
landi.
S.l. sólarhring nam loðnuaflinn
meira en 10 þúsund tonnum og
var heiidaraflinn kominn yfir 462
þús. tonn um kl. 22, sem er rétt
aðeins meira en allur aflinn varð
á vertíðinni 1974, en hann varð
461,800 lestir.
— Búnaðarþing
Framhald af bls. 2
leiðréttingu á sama véttvangi og
rógurinn er fluttur. Skorar
búnaðarþing 1 ályktun sinni á út-
varpsráð að taka til alvarlegrar
athugunar breytingu á þessu og
tryggja að varnarréttur manna f
þessu efni sé ekki brotinn. I
greinargerð með ályktuninni er
vitnað til óskar Upplýsinga-
þjónustu landbúnaðarins nú
nýverið er þess var óskað að út-
varpið tæki til birtingar
leiðréttingu við atriði, sem fram
komu í forystugrein Dagblaðsins,
en útvarpsstjóri hafnaði beiðn-
inni.
— Vaka
Framhald af bls. 2
urnar að ofan jafnframt fylgi list-
anna í háskólaráóskosningunum
undanfarin ár.
Mjög naumt var á því að Vaka
héldi sjötta manni sinum i
stúdentaráði, eins og sjá má af þvi
að á bak við sjötta mann Vökulist-
ans eru 105,5 atkvæði en á bak við
áttunda mann lista vinstrimanna
eru 106,5 atkvæði. Vöku skorti
þvi aðeins átta atkvæði til að
halda sjötta manninum og þar
með óbreyttri stöðu.
Kjörsókn var lítil í kosningun-
um og greiddu aðeins 55,5% há-
skólastúdenta atkvæði.
—Mannræningjar
í Washington
Framhald af bls. 1.
riskra gyðingasamtaka. Það var
sú bygging, sem fyrst var tekin i
gær, en vopnaðir menn réðust
einnig inn í múhameðstrúarmið-
stöðina og borgarskrifstofuna og
tóku þar gisla. Allar byggingarn-
ar eru innan 5 kilómetra radíus.
Álitið er að á milli 100 og 130
gislar séu i byggingunum. Þá álit-
ur lögreglan að mannræningjarn-
ir séu níu að minnsta kosti og að
fjórir þeirra séu i B’nai B'rith.
Lögreglan hefur lokað götum á
svæðinu i kringum byggingarnar
og alls staðar má sjá lögreglu-
þjóna i skotvestum. Yfirvöld
hættu við að heilsa James
Callaghan, forsætisráðherra
Breta, með byssuskotum þegar
hann kom i heimsókn til
Washington í kvöld af ótta við að
skapa taugaveiklun meðal mann-
ræningjanna.
Ein af siðustu kröfum Khaalis
var aó fá :ð tala við sendiherra
Arabarikja í Washington og
brugðust sendiráðin fljótt við
þeirri beiðni. Talsmaður sendi-
ráðs írans sagði að sendiherrann,
Ardeshir Zahedi, hefði farið til
aðalstöðva lögreglunnar til að
ræða við Khaalis i sima. Egypski
sendiherrann, Asraf Ghorbal, og
sendiherra Pakistans, Sahabzada
Yaqub-Kahn, fóru einnig þangað.
Zahedi er stjórnarformaður
múhameðstrúarmiðstöðvarinnar,
sem er i höndum mannræningj-
anna. Egypska sendiráðið segir að
álitið sé að fimm til sjö gíslanna
þar séu Egyptar og aó fleiri út-
elndingar séu þar.
Á fyrstu klukkustundum um-
sátursins var ungur útvarps-
fréttamaður skotinn til bana og
margir aðrir hlutu skotsár, þar á
meðal einn borgarfulltrúi.
Helzta kveikjan að aðgerðum
Hanafimanna virðist vera morðin
á sjö félögum þeirra i aðalstöðv-
um Hanafi 1973. Morðingjarnir
voru úr söfnuði Svartra
múhameðstrúarmanna, en mikill
fjandskapur er á milli trúarhóp-
anna, og afplána þeir nú 140 ára
fangelsisdóm.
í útvarpsviðtalinu talaði Khaali
af biturleik um morðingjana og
sagði: „Þeir hlógu og fífluðust i
réttinum. Cassius Clay skrillinn
hló á meðan við bárum kistur
barna okkar.“ Muhammad Ali,
sem áður hét Cassius Clay, er
félagi í Svörtu múhameðstrúar-
samtökunum.
r
— Isal
Framhald af bls. 3
2. Kersmiðja. Gengið verði
frá lofthjálmum við massa-
hrærivélar til að beina frá
heitri tjörugufu.
Loftræstibúnaði sem rætt var
um fyrst fyrir 2 árum að koma
vió kerþjöppun, verði komið í
nothæft ástand.
3. Skautsmiðja. Mulningsvél
sem mikið ryk stafar frá og er
við skautsmiðjudyr svo og
hrærivél fyrir kragasalla sem
sett var inn í skautsmiðju verði
fjarlægðar og byggt yfir sér-
staklega sbr. samþ. hollustu-
nefndar frá 7. aprfl s.I.
4. Böð og búningsklefar verói
þrifin eftir hverja vakt.
Það kom fram á blaðamanna-
fundinum, að greislur til fólks,
sem er fjarverandi frá vinnu
vegna atvinnusjúkdómatilfella
eða slysa eru miklu lengri hjá
ÍSAL en hjá öðrum íslenzkum
fyrirtækjum. Fá starfsmenn
full laun fyrstu tvo mánuðina,
sem þeir eru fjarverandi vegna
þessa og síðan 80% af launum
næstu 10 mánuðina.
Ennfremur kom fram, að for-
ráðamenn verkalýðsfélaganna
hafa mikinn áhuga á að stytta
viðverutima starfsmanna i ál úr
38,50 klst á viku í 35—36 klst á
meðan hreinsunartækin eru
ekki komin upp.
Trúnaðarmenn í álverinu
hafa tvisvar sinnum farið til
Noregs til að kynna sér
aðbúnað í álverum þar. Siðast
var farió um áramótin 75—76
og voru þá skoðaðar 3
álverksmiðjur. Sögðu þeir er
fóru utan að ástandið hefði
hvergi verió verra en hér.
Eitt af þeim álverum hefði
borið af, og verið líkast hóteli.
Hinar tvær hefðu verið
svipaðar álverinu i Straumsvík,
nema kannski að þær hefðu
verið eitthvað skárri.
áætlunarflug
póstf lug...
Suma árstíma er flugþjónusta Vængja hf. einu
samgöngumöguleikar fólksins í stórum byggða-
lögum. Við fljúgum reglulega til:
Hellissands, Stykkishólms, Búöardals, Suöureyrar, Siglufjaröar. Bildudals, Gjögurs.
Olafsvikur, Hvammstanga, Reykhóla, Hólmavikur, Blönduóss Flateyrar,
Tökum að okkur
leiguflug. sjukraf lug.vöruf lug
hvert á land sem er.
Höfum á að skipa 9 og 19 farþega flugvélum.
öryggi • þægindi • hraöi
m
. VÆNGIR h/f
REYKJAVIKURFLUGVELLI — Símar 26066 — 26060