Morgunblaðið - 11.03.1977, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1977
Guðríður Sigurbjörns-
dóttir - Minningarorð
Fædd 11. október 1895
Dáinn 3. mars 1977.
Guðriður var fædd að Litlu-
Felsöxl í Skilmannahreppi. For-
eldrar hennar voru Sigríður
Kristjánsdðttir og Sigurbjörn
Jónsson, er þar bjuggu. Sigur-
björn og Sigríður fluttu siðan að
Blómsturvöllum á Akranesi.
Börn þeirra hjóna urðu fjögur.
Elst þeirra og ein eftir á lífi er
Guðrún Kristín, nú 84 ára og býr
á Akranesi. Hin voru tvíburarnir
Guðriður og Jón, en hann lézt
ungur að aldri. Yngstur þeirra
var Pétur er alla tíð bjó á Akra-
nesi. Einn hálfbróður átti Gudda
eins og hún var ávallt kölluð af
ættmönnum og kunningjum, er
Geir hét Jónsson og lést hann
síðast liðið haust, þá 89 ára að
aldri. Haustið 1911 réðst Gudda
sem vinnukona til afa mins og
ömmu, Matthíasar Á Mathiesen
skósmiðameistara og konu hans
Arnfriðar Jósefsdóttur Mathies-
en, þá tæpra 15 ára að aldri. Þau
hjón bjuggu þá í Reykjavik. 1911
fluttu þau til Hafnarfjarðar og
bjuggu fyrstu árin í húsi þvi er nú
er Strandgata 47.
1913 fluttust þau að Austurgötu
30, og bjuggu þau þar alla tíð.
Börn þeirra voru ung að árum er
Gudda kom þangað, enda fannst
þeim alla tið hún ein af systkinun-
um. Börnin voru Jón, síðar kaup-
maður, 10 ára, Árni, siðar
verlzlunarstjóri, 8 ára, Theódór,
síðar læknir, 4 ára, og Svava móð-
ir min, aðeins á þriðja ári. Afi
minn setti upp skóverkstæði á
Austurgötunni og gerði þar við
skó og smiðaði einnig sjálfur
skóna. Var því oft mannmargt á
þessu heimili, fyrir utan heima-
fólkið. Heyrði ég sem barn, að það
hefðu verið 13 manns á verkstæð-
inu, bæði nemar og sveinar, og
þótti á þeim timum ekki annað
sæma en hafa allt í fæði og þjón-
ustu. Lá þá Gudda ekki á iiði sinu,
þvi allt vildi hún gera fvrir hús-
bændur sina, sem hún mat mikils.
Enda elskuðu og virtu Guddu all-
ir er henni kynntust, bæði börn
og fuliorðnir, en var hún barngóð
með afbrigðum fram á dánardag.
Eftir að heimilisfaðirinn missti
heilsuna, vann hún í fiskvinnu,
vaski jafnt sem breiðslu, til að
létta á heimilinu. Oft fór hún að
þvo þvotta seinnihluta nætur, til
að hafa lokið honum er hún fór í
fiskvinnuna. Var sólarhringurinn
vart nógur fyrir þetta stóra heim-
ili, og Gudda þvi oft þre.vtt að
loknu dagsverki. Er heimilisfaðir-
inn lést 1929, bjuggu þær saman
Gudda og amma mín, þar til hún
lést í desember 1951.
Móðir mín giftist 1931
Guðmundi Sigurðsyni vélstjóra
og bjuggu þau á Austurgötu alla
tíð. Var Gudda hjá þeim alla tíð
utan tvö síðustu ár er hún var hjá
Matthíasi bróður mínum.
Þeim Guðmundi og Svövu varð
þriggja barna auðið og er það
undir rituð en hin eru Nína Sigur-
laug og Matthías Árni. Var hún
þeim börnum þeirra sem besta
móðir. Vildi hún allt fvrir þau
gera og var yndislega gott til
hennar að leita hvort sem var að
fá ráð hjá henni, eða biðja hana
um að þerra tárin, ef eitthvert
sundul.vndi hefði orðið Er mér
eflaust óhætt að þakka henni öll
vndislegu 'arin, sem við barna-
börn Arnfríðar og Matthiasar átt-
um með henni. Það þótti nefni-
lega ekki slæmt í þá daga að eiga
tvær ömmur á sama stað, en þá
mátti segja að við ættum það. En
Gudda var svo barngóð, að hún
tók öllum vinum okkar og yngri
börnum í kringum sig með góð-
mennsku og tókst með þeim vin-
átta í gegnum árin. Enda voru
fáir Hafnfirðingar í þá daga sem
ekki þekktu Guddu í Mathiesen-
húsinu. Hún hreykti sér ekki hátt,
en smáatvikin leyndu ekki hugar-
farinu. Engin metur meir né skil-
ur betur hve hvildin er kærkomin
eftir 63 ára dygga þjónustu við
þessa fjölsk.vldu. Ég votta
aldraðri s.vstur og ættingjum á
Akranesi innilegustu samúðar-
kveðjur. Guð blessi þessa elsku-
legu vinkonu mína, er horfin er
yfir landamærin miklu.
Far þú í friði, friður Guðs þig
blessi. Hafðu þökk f.vrir allt.
Arnfrfður Mathiesen.
t
Eigmmaður minn og faðir okkar
STEINAR ÞORFINNSSON,
Skipholti 42
lézt i Borgarspitalanum 10 mar/
Helga Finnbogadóttir
og börnin.
+ Útför eiginmanns míns. föður og afa
SIGURÐAR G.S. ÞORLEIESSONAR
er lézt 2 marz verður gerð frá Fossvogskirkju í dag föstudaginn 11 marz kl 3 Þeim, sem vildu minnast hans, er vmsamlega bent á
Hjálparstofnun kirkjunnar
Rós Geirþrúðu Halldórsdóttir
Rósa Sigríður Sigurðardóttir Dóra Guðný Sigurðardóttir
Halla Sólný Sigurðardóttir Elmar Orn Sigurðsson
Þorleifur Már Sigurðsson Krisján Guðni Sigurðsson
Bára Rut Sigurðardóttir Kristinn Rúnar Ingason
t
Þokkum mnilega samúð og vmarhug vegna andláts og jarðarfarar
ARNÞÓRS EINARSSONAR
Við þökkum bæjarhjúkrunarkonum Kópavogs fyrir frábæra aðstoð í
veikmdum hans, einnig hjúkrunarfólki á deildl B Landakotsspítala
Fyrir hönd barna, tengdadóttur og systur hins látna
Sólveig Kristjánsdóttir
Guðrún Jóhannesdótt-
ir Akureyri - Minning
Mig langar til að minnast með
nokkrum orðum, tengdarmóður
mlnnar Guðrúnar Jóhannesdóttur
frá Akureyri, sem lézt hinn 4.
þessa mánaðar og verður jarðsett
frá Akureyrarkirkju i dag.
Guðrún Jóhannesdóttir var
fædd að Auðunarstöðum i Víðidal
hinn 14. febrúar 1889.
Hún var dóttir hjónanna Ingi-
bjargar Eysteinsdóttur frá Orra-
stöðum á Ásum og Jóhannesar
Guðmundssonar frá Neðri-
Fitjum, en þau voru bæði af
traustum húnvetnskum stofnum.
Guðrún ólst upp með foreldrum
sinum og sex systkinum á Auðun-
arstöðum þar sem foreldrar henn-
ar bjuggu stórbúi. Öll eru þau
Auðunarstaðasystkin nú látin’,
nema yngsta systirin Herdís sem
gift er Eggert Teitssyni frá Víði-
dalstungu, en þau bjuggu lengst
af á Þorkelshóli í Viðidal.
Laust eftir fermingu fór Guð-
rún i Kvennaskólann á Blönduósi
sem þá var bóknámsskóli og lauk
þaðan prófi eftir tveggja vetra
nám.
Hugur Guðrúnar stóð til frek-
ara náms og 1911 sigldi hún til
Noregs og var fyrst einn vetur á
almennum hússtjórnarskóla i
Drammen en siðan í Statens Lær-
erinne-skole í hustell á Stabekk.
Þaðan Iauk hún húsmæðra-
kennaraprófi árið 1914. Hún kom
heim um það leyti sem fyrri
heimsstyrjöldin braust út og
dvaldi þá löngum við matráðs-
konustörf i Reykjavík á vetrum
en var oftast heima á Auðunar-
stöðum á sumrin.
Meðal annars var hún matráðs-
kona við holdsveikraspitalann i
Lauganesi nokkur ár. Einng vr
hún ráðskona á Hótel Akureyri
(gamla) veturinn 1918 og minnt-
ist oft á hve erfitt var þá með
eldivið og annað í frosthörkunum
sem þá voru.
Eftir 1920 var hún nokkur ár
ráðskona við sjúkrahúsið á Akur-
eyri og dvaldi á þeim árum eitt ár
í Kaupmannahöfn við saumaskap.
Hinn 11. nóveber 1927 giftist
hún Jóni Jósefssyni vélsmíða-
meistara. Hann var borinn og
barnfæddur Akureyringar,
yngsta barn hjónanna Kristinar
Einarsdóttur og Jósefs Jónssonar
keyrara.
Þau bjuggu allan sinn búskap á
Akureyri, fyrst að Lundargötu 15,
en það hús átti Jósef faðir Jóns,
en siðan byggðu þau húsið að
Ægisgötu 2.
Jón dó 11. maí 1965. Hjónaband
þeirra var farsælt og eignuðust
þau eina dóttur, Ingibjörgu
Kristinu, fædda 26.1.1929, og er
hún gift undirrituðum.
Jón átti eina dóttur áður en
hann kvæntist, Hjördísi sem gift
er Bjarka Arngrímssyni bifvéla-
virkja og eru þau búsett á Akur-
eyri. Var ávallt kært milli þeirra
Hjördisar og Guðrúnar.
Eftir lát Jóns, bjó hún ein i húsi
sinu á Akureyri. Dvaldi fjöl-
skylda min þar venjulega á sumr-
in og tvö siðustu árin sem hún bjó
á Akureyri dvaldi dóttir okkar
Guðrún Lára hjá henni þar.
Árið 1969 seldi hún hús sitt og
fluttist til Reykjavíkur hélt hún
þar heimili fyrir dótturdóttur
sina Guðrúnu sem þar var við
nám.
Síðan árið 1972 hefur hún búið
hjá okkur hjónunum, nú siðast að
Miklubraut 66.
Guðrún var mjög hógvær kona,
sem treysti handleiðslu guðs. Alla
ævi var hún sívinnandi, hún
fékkst mikið við saumaskap og
alls-konar hannyrðir á yngri ár-
um, en eftir að sjónin tók að bila
sneri hún sér að prjónaskapnum
og prjónaði lopapeysur sem hún
seldi.
Alla tið var hún fjárhagslega
sjálfstæð og miklu fremur veit-
andi en þiggjandi.
Hún var nýtin og hagsýn, svo
henni varð mikið úr litlu. Eitt af
því sem hún hafði orð á var, að
hún vildi óska að hún yrði ekki
öðrum til byrði, þar varð henni að
ósk sinni, því hún gat aðstoðað á
heimilinu alveg þar til hún veikt-
ist af lungnabólgu 20. janúar síð-
astliðinn og átti ekki afturkvæmt
af sjúkrahúsi. Siðustu vikurnar
dvaldi hún á Vifilsstaðaspitala og
naut þar góðrar umönnunar. Hún
var farin að kröftum, en hélt að
fullu andlegri heilsu. Siðasta
kvöldið sem hún lifði, hafði hún
orð á því við okkur hjónin að hún
væri orðin þreytt og langaði til að
fara að fá hvild.
Ég vil svo að lokum þakka
tengdamóður minni fyrir sam-
f.vlgdina og allt sem hún var mér
og fjölsk.vidu minni.
Far þú f friði
friður íiuðs þÍK blessi,
hafðu þökk fyrir allt allt.
Kjartan Steingrfmsson.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
tilboö — útboö
ÚTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum
í lagningu dreifikerfis í Keflavík 2.
áfanga.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Hitaveitu suðurnesja, Vesturbraut 10 A,
Keflavik og á verkfræðistofunni Fjarhitun
h.f. Álftamýri 9, Reykjavík gegn 10.000
kr skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hita-
veitu Suðurnesja þriðjudaginn 29. marz
kl. 14 00.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðar og jeppabifreið er
verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudag-
inn 1 5. marz. kl. 1 2 — 3. Tilboðin verða
opnuð í skrifstofu vorri kl. 5.
Sala Varnaliðseigna
Varahlutaverzlun
til sölu
Til sölu er bifreiðavarahlutaverzlun í full-
um gangi. Uppl. á skrifstofunni
Lúðvík Gizurarson hrl.
Bankastræti 6, sími 286 1 1.
Keflavík — Bifreiðar
Til sölu: Bronco árg. ‘74 8 cyl, beinskipt-
ur, klæddur.
Bedford sendiferðabíll, diesel, árg. '71
Cortina árg. '74
Sunbeam 1250árg. '73
Bifreiðaverkstæði B. G.
Grófin 7
sími 92-1950 og 92-2760.
AUííLÝSÍNGASÍMINN ER:
/ 22480
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
JHor0unblnbU)