Morgunblaðið - 11.03.1977, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR II. MARZ 1977
31
Kallaður heim og fær
kennslu í leikreglum
að ummæli Tvsons væru alger-
lega á hans ábvrgð harmaði Tvson
að hann hefði gengió lengra en
hann hefði umboð til. Carter kvað
ummæli Tvsons „óviðeigandi" og
einungis túlka skoðanir hans.
Um leið og Tvson kemur aftur
til Washington fær hann tilsögn í
diplómatiskum leikreglum að
sögn talsmannsins sem setti ofan í
við hann. Sá sem skipaði hann í
mannréttindanefndina i Genf var
Andv Young. sendiherra h.já Sam-
einuðu þjóðunum, sem sjálfur
hefur nokkrum sinnum fengið
ofanígjöf hjá utanríkisráðuneyt-
inu. Kröfur eru uppi um að
Young segi af sér og Ijóst er að
hér eftir verþur strangara eftirlit
en áður með starfsmönnum Hvita
hússins og utanrfkisráðunevtis-
ins.
Kaupkröfur
í her Svía
Stokkhólmi 9. marz Reuter
SÆNSKIR hermenn hafa krafizt
þess að þeir fái að stofna verka-
lýðsfélög, að vinnuvika þeirra
verði 40 stundir og að aðrar
ráðstafanir verði gerðar til að
gera þeim lifið léttara f her-
þjónustunni.
Kröfur hermannanna komu
fram á ársþingi sem þeir héidu og
heraflinn stendur straum af þar
sem þingið er liður i umræðu sem
fer fram milli yfirvalda og manna
i herbúðum.
Herskylda er átta mánuðir að
viðbættum upprifjunaræfingum
og sænskir hermenn hafa þegar
fengið viðurkennda 48 stunda
vinnuviku. Þeir hafa þar að auki
tryggt sér rétt til að vera með sitt
hár og þurfa ekki að heilsa yfir-
mönnum sínum að hermannasið
nema þeim allra æðstu og fleiri
forréttindi.
Kröfur dagsins nú eru að auki
meira orlof, hærra kaup og
lækkun sekta fyrir að neita að
gripa til vopna. Erik Krönmark
landvarnarráðherra tekur þessi
mál fyrir þegar hann ávarpar
þing hermannanna á morgun.
Yfirmaður landhersins, Stig
Synnergren hershöfðingi, hefur
þó hingað til neitað að taka tii
greina kröfu hermannanna um
verkalýðsfélag og telur það illa
við hæfi i her.
Þroskahjálp með fundi
í öllum landsfjórðungum
innar á fundi mannréttinda-
nefndar Sameinuðu þjóðanna i
Genf.
Bæði Carter og talsmaður utan-
rikisráðunevtisins bentu á að
fengin sönnun væri f.vrir því að
Bandaríkjamenn hefóu tekið þátt
i b.vltingunni þótt á því léki
enginn vafi að leyniþjónustan
CIA hefði reynt að konia i veg
f.vrir kosningu Allendes.
A fundi mannréttindanefndar-
innar lýsti Tyson yfir stuöningi
við tillögu þar sem núverandí
stjórn Chile er fordæmd og i ræðu
sinni kvaðst hann harma mjög að
einstakir bandarískir embættis-
menn og hópar Bandaríkjamanna
hefðu tekið þátt í þvi að steypa
Allende. Þegar Carter og utan-
ríkisráðunevtið höfðu lýst þvi yfir
MJÖG Ktið vatn er nú I uppistöðu-
lóninu við Skeiðsfossvirkjun og
hefur þvf þurft að grfpa til vara-
aflstöðva. Hins vegar hefur enn
sem komið er ekki verið gripið til
skömmtunar og það verður ekki
gert að óbreyttu ástandi að sögn
Sverris Sveinssonar rafveitu-
stjóra f Siglufirði. t fyrrinótt var
slökkt á öllum götuljósum f Siglu-
firði um miðnætti, en var það
fyrst og fremst gert til að minna
fólk á þá erfiðleika, sem eru f
raforkumálum, frekar en að
brýna nauðsyn hafi borið til.
Meðalrennsli sfðustu þriggja
ára er ekki nema um 40% af
meðalrennsli síðastliðinna 10 ára,
sagði Sverrir Sveinsson f samtali
við Morgunblaðið f gær. — Við
fengum aðeins haustrigningar i
nóvember, en síðan voru
desember, janúar og febrúar
óvnju þurrir mánuðir. Hefur þvf
lftið vatn safnast í lónið og er
LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp
gangast fvrir almennum fundum
um málefni þroskaheftra vfða utn
land á morgun, laugardag, 12.
marz. Á fundunum verður fyrst
og fremst rætt um þau málefni
þroskaheftra, sem efst eru á
baugi í dag. þ.e. menntunarmál.
stvktarsjóð vangefinna og
vamtanlega heildarlöggjöf um
málefni þrosakheftra. Samtökin
voru sem kunnugt er stofnuð s.l.
haust og eiga 12 félög aðild að
landssamtökunum. en innan
þeirra eru samtals 550 félagar.
ástandið óvenju erfitt hér, en
Skeiðsfossvirkjun framleiðir raf-
magn fyrir Siglufjörð, Ólafsfjörð
og Fljótin.
— Meðan loðnubræðslan var
hér frá þvi f nóvember fram í
febrúar tókum við nokkra áhættu
og notuðum mikið vatn úr uppi-
stöðulóninu. Vonuðumst við þá
eftir betra vatnsári, en það hefur
ekki orðið enn þá. Nú framleiða
dfsilstöðvarnar um 1500 kw, en
það dugar ekki fyllilega og verð-
um við þvf að bæta aðeins við með
dreggjunum úr lóninu.
— Við höfum fengið aðstoð frá
sildarverksmiðju ríkisins og
framleiðir hún 250 kw. Verði
meiri loðnubræðsla hér fáum við
1000 kw gufuaflstöð frá SR, sem
ekki er gott að nota nema bræðsla
sé í gangi. Hins vegar er það mik-
ið öryggisatr’ði fyrir okkur og sér-
staklega Ólafsfirðinga að þar
verði sett upp t—600 kw dísilstöð.
Á Austurlandi veröur fundur
samtakanna haldinn í barnaskól-
anum á Egilsstöðum kl. '13.30, og
verða framsögumenn þau
Kristján Gissurarson. Einar Hólnt
og Rannveig Löve. A Suöurlandi
verður haldinn fundur á Hótel
Selfossi kl. 14. Þar verða fram-
sögumenn Eggert Jóhannesson,
Magnús Magnússon og Helgi
Seljan. Á Norðurlandi verður
haldinn fundur i Menntaskol-
anum á Akurevri kl. 14. Þar verða
framsögumenn Jóhann
Guðmundsson. Helga Finnsdóttir
og Hólmfriður Guðmundsdóttir.
Á Vestfjörðum verður fundur að
Hótel Mánakaffi á Lsafirði kl. 14.
Þar verða framsögumenn Gunnar
Þormar, séra Gunnar Bjiirnsson,
Margrét Margeirsdóttir og Ragn-
heiður Þóra Grimsdóttir.
Ráðstefna um
öryggi fiskiskipa
DAGANA 7. marz til 2. apríl 1977
fer fram i Torremolinos, Malaga,
á Spáni alþjóðaráðstefna um
öryggi fiskisktpa. Ráðstefnan er
haldin á vegunt Alþjóðasiglinga-
málastofnunarinnar (IMCó).
Fulltrúi Islands á ráðstefnunni
er Hjálmar Bárðarson. siglinga-
málastjóri. og var hann einröma
kjörinn varaforseti og frantsögu-
maður ráðstefnunnar.
M (II.VSINCiASlMISN l-.K:
BlorúimbToítiíi
Skeiðsfossvirkjun:
Mjög lítið vatn í lón-
inu og raforka nær ein-
göngu frá disilstöðvum
Washington, 10. marz NTB
BANDARfSKUR stjórnarfulltrúi
sem hefur valdið miklu fjaðra-
foki f Washington vegna þess að
hann baðst afsökunar fvrir það að
Bandarfkjamenn hefðu tekið þátt
f byltingunni gegn Salvador
Allende í Chile 1973, hefur verið
kallaður heim frá Genf til að fá
tilsögn f diplómatfskum leik-
reglum.
Carter forseti og talsmaður
bandaríska utanríkisráðune.vtis-
ins hafa sett ofan í við stjórnar-
fulltrúann. prófessor Bradv
T.vson, fyrrverandi trúboða. sem
baðst afsökunar á bvltingunni
fvrir hönd bandarísku stjórnar-
Fundur iðnríkja
ákvedinn í maí
London, 8. marz. Reuter.
ÞRIÐJI toppfundur sjö mestu
iðnrfkja á Vesturlöndum um
efnahagsmál hefur verið ákveð-
inn 7. og 8. maf. Jimmy Carter
Bandarfkjaforseti mun koma á
fundinn og verður það f.vrsta ferð
hans til útlanda frá þvf að hann
tók við embætti forseta. Fundur-
inn verður haldinn f London.
Norska
vatnið
hreinsað
NORSKA Stórþingið hefur sam-
þvkkt fjárveitingu að upphæð 45
milljarðar norskra króna f þvf
skyni að hreinsa drvkkjarvatn
Norðmanna segir f frétt frá
Norinform.
Ráðstafanir í þessu skyni hefj-
ast fljótlega og þeim lýkur ekki
fyrr en eftir 1990. I fyrstu verður
lögð áherzla á vatnsból sem mest
hætta er á að spillist, þar á meðal
Mjösa, stærsta stöðuvatn Noregs,
innanverðan Óslóarfjörð, Víkina,
og Glomm.
Vantsskattur neytenda mun
þrefaldast eða fjórfaldast við
þetta og inntökugjald nýrra íbúða
verður 10.000 norskar krónur.
Ráðist verður gegn mengun frá
bæjum og iðnfyrirtækjum, bú-
jörðum og einkaíbúðum sam-
kvæmt áætluninni.
Auk Carters verður Valery
Giscard d’Estaing Frakklandsfor-
seti á fundinum og æðstu menn
Vestur-Þýzkalands, Bretlands,
Japans, ítalíu og Kanada. Helzta
viðfangsefni fundarins verður að
komast að niðurstöðu um hversu
mikið Bandaríkjamenn, Japanir
og Vestur-Þjóðverjar eiga að örva
efnahagsstarfsemi sina í þvi skyni
að auka hagvöxt í öðrum löndum
heimsins.
Annað mikilvægt mál verður
hin mikla skuldasöfnun þróunar-
ríkja og leiðir til að skapa þeim
betri viðskiptatækifæri í iðnríkj-
unum.
Leiðtogaranir sjö munu án efa
gefa spennunni í viðskiptum Jap-
ana við Vesturlönd gaum, ekki
sízt með tilliti til þess að tala
atvinnulausra hefur nú náð 15
milljónum í þessum löndum.
Framsókn japanskra bila, stál- og
skipasmiðaiðnaðarins á takmörk-
uðum heimsmarkaði hefur orðið
eitt viðkvæmasta efnahagsvanda-
málið á alþjóðavettvangi.
Leiðtogarnir sjö, sem munu
hittast i skrifstofu James Callag-
han, forsætisráðherra Breta, i
Downing Street 10 eru allir fylgj-
andi hugmyndinni um frjálsa
verzlun. Samt sem áður getur svo
farið að stjórnir þeirra neyðist til
að taka upp verndunaraðgerðir
gegn innflutningi frá Japan. í öll-
um þessum löndum eru uppi
háværar raddir um að innlendur
iðnaður fái aukna vernd gegn
íonKnsiínm iðnaðarvörum.