Morgunblaðið - 03.04.1977, Page 1
80 SIÐUR
76. tbl. 64. árg.
SUNNUDAGUR 3. APRÍL 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
MORGUNBLAÐINU I dag fylgir 20 slSna AkureyrarfalaS. Starfs-
menn MorgunblaSsins fóru til Akureyrar F vikunni og unnu þeir
blaSiS ásamt Sverri Pálssyni, fréttaritara MorgunblaSsins á
Akureyri. Útgáfa blaSsins er liSur F þvF aS efla tengsl Morgun-
blaSsins viS landsbyggSina.
Þessi mynd er ein af mörgum sem skreytir blaSiS, en hún
sýnir nokkrar af starfsstúlkum ÚtgerSarfélags Akureyringa hf.
Ljósm. Mbl. Friðþjófur.
* * pP
Miklar umræður
um sjónvarpsgervi-
hnött Norðurlanda
Ilf'lsingfors. 2. apríl. Frá Fétri J. Eiríks-
syni.
UHRÆÐUM á Norðurlandaráðs-
þingi var haldið áfram f dag og
spönnuðu þær vftt svið, allt frá
sjónvarpsgervihnetti Norður-
landa, aðgerðir gegn pólitfskum
hermdarverkum, ffkniefnamál og
orkumál. Þá hafa verið samþykkt-
ar fjölmargar tillögur frá ráð-
herranefndinni og einstökum
fulltrúum áþinginu.
Umræðurnar um sameiginlegan
sjónvarpsgervihnött Norðurlanda
hafa aðallega snúizt um það hvort
samstarfi Norðurlanda eigi að
vera þannig háttað eftir að gervi-
hnötturinn verður tilbúinn til
notkunar, að hægt verði að ná
sjónvarpsdagskrá annarra
Norðurlanda i einstaka landi eða
hvort gerð skuli samnorræn dag-
skrá. Ræðumenn hafa flestir lagt
Framhald á bls. 41.
Segir Kennedy-
mordid samsæri
Washinj'ton, 2. aprfl Reuter.
HOLLENZKl BLAÐAMAÐUR-
INN Willem Oltmans heldur því
fram að olfuauðkýfingar f Texas
og kúbanskir útlagar hafi staðið
bak við morðið á John Kennedy
forseta og leyniþjónustan CIA og
alrfkislögreglan FBI hafi verið
við málið riðin.
Oltmans segir að heimildarmað-
ur sinn sé menntaskólakennari í
Dallas sem er fæddur f Rússlandi,
George de Mohrenschildt, sem
fannst látinn af skotsárum í vik-
unni og virðist hafa ráðið sér
bana.
Hann skýrði frá þessu þegar
hann hafði borið vitni fyrir þing-
nefnd sem hefur hafið nýja rann-
sókn á dauða Kennedys forseta og
Martin Luther Kings.
Oltmans kvað de Mohrenschildt
hafa sagt sér að hann hefði verið
vinur tilræðismannsins Lee
Harvey Oswalds og að þeir hefðu
skipulagt morðið á Kennedy í
sameiningu.
Talsmaður fjölskyldu látins
olíuauðkýfings, H.L. Hunt, segir
að ásakanir um að Hunt hafi verið
viðriðinn samsæri gegn Kennedy
og þekkt Lee Harvey Oswald sé
hugarburður. FBI kveðst rann-
saka bréf sem sagt er að Oswald
hafi skrifað „Mr. Hunt“ skömmu
eftir tilræðið.
Ræna átti
Olof Palme
Stokkhólmi, 2. aprfl AP.
HRYÐJUVERKAMENN sem
voru handteknir f Stokkhólmi f
gær ætluðu að ræna Olof Palme,
fyrrverandi forsætisráðherra, og
Anna-Greta Leijon, fyrrverandi
innflytjendamálaráðherra, að því
er sænsku blöðin sögðu f dag.
Sænskir embættismenn stað-
festu að einn hinna handteknu
væri Vestur-Þjóðverjinn Norbert
Kröcher sem var látinn laus í sam-
lYamhald á bls. 4.1.
„Nei, það voru engar hetjur”
HÓPAR sérfræðinga frá þremur löndum, Spáni, Hol-
landi og Bandarfkjunum leggja nú nótt við dag við rannsóknir á
mesta flugslysi sögunnar, sem varð á Tenerife fyrir réttri viku.
Eftir helgi er búizt við að kunngerð verði samtöl þau, sem voru á
segulbandsspólum f svörtu kössunum f flugstjórnarklefum risa-
þotnanna tveggja, en talið er að þau geti gefið skýringu á þvf hvers
vegna hollenzki flugstjórinn Z.A. Veldhuisen yfirflugmaður KLM
og virtastur f hópi flugmanna félagsins, hóf flugtak meðan PanAm-
þotan var enn á flugbrautinni f akstri f flugtaksstöðu.
En meðan beðið er eftir
niðurstöðum rannsóknanna
birtast stöðugt fleiri frásagnir
þeirra, sem lifðu þennan harm-
leik af. Líklegast verður aldrei
hægt að lýsa martröðinni þann-
ig að fólk raunverulega skilji
hvað gerðist þessar örlagarfku
sekúndur á Tenerifeflugvelli
en óneitanlega rennur fólki
kalt vatn milli skinns og hör-
unds við lestur frásagnanna.
Eini Bretinn, sem var með
PanAm-þotunni og komst lífs af
var John Cooper flugvélstjóri
hjá PanAm. Hann skýrði frétta-
manni Daily Mail svo frá slys-
inu: „Ég sat ásamt nokkrum
öðrum í setustofunni á 2. hæð
fyrsta farrýmis, beint fyrir aft-
an flugstjórnarklefann. Allt i
einu sveigði þotan til vinstri og
hefur Grubbs flugstjóri þá ver-
ið að reyna að komast úr vegi
KLM-þotunnar og sekúndu sið-
ar varð ægileg sprenging og
fremsti hluti þotunnar rifnaði
hreinlega frá. Ég geri mér ekki
enn grein fyrir því hvernig ég
komst í burtu og enn síður get
ég skilið hvers vegna ég slapp
með smáskrámur."
Bandaríkjamaðurinn
Herbert Waldings var einn af
þeim heppnu, sem gat gengið I
burtu og hann sýndi þá hetju-
dáð að snúa aftur að brennandi
vítinu og bjarga manni, sem
hékk fastur á vængnum. Hann
sagði fréttamanni New York
Times þannig frá: „Ég man
ekki gerla hvað gerðist fyrst
eftir sprenginguna, en allt í
einu stóð ég á vængnum og þá
var eins og ég vaknaði af
svefni. Eg stökk niður á braut-
ina og hljóp í burtu en þegar ég
leit um öxl sá ég mann stökkva
af vængnum en buxur hans
festust á einhverju og hann
hékk hjálparlaus. Ég hljóp til
baka og gat losað hann og síðan
hlupum við saman i burtu.“
John Cooper ráfar um flak
PanAm-þotunnar nokkrum
klukkustundum eftir að hann
bjargaðist. Hann skilur ekki
hvernig hann komst Iffs af.
Þegar fréttamaðurinn benti
honum á að hann hefði drýgt
þarna mikla hetjudáð sagði
Walding: „Nei, við vorum eng-
ar hetjur, við gerðum aðeins
það sem verður að gera.“ Og
hann grúfði andlitið i höndum
sér og brast I grát.
Ed Hess, framkvæmdastjóri
matvælafyrirtækis i Phoenix
Arizona, sagði svo frá: „Ég sat
með konu minni á fyrsta far-
rými þegar sprengingin varð.
Augnabliki siðar voru eldtung-
ur um allt og fólk reyndi i
örvæntingu að finna sér leið
gegnum logana. Ég skil ekki
hvernig við komumst lífs af, því
að ég held að við höfum verið
lokuð inni i farþegaklefanum i
allt að 10 mínútur þótt ég geri
mér grein fyrir að tfmaskyn
mitt kunni að hafa verið
brenglað. Þá varð allt i einu
sprenging og farþegaklefinn
rifnaði i 2 eða þrjá hluta og
veggurinn opnaðist rétt hjá
okkur. Eg þreif i konu mína og
við stukkum út.“ Hesshjónin
brenndust bæði illa, sérstak-
lega frúin, sem liggur i gjör-
gæzlu með brunasár yfir mest-
an hluta líkamans.
Þannig hugsar teiknari brezka blaðsins Daily Mail sér að
áreksturinn hafi orðið.