Morgunblaðið - 03.04.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.04.1977, Blaðsíða 23
MORG ]UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. APRÍL 1977 23 gersamlega óhæfir menn, lög- fræðingar og læknar t.d., sem sluppu i gegn af þeirri ástæðu einni, að „framlög" foreldra þeirra voru nógu rausnarleg. Samkvæmt tölum frá mennta- málaráðuneytinu japanska þurfa tannlæknanemar að greiða jafn- virði 5500 dollara að meðaltali f skólagjöld (rúm milljón kr.), en „sérstakt framlag" hvers og eins nemur 42000 dollara að meðaltali (8 millj. kr.). Læknaskólar reyndust þó enn dýrari. Þar þurftu 74% stúdenta að greiða jafnvirði 58000 dollara (rúmar 11 millj. kr.) í aukagjöld. Það er ekki nema efnafólk, sem getur siiarað út svona fúlgum. Aðrir verða að binda sér skuldabagga, og sumum verður þetta ofviða. Nozumu Tsuda sá fram á það, að foreldrar hans mundu ekki rfsa undir skuldaböggunum — og réði sér heldur bana. — MARK MURRAY. í Angóla hafa mörg blöð ver- ið bönnuð og margir blaða- menn reknir úr landi frá því I febrúar, er MPLA-fylkingin sigraði í borgarastyrjöldinni og tók völd í landinu. í ýmsum miðausturlandanna sæta blöð og blaðamenn ofsóknum. Verst er þó ástandið í Líbanon, að þvi er segir í skýrslu blaðasam- bandsins. Þá er þess getið, að í desember siðast liðnum voru átta sýrlenzk blöð bönnuð „og þar með síðustu frjálsu blöðin i miðausturlöndum". Frjálsum blöðum fer líka fækkandi i Asíulöndum Er komizt svo að orði í skýrslunni, að blöð hvarvetna í Asiu séu undirorpin stjórnvöldum að einhverju leyti — nema blöðin í Japan og Hong Kong. í fyrra hafi ritskoðun verið sett á i Thailandi, blöð bönnuð i Malayslu, en eftirlit hert með blöðum í Víetnam, Kambódiu, Laos og á Filippseyjum. Enn fremur ofsæki Suðurkóreu- stjórn sjálfstæð blöð og blaða- menn. Stjórnin í Norður-Kóreu noti blöðin þar í landi hins vegar til þess að tigna Kim II Sung forseta og viðhalda dýrkun hans. En óvíða munu blöð og blaðamenn þó jafnilla stödd og Suður-ameríku. Nefnd eru til dæmis Argentína, Brasilia, Chile og Uruguay. Stjórnvöldin í öllum þessum löndum hafa skert tjáningarfrelsi mjög og ofsótt blaðamenn í stórum stíl með ýmsu móti. Hefur verið þaggað niður í fjölmörgum með hótunum, en sumum ver- ið rænt, þeir pyntaðir til hlýðni eða myrtir ef ekki dugði annað. — JOHN CORNWELL. rekizt á tró og brotnað að framan. Hundarnir losnuðu og hlupu burt. Hún hljóp á eftir þeim. Hún náði þeim eftir hálfs annars kllómetra hlaup og batt þá á staðnum. Svo fór hún að sækja hjálp; það var 11 kílómetra vegur að næsta veiði- kofa „Þar urðu mér á mikil mis- tök", sagði hún. Hún komst að raun um það morguninn eftir. Þá flaug flugmaðurinn minn, Serge Amundson, með hana þangað þar sem hún hafði skilið hundana eft- ir. Það var erfitt að lenda þar, en Amundson lætur sér fátt fyrir brjósti brenna; það hefi ég sjálfur reynt. Hann renndi vélinni upp örmjótt gil, svo mjótt að væng- broddarnir snertu nærri barmana, og lenti á Isi á stærð við meðal- sundlaug. Því miður komu þau fullseint. Einn hundurinn var dauður; hafði flækt tjóðrinu um hálsinn og hengzt. Dinah Knight er þegar mjög breytt frá þvl sem var áður en keppnin hófst. Hún virðist hafa elzt um ein 10 ár, að minnsta kosti. Er þó ekki nema þriðjungur leiðarinnar að baki Hún reyndi að gera mér grein fyrir þvl, hvers vegna I ósköpunum hún hefði lagt út I þetta ævintýri. En það vafðist fyrir henni. Henni var llka stirt um mál af þreytu; hún var örmagna eftir dagleiðina. „Ég er haldin ástrlðu til þess arna". sagði hún. „Og það er sterk ástríða. Maður- inn minn þóttist ekki geta búiðvið hana lengur. Þess vegna fór hann frá mér. Ég hef alla tíð haft ástriðu til þess að reyna mig. Mig langar til að vita hvað ég get — verð að fá að vita það. Ég vil reyna mig til fulls — ganga undir þolraun svo harða. að ég þurfi aldrei að reyna aftur, ef ég stenzt hana. Úr sllkum þolraunum koma menn svo sterk- ir, að þeir þurfa aldrei framar að efast um mátt sinn og megin. . . En nú bið ég þess eins, að ég gefist ekki upp á leiðinni. Ég verð að komast á leiðarenda, hvað sem það kostar. . ." Varona Thompson velktist I engum vafa um það, hvers vegna hún væri komin þarna 600 kiló- metra inn á Alaskaöræfi. „Það er einfalt". sagði hún. „Ég fór þetta út úr leiðindum. Ég var að vinna og það var nú meiri leiðindavinn- anl Ég vann t.d. við það að þrífa skólahús á daginn eftir að krakka- sóðarnir voru farnir heim. Ég fékk nóg af þvl. Ég ætla mér ekki að þrífa skitinn eftir neinn mann framar. Nii er ég atvinnulaus — og það liggur mér I léttu rúmi. Ég veit jafnvel ekki hvort ég þægi vinnu ef mór byðist hún. Aftur á móti mundi ég taka rikum biðli opnum örmum. Þvi miður er ósennilegt, að rikur biðill verði á vegi mínum á þessum slóðum. Hingað kemur enginn maður með fullu viti". Og áfram er haldið. Allan dag- inn aka keppendur sem þeir kom- ast yfir freðna auðnina. Endrum og eins verður þó að stanza og leyfa hundunum að hvílast. En mönnunum gefst engin hvild. Þeir verða að tina saman við I eld, ellegar fara að bjástra við primus, bræða snjó. hita upp gaddfreðinn hundamat og fóðra hvern hund sór, svo að ekki lendi I bardaga um matinn. Að stundu liðinni er haldið aftur af stað. Að kvöldi er svo setzt um kyrrt og menn fara að búa sig i háttinn. Þeir eru varla skemur en tvo tima að þvt í myrkrinu. Svo er lagzt til svefns i gaddinum undir berum himni. í býtið um morguninn eftir verður haldið aftur af stað. Og konurnar tvær í keppninni njóta engra for- réttinda. Þarna eru allir jafnir. — IAN WOOLDRIDGE. ^etta gerdist líke .... Blessuð sólin ÞAÐ hefur varla farið fram hjá neinum blaðalesanda. að vlsindamenn þykjast sjá fyrir, að orkulindir jarðar verði uppumar áður langt Ifði. Mætti stundum halda, að ekki væru eftir nema fáeinir kolamolar. og örlftill oliudreitill svo sem á nokkra lampa. Svo slæmt er það nú ekki. en hitt er vlst. að alltaf gengur á forðann. Og eitthvað verðpr að koma f staðinn. Á undanfómum árum hafa menn bundið einna mestar vonir við kjamorku og sólorku. En kjamorfcunni fylgir mikil hætta og vfða um lönd hefur orðið almennt andóf gegn byggingu kjamorkuvera, hvað svo sem sfðar verður. Sólorkan mun aftur á móti hættulftil — að minnsta kosti hefur ekki frátzt um andóf gegn sólinni. Og það væri vissulega vel sloppið, ef hægt væri að drlfa allt hér á jörðinni með geislum sólar. Reyndar er nokkuð um liðið frá þvf, að farið var að smfSa og selja „sólorkustöðvar", bæði stórar og smáar. og hafa þær verið settar upp vfða um heim. I Bretlandi einu eru nú 40 fyrirtæki, er selja sólorfcustöðvar. Fyrir fjórum árum voru þau ekki nema tvö. Bretar hafa sem sé veriB mjög bjartsýnir f þessu efni. Og sennilega fullbjartsýnir. Geislar sólar eru sterkir — en þeir eru missterkir og sjást misoft eftir stöðum á jarðkringlunni. Sólorkustöðvar nýtast sem sé bezt f hitabeltunum. En Bretland er norSur f kaldtempraða beltinu. Og nýlega kom þer út opinber skýrsla þar sem menn voru varaðir við bjartsýni f þessu efni. Fyrirheitin f auglýsingum framleiðenda sólorku- stöðva ættu þvf miður við takmörkuð rök að styðjast. Vissulega mundu sólorkustöðvar koma að nokkru gagni f Bretlandi. En þær gætu þó aldrei séð Bretum fyrir meiru en fimmtungi allrar orku. sem þeir þyrftu. Og m.a.s. mundi Ifða á löngu þar til afköstin yr8u svo mikil . . . — NIGEL HAWKES. Bölvaður þrjóturinn LÆKNIR nokkur i Frankfurt er nú fyrir rétti sakaður um það að hafa svikið út stórfé af einum sjúklingi sfnum og valdið honum varanlegu heilsutjóni i þokkabót. Læknir þessi er taugasérfræðingur og geðlæknir. Hann hafði umræddan sjúk- ling til meðferSar f 16 mánuði samfleytt á árunum 1971 og 1972 og mun þá hafa gefið honum eina 2000 lyfjaskammta og lyfseðla upp á „hálft apótek". Fyrir þessa þjónustu þá læknirinn 143 þusund marka (11.5 millj. kr.). En auk þess kostaði það sjúklinginn 30 þúsund marka (2.4 millj. kr.) að leysa út hið „hálfa apótek", sem læknirinn ávisaði. Læknum þeim, sem kvaddir hafa verið til vitnis fyrir réttinum ber saman um það, að læknismeðferðin hafi verið bæði „óþörf og tilgangs laus". Sjúklingurinn hafði lent I bflslysi og fengið einhvers konar taugaáfall. Meðferðin, sem hann hlaut var alls ekki fallin til þess að hann fengi bata. Hann hefur, þvert á móti, beðið varanlegt tjón á heilsu sinni. Er blóðrás hans öll úr lagi gengin. Mjög gekk á efni sjúklingsins af læknishjálp þessari. Hann hafði erft töluvert fé. en það ázt upp, og loks varð hann að selja bilinn sinn til þess að halda f við lækninn. Sjúklinginn brast loks þolinmæðin, þegar hann var búinn að greiða hátt á annað hundraS þúsund marka fyrir læknisdóma en heilsan batnaði ekkert og versnaði þó heldur. . . —THE GERMAN TRIBUNE. Snittið á tómatinum UC—82 nefna Bandarfkjamenn nýjasta vfsindaafrek sitt Nafnið er dularfullt Jafnvel fskyggilegt. Manni dettur f hug kjarnorkuvopn Svo er þó ekki. Þetta er ferhymdur tómatur. Það eru búvfsindamenn f Kalifomfuháskóla. sem eiga heiðurinn af þessu tækniundri. Vfsindamönnum hefur verið það Ijóst f aldarfjórðung að náttúrulegir tómatar eru hannaðir af Iftilli framsýni. Það var nefnilega ekki gert réð fyrir uppskeruvélum. Venjulegir tómatar eru viðkvæmir og fara illa i vélunum. Það er aukaatriði, að mönnum gengur ágætlega að éta þá. Það varð að gera þá svo úr garði, að vélunum Ifkaði. Og mikiB er búið að reyna Eftir margra ára tilraunir tókst vfsindamönnum að rækta húðseigan tómat, sem þoldi hnjask uppskeruvéla án þess að láta á sjá. Þvf miður var hann jafnframt nærri óætur. En vfsindamennimir misstu ekki móðinn. Næst ræktuðu þeir tómatstengur. Þær hentuðu vélunum ág lega. Mönnum þótti þær hins vegar verri viðureignar. Nú er ekki að vita hvemig fólki þykir að handfjatla ferhymdu tómatana. En vfsindamennimir hafa litlar áhyggjur af þvf. Þeir eru sannfærðir um það. að sá ferhyrnd muni sigra. Þeir hafa aðeins áhyggjur af einu. Það er offramleiðsla. Óttast þeir mest. að of geyst verði farið I sakimar. Samkvæmt framleiðsluút reikningum munu bændur f Kalifomfu uppskera 12 milljón tonna ferhymdum tómötum é érinu 1984. En samkvæmt öðrum útreikningum er alls óvfst, að fólk verði féanlegt til að éta 12 milljónir tonna af ferhymdum tómötum á árinu 1984. Þess vegna ætla vfsindamennimir að hafa vaðið fyrir neðan sig. Eru þegar hafnar tilraunir um „tómatflögur — „franska tómata" mætti kannski kalla það. Standa miklar vonir til þess að koma megi einhverjum hinna 12 milljóna tonna onf lýðinn með þvf móti. . . — JANEROSEN Æ, þetta argvítans kóngafólk JÚLÍANA Hollandsd rottning og hollenzka rikisstjórnin standa þessa dagana i stappi um breyt- ingu á stjórnarskránni. Það er um það að ræða. hverjir skuli teljast til fjölskyldu þjóðhöfðingjans. í stjórnarskránni er ákvæði þess efnis, að konungur eða drottning verði ekki sótt til saka. og beri þing landsins fulla ábyrgð á gerð- um þeirra. Ekki er getið þess, hver skuli bera ábyrgð á gerðum ann- arra úr þjóðhöf ðingjaf jölskyld- unni. Og það skipti litlu lengst af. Fjölskyldan var alveg vammlaus, og engum kom til hugar, að neinn úr henni kynni að verða til vandræða. En svo kom upp Lockheedhneyksl'” fræga og þá horfði málið allt i einu öðruvisi við. Bernharður Hollands prins, eiginmaður Júlíönu drottningar, var borinn þeim sökum, að hann hefði þegið mútur af Lockheed og greitt fyrir flugvélasölu í staðinn. Mikið uppnám varð i Hollandi: Og forsætisráðherrann tók á sig rögg og hét því að umræddu stjórnarskrárákvæði skyldi breytt áður en árið væri á enda En árið tók enda og ekki var stjórnarskránni breytt. Um daginn lýsti forsætisráðherrann svo yfir þvi í þinginu, að fresta yrði breytingunni um óákveðinn tíma vegna þess „hve málið væri margþætt". Framhald á bls. 26 Stækkar allar gerðir lithausar 35 mm og 6 X 6 cm framköllunarvélar RCP 20 allskonar áhöld til Ijósmyndastækkunar. Pantanir óskast sóttar sem fyrst. j^budfönstonhf. aayfciovU 3 érmingar tízkan 77 Fermingargjafir fyrir hvern sem er á hvaða verði sem er. SiflinBndiMn Sfórtgrpaviniiii Iðnaðarhúsið Ingólfsstræti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.