Morgunblaðið - 03.04.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.04.1977, Blaðsíða 2
- MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. APRÍL 1977 Vigri með 340 tonn eftir 12 daga veiði ANNAR skuttogari Ögur- víkur, Vigri, kom til Reykjavíkur í gærmorgun með fullfermi af fiski eða 340 tonn, eftir 12 daga veiðiferð. Skipstjóri á Vigra er Steingrímur Þor- valdsson. Vigri fékk aflann aðal- lega á Vestfjarðamiðum og var síðustu dagana í Víkur- ál. Stór hluti aflans, eða á þriðja hundrað tonn, er þorskur og er hann yfir- leitt mjög vænn. Upphaf- lega átti Vigri ekki að koma inn til löndunar, fyrr en eftir helgi, en þegar all- ar lestar voru orðnar fullar í fyrradag og rúmlega það, var ekki um annað að ræða en að halda til hafnar. 30 þúsund manns hafa séð Morðsögu ALLS hafa um 30 þúsund manns séð kvikmyndina Morðsögu á þeim þremur vikum, sem liðnar eru siðan hún var frumsýnd. í Reykjavík hafa um 26 þús- und manns séð myndina, hátt á annað þúsund í Hafnarfirði og um 2.500 í Keflavík, en þar er hún enn sýnd. í Stjörnubíói er kvikmyndin sýnd við góða aðsókn enn, en í Keflavík og Hafnarfiðri, hefur orðið að sýna hana lengur en til stóð vegna mikillar að- sóknar. í Keflavik hefur myndin slegið sýningarmet, en áður hafði kvik- myndin Sound of Music verið mest sótt þar. Vegna hinnar góðu aðsóknar í Keflavík verður ekki af því að myndin verði páska- mynd á Akureyri. Hún verður sýnd þar viku seinna. Morðsaga veröur sýnd í Hveragerði, Hvoli og víðar á Suöurlandi í næstu viku. 1 norðanáttinni sfðustu daga hefur verið nokkur fsing á miðunum kringum landið, eins og þessi mynd ber með sér, sem RAX tók af Ljósafelli frá Fáskrúðsfirði f Reykjavfkurhöfn um helgina. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs afhent Helsingfors, 2. aprfl. Frá Pétri J. Kiríkssyni. FINNSKA skáldið Bo Carpelan tók í kvöld við bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs á 25 ára afmælishátíð ráðsins í Fin- landiahúsinu í Helsing- fors. Það var forseti Norðurlandaráðs, finnski KVÖLD lýkur íslenzkri mat- ælakynningu i kjallara húss iðn- ðarins við Hallveigarstig í eykjavik. Sýningin hefur staðið fir síðan á þriðjudag og hafa nú ímlega 15 þúsund manns skoðað ana að sögn Péturs Svein- jarnarsonar framkvæmdastjóra. - Á fimmtudag var metaðsókn, á fengum við 6000 gesti, en á föstudagskvöldið voru þeir orðnir 15 þúsund alls. Sýningin verður ekki framlengd og henni lýkur í kvöld kl. 22.00. Eins og greint hefur verið frá I fréttum hefur hver dagur verið helgaður einni tegund matvæla og I dag eru það gosdrykkirnir, sem eru i sviðsljós- inu, sagði Pétur Sveinbjarnarson að lokum. þingmaðurinn Sukselain- en, sem afhenti verðlaun- in, sem nú eru 75000 danskar krónur. Verðlaun- in eru veitt Carpelan fyrir sfðustu ljóðabók hans „I de mörke rummen, i det Ijusa“, sem kom út 1976, en hann skrifar á sænsku, sem er hans móðurmál. Carpelan þakkaði fyrir sig með hljómfögrum hexameter, sem er latneskt ljóðaform. í þakkarræðu sinni lagði hann m.a. áherzlu á að Aðsókn að fslenzku matvælakynningunni hefur verið mjög góð að sögn forráðamanna hennar og meiri en vonir stóðu til. íslenzkri matvælakynningu lýkur í kvöld: Rúml. 15 þús. gestir finnsk-sænsk ljóðagerð fengi nær- ingu úr sömu mold og hin finnska. Jafnframt undirstrikaði hann, að það hefði ýmsa kosti að hafa tvö tungumál og að Finn- landssviar gætu tínt „þroskaða ávexti af þrenns konar trjám, einu finnsku, einu finnsk-sænsku og einu ríkissænsku." Bo Carpelan er fæddur I Helsingfors 1926. Hann nam bók- menntir og bókasafnsfræði við Helsingforsháskóla og lauk doktorsprófi með ritgerð um skáldskap Gunnars Björling. Carpelan gaf út fyrstu ljóðabók sina, „Som en dunkel værme“, 1946, og síðan hafa fjölmargar ljóðabækur komið út eftir hann. En Carpelan er ekki aðeins ljóð- skáld, heldur hefur hann reynt sig á fleiri greinum bókmennt- anna, Hann hefur skrifað skáld- sögur þá fyrstu, „Rösterna í den sena timme“, 1971, barnabækur, „Bagen og Paradiset", og samið revíuljóð. Carpelan er nú borgar- bókavörður í Helsingfors. Hann hefur skrifað bókmenntagagn- rýni, m.a. i Hufvustadsbladet, og átt sæti i norrænu menningar- málanefndinni. Hann hefur nokkrum sinnum gegnt for- mennsku í Finnsk-sænsku rithöf- undasamtökunum. Færeyskir tog- arar aftur á íslandsmid FÆREYSKI togarinn Froyur var í gær á leið á íslandmið til veiða. Er hann fyrsti færeyski togarinn sem kemur á miðin hér við land á þessu ári, en þeir fóru af miðun- um i desember s.l. þegar þeir voru búnir að veiða upp i umsam- inn kvóta. Dufl á reki í Hvalfirði SKIPVERJAR á Sandey urðu í fyrrakvöld varir við ókennilegt dufl á reki f Hvalfirði. Var Land- helgisgæzlan látin vita og fóru starfsmenn hennar í gærmorgun á þyrlu til að athuga hlutinn. Síð- degis í gær var ráðgert að sérfróð- ir tundurdufls menn færu til að kanna hann nánar. Að sögn Þrastar Sigtryggssonar skipherra í stjórnstöð Landhelgis- gæslunnar er talið að duflið hafi losnað þegar Saney var að dæla út af Grundartanga í fyrradag. Er talið fullvíst að þetta séu leifar einhvers konar varnarútbúnaðar frá seinni heimsstyjöldinni, og gæti duflið því verið virkt ennþá. Leikritið Þvottakona Napoleons eða Madame Sans-Cene eins og það heitir á frummálinu er eftir franska höfundinn Victorin Sardou og er flutningur þess hjá Skagaleikflokknum frumflutn- ingur þess á íslenzku leiksviði. sunnudagskvöld kl. 20 verður síð- asta sýning á „Þvottakonu Napo- leons“ í Kópavogsbfó. Starfsemi Skagaleikflokksins hefur verið öflug þau þrjú ár, sem félagið hefur starfað og hafa sex verkefni verið sýnd og undirbún- ingur næsta verkefnis er þegar í fullum gangi, en það verður vænt- anlega nýtt íslenzkt verkefni. | Leiritið lýsir aðdraganda frönsku byltingarinnar og hirðlifi Napoleons keisara eftir valdatöku hans og koma margar sögufrægar persónur fram f verkinu. Sýning- tJr sýningu Skagaleikflokksins á „Þvottakonu Napoleons". Skagaleikflokkurinn sýnir í Kópavogi LEIKFÉLAG Akurnesinga, Skagaleikflokkurinn, hefur und- anfarnar vikur sýnt gamanleik- inn ÞVOTTAKONA NAPO- LEONS á Akranesi við góðar undirtektir. Leikstjóri er Sunna Borg frá Reykjavík. um á Akranesi er nú lokið og verða síðustu sýningar Skagaleik- flokksins hér á Reykjavikursvæð- inu. í gær sýndi flokkurinn í fél- agsheimili Seltjarnarness, en á Skátabod- hlaup 1 Garda- bæ með sauðskinn í TlLEFNl 10 ára afmælis skátafélagsins Vífils í Garða- bæ mun skátafélagið efna til boðhlaups um bæinn n.k. mánudag 4. apríl. Hlaupið hefst á Vífilsstöðum og munu skátar hlaupa þaðan með sauð- skinn áritað til bæjarstjórnar. Verður hlaupið um bæinn og lýkur hlaupinu á bæjarskrif- stofunum i Sveinatungu þar sem skinnið verður afhent. Boðhlaupið efst um kl. 14 og um hálftíma siðar veröur kom- ið að Sveinatungu en alls hlaupa um 100 skátar í boð- hlaupinu. Aukasýning á „Sand- kassanum” LEIKLISTARSVIÐ MT hefur að undanförnu sýnt „Sand- kassann“ eftir Kent Anderson við góðar undirtektir. Vegna mikillar aðsóknar verður auka- sýning á leiknum á morgun, mánudag, í Breiðholtsskóla og hefst sýningin klukkan 20.30. Leiðrétting HEIMILISFANG FERMINGARDRENGSINS Haralds Þórs Péturssonar, sem I dag er meðal fermingarbarna í Bústaðakirkju kl. 2 síðd. er að Hjallalandi 38 (ekki Kjalarlandi eins og stendur í blaðinu í gær). Leiðrétting RANGHERMT var i blaðinu í gær að samstaða hefði veríð um það f byggingarnefnd Reykjavíkur að skora á ríkis- stjórnina að Bernhöftstorfa verði endurbyggð. Alyktunin var samþykkt með þremur gegn einu atkvæði en þrfr tóku ekki þátt í atkvæðagreiðsl- unni. * Oðins-bingó MALFUNDAFÉLAGIÐ Óðinn heldur bingó á mánudags- kvöld, 4. apríl. Bingóið verður að Hótel Borg og hefst kl. 8.30 e.h. Spilaðar verða 14 umferðir. Margir eigulegir vinningar eru í boði, en aðalvinningurinn er 20 þús. kr. vöruúttekt eftir eig- in vali. Fridrik í efstu sætunum FRIÐRIK Ólafsson var f 1.—3. sæti á skákmótinu f Genf f Sviss að loknum 6 umferðum, ásamt Timman frá Hollandi og Dzindzinchasvili frá Israel. í 6. umferðinni, sem tefld var í fyrrakvöld, gerði Friðrik jafntefli við Sosonko í 13 leikj- um en Guðmundur Sigurjóns- son sigraði Pachmann f aðeins 27 leikjum. Missti Pachmann drottninguna og gafst upp. Önnur úrslit urðu þau að jafn- tefli varð hjá Andersson og Timman, Byrne og Dzind- zinchasvili, Westerinen og Hug, en skákir Liberzon og Torre, Larsens og Ivkov fóru í bið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.