Morgunblaðið - 03.04.1977, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.04.1977, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. APRÍL 1977 50,000 falla árlega - auk svosem 1000 ungbarna BREZKA rikisstjórnin er nú farin í herferð gegn tóbaksreykingum. Er ætlun hennar aö banna smám saman reykingar i kvikmyndahús- um, leikhúsum, strætisvögnum, lestum o.s.frv. í þeirri von, að reykingamenn gefist upp í stórum stíl. En nú reykja einar 19 milljónir Breta að staðaldri. Herferð stjórnarínnar er farin „í nafni þeirra 1000 brezkra barna, sem deyja árlega af því, að mæður þeirra reyktu um með- göngutimann", svo og þeirra 50 þúsund fullorðinna, sem árlega deyja fyrir aldur fram sökum tóbaksreykinga. David Ennals, forvígiamaður herferðarinnar, sagði i ræðu, sem hann hélt í brezka þinginu, að tóbaksframleiðendur hefðu fallizt á það, að nú þegar yrðu bannaðar auglýsingar mjög tjörumettaðra sigarettna en á næsta ári auglýs- ingar „meðalmettaðra" sigarettna og auk þess, að fastar yrði kveðið að orði i viðvörunum um heilsu- tjón, sem prentaðar eru á sígarettupakka. Ennals gat þess enn fremur, að ríkisstjórnin mundi leggja að forráðamönnum hvers kyns samkomustaða að banna reykingar þar. í fyrra birtu ASH, brezk samtök gegn reyking- um, skrá um Evrópuríki í röð eftir því, hve víða reykingar voru bannaðar á opinberum stöðum þar. Var Finnland efst á þeim lista, ítalía næst og Pólland þriðja, en Austurríki og Belgía þar næst. Bretland var hið 17. í röðinni og aðeins Vestur- Þýzkaland, Irska lýðveldið og Júgóslavía fyrir neðan. Því miður virðist í fljótu bragði, að brezka stjórnin eigi við ofur- efli að etja í herferð sinni. Tóbaksframleiðendur mega sín mikils I Bretlandi. Þeir greiða rík- inu mikinn skatt. Auk þess fjár- magna þeir sundurleitustu fyrir- tæki — íþróttafélög og dagblöð til dæmis. Þeir skila tveimur mill- jörðum sterlingspunda í ríkissjóð árlega, og hrekkur það langt til þess að borga heilbrigðisþjónustu ríkisins. Bretar verja einni milljón punda árlega til áróðurs fyrir heilsurækt, þar á meðal til auglýsinga gegn reykingum. Tóbaksframleiðendur auglýsa aft- ur á móti fyrir 90 milljónir á ári. . . — JEREMY BUGLER. PRENTFBELSIÐ Fr jálsu blöd- unum f ækkaði enn í f yrra HEIMSSAMBAND blaða heitir stofnun. ( því sambandi eru blöð í 62 þjóðlöndum. Ekki alls fyrir löngu gaf sambandið út skýrslu um könnun á prent- frelsi í heiminum. Þar kemur fram, að þau lönd eru sárafá þar, sem blöð eru frjáls og áháð ritskoðun stjórnvalda, og enn fremur. að blaðamenn v!ða um heim sættu meiri ofsóknum á síðast liðnu ári en nokkurn tíma fyrr. í skýrslunni segir, að mest hafi verið kreppt að blöðum og blaðamönnum í Afríku og Mið- austurlöndum í fyrra. í Suður- afríku voru 1 1 blaðamenn handteknir, þeim haldið I ein- angrun vikum saman en sumir dæmdir til langrar fangavistar. Idi Amin, forseti Uganda, er sagður hafa drepið öll blöð í Uganda í dróma — nema eitt. Það er málgagn ríkisins. „Rödd Uganda” heitir það. En öll er- lend blöð eru stranglega bönn- uð og blaðamenn ýmist hand- teknir og fangelsaðir eða drepnir. í skýrslu blaðasam- bandsins er nefnt dæmi af Jimmy nokkrum Parma, blaða- Ijósmyndara. Lik hans fannst í skógi utan við Kampala, höfuð- borg Uganda. Var það illa leik- ið og i því fjöldi kúlna. Parma hafði verið handtekinn um miðjan október síðast liðinn. Hann mun hafa fyrirgert lifi sinu með því að taka myndir af hálfbrunnu líki Doru Bloch, aldraðrar ísraelskrar konu, sem hvarf eftir átökin á Entebbe- flugvelli i fyrra sumar. SKOLAMALI Hin þyrnum stráða menntabraut Japana IIÚN ER dýrkeypt menntunin í Japan. Fyrir skömmu framdi ungur, japanskur stúdent sjálfs- morð. Ástæðan var sú, að hann hafði náð inntökuprófi f háskóia. Nozumu Tsuda hér stúdentinn, var aðeins 19 ára gamall, og átti að nema tannlækningar. Hann hafði ákveðið það, áður en hann gekk undir inntökuprófið, að stytta sér aldur ef hann stæðist. Hann stóðst, og á þeirri stundu er aðrir voru að fagna úrslitum dró hann plastpoka á höfuð sér, hleypti gasi í, og var látinn eftir smástund. Það var af cfnahagsástæðum, að hann tók þetta örþrifaráð. Stæðist hann inntökuprófið var vfst, að foreldrar hans yrðu að greiða jafnvirði 7000 dollara (1.4 millj. kr.) í skólagjöld — en auk þess jafnvirði 42000 dollara (8 millj. kr.) til viðhalds og endurnýjunar húsakosts og tækja skólans. Var það fé nefnt þvf virðulega nafni „framlag", og komst enginn nem- andi hjá framlagi. Nozumu Tsuda lét eftir sig bréf. 1 þvf segir m.a.: „Ég fæ ekki af mér að baka fjölskyldu minni frekari vandræði. Ég var ráðinn f þvf að drepa mig ef ég stæðist inntökuprófið. Með sjálfsmorði mínu ákæri ég háskólakerfið, og mætti það verða til að vekja at- hygli á ranglætinu f háskólunum. Foreldrar mfnir hefðu orðið að steypa sér f skuldir til að standa straum af námi mínu, og til þess má ég ekki hugsa. Móðir mfn er öllum stundum úti að reyna að kría út lán hér og þar. Hún er að slíta sér út á þessu. Ég fæ ekki afborið það. Ég hef því ákveðið að stytta mér aldur.“ Þetta var úr bréfi Tsuda. Þegar það var borið undir forstöðumenn tannlækna- skólans höfðu þeir þetta eitt að segja: „Þeir, sem ekki hafa efni á þvf að fara f einkaskóla geta bara farið f rfkisskóla". Það var allt og sumt. Iláskólar í Japan eru nefnilcga sumir rfkisreknir en aðrir reknir á reikning einkaaðila. Ríkisreknu skólarnir eru flestir f heldur litlu áliti hjá atvinnurckendum. Menn fara þess vegna ekki f þá nema tilneyddir. Einkaskólarnir þykja ffnni. Þeir eru reknir fyrir skóla- gjöld og „framlög" stúdenta og hafa fram að þessu ekki þcgið rfkisstyrki. Það er til lftils fyrir stúdenta að standast inntökupróf f slíkum skóla, ef þeir geta ekki borgað. Það er nefnilega aðalatr- iðið. Er almælt, að úr þessum skólum hafi útskrifazt fjölmargir TVÆR OBANGNA GULLLEITARSLÓÐ heitir illfær leið sem liggur yfir þveran Alaska skaga og kennd er við gullæðið mikla. sem hófst þegar gull fannst I Juneau árið 1880. Á þessum slóðum eru auðnir miklar. veður hörð og lífsbaráttan erfiðari en viðast annars staðar. Það er ekki nema harðfengasta fólk, sem helzt þarna við Það er annað hvort að duga eða drepast — og margir eru þeir orðnir, sem buguðust. Þarna norður frá er jöfnuður karla og kvenna engin ný bóla. Konurnar hafa sannarlega fengið að spreyta sig ekki síður en karl- arnir. Verkaskipting hefur að vlsu alltaf tíðkazt með þeim. Og er svo enn. Karlarnir eru á skytterii, leggja gildrur, fiska, leita málma i jörðu og fljúga flugvólum mílli byggða i auðnunum. Konurnar eru aftur á móti heima við, elda, þvo þvotta. gera að villibráð, kenna börnum sínum lestur og skrift og senda veðurstofunni í Anchorage veðurlýsingar á nokkurra tima fresti. Ég var á ferð þarna norður frá fyrir nokkru og kom þá að heimili konu, sem Ann Budzynski heitir. Það var gestkvaemt hjá Ann þenn- an dag og hinn næsta. Fyrri dag- inn kom 31 maður í kvöldmat, en 26 til morgunverðar morguninn eftir. Ann eldaði ofan i allan þenn- an mannskap. bar fram matinn og þvoði upp á eftir. Síðan fór hún út að huga að hrossunum sinum 12. Þegar hún kom inn þurfti hún að sinna ungum syni sínum. Það varð ekki annað á henni séð en þetta væru ósköp vanalegir dagar Hún kvaðst lika eiga fria stund endr- um og eins. Þá liti hún gjarna i Time eða Newsweek. Fyrir kæmi. DINAH — 38 ára og ræður ekki við ævintýralöngunina þveran Alaskaskaga. Iditarodslóð heitir leiðin, sem keppendur fara, og hún er 1800 kilómetra löng. Keppni þessi hefur verið nefnd. „síðasta stóraksturskeppnin ". Það segir svo sem ekki neitt. Þetta er enginn leikur; það get ég borið sjálfur. Þetta er grimmi- leg þolraun. Þegar þetta er ritað eru sex dagar liðnir. Önnur konan í keppn- inni, Dinah Knight, er næst öftust keppenda. Dinah Knight er geð- læknir að mennt og hefur starfað í háskólanum i Minnesota. Hún er 38 ára gömul. Hún er fráskilin; eiginmanninum ofbauð ævintýra- hneigð hennar. Skilnaðurinn virð- ist sizt hafa dregið úr ævintýra- hneigðinni. Dinah er komin eina VARONA — 23 ára og dauðleið á vinnunni sporum — og reyndar má telja vist, að einhver væri steindauður. Það hafa t.d. ekki allir heilsu til að sofa úti i 20 stiga frosti til lengdar. „Ég þóttist vita, að ferðin yrði erfið ", sagði Dinah Knight, þegar ég ræddi við hana. „En mig óraðí ekki fyrir þvi, að hún yrði jafnerfið og hún er i rauninni. Það er útilok- að. að ég verði söm eftir þessa ferð og óg var áður. Ég trúi þvi satt að segja varla. að ég komist nokkum tima á leiðarenda. í hvert sinn, sem ég kem auga á flugvél verður mér hugsað sem svo: „Ég þarf ekki annað en veifa. Þá lendir hún og ég verð komin til byggða eftir nokkurn tima. Og þér er óhætt að trúa þvt, að freistingin er sterk. Oft munar mjóu. að ég láti 1800 kílómetra á hundasleðum að hún brygði sér út með riffil og skyti svo sem einn elg. Þær eru margar henni likar, húsf reyjurnar við Gullleitarslóð- ina, þennan snævibakta trölla- veg, sem hlykkjast yfir auðnirnar frá Anchorage til Nome. Það vakti þess vegna enga sérstaka athygli, hvað þá aðdáun, þar norður frá þegar tvær konur slógust i hóp keppenda I hundarsleðaakstri yfir 600 kilómetra áleiðis inn i auðnir Alaska En 1200 á hún eftir. Hin konan heitir Varona Thompson, og er 23 ára gömul. Hún er atvinnulaus. Ógift. Faðir hennar var lengi flugmaður i Alaska. Varona er komin heldur lengra áleiðis en Dinah Knight Siðast sást til hennar þar, sem hún var að hverfa inn á öræfi; þar liggur leiðin 150 kílómetra um hættulegar fannir og gljúfur og ekkert að sjá nema fallnir trjá- stofnar og einstakar indíána- byggðir. Þar er ömurlegt um að litast. Varona var 42. i röð kepp- enda. Fremstur var þá Joe nokkur Redington; hann var kominn rúma 800 kilómetra áleiðis. Hafði hann farið svo geyst af stað, að menn mundu ekki annað eins. Konurnar láta það ekki á sig fá, að þær eru aftarlega i lestinni. Þær halda áfram jafnt og þótt og er engan bilbug á þeim að finna. Einhver væri nú orðinn framlágur í þeirra undan. En ég má það ekki. Það kemur ekki til mála. Það er óhugnanlegt að vera hérna á ferð. Mér stendur enginn ótti af þvi að frjósa I hel En mig hryllir við þvi að hrapa niður i einhverja gjána og drukkna. Þó nokkrir keppendur eru þegar búnir að detta i gjár". Tveimur dögum áður hafði sleði Dinah farið út af mjórri slóðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.