Morgunblaðið - 17.05.1977, Page 1
36 SÍÐUR
110. tbl. 64. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAl 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Spánn:
FÍéiri
fangar
látnir
lausir?
Bilhao 16. maí Reuter —AP
Allsherjarverkfall lam-
aði í dag allt daglegt líf í
Baskahéruðunum í N-
hluta Spánar og lögreglu-
menn og herlið þurftu að
beita táragasi og gúmmí-
kúlum til að dreifa mann-
fjölda í ýmsum borgum
þar sem farið var í mðt-
mælagöngur vegna dauða 4
manna í mótmælaaðgerð-
um í landinu sl. 4 daga.
Mðtmælaaðgerðir þessar
voru til að leggja áherzlu á
kröfur um að ölium póli-
tískum föngum í landinu
verði sleppt.
Talsmaður innanríkis-
ráðuneytisins í Madrid
sagði, að ríkisstjórninn
hefði áhyggjur af, að þess-
ar óeirðir gætu orðið til að
spilla andrúmsloftinu i
þingkosningunum, sem
fram eiga að fara 15. júní
nk., en sagði að ríkisstjórn-
in myndi halda uppi lögum
og reglu í landinu af mikilli
hörku til að koma í veg
fyrir að aðgerðir öfga-
manna eyðilegðu kosning-
arnar. Hann sagði jafn-
framt, að stjórnin íhugaði
nú að láta fleiri pólitíska
fanga lausa. 287 fangar
hefðu verið náðaðir síðan í
marz og aðeins 27 Baskar
væru enn í fangelsi.
Skipsbátur frá Árna Friðrikssyni bjargar finnsku flugkonunni úr flugvél hennar 100 mdur vestur af Reykjanesi. Froskmenn frá Varnar-
liðinu eru f sjónum við vélina, en f stjórnklefanum sést flugkonan búa sig undir að fara yfir f björgunarbátinn. Þangað komst hún þurrum
fótum og sfðan hffði þyrla Varnarliðsins hana upp f þyrluna. Myndin er tekin frá Árna Friðrikssyni af Óskari Sæmundssyni.
Alþjóðleg
skýrsla
um
orkumál:
Um líf og dauða að tefla
í þróun nýrra orkugjafa
VVashington 16. maf AP-Reuter.
Alþjóðleg rannsókna-
nefnd um orkumái skilaði í
dag skýrslu um niðurstöð-
ur rannsókna sl. 2Vi ár.
Helztu niðurstöður rann-
sókna eru að hraða verði
eins og um styrjöld væri að
Minningarathöfnin var
lokuð andófsmönnum
Krakow, 16. maf — AP
ANDÓFSMENN f Póllandi segja, að lögreglan hafi komið í veg
fyrir að þeir væru viðstaddir minningarathöfn um látinn stúdent
á sunnudag, en um 4.000 syrgjendur voru við athöfnina f hinni
fornu borg Krakow. Um það bil 50.000 manns komu saman við
Nowa Huta f nágrenninu til að vera viðstaddir vígslu nýrrar
krikju, sem hefur orðið tákn viðnáms rómverks-kaþólsku
kirkjunnar gegn kommunistast jórninni í Póllandi.
„Þetta er tákn sigurs trúar okkar,“ sagði Josef Gorzelan,
prestur nýju kirkju heilagrar Marfu, drottningar Póllands. 45.000
manns stóðu f rigningunni fyrir utan og hlýddu á vfgsluathöfnina
úr hátölurum en 5.000 komust inn f kirkjuna.
Lögreglan kom í veg fyrir, að Andófsmenn segja, að lög-
meðlimir varanefndar verka- reglan hafi handtekið tiu menn
manna kæmust frá Varjsá til
Krakow til að vera viðstaddir
minningarathöfn um Stanislax
Pyjas, sem fannst látinn með
áverka á höfði í íbúóarhúsi í
miðborg Krakow 7. maí.
Embættismenn segja, að hann
hafi verió undir áhrifum
áfengis þegar hann lézt eftir
fall. Andófsmenn segjast vera
vissir í sinni sök um að hann
hafi verið myrtur, en þeir vilja
ekki segja hver gæti hafa
framið verknaðinn.
um helgina i Varsjá og Krakow.
Tólf andófsmönnum var
meinað að fara til Krakow.
Stúdentar, vinir Pyjas, sem
var virkur stuningsmaður
varnarnefndar verkamanna,
segja að lögreglan hafi komið í
veg fyrir að þeir dreifðu flug-
ritum eða vektu á annan hátt
athygli á láti hans. Voru tveir
stúdentar handteknir. Margir
lögreglumenn í borgaralegum
klæðum voru við minningarat-
höfn um Pyjas.
ræða breytingu frá olíu-
eldsneyti til annarra orku-
gjafa.
í nefndinni áttu sæti 35 stjórn-
málamenn, visindamenn og há-
skólamenn frá 15 lýðræðisþjóð-
um. í skýrslunni koma fram mörg
svipuð atriði og i skýrslu banda-
risku leyniþjónustunnar CIA sem
Carter forseti skýrði frá í orku-
málatillögum sinum á dögunum.
M.a. segir, að olíubirgðir heims
muni byrja að eyðast þegar árið
1981 og að oliuskortur i heim-
inum árið 2000 muni nema 15 —
20 milljónum fata á dag, sem-er
svipað og notað er daglega í
Bandarikjunum nú. í skýrslunni
segir, að þetta ástand muni skap-
ast jafnvel þótt kolanotkun verði
aukin um helming og notkun
kjarnorku 15 — 25 földuð.
Bandariski prófessorinn
Carroll L. Wilson, við tækni-
háskóla Massachusetts, sem var
fbrmaður nefndarinnar sagði
við fréttamenn i dag, að oliu-
skorturinn krefðist meira alþjóð-
legs samstarfs en nokkru sinni i
sögunni og það samstarf yrði að
hefjast þegar i stað, ef algert
neyðarástand ætti ekki að skap-
ast. „Orkusparnaður er lykilorð
framtíðarinnar, það er ekki til
önnur ódýrari leið til orkufram-
leiðslu" sagði prófessor Wilson.
Hann sagði að ljóst væri að þjóðir
heims yrðu að hefjast þegar
handa að nýta nýjar orkulindir og
aðeins nota oliu þegar ekki væri
hægt að nota aðra orkugjafa. i
skýrslunni segir, að það muni
taka 5 — 15 ár að virkja nýjar
orkulindir og þvi sé lifsnauðsyn-
legt að byrjað verði þegar í stað.
„Það má engum tima sóa, það er
hvergi hægt að fela sig og það
getur enginn gert þetta einn, allir
verða að taka saman höndum um
lausn vandans."
Styrjaldarástand milli
Zambíu og Rhódesíu
Lusaka, 16. maf. Reuter
KENNETH Kaunda, forseti
Zambiu, sem í dag lýsti yfir að
styrjaldarástand ríkti milli
Zambiu og Rhódesíu, sagði, að
hann hefði fengið viðvaranir um
að hinir hvitu stjórnendur
Rhódesfu hygðust gera innrás í
Zambíu tii að uppræta stöðvar
svartra skæruliðahrevfinga, sem
haldið hafa uppi hernaðarað-
gerðum gegn stjórn Rhódesíu.
Kaunda tilkvnnti þetta i útvarps-
Framhald á bls 22.
Tvísýnustu kosningar
í sögu ísraels í dag
Tel-Aviv, 16. maí. Reuter-AP
Þingkosningarnar 1 Israel, sem
fram fara í dag, eru taldar verða
hinar tvfsýnustu í sögu landsins.
Sfðustu skoðanakannanir benda
til, að stjórnarflokkurinn f
landinu, Verkamannaflokkurinn,
og hægriflokkurinn, Likud, séu
nær hnffjafnir hvað fylgi snertir,
en að Likud hafi þó örlítið for-
skot. Er talið að úrslitin kunni að
ráðast á atkvæðum hermanna,
sem staðsettir eru í Sinaieyði-
mörkinni og Golanhæðum og er
ekki gert ráð fyrir að talningu
þeirra atkvæða verði lokið fvrr en
seint á morgun, miðvikudag.
2.2. milljónir Israela eru kjör-
gengar i kosningunum og er gert
ráð fyrir að um 80% neyti at-
kvæðisréttar sins. Skoðana-
kannanir benda til, að hvor
flokkur muni fá 38—39 þingsæti
af 120, sem er langt frá því að
vera meirihluti og þvi rnyndi sá
flokkurinn, sem fleiri sæti fær,
verða að snúa sér til smærri
flokka til að mvnda samsteypu-
stjórn. Verkamannaflokkurinn
Framhald á bls 22.