Morgunblaðið - 17.05.1977, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 17.05.1977, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAl 1977 i Úthaldsgóðir bæjarfulltrúar I sjónvarpsþættinum Mað- ur er nefndur, þar sem rætt var við Bjarna Þórðarson, fyrrum bæjarstjóra í Nes- kaupstað, var því haldið fram að Bjarni hef.ði setið allra manna lengst í bæjar- stjórn hér á landi eða í 40 ár nú i janúar nk. Bjarni er þó ekki einn um þetta þvi að annar maður, Stefán Jóns- son, einn af bæjarfulltrúum sjálfstæðismanna í Hafnar- firði hefur setið nákvæm- lega jafnlengi i bæjarstjórn þar. Stefán Jónsson Útlánaaukning næstu 4 mán. takmörkuð \ið 4% ÚTLÁN banka og sparisjóða mega ekki aukast um meira en 4% á næstu fjórum mánuðum, ef takast á að halda útlánaaukningunni frá áramótum við 16,3% I lok ágústmánaðar, eins og markið var sett fyrr á árinu. Þá var útlánamarkið fyrstu fjóra mánuðina sett við 6—7% útlánaaukningu, en aukning útlána annarra en endurseldra afurða- lána frá áramótum til aprflloka varð rösk 12%. Þegar forráðamenn banka og mánaðanna séu jafnan mótaðar af sparisjóða mótuðu útlánastefnuna árstíðabundinni lánsfjárþörf Strauk af skipi á Kanaríeyjum ÞEGAR m.s. Álafoss, eitt af skipum PHmskipafélags íslands, hafði viðkomu á Kanaríeyjum fyrir nokkr- um dögum hvarf einn af skipverjum þar frá borði og kom ekki fram þegar skipið blés til brottfarar. Að sögn forsvarsmanna Eimskipafélagsins er talið fullvíst að maðurinn hafi strokið. Maður þess hafði fyrr á árum verið i siglingum á norskum skipum en hafði um skeið starfað hjá Eim- skipafélaginu og hafði íslenzkt vegabréf. Hann fór af skipinu í leyfisleysi og kom síðan hvergi fram. Haldið var uppi spurnum um manninn hjá yfirvöld- um á Kanaríeyjum og hjá íslenzka ræðismanninum þar, þar sem í fyrstu var óttazt um hann. Síðar hefur komið á daginn, að maðurinn hefur strokið frá borði, því að Eimskipa- félagið hefur fengið staðfestingu á því hjá norskum yfirvöldum að maðurinn hafi komið á skrifstofu norska ræðis- mannsins á Kanaríeyjum og beðið þar um lán til að komast til Noregs. snemma á þessu ári, var markið sett við 19% útlánaaukningu á ár- inu að frádregnum endurseldum afurðalánum. 1 frétt Seðlabankans um útkomuna fyrstu fjóra mánuð- ina segir, að útlánastarfsemin dreifist aldrei jafnt á allt árið, heldur gæti þar sveiflna vegna árs- tiðabundinna framleiðslustarf- semi atvinnuveganna og breyti- legs útflutnings og annarrar við- skiptaveltu einstaka mánuði árs- ins. Segir að útlánatölur fyrstu Brendan kominn út fyrir 200 mílurnar SKINNBÁTNUM Brendan hefur miðað ágætlega undanfarna daga og var hann í gærmorgun staddur um 220 sjómílur suð-vestur af Reykjanesi. Var allt i lagi um borð. sjávarútvegsins á vetrarvertíð. Á fundi forráðamanna banka og sparisjóða, þar sem reynsla fyrstu fjögurra mánaðanna var rædd, var framangreind stefna um hámark útlánaaukningar á árinu í heild áréttuð, þannig að þar sem veru- lega var farið yfir strikið fyrstu fjóra mánuðina verður að tak- marka útlánaaukninguna við 4% næsta tímábil, sem eru fjórir mán- uðir, eins og það fyrsta. Sauðburður í kulda og gróðurleysi á öllu landinu: Eitt kaldasta og versta vor í manna minnum segja bœndur á Norð-A usturlandi SAUÐBURÐUR er nú hafinn um land allt en bændur eiga víða við erfiðleika að etja vegna þess hversu seint hefur vorað. Heita má að hvergi sé gróðurnál að finna, kuldar hafa gert mönnum erfitt fvrir og á Norð-Austurlandi er jörð enn alhvít. í samtölum við bændur og ráðunauta búnarar- sambanda á Norð-Austurlandi Hann er heldur kaldur og hráslagalegur heimurinn, sem mætir lömgunum þessa dagana er þau fæðast. Ljósm. Mbl. Ól. K. Mag. sögðu þeir, að þetta vor væri með köldustu og verstu vorum, sem menn mvndu þar um slóðir. Þar sem annars staðar á landinu v.erða bændur að láta fé sitt bera inni og fé er að mestu enn á gjöf. Um helgina hlýnaði nokkuð um land allt en að sögn Knúts Knudsens, veðurfræðings, má gera ráð fyrir að veðrátta á næstu dögum verði suð-austlæg og fari hlýnandi. Á Veðurstofunni fékk blaðið þær upplýsingar, að snjór væri nú yfir öllu allt frá utanverðum Eyjafirði og austur um til Fljóts- dalshéraðs. Á láglendi er þó sum- staðar flekkótt jörð en í innsveit- um og á fjöllum á þessu svæði eru snjóþyngsli. Að sögn veðurfræð- inga hefur þetta vor verið mun svalara en í venjulegu árferði. Þannig var meðalhitinn einni til tveimur gráðum lægri i aprílmán- uði en í meðalári. Mai byrjaði með hlýindum um sunnanvert iandið en í síðustu viku kólnaði verulega og nú hefur hlýnað aftur eins og fyrr sagði. Ari Teitsson, ráðunautur á Brún í Reykjadal, sagði að þar um Framhald á bls. 22 Hagnaður af einvígi Spasskys og Horts Það liggur nú Ijóst fyrir að hagnaður verður af áskorendaein- vfgi skákmeistaranna Horts og Spasskys en óvfst er hve mikill hann verður. Þetta kom fram á aðalfundi Skáksambands Islands, sem haldinn var á laugardaginn. Tekjur af áskorendaeinvíginu námu 12,5 milljónum króna. Einnig varð hagnaður af rekstri Skáksambandsins og nam hann 200 þúsund krónum. 1 skýrslu forseta Skáksam- bandsins kom fram, að starfsemi þess var blómleg s.l. starfsár og ber þar hæst áskorendaeinvígið, þátttöku í Olympíumótinu í Israel og starf við skipulagsmál. Fram- undan er svo Norðurlandamót, sem haldið verður í Finnlandi 22.— 31. júlí n.k. Það gerðist markverðast á aðal- fundinum, að samþykkt voru ný lög fyrir Skáksamband Islands og einnig ný skáklög. Einar S. Einarsson var einróma endurkjörinn forseti Skáksam- Banaslys á Akranesi BANASLYS varð á Akranesi s.l. föstudag. Sex ára dreng- ur, Stefán Orri Ásmundsson, Ileiðarbraut 19, Akranesi, varð fyrir grjótflutningabíl og beið bana. Slysið gerðist skömmu fyr- ir klukkan 14 síðdegis. Grjótflutningabifreiðinni var ekið eftir Suðurgötu í átt að höfninni. Drengurinn litli hjólaði út á götuna og skall harkalega á hlið bílsins og er talið að hann hafi látizt sam- stundis. bands Islands og í stjórn voru endurkjörnir Högni Torfason, Þráinn Guðmundsson og Guð- bjartur Guðmundsson. 1 stjórnina voru einnig kjörnir Þorsteinn Þorsteinsson, Björn Halldórsson og Gísli Árnason. I varastjórn voru kosin Sigfús Kristjánsson, Kristín Guðjohnsen og Haraldur Blöndal. Með sjúka stúlku frá Grænlandi Skíðaflugvél frá Græn- landi lenti á Reykjavíkur- flugvelli á sunnudagskvöld og flutti 12 ára telpu, sem fengið hafði alvarlegt botnlangabólgukast. Var hún þegar um kvöldið skorin upp í Borgar- spítalanum og var líðan hennar góð í gær. Flugvélin hafði verið send frá Góðvon til að sækja stúlkuna til austurstrandarbæjarins Scores- bysunds. Þegar vélin var á leið aftur til baka yfir Grænlands- jökul var þar svo slæmt flugveður að ákveðið var að snúa við og flytja telpuna til Reykjavíkur. O' INNLENT Friðunaraðgerðir: Leyfi til spærlings- veiða afturkölluð Skyndilokun á Vopnafjarðargrunni SJÁVARUTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur afturkallað leyfi til spærlingsveiða, þar sem í Ijós hefur komið, að innan afla bátanna hefur verið mikið af lýsu, humar og sfld. Allmargir bátar höfðu sótt um leyfi til spærlings- veiða en voru þó ekki allir farnir af stað. Bátarnir sem byrjaðir voru héldu sig hins vegar á stóru svæði allt frá Vestmannaeyjum og austur í Iireiðamerkurdýpi og á öllu þessu svæði slæddist mikið af framangreindum tegundum með spærlingsaflanum, svo að nauðsynlegt var talið að afturkalla þessi veiðileyfi. Þá var í gær tilkynnt af hálfu eftirlitsmanns um borð í fiski- Hafrannsóknastofnunar að ákveð in hefði verið skyndilokun á svæði á Vopnafjarðargrunni. Var þessi ákvörðun tekin að tillögu skipi á þessum slóðum, þar sem í ljós kom, að mikið af smáfiski barst upp með aflanum. Lokunin gildir næstu sjö daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.