Morgunblaðið - 17.05.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAl 1977
Rannsókn er haldið áfram á orsökum þess, að eldfimt
leysiefni lak út í vörurými Flugleiðavélar í síðustu
viku. Eins og Mbl. hefur skýrt frá, er talið að mistök
sendanda og svo aðgæzluleysi hleðslumanna hafi
valdið lekanum og á myndinni er Skúli Jón Sigurðar-
son, deildarstjóri hjá Loftferðaeftirlitinu, með einn
af brúsunum átta, sem i flugvélinni voru og á
borðinu sést einn trékassanna, sem brúsarnir voru í,
en þeir voru tveir og tveir í kassa.
Ljósm. Mbl. Kristinn.
Önnur Esjuganga Ferðafélags fslands var sl. laugardag.
Tóku 320 manns þátt f göngunni, fólkið var á aldrinum 5
til 76 ára, og að lokinni göngunni fengu allir viðurkenn-
ingarskjal sem staðfestingu á að viðkomandi hefði geng-
ið á Esju. Á meðfylgjandi mynd sést hvað Tómas Einars-
son, fararstjóri, afhendir Davfð Ólafssyni, forseta F.í,
viðurkenningarskjalið.
Um helgina var haldin i Siglufirði afmælishátíð
Siglufjarðarkirkju, en liðin eru 45 ár síðan hún var
byggð. Af því tilefni voru samankomnir í Siglufirði 6
af 7 prestum, sem þjónað hafa við kirkjuna. Með-
fylgjandi mynd var tekin í kaffiboði, sem Systrafélag
kirkjunnar stóð að og á myndinni eru prestarnir 6.
Talið frá vinstri, Óskar J. Þorláksson, Kristján
Róbertsson, Ragnar Fjalar Lárusson, Rugnvaldur
Finnbogason, Birgir Ásgeirsson og Vigfús Þór Árna-
son, núverandi sóknarprestur.
Ljósm. Steingrímur Kristinsson.
Sumar '11
Tízkuverzlunin Guörún
Rauöarárstíg 1, sími 15077
• Frá Lapidus
of Sveden
• Síðbuxurog
blússur í settum
• Danskar
síðbuxur,
Ijósir litir
• Danskar blússur
og mussur
• Franskir
bómullarbolir
• Irskirhandunnir
prjónakjólar
• Síðirog hálf
síðir kjólar úr
léttum efnum
rncziczLJ
KR 51.000
Pappírsstrimill
Ljósaborö
12 stafa útkoma
Atriðisteljari
Subtotal
Total &
Grand total.
Afrúnnun
Fjögurra lykla
minni
Konstant fyrir
margföldun
og deilingu
Margar
aukastafa-
stillingar
Valborös-
minni
Stórir
ásláttarlyklar
Hljóðlaus milli
útreikninga
TIMAÚTREIKNINGUR
Mjög hentug fyrir launaútreikninga, gefur útkomu í klst., mín. og sek.
KJARAIM hf
skrifstofuvélar & verkstæöi - Tryggvagötu 8, sími 24140