Morgunblaðið - 17.05.1977, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 17.05.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAl 1977 7 r Víkingur til Selfoss í Morgunblaðinu sl. laugardag er skýrt frá því, að sælgætisgerðin Vfkingur sé að undir- búa flutning sinn frá Reykjavík til Selfoss. Er fyrirtækið sagt undirbúa byggingu 1200 fermetra stál- grindarhúss á Selfossi og stefna að því að starf- semi þess verði komin þangað f lok þessa árs. Ýmsar ástæður eru tilgreindar fyrir þess- um flutningi, svo sem góð staðsetning frá markaðssjónarmiði, góðar samgöngur og framboð á vinnuafli. Þessar aðstæður ættu þó ekki að vera sfðari á sjálfu höfuðborgar- svæðinu. Tvennt annað er sagt komi til: 1) lóða- kostnaður, sem væri mun minni á Selfossi en f Reykjavík, og 2) betri lánafyrirgreiðsla — og er þar byggðasjóður sérstaklega tilgreindur. Báðar þessar tilgreindu orsakir eru fhugunar- efni. Á það hefur verið bent ítrekað hér í Morgunblaðinu að íbúa- fjölgun hér f Reykjavík hefur um nokkurt ára- bil verið undir lands- meðaltali, meðaltals aukning launatekna hægari en gengur og gerist annars staðar á landinu, samhliða þvf sem atvinnutækifæri, eða fjölbreytni atvinnu- tækifæra, vaxa ekki mjög ört. Ekki er ráð nema f tfma sé tekið, segir mál- tækið. Og það er áreiðanlega tfmabært að hyggja að þvf, sem kalla mætti aðlöðunar- aðgerðir fyrir atvinnu- rekstur hverskonar innan borgarmarkanna. Það hefur verið lenzka, sérstaklega róttækra afla, bæði innan og utan borgarstjórnar, að varpa rýrð á atvinnu- rekstur (atvinnu- sköpun) og leggja steina f götu hans. Sé of langt gengið f neikvæð- um viðbrögðum af slíku tagi getur það leitt til samdráttar f atvinnu- tækifærum almennings og jafnframt til tekju- rýrnunar borgarsjóðs. Það er þvf sameiginlegt hagsmunamála borgar- búa og borgarinnar að búa þann veg í haginn fyrir hvers konar heil- brigðan og arðbæran atvinnurekstur, hvort heldur sem er á sviði framleiðslu eða þjón- ustu, að hér megi áfram rfkja gróska í atvinnu- lffi, sem er forsenda at- vinnu- og afkomu- öryggis borgaranna. Þorskurinn þyngstur á metum Sjávarafurðir hafa löngum skipað önd- vegið í gjaldeyrisöflun þjóðarinnar og raunar spannað allt að níu tfundu að verðmæti f út- flutningi okkar. Þar af hefur þorskurinn verið langdrýgstur, raunar margfaldur að verð- mæti á við aðrar fisk- tegundir samanlagðar. Það er þvf ekki að til- efnislausu að horft er með ugg fram á þær hættur, sem blasað geta við þessari þjóð, ef svo fer með þorskstofninn sem fór með sfldar- stofninn á sfnum sfma. Hér verður naumast lifað menningarlffi né haldið uppi velferðar- þjóðfélagi, nema svo takist 'til, sem að var stefnt nrieð útfærslum fiskveiðilandhelgi okk- ar og fiskverndaaðgerð- um f kjölfar þeirra, að helztu nytjafiskar, og þá fyrst og fremst þorskurinn, nái eðli- legri stofnstærð á ný. Aldrei í sögu sjó- sóknar okkar hafa verið gerðar margþættari að- gerðir til verndar fisk- stofnum okkar en sfð- ustu misseri. Hin stóra, nýja landhelgi hefur verið nær hreinsuð af erlendri veiðiásókn. Al- friðuð svæði (hryggningar- og upp- eldissvæði) hafa verið stækkuð verulega og skyndifriðunum beitt í ríkara mæli en nokkru sinni fyrr. Reglur um veiðarfæri (möskva- stærð) hafa verið hert mikið. Ljóst er þó að enn þarf að herða aðhaldsaðgerðir, ef ekki á að stefna f óefni, að dómi fiskifræðinga. Eru mál þessi öll f vendilegri athugun sjávarútvegsráðuneytis og sérfræðinga á þess vegum. En spurning er, hvort ekki sé tfmabært að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi, ekki sízt sjómenn sjálfir, beiti sér fyrir þeirri þjóðar- samstöðu og þjóðar- vakningu, sem virðist óhjákvæmileg forsenda þess að samstillt þjóðar- átak til fiskverndar beri tilætlaðan árangur til hags og heilla sjávar- útvegi og efnhagslegri velferð þjóðarinnar á næstu áratugum. ffl ^VHH H^HJIfli HÆHHIH I IgJljm ■ 1 • • • með alla okkar starfsemi að Smiðshöfða 23, föstudaginn 20. maí og verður því lokað þann dag. Opnum aftur mánudag 23. maí í hinum nýju húsakynnum. Slmar okkar eru: Skrifstofa 81299 Sölumenn 81264 — Varahlutir 81265 Verkstæði 81225 BÍLABORG HF. E. TH. MATHIESEN H. DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SÍMI 51888 --------------\ ESTRATFORD E N S K I R PENINGASKÁPAR þjófheldir — eldtraustir heimsþekkt — viðurkennd framleiðsla. Sumardvalarheimili Sjómannadagsins tekur til starfa þann 1 1 . júní fyrir börn á aldrinum 6 — 9 ára. Allar uppl. í síma 42338 frá þriðjudegi til föstudags milli kl. 1 —4. Nefndin. Sumarbúðir K.F.U.K. Vindáshlíð Dvalarflokkar sumarið 1977. 7. flokkur 21. júli — 28. júlí 14—1 7 ára. Innritun alla daga á skrifstofunni Amtmannsstíg 2B sími 1 7536. Fullnýtið hjólbaiðana Sólum flestar gerðir hjólbarða. Margra ára reynsla í heitsólun og önnumst nú einnig kaldsólun. Höfum jafnangott úrval nýrra og sólaðra hjólbarða. Alhliða hjólbarðaþjónusta í rúmgóðu húsnæði. Leitið fyrst til okkar. Góð póstkröfuþjónusta. GUMMi IVINNU STOFAN Skipholti 35, Rvík. Sími 31055

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.