Morgunblaðið - 17.05.1977, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1977
13
Auðbrekka 61 I Kópavogi, þar sem áformað er að Rannsóknarlögregla rlkisins verði til húsa.
Rannsóknarlögregla
sett á rangan stað
ÞAÐ ER nú liðinn drjúgur tími
síðan skýrt var frá áformum
ríkisvaldsins að koma hinni ný-
stofnuðu Rannsóknarlögreglu
ríkisins fyrir í iðnaðarhverfi i
Kópavogi. íslendingar eru
venjulega fljótir fram á ritvöll-
inn þegar upp koma mál, þar
sem sitt sýnist hverjum, en svo
undarlega vill til að enginn hef-
ur kvatt sér hljóðs um staðarval
Rannsóknarlögreglunnar nýju.
Er þó hér um að ræða framtið-
arval stofnunar, sem ótrúlega
margir íslendingar og þá ekki
sist Reykvíkingar þurfa að hafa
samskipti við á komandi árum.
Þessar fáu línur eru hér fram-
settar til að hreyfa við máli,
sem alltof fáir virðast hafa gert
sér grein fyrir hvers eðlis er.
Frumvarpið um Rannsóknar-
lögreglu ríkisins var undirbúið
i skugga óupplýstra sakamála,
sem hvildu eins og mara á þjóð-
inni. Við afgreiðslu frumvarps-
ins á Alþingi töluðu þingmenn
mjög um nauðsyn þess að hafa
hér vel búna rannsóknarlög-
reglu og hæfa rannsóknarlög-
reglumenn og formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins,
Þórarinn Þórarinsson, gat þess
í þinglok að hann teldi frum-
varpið eitt hið merkasta, sem
afgreitt var á siðasta þingi. i
frumvarpinu er við það miðað,
að Rannsóknarlögregla ríkisins
taki til starfa í Reykjavfk hinn
1. júlí n.k. Því er ekki að neita,
að undirbúningurinn fór vel af
stað.
Hæfur maður var ráðinn til
að stjórna stofnuninni og hóf
hann strax að undirbúa starfið.
Fyrsta málið var að finna hent-
ugt húsnæði og er vist óhætt að
segja að flestum, sem til
þekktu, hafi brugðið i brún
þegar ákveðið var af ráðu-
neytismönnum að kaupa húsið
Auðbrekku 61 i Kópavogi fyrir
stofnunina. Er undirrituðum
kunnugt um að þetta var gert
gegn eindregnum vilja rann-
sóknarlögreglustjórans Hall-
varðs Einvarðssonar og lög-
reglumanna við rannsóknarlög-
regluna í Reykjavík, en þeir
munu væntanlega starfa við
hina nýju stofnun. Bentu þeir á
gild rök máli sínu til stuðnings
en á þaj var ekki hlustað í ráðu-
neytunum.
Undirritaður blaðamaður
hefur ritað lögreglufréttir í
Mbl. siðastliðin 3 ár, og hef ég á
þessum tíma kynnst vel störf-
um rannsóknarlögreglumanna.
Stærsti þátturinn i starfinu er
skýrslutökur vegna þeirra
margvislegu mála, sem þeir fást
við. Árlega eru teknar skýrslur
af þúsundum manna, og hefur
reynzt nógu erfitt að fá fólk til
að mæta til yfirheyrslu í núver-
andi húsakynni í Borgartúni.
En við hverju má þá búast þeg-
ar boða þarf fólk i iðnaðar-
hverfið við Auðbrekku? Þang-
að er erfitt að rata fyrir ókunn-
uga og þangað eru strjálar ferð-
ir almenningsvagna. Þetta hef-
ur verið helzta röksemd rann-
sóknarlögreglumannanna, enda
má við þvi búast að stærsti
hluti þeirra, sem samskipti
þurfa að eiga við stofnunina
séu Reykvíkingar. Fyrir þá og
alla aðra, sem leita þurfa til
Rannsóknarlögreglu rikisins
væri bezt af stofnunin væri
miðsvæðis í Reykjavik, enda er
tiltekið í lögunum að stofnunin
skuli vera þar. Má furðulegt
teljast að kjörnir fulltrúar
Reykjavíkur í borgarstjórn og á
Alþingi skuli ekki hafa látið frá
sér heyra um þetta mál.
Ennfremur hefur verið bent
á það, að þær slofnanir aðrar
innan lögreglu- og dómkerfis-
ins, sem Rannsóknarlögreglan
þurfi að hafa mest samskipti
við séu í Reykjavik og hafa
starfsmenn þeirra látið i ljós
óánægju með staðarvalið, t.d.
lögreglumenn við Reykjavikur-
lögregluna. Fleiri rök mætti
nefna gegn Auðbrekkuævintýr-
inu en það verður ekki gert að
þessu sinni. heldur itrekað að
þessi skrif eru fyrst og fremst
til þess að hreyfa við þessu
máli. Það er ekki orðið of seint
fyrir yfirvöld að snúa frá þeirri
glópsku að hola Rannsóknarlög-
reglu rikisins niður i iðnaðar-
hverfi i Kópavogi.
En það er fleira sem veldur
áhyggjum en staðarvalið. Þegar
þetta birtist á prenti eru 10
dagar þangað til umsóknar-
frestur rennur út urn fleslar
stöður við hina nýju stofnun.
Þýzki lögreglumaðurinn Karl
Schutz lét þess getið i vetur, að
hann hefði hvergi kynnst jafn
duglegum en lágt launuðum
rannsóknarlögreglumönnum og
hér á landi og stjórnmálamenn
lfafa haft á orði, aö nauðsyn sé
aö launa lögreglumenn betur.
En þrátt fyrir þessi fögru orð
hafa yfirvöld engar upplýsing-
ar viljað gefa um það hvaða
laun tilvonandi starfsmenn
Rannsóknarlögreglunnar eigi
að fá. Hefur sá ótti læðst að
mönnum, að lögreglumenn og
dómarafulllrúar eigi að búa við
sömu launakjör og áður, laun
sem að dómi undirritaðs eru
fáránlega lág. Ef sá veröur end-
irinn verður það vafalaust of-
aná að flestir af hæfustu starfs-
mönnunt Rannsóknarlögregl-
unnar í Reykjavík snúi sér að
öðrunt störfum, sem eru jafn
vel eða betur launuö og ekki
eins krefjandi. Fer þá væntan-
lega rnesti glansinn af hinu
nýja „óskabarni", Rannsóknar-
lögreglu rikisins, þegar hún
tekur til starfa með reynslu-
lausu fólki i iönaðarhverfinu i
Kópavogi.
Reykjavik, 15. maí.
Sigtryggur Sigtryggsson
blaðamaður.
aVVINNUVÉLAR
Beltaskurðgröfur
4 stærðir
Liðstýrðar mokstursvélar
4 stærðir
Hjólskurðgröfur 4 stærðir
verksmiöjurnaríBretlandi eru stærstu vinnuvélaframleiöendur
íEvrópu á sínu sviöi. vinnuvélarhafa veriö ínotkun hérálandi
íáraraöirog ernú fjöldiþeirra á annaö hundraö. Sú reynsla, sem
fengist hefurá þeim tíma, hefirsýnt og sannaö ágæti
Viö getum útvegaö nokkrar vinnuvélarmeö tiltölulega
stuttum afgreiöslutíma, efsamiö erstrax.
Vinsamlegast hafið samband
við sölumenn okkar ívéladeild
Beltamokstursvélar 3 stærðir
Globus?
Lágmúla 5 simi 81555